Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987
Arnarflug:
Tap síðastliðins árs
um 120 milljónir króna
Sljórnin hyggst auka hlutaféð um 130 milljónir króna
TAPREKSTUR Arnarflugs á
síðastliðnu ári var nálægt 120
milljónum króna, og hefur stjórn
félagsins því ákveðið að kalla
saman hluthafafund félagsins
fimmtudaginn 5. febrúar næst-
komandi og leggja til við hlut-
hafa að heimilað verði að hækka
hlutafé um allt að 130 milljónir
króna, samkvæmt upplýsingum
Harðar Einarssonar, stjórnar-
formanns Amarflugs. Verði það
samþykkt, þá verður hlutfé fé-
lagsins, náist hlutafjárloforð
fyrir allri upphæðinni, samtals
230 milljónir króna.
Hörður Einarsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að ástæður
þess að stjómin hefði ákveðið að
leggja til að hlutafé yrði aukið um
80 milljónir króna umfram það sem
fyrirhugað hefði verið væri sú að
taprekstur síðastliðins árs hefði
reynst mun meiri en búist hafði
verið við að hann yrði á miðju
síðastliðnu ári, þegar nýjir stjóm-
endur tóku við félaginu.
„Fyrirtækið var svo miklu verr á
sig komið heldur en menn gerðu
sér grein fyrir og talið var, þegar
við komum að því," sagði Hörður.
„Fyrri stjómendur töldu að tapið á
fyrstu fimm mánuðum ársins í fyrra
væri á bilinu 20 til 25 milljónir
króna, en við sex mánaða uppgjör,
sem við létum gera í júlí, þegar við
tókum við, þá kom á daginn að
tapið fyrrihluta árs var samtals 96
milljónir króna.“
Hörður sagði að nýir stjómendur
hefðu reiknað með að tapið á síðast-
liðnu ári yrði nálægt 60 milljónum
króna, „en samkvæmt bráðabirgða-
tölum þá bendir allt til þess að það
verði nálægt 120 milljónum króna,"
sagði Hörður. Hann sagði að tapið
yrði að langmestu leyti rakið til
þeirra erlendu leiguverkefna sem
félagið réðst í á sl. ári, en frá og
með lokum pílagrímaflugsins í
Alsír, hefði verið horfið frá því að
ráðast í slík verkefni.
Hörður sagðist vera viss um að
þessi tillaga um heimild til hluta-
fjáraukningar yrði samþykkt á
hluthafafundinum og kvaðst hann
auk þess bjartsýnn á að næðist að
safna því hlutafé.
9% hækkun á salt-
fiski í Portúgal
Góðar horfur á sölu saltaðra ufsaflaka
NÝGERÐUR samningur SÍF og kaupenda í Portúgal um sölu á
25.000 lestum af saltfiski á þessu ári færir framleiðendum hér verð-
hækkun að meðaltali upp á 9% miðað við samning síðasta árs.
Hækkanir eru mismunandi eftir stærðar- og gæðaflokkum. Þá eru
taldar góðar horfur á umtalsverðri sölu saltaðra ufsaflaka til Vest-
ur-Þýzkalands og verðhækkunum þar, meðal annars vegna hækkunar
marksins gagnvart krónunni. SÍF flutti á síðasta ári út 27.533 lestir
af saltfisld til Portúgals.
Grindavík:
Stolnum neyð-
arflugeldi
skotið á loft
Grindavík.
NEYÐARFLUGELDUR sást yfir
Grindavík um kl. 21.30 i gær-
kvöldi. Lögreglumenn sáu flugeld-
inn fara á loft og töldu hann koma
úr bænum. Haft var samband við
stjómstöð Slysavamafélagsins og
björgunarsveitina Þorbjöra til ör-
ygg?s.
Flugeldurinn sást einnig frá fynr-
tækinu íslandslaxi, höfninni og frá
báti út af Reykjanesi svo ekki bar
alveg saman um hvaðan hann kom.
Flugvél, sem var skammt undan, var
beðin um að fljúga yfir nágrennið.
Eftir nokkra leit, fundu tveir björg-
unarsveitarmenn staut á grindverki
við leikskólann og var hann enn heit-
ur. Fólk í nágrenninu hafði orðið
vart við að krakkar hlupu þar frá um
líkt leyti og flugeldurinn fór upp.
Lögreglan mun rannsaka málið og
leiða menn getum að því að hér sé
stolinn neyðarflugeldur úr bát, sem
brotist var inn í fyrir áramótin.
Kr.Ben.
Morgunblaðið/Sigurgeir.
Björgunaræfing í Eyjum
Vestmannaeyjum.
TVEGGJA daga námskeiði í slysavöraum og björgunaraðgerðum
fyrir nemendur Stýrimannaskólans í Eyjum lauk í gær. Þátt í
námskeiðinu tóku starfsmenn Landhelgisgæzlunnar, Björgunarfé-
lag Vestmannaeyja og Hjálparsveit skáta. Skátamir reyndu nýjan
björgunarbát á þessari æfingu og reyndist hann mjög vel.
- hkj.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að ekki væri
hægt að meta með nokkurri ná-
kvæmni útflutningsverðmæti þessa
magns til Portúgals. í fyrsta lagi
væri flokkun saltfisksins óviss og í
öðru lagi hefði þetta verið ramma-
samningur upp á 25.000 lestir, en
aðeins samið um verð á helmingn-
um.
Mikil eftirspurn er eftir söltuðum
ufsaflökum í Vestur-Þýzkalandi,
meðal annars vegna minnkandi
framboðs frá öðrum þjóðum. Magn-
ús sagði, að mjög góðar horfur
væru á sölu ufsaflakanna, en ósam-
ið væri við kaupendur í Vestur-
Þýzkalandi. Hækkun marksins
gagnvart krónunni myndi færa
framleiðendum einhveijar hækkan-
ir, þar sem fiskurinn væri seldur
fyrir vestur-þýzk mörk. Á síðasta
ári seldi SÍF 3.028 lestir af ufsaflök-
um til Vestur-Þýzkalands, en árið
1985 1.959.
Stjómendur SÍF eru um þessar
mundir að kynna framleiðendum
samningana við Portúgali, stöðu
söltunar og söluhorfur og ræða
jafnframt við þá ýmis hagsmuna-
mál. Fundimir hafa verið haldnir á
ákveðnum svæðum, sá fimmti af
átta var í Keflavík á fimmtudag,
en Reyðarfjörður, Akureyri og
Vestfirðir eru eftir.
4,8 milljóna kr. hagnaður hjá Áburðarverksmiðjunni:
Skuldir minnkuðu um
160 milliónir króna
Óskað eftir 7% hækkun á áburði
REKSTUR Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufunesi gekk vel á
síðasta ári. 4,8 milljóna króna
hagnaður varð af rekstrinum og
skuldir verksmiðjunnar lækkuðu
um 160 milljónir kr. Árið áður
var 22 milljóna króna tap af
rekstri fyrirtækisins. Gerist
þetta þrátt fyrir að útsöluverð
Afhafsbotni eftir 13 ár
Neskaupst&ð
Vörubíl þennan þurfti að fjarlægja af hafsbotni
þar sem hann var fyrir keijum laxeldisstöðvar-
innar Mánalax hf. Billinn fór í hafið í snjóflóðinu
mikla árið 1974. Að sögn Lindbergs Þorsteins-
sonar kafara, sem kannaði aðstæður fyrir
laxeldisstöðina í haust, var bíllinn á 15 metra
dýpi. Þar voru tveir aðrir bílar en þá þarf ekki
að fjarlægja eins og er. Á myndinni má sjá
hversu illa bUlinn er farinn, þakinn þara og
kuðungum eftir 13 ár í sjónum.
Sigurbjörg
áburðar hafi hækkað mun minna
en almennt verðlag og sala á
áburði dregist saman.
Hákon Bjömsson, forstjóri
Áburðarverksmiðjunnar, sagði að
hjöðnun verðbólgunnar hefði gert
það mögulegt að reka fyrirtækið
hallalaust þrátt fyrir litla áburðar-
verðshækkun og sölusamdrátt. Á
árinu seldi verksmiðjan 60 þúsund
tonn af áburði en 63.200 tonn árið
áður. Þá hefði verið gert átak í
hagræðingu. Við það hefði starfs-
fólki fækkað um 30 á árinu, úr 200
í 170. Einnig hefði iækkandi hrá-
efnisverð komið verksmiðjunni til
góða.
Skuldir Áburðarverksmiðjunnar
voru 640 milljónir kr. um áramótin
en voru tæpar 800 milljónir kr. ári
fyrr. Sagði Hákon að verksmiðjan
hefði haldið að sér höndum í fjár-
festingum og lagt allt kapp á að
greiða niður skuldir.
Stjóm Áburðarverksmiðjunnar
hefur samþykkt að leggja til við
landbúnaðarráðherra að útsöluverð
áburðar verði hækkað um 7% á
milli ára. Stjómendur verksmiðj-
unnar reikna með að framleiðslu-
kostnaður á hvert tonn verði sá
sami á áburðinum sem seldur var
í vor og var á áburðinum í fyrra,
þrátt fyrir áframhaldandi sölusam-
drátt og spá um einhverja verð-
bólgu. Niðurgreiðslur ríkissjóðs á
áburðarverði verða lækkaðar úr 170
milljónum í 120 milljónir kr. á þessu
ári og er 7% hækkun áburðarverðs-
ins til komin vegna þess. Gert er
ráð fyrir að áburðarsalan minnki
um 3 þúsund tonn, úr 60 þúsund
tonnum í 57 þúsund tonn. Þegar
áburðarsalan var í hámarki, árið
1982, var selt 15 þúsund tonnum
meira, eða 72 þúsund tonn af
áburði.
Vegna lækkunar á heimsmark-
aðsverði olíu er framleiðslukostnað-
ur á ammoníaki hjá Áburðarverk-
smiðjunni 15—20% hærri en á
innfluttu ammoníaki. Verksmiðjan
framleiðir ammoníakið með raforku
en erlendis er framleiðslan hluti af
olíuiðnaðinum. Þetta hefur valdið
vanda hjá Áburðarverksmiðjunni
að sögn Hákons. Hann sagði að
stjómendur verksmiðjunnar hefðu
átt viðræður við Landsvirkjun um
þetta mál. Vildu þeir að raforku-
verð til framleiðslunnar tæki mið
af ammoníaksverði, en ekki heims-
markaðsverði á áli eins og nú er
og var hann bjartsýnn á að sam-
komulag næðist.
Eldur í bíl
í Kópavogi
SLÖKKVILIÐIÐ í Reybjavik var
kvatt út kl. 22.40 í gærkveldi.
Tilkynnt var um eld í bíl við Álfa-
tún í Kópavogi.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang stóð tjörureykstrókur upp í
loft að sögn eins slökkviliðsmann-
anna og eldur kominn í þak bflskýl-
is, sem bifreiðin stóð innundir.
Bíllinn var alelda og loftið í bflskýl-
inu. Gekk fljótt og vel að ráða
niðurlögum eldsins, en bfllinn sem
er gamall jeppi er talinn gjörónýt-
ur. Auk þess urðu einhveijar
skemmdir á lofti bflskýlisins og
gluggum og rúðum hjólreiða-
geymslu við hlið skýlisins. Eldsupp-
tök eru ókunn, en bifreiðin var ekki
á skrá.