Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 27

Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987 27 Starfsfólk Veitingahallarinnar við þorrahlaðborðið Þorramatur í Veitingahöllinni VEITINGAHÖLLIN hefur nú á boðstólnum þorramat og var fyrst boðið upp á hann um siðustu helgi. Þorramaturinn verður eingöngu á matseðlinum um helgar út þorrann. Á þorrahlaðborði Veitingahallar- innar eru yfir 30 tegundir. Jafn- framt er boðið upp á annan mat, en ekki þarf að panta borð fyrir- fram. Þorrakvöldin hefjast um helgar kl. 17.30 og fá bömin ókeyp- is kjúklinga. Starfsmenn Garn-gallerís, þær Edda Strange til vinstri og eigandinn Guðrún K. Þorbergsdóttir. Eigendaskiptí á Garn-gallerí NÝLEGA urðu eigendaskipti á versluninni Garn-gallerí, Skóla- vörðustíg 20. Guðrún Þorbergs- dóttir tók við rekstri verslunar- innar af Erlu Eggertsdóttur sem er útgefandi að tímaritinu Lopi og band. Gam-gallerí selur m.a. ítalska tískugamið Casa Fendi. Er það fá- anlegt úr ull, mohair, viskos og bómull. Verslunin selur einnig burstaða ull frá Ret og vrang í Danmörku. Auk þessa er íslenski lopinn frá Gefjun og Álafossi fáan- legur í Gam-gallerí. Guðrún Þorbergsdóttir hefur hannað nýjar uppskriftir úr ítalska Casa Fendi gaminu og fást þær í Gam-gallerí en birtast einnig í tímaritinu Lopi og band. Gam- gallerí hefur einnig á boðstólum prjónauppskriftir frá Gefjun og Ála- foss. Gam-gallerí veitir póstkröfuþjón- ustu um land allt auk þess sem hægt er að panta handprjónaðar peysur. Morgunblaðið/Theodór Nýkjörin stjórn Lionessuklúbbsins Öglu Borgamesi, frá vinstri: Þóra Þorkelsdóttir gjaldkeri, Hanna Carla Proppé ritari, Þóra Björgvins- dóttir formaður, Jóhanna L. Jónsdóttir varaformaður, Ása Baldurs- dóttir og Ingibjörg Hargrave meðstjórnendur. Lionessuklúbbur í Borgarnesi Borgarnesi. NÝLEGA stofnuðu 26 konur í Borgarnesi Lionessuklúbb. Mun þetta vera þrettándi Lionessu- klúbburinn sem stofnaður hefur verið á landinu. Markmið klúbbsins mun vera að starfa með Lionsklúbbi Borgamess að þjónustuhlutverkum hans og að veita konum tækifæri til að vinna að velferðarmálum. Ýmsar hug- myndir voru uppi um nafn á klúbbinn. Komu fram hugmyndir eins og Brák, Borg og Baula en að lokum hlaut klúbburinn nafnið Lionessuklúbburinn Agla. Formað- ur Öglu var kosin Þóra Björgvins- dóttir. - TKÞ Ný aðferð við inn- heimtu stöðu- mælasekta TEKIÐ verður í notkun nýtt fyr- irkomulag í sambandi við inn- heimtu aukaleigugjalda vegna stöðumæla. í stað grænu miðana, sem settir voru á bifreiðar, er stóðu ólöglega við mælana, verða nú settir giróseðlar undir þurrkublöð bifreiðanna. ■Greiða má aukaleigugjaldið sem er kr. 300 í næsta banka, pósthúsi eða sparisjóði. Ef gíróseðillinn er ekki greiddur innan 7 daga kemur til sektargreiðsla í ríkissjóð sem er kr. 500 og innheimt er af lögreglu- stjóraembættinu. Þetta nýja greiðslufyrirkomulag verður tekið í notkun mánudaginn 2. febrúar nk. Nýja Sýsluhúsið í Búðardal. MorgunblafliS/Kristjana Ágústsdóttir Búðardalur: Hreppsskrif stofan flutt í Sýsluhúsið BúðardaL HREPPSSKRIFSTOFAN í Búð- ardal flutti nýlega i nýtt húsnæði í Sýsluhúsinu svonefnda, hér á staðnum. í tilefni af því var íbúum hrepps- ins boðið til veglegrar kaffidrykkju og til að skoða hið nýja og rúm- góða pláss. Þetta er mjög smekkleg og sérlega góð starfsaðstaða en á skrifstofunni eru tveir starfsmenn, Marteinn Valdemarsson sveitar- stjóri og Anna Nílsdóttir skrifstofu- stúlka. Laxárdalshreppur á ca 40% að eignarhluta í Sýsluhúsinu enda verður héraðsbókasafnið til húsa í byggingunni, ennfremur er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir byggingarfull- trúa. Aðrir aðilar sem að byggingunni standa er Búnaðarsamband Dala- sýslu, Brunabótafélag íslands, auk sýslumannsembættisins. Skrifstofa sýslumanns flutti í nóvember í nýja skrifstofuhúsnæði sitt, sem er á fyrstu hæð. Húsið er ekki allt tilbúið, en búist er við að það geti verið komið í stand næsta sumar, og þá verði lögð áhersla á fegrun og standsetn- ingu lóðar og er það von manna að takist vel til með þær fram- kvæmdir. - Kristjana OFGAR (Extremities) FÁIR LEIKARAR HAFA HLOTIÐ JAFN MIKIÐ LOF FYRIR LEIK í KVIKMYND Á SL. ÁRI EINS OG FARRAH FAWCETT OG JAMES RUSSO „ÞETTA ER STÓRKOST- LEG MYND! SJÁIÐ HANA! ÉG GEF HENNI 10 PLÚS! FARRAH FAWC- ETT HLÝTUR AÐ FÁ ÓSK ARSYERÐLAUNIN. m HÚN ER STÓRFENG- LEG.“ Gary Franklin, ABC. „EIN AF BESTU MYND- UM ÁRSINS Tom O'Brian, Commonweal Magazine. „ÓTRÚLEGUR LEIKUR.“ Walter Goodman, J New York Times. ^ „FARRAH FAWCETT ER STÓRKOSTLEG “ Joy Gould Boyum, F ^ Glamour Magazine. iujfcaL ™ „ENGINN GETUR GENG- ■ IÐ ÚT, ÓSNORTINN. FARRAH FAWCETT Á | ¥ SKILIÐ AÐ GANGA ÚT U MEÐ ÓSKARINN “ Rona Barrett. Joe (James Russo), áleit Marjorie (Farrah Fawcett) auðvelda bráð. Hann að öðru. Þegar honum mistókst í fyrsta sinn, gerði hann aðra atlögu. Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. komst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.