Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987 29 Rætt við Sigurð J. Sigurðsson bæjarfulltrúa um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar: Reynt að ná fram auk- inni festu í rekstrinum Erfiðleikarnir fyrst og fremst slæm lausafjárstaða FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar- sjóðs Akureyrar fyrir árið 1987 var til fyrri umræðu í bæjar- stjórn Akureyrar þriðjudaginn 20. janúar sl. Ráðstöfunartekjur verða 711 milljónir króna og hækka því um 25,3% milli ára. Rekstrargjöld hækka hinsvegar um 34,1% milli ára og stofnkostn- aður um 19%. Verulega hærra hlutfall tekna fer nú i rekstrar- gjöld og gjaldfærðan stofnbún- að. Þetta hlutfall hækkar úr 83,3% i 88,0% af tekjum. TU eignabreytinga er áætlað að veija um 83 millj. kr. Við ákvörð- un tekjustofna var sú breyting gerð að lækka álag á fasteigna- skatt af íbúðarhúsnæði en hækka útsvar, sem verður nú 10,6%. Þetta er fyrsta fjárhagsáætlun nýs meirihluta í bæjarstjórn Ak- ureyrar og ræddi blaðamaður af þvi tilefni við einn af höfundum hennar, Sigurð J. Sigurðsson bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins. Fjárhagsáætlunin verður til síðari umræðu og afgreiðslu á bæjarstjórnarfundi 10. febrúar nk. Sigurður var fyrst spurður, hvað það væri sem hækkaði rekstrarút- gjöld svo mikið. Hann sagði framlög til heilbrigðis- og örorkumála vega þar þyngst og sagði síðan: Sjúkra- tryggingar hækka úr kr. 41.800 þúsund í kr. 67.000 þúsund eða um kr. 25.200 þúsund, sem er 60,3%. Rekstur Heilsugæslustöðvar hækk- ar úr kr. 10.213 þúsúnd í kr. 18.500 þúsund, sem er 81,4%. Þá varð um 7.000 kr. halli á rekstri dvalar- heimilanna á síðasta ári sem ekki var gert ráð fyrir og þar að auki virðist halli á rekstri þeirra geta orðið allt að kr. 10.300 þúsund á þessu ári, ef ekki fæst leiðrétting á daggjöldum. Þá er gert ráð fyrir, að framlag til rekstrar- og stofn- búnaðar Strætisvagna Akureyrar tvöfaldist milli ára og verði nú kr. 7.719 þúsund. Til bygginga verkamannabú- staða er nú gert ráð fyrir að veija kr. 8.500 þúsund, sem er um 79% hækkun frá framlagi síðastliðins árs. Heimilisþjónustan, sem fyrst og fremst er þjónusta við aldraða, hækkar úr kr. 7.488 þúsund í kr. 11.982 þúsund eða 60%. Þar er gert ráð fyrir aukinni þjónustu á kvöldin og um helgar og í því skyni verði starfsmönnum fjölgað." Fjölgnn starfs- fólks bæjarins — Hvað með starfsfólk bæjarins. Er reiknað með mikilli fjölgun þess? Ráðnir hafa verið þrír forstöðu- menn nýrra málasviða, það er forstöðumaður öldrunarþjónustu, sem tók við starfi forstöðumanns dvalarheimilanna. Starf hans felst í að hafa umsjón með dvalarheimii- um bæjarins, heimilisþjónustu, félagsstarfi aldraðra og öðrum þeim verkefnum, er lúta að málefnum aldraðra. Skóla- og menningarfull- trúi hefur ennfremur verið ráðinn. Hans starf er að vinna að skóla- og menningarmálum bæjarins. Þá hefur verið ráðinn starfsmaður til Frá Akureyri. atvinnumálanefndar. Störf hans verða alfarið á sviði atvinnumála bæði hvað varðar stefnumörkun bæjarins í þeim málum og aðstoð við fyrirtæki og einstaklinga. Þá hefur Akureyrarbær nú tekið upp löggilta endurskoðun í samræmi við ný sveitarstjómarlög. Framan- greindar aðgerðir hafa allar við- bótarútgjöld í för með sér.“ — Hvað er af eignabreytingum að segja? „Eignabreytingaliður áætlunar- innar hækkar úr kr. 81.359 þúsund á síðasta ári í kr. 83.148 á þessu ári. Ástæðan fyrir þessum litla mun milli ára er sú staðreynd, að hiut- fall tekna og rekstrargjalda versnar og einnig hitt, að í tölu ársins 1986 vom kr. 16.000 þúsund til þess að mæta aukaútgjöldum á árinu 1984. Því er raunveruleg hækkun liðarins um 26%.“ Sundlaug í Glerár- hverfi, ný brú á Glerá kr. 12.000 þúsund en því fé er óráð- stafað og til vélakaupa kr. 5.000 þúsund Sigurður var spurður hvað væri þyngst á metunum af þessum fram- kvæmdum. Hann svaraði: í fram- kvæmdunum ber mest á framlagi til Verkmenntaskólans, enda er þar um að ræða stærsta verkefnið sem bæjarsjóður glímir við á sviði fram- kvæmda. Sundlaug í Glerárhverfi er það atriði sem athygli vekur. Þar er gert ráð fyrir því að byggja kennslulaug við Glerárskóla, sem nýtist almenningi utan skólatíma. Þá er gert ráð fyrir því, að ný brú verði byggð á Glerá sem tengi sam- an iðnaðar- og hafnarsvæðin á eyrinni. — Heyrst hafa raddir um að þið séuð að draga úr framlögum til íþróttamála. Hvað er hæft í því? Á síðasta ári var ákveðið að veija kr. 41.633 þúsund til íþróttamála. í þessari upphæð er framlag til reksturs og búnaðar íþróttamann- virkja og stuðningur við íþrótta- starfsemi í bænum. Áætlunin 1987 gerir hins vegar ráð fyrir því, að þessi upphæð verði kr. 51.253 þús- und eða samsyarandi 30,3% hækkun milli ára. í tekjulið, til þess að standa straum af þessum rekstri, koma kr. 12.841 þúsund frá skólum og kr. 16.465 þúsund frá félögum og einstaklingum á árinu eða 67,99%. Þessar upphæðir eru hins vegar kr. 17.833 þúsund frá skólum og kr. 19.238 þúsund frá einstakl- ingum og félögum eða 72.33% á árinu 1987. Þar skiptir sköpum hækkuð framlög skóla sem hækk- uðu um 50% milli ára. Fullyrðingar um lækkun til íþróttamála virðast því ekki hafa við nein rök að styðj- ast. Jafnframt hækka framlög til íþróttamannvirkja í nýframkvæmd- um úr kr. 9.700 í kr. 16.400 þúsund eða um 69%.“ Varðandi heilsugæslu- og heil- brigðismál og þjónustu við aldraða sagði Sigurður, að þeir þættir tækju nú hærra hlutfall af tekjum bæjar- sjóðs en fyrr. Athuganir færu nú fram á því, hvort hér væri um eðli- lega skiptingu kostnaðar milli bæjarins og ríkissjóðs að ræða, sérstaklega hvað varðar sjúkra- tryggingamar. Á síðasta ári var ákveðið að verja til þessara mála kr. 78.599 þúsund en áætlunin nú gerði ráð fyrir kr. 130.897 þúsund- um. Hlutfallið hefði því vaxið úr 14,54% af tekjum bæjarsjóðs í 18,4%. Um fjárhagsáætlunina almennt sagði Sigurður J. Sigurðsson að lokum: „í þessari áætlun er reynt að þoka fram þeim málum sem efst eru í hugum bæjarbúa, svo sem auknum framlögum til atvinnuupp- hyggingar, bættra samgangna, eflingar þjónustu við aldraða og sundlaugar í Glerárhverfi. Gerðar hafa verið miklar breyt- ingar á stjómun bæjarmálefna í kjölfar fækkunar nefiida og mála- sviða og verður því verkefni haldið áfram á næstunni. Vonast er til að þetta skili aukinni hagkvæmni í rekstri og greiðari afgreiðslu mála. Þá er reynt með þessari áætlun að ná fram aukinni festu í rekstri. Erfiðleikar bæjarsjóðs em fyrst og fremst þeir, hversu lausafjár- staðan er slæm. Þetta stafar af því, að á síðastliðnu ári átti að veija allt að kr. 30.000 þúsund til þess að laga stöðu bæjarsjóðs vegna mikilla umframútgjalda á árinu Leikf élag Akureyrar: Rauðhærði ridd arinn í kvöld Sigurður sagði, að fjármunum til eignabreytinga yrði varið á eftirfar- andi hátt: Fjórðungssjúkrahús Akureyrar kr. 4.198 þúsund, en það er 15% mótframlag Akureyrarbæj- ar á móti framlagi ríkissjóðs. Síðuskóli kr. 12.000 þúsund til að ljúka II. áfanga. Verkmenntaskól- inn kr. 30.000 þúsund til stjómun- arálmu og fleira. Svæðisíþróttahús kr. 5.000 þúsund, lóð, hús að utan og snyrtingar. Skrifstofubygging kr. 1.000 þúsund. Eyrarlandsstofa kr. 2.550 þúsund. Sundlaug í Gler- árhverfi kr. 11.400 þúsund, til að gera húsnæðið fokhelt, dagvistun LEIKRITIÐ Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari? verður sýnt í kvöld, föstudagskvöld. Engin sýning verður á laugar- dagskvöld að þessu sinni vegna leikfarar til Reykjavíkur, en Leik- félagið sýnir Dreifar af dagsláttu í Reykjavík á laugardag og í Hvera- gerði á sunnudag. Sýningamar á Rauðhærða ridd- aranum hefjast báðar kl. 20.30. 1984. Þetta var lagfært við gerð ijárhagsáætlunar fyrir árið 1985. Staðreyndin er hins vegar sú, að þrátt fyrir þessar aðgerðir hefur staða bæjarsjóðs ekkert batnað, nema síður sé. Þetta má fyrst og fremst rekja til þess, að á síðasta ári urðu útgjöld bæjarsjóðs verulega meiri en gert var ráð fyrir. ÁstæðBr' þessa eru síðan margvíslegar og eiga aukafjárveitingar sinn þátt í því. Það er hins vegar augljost mál, að fá verður fram skýringar á öllum viðbótarútgjöldum bæjarsjóðs . svo hægt sé að gera sér grein fyrir því, hvort ijárhagsáætlun sú sem nú er verið að ganga frá, geti stað- ist í meginatriðum. Það verður ekki við allt ráðið, en það er mikilvægt, að íjárhagsáætlanir verði gerðar raunhæfar svo hægt sé að ná þeim árangri að tryggja traustan íjárhag bæjarsjóðs. Sjónvarp Akureyri DAGSKRÁ Sjónvarps Akur- eyrar í kvöld, föstudagskvöld, er svohljóðandi 19.00 Teiknimynd. Mikki Mús og Andrés Önd. 19.25 Myndrokk. 19.55 Kókaín um víða veröld. Fréttaskýringaþáttur í umsjón Þóris Guðmundssonar. ( þessum þætti verður sýnd mynd frá BBC um eiturlyfið kókaín og hvílíkt vandamál það er oröiö. Ennfremur er sagt frá nýju en náskyldu efni, krakk, sem gerir neytendur sam- stundis háða því. Fylgst er með aögeröunum sem beitt er í barát- tunni við þetta ógnvænlega eiturlyf. 20.40 Dynasty. Bandarískur framhaldsmynda- flokkur með John Forsythe og Lindu Evans í aðalhlutverkum. Krystle uppgötvar að Blake keypti hálsmeniö af veðmangaranum. Blake kemur að Steven í faðmlög- um við vin sinn frá New York. 21.30 Benny Hill. 22.00 Stolt (The Pride of Jesse Hall- am). Bandarísk sjónvarpskvikmynd frá 1984 með hinum sínsæla Johnny Cash ásamt Brendu Vaccaro og Eli Wallach í aðalhluverkum. Jesse er 45 ára ekkjumaður og bóndi í Kentucky. Börn hans eru Ted og Jenny sem á við alvarleg- an sjúkdóm að stríða. Hann neyðist til að selja bóndabýlið og flytja búferlum til borgarinnar svo hún komist í nauðsynlega aðgerð. En Jesse kemst fljótt að raun um, að það er sitt hvað að búa í sveit og stórborg. 23.35 Að skorast undan (Running Out). Bandarisk kvikmynd frá CBS sjónvarpsstööinni. Elisabeth St.Clair giftist 15 ára og varð móðir 16 ára. Ábyrgðin varð henni ofviöa og hún yfirgaf heimiliö. Mörgum árum seinna sneri hún heim aftur. 01.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.