Morgunblaðið - 30.01.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.01.1987, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987 félk í fréttum Þriggja tíma þáttur um Island Frá Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, frettaritara Morgunblaðsins í Freiburg í Vestur-Þýskalandi. ...og ennþá meiri tíska! £ nn einn daginn birtum viö myndir af nýjustu tískunni frá París, enda er ekki ráð nema í tíma sé tekið í þessum málum sem öðrum. I báðum tilvikum er vísað til fyrra tíma, þó að um ólíkar flíkur sé að ræða. Þessi kjóll er mjög' dæmigerður fyrir það sem virðist ætla að verða vinsælast í sumar, hann er þröngur um mittið, miklar axlir, en háls og bringa fá að njóta sín. Þá er pilsfaldurinn tek- inn upp að nokkru með slauf- unni, sem virðist ætla að verða ómissandi hjálpartæki. Kjóllinn er úr blönduðum náttúruefnum, en á klæðið er prentað fjörlegt blómamunstur, án þess þó að lit- irnir séu „æpandi". Það er Frakkinn Ungaro, sem á heiður- inn að þessari flík. Laugardaginn 17. janúar var sendur út í suður-þýska sjón- varpinu þriggja tíma þáttur um ísland. Flestir bjuggust við þætti eins og oft áður hafa verið sýndir hér í sjónvarpinu, þ.e. um Þjóðverja á jeppaferðalagi um hálendi Islands, þar sem áhorfendur geta gaum- gæfilega fylgst með því hversu mikið magn matvæla þeir taka með sér yfír hafið til þess að spara gjald- eyrinn. Sjaldnast hefur hins vegar eitthvað verið sýnt af þjóðinni sjálfri í þáttum sem þessum og auðvelt fyrir áhorfendur að álykta að ís- lendingar séu aðeins tveir; veður- athugunarfólkið á Hveravöllum. Hugmyndir manna breyttust þó eftir að hafa horft á téðan þátt, því lögð varmikil áhersla á að gefa sem gleggsta mynd af mannlífinu. Sjón- varpsmönnum tókst það nokkuð vel, enda var víða komið við. M.a. var talað við forseta Islands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, Albert Guðmundsson, knattspyrnumenn- ina Atla Eðvaldsson og Asgeir Sigurvinsson, Jakob Stuðmann Magnússon og Davíð Oddsson, en sá síðastnefndi útlistaði vinnugleði Islendinga, þar sem þriðji hver maður hefði aukavinnu að aðal- starfi og þætti lítið mál. I framhaldi af fréttum af leið- togafundinum í október sl. var talað við Guðnýju Halldórsdóttur um drauga og hjátrú. Til þess að undir- strika umræðuefnið sat hún ýmist við eða hálf ofan í rjúkandi hvera- ‘pyttum. Til þess að létta þáttinn lék Laddi á als oddi í hvers kyns hlutverkum, en hljómsveitimar Mezzoforte og Stuðmenn komu einnig fram. Höfðu Stuðmenn m.a. snarað einum texta sínum yfir á þýsku til þess að auð- velda menningarsamskipti þjóð- anna. Sú mynd sem Þjóðvetjar hafa fengið af okkur var i alla staði mjög góð. í stuttu máli vorum við að þeirra maci dugleg, falleg (Hófí) og sterk (Jón Páll). Næstum hver fjölskylda hefur tvo bíla til umráða og töluverður fjöldi á hlut í litlum einkaflugvélum. Minnst var á verð- bólguna að örlitlu leyti, en ekki stajdrað við þá umfjöllun. íslendingar hafa það gott að því leyti að þeir eru ekki hijáðir af súru regni, né orðnir geislavirkir. Það er nóg rúm fyrir alla og jafn- rétti karla og kvenna mun lengra á veg komið en í Þýskalandi. Hem- aðarútgjöld okkar eru engin og atvinnuíeysi könnumst við ekki við nema af afspum. íslenskan var úrskurðuð blæbrigðaríkt tungumál og mun léttara en þýskan. Þar höf- um við það. Óhætt er að segja að ísland sé draumaland flestra Þjóðveija, en líkast til er full svalt fyrir þeirra smekk. Það sást a.m.k. vel á um- sjónarmanni þáttarins, því að eftir því sem á leið þáttinn jókst kvef hans og nefmæli. Auk góðra við- bragða við þættinum, má nefna sem dæmi um mikinn áhuga Þjóðveija á íslandi, að þessi þáttur, „Gipfel, Geister und Geysire“, eða „Tindar, draugar og hverir", var sendur út á besta útsendingatíma, á laugar- dagskvöldi frá klukkan átta til ellefu. Laddi var meðal þeirra, sem fram komu í um. Hér íæii)uv nn a't °ö vri'9S®as'£' „ obbolítinn" kafíirjóma út í kaffiö þitt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.