Morgunblaðið - 30.01.1987, Síða 39
39
MORGl) NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987
Ráðist til atlögu við
offituvandamál unglinga
Míinclicn, frá Bergljótu Friðriksdóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
Bandarísk ungmenni í megrunarbúðum í Massachusetts.
Börn og unglingar geta ekki síður
en fullorðnir átt í mestu vandræðum
með línurnar. Raunin er hins vegar sú
að mun algengara er að fullorðnir leiti
úrbóta þegar aukakílóin fara að hrann-
ast upp heldur en ungmenni. Hver
kannast ekki við að hafa heyrt eitthvað
þessu líkt: „Ég hef engar áhyggjur af
holdafari sonar míns/dóttur minnar;
þetta eldist af honum/henni“? Stað-
reyndin er þó sú að mörg börn losna
hreint ekki svo auðveldlega við aukakíló-
in þó að árunum fjölgi. Séu þau ekki
aðstoðuð við að grenna sig í æsku er
nefnilega hætta á því að hinum óþörfu
kílóum fjölgi í réttu hlutfalli við árin.
í Tutzing, sem er ein af útborgum
Múnchen, er rekin ráðgjafarþjónusta á
vegum matvælastofnunar nokkurrar,
þar sem markmiðið er að kenna börnum
á aldrinum 19-16 áragömlum, rétt
mataræði og aðstoða þau við að fjar-
lægja aukakílóin. Er varla vanþörf á því
þar sem að fjórða hvert skólabarn í
Vestur-Þýskalandi vegur of mikið.
Ráðgjöfin fer þannig fram að foreldr-
arnir fylla út eyðublað í samráði við
lækni, þar sem það er tekið fram ef
barnið er haldið einhveiju ofnæmi eða
sjúkdómum. Upplýsingarnar eru sendar
stofnuninni og viðkomanda sendur um
hæl vandlega samansettur matseðill fyr-
ir næstu mánuði. Starfsmenn stofnunar-
innar vita að stöðugt eftirlit er besta
hjálpin og því er börnin látin vigta sig
dag hvern og senda stofnuninni niður-
stöðurnar reglulega. Hálfs árs ráðgjöf
kostar 245 vestur-þýsk mörk (ca. 5.000
krónur íslenskar), eða 1,36 mark á dag
(rúmlega 20 krónur).
Eftirspurn eftir þessari þjónustu er
mikil og hún hefur borið ríkan árangur
að sögn starfsmanna stofnunarinnar.
Antje Heitmann fyrr og nú. Hin mann-
hæðar háa mynd vinstra megin sýnir
hvernig hún leit út áður, en til hægri
sést hvernig hún er í dag, 20 kg síðar.
Ein þeirra sem leitaði aðstoðar stofnun-
arinnar heitir Antje Heitmann og er 14
ára. í maí 1986, áðuren hún fór í megr-
un, vóghún 86 kgog var 1,65 m áhæð.
í dag er hún 3 cm hærri, en 20 kg létt-
ari. Hin 67 kg þunga Antje segist vera
ný og betri manneskja.
Þess má geta í lokin að í Ameríku,
þar sem fjöldi barna á við offituvanda
að stríða, eru reknar sérstakar megruna-
rbúðir fyrir börn og unglinga. I stærstu
og þekktastu búðum, sem er í Massa-
chusetts, greiða foreldrarnir litlar
12.000 krónur íslenskar fyrir hvert kíló,
sem börnin missa í búðunum!
Þennan síðdegiskjól
hannaði Karl Lagerfeld
fyrir Chanel, en hann er
úr svörtu silki, sem nýtur
nú geysilegra vinsælda.
Hatturinn er líklegast
með þeim hólkmestu i ár,
en flestir eru þeir mjög
barðastórir.
Páfinn til Kanada?
J óhannes Páll páfi II tók á
móti Brian Mulroney, forsætis-
ráðherra Kanada, í Vatíkan-
inu, á mánudag og sagði þá
að hann myndi heimsækja
Kanada við fyrsta tækifæri,
því hann hefði lofað kanadísk-
um índíánum fundi er hann
kom til landsins árið 1984.
Vegna slæms veðurs hefði ekki
orðið af fundinum, en hann
væri ákveðinn í því að efna
loforð sitt. Talsmenn Páfa-
garðs sögðu að til greina kæmi
að páfinn færi til Kanada eftir
heimsókn til Bandaríkjanna í
september á þessu ári.
COSPER