Morgunblaðið - 06.02.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
Hylltur að leik loknum
RÚSSNESKI píanósnillingurmn Dmitri Alexeev lék einleik með
Sinfóníuhljómsveit íslands á hljómleikum í Háskólabíói í gær-
kvöldi. Þessa mynd tók Einar Falur, er Alexeev var hylltur af
áheyrendum að leik loknum. Á laugardaginn leikur hann á tón-
leikum á vegum Tónlistarfélagsins. Sjá frétt á bls. 5.
Hraðfrystihús Stokkseyrar:
Greiðslustöðvun
vegna 50 milljón
króna lausaskulda
Heildarskuldir fyrirtækisins losa 200 milljónir en
fyrirtækið á verulegar eiguir umfram skuldir
Selfossi.
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ á Stokkseyri fékk samþykkta þriggja mánaða
greiðslustöðvun síðastliðinn mánudag. Aðalástæðan er erfið lausafjár-
staða fyrirtækisins. Lausaskuldir nema um 50 milljónum en heildar-
skuldir losa 200 milljónir, samkvæmt upplýsingum innan fyrirtækisins.
Mat eigna þess, báta og eigna í landi, er um 300 milJjónir.
Hjá Hraðftystihúsinu eru milli 80 vanda sé tvíþætt. í fyrsta lagi upp-
og 90 manns á launaskrá í landi og
30 sjómenn. í eðlilegri vinnuviku
nema launagreiðslur á vertíðatíman-
um 1,5 - 1,8 milljónum og er þá ekki
inni í þeirri upphæð uppgjör við sjó-
menn umfram kauptryggingu.
Hraðfrystihúsið á 5 báta sem allir
eru í rekstri. Vátryggingarupphæð
þeirra er 130 milljonir og söluverð-
mæti með kvóta ekki undir 200
milljónum. Fasteignir fyrirtækisins á
Stokkseyri eru metnar á 180—190
milljónir. Meðal lausaskulda fyrir-
tækisins eru launatengd gjöld síðan
í september en fyrirtækið skuldar
ekki bein laun nema um 200 þúsund
til sjómanna en sú upphæð verður
greidd strax. Fyrirtækið á endurkröfu
á atvinnuleysistryggingasjóð, sam-
kvæmt janúarsamningunum, á
launum í ftystihúsinu, þegar hráefni
vantaði, allt aftur til september.
Lausaskuldakröfumar eru margar og
eru um 15 þeirra stórar
„Við óttumst ekki gjaldþrot," sagði
Ólafur Óskarsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystihússins. „Það er að fara í
hönd besti timi ársins, vertíðin, og
svo er humarinn í vor. Við erum með
lausn f höndunum á okkar málum og
loforð um fyrirgreiðslu frá Byggða-
stofnun.
Sfigja má að ástæðan fyrir þessum
byggingin á frystiþúsinu eftir
brunann upp úr 1980. Á þessum tíma
var verðbólga mikil og dollari á upp-
leið. í öðru lagi var kippt út 2000
tonnum af hráefni þegar togarinn
Bjami Heijólfsson var seldur en það
er einmitt það sem okkur vantar á
haustin þegar lítill afli berst að. Einn-
ig vom gerðar miklar endurbætur á
bátunum 1985 og þeim haldið áfram
á síðasta ári. Kostnaður við það var
allur tekinn út úr rekstri
Reksturinn hér hefur verið þannig
að það koma inn miklar tekjur á ver-
tíðinni sem fara í að borga skuldir
frá fyrra ári og þessum bolta verður
ekki velt endalaust. Við þurfum að
endurskipuleggja reksturinn þannig
að hann skili okkur tekjum allt árið.
Við ætlum að vinna hratt og vel að
þessu og ljúka því á þeim þremur
mánuðum sem við höfum.
Fólk hér er auðvitað óttaslegið.
Það á a.llt sitt undir því að þetta
gangi. Ég held að við fáum þá sam-
stöðu fólksins sem við þurfum til að
gera þá hagræðingu sem þarf til að
laga reksturinn og ég trúi því að það
náist að gera þetta að góðu fyrirtæki
aftur,“ sagði Olafur Óskarsson fram-
kvæmdasijóri Hraðfiystihússins.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá hluthafafundi Arnarflugs í gær-
kvöldi. Á innfelldu myndinni eru (fv.)
Kristinn Sigtryggsson framkvæmda-
stjóri Arnarflugs, Hörður Einarsson
stjórnarformaður og Axel Gíslason, sem
var fundarstjóri.
Hlutafé Arnarflugs
aukið um 130 m. kr.
Ráðherra heimilar stofnun dótturfyrirtækis um innanlandsflugið
HLUTHAFAR í Amarflugi samþykktu í gærkvöldi tillögu stjómar
félagsins um að auka hlutafé þess um 130 milljónir á þessu ári og
því næsta. Samkvæmt áætlun um rekstur Arnarflugs er gert ráð
fyrir 10 millj. kr. hagnaði á þessu ári og 35 millj. árið 1988. Láta
mun nærri að tap Arnarflugs í fyrra hafi numið um 125 millj.
króna, að sögn Harðar Einarssonar, formanns stjómar félagsins.
Hörður sagði á hluthafafundin-
um að til þess að bjarga félaginu
út úr erfíðleikum þess þyrfti að
koma til talsvert meira fé en gert
var ráð fyrir er nýir hluthaf ar gengu
inn í félagið í fyrra. Auka þyrfti
hlutafé um 105 milljónir á þessu
ári og 25 milljónir árið 1988. Hefðu
nú þegar verið gefin fyrirheit um
60-70 milljónir af þeim 105, sem
þyrftu að koma til á þessu ári.
Hörður sagði ennfremur að sam-
gönguráðherra hefði með bréfí frá
29. janúar fallizt á ósk Amarflugs
um að fá að stofna sérstakt fyrir-
tæki um innanlandsflug félagsins.
Undirbúningur að stofnun dóttur-
fyrirtækisins væri í fullum gangi
og gert væri ráð fyrir að rekstur
þess hæfist í byijun marz. Væri
gert ráð fyrir að rekstur þess bæri
sig en halli hefur verið á innan-
landsflugi Amarflugs.
Velta Amarflugs í fyrra var rúm-
ar 400 milljónir en ætlað er er ráð
fyrir að hún verði um 500 milljónir
í ár. Gert er ráð fyrir aukningu í
farþega- og vöruflutningum á ár-
inu. Áætlunarferðum verður flölg-
að, flogið verður sex daga vikunnar
frá 1. apríl og 1. september nk.
mun Amarflug he§a áætlunarflug
til Evrópu alla daga vikunnar.
Iraninn var sendur
frá Bandaríkjunum
ÍRANINN, sem dvalið hefur hér
á landi síðan i desember, var send-
ur aftur til Tyrklands þegar hann
fór til Bandaríkjanna sl. haust.
Yfirvöld hér á landi taka ákvörð-
un i máli hans í dag.
Eins og komið hefur fram í fréttum
vill íraninn helst komast til Banda-
ríkjanna, þar sem hann á ættingja.
Honum var hins vegar vísað frá
Bandaríkjunum sl. haust, þegar hann
millilenti í Miami á Florida á leið til
Mexíkó. Að sögn Þorsteins Geirsson-
ar, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, var maðurinn þá á leið frá
Tyrklandi og hafði vegabréfsáritun
til Mexíkó. Hann hafði hins vegar
ekki „transit-visa“, sem heimilar
millilendingu í Bandaríkjunum, svo
honum var snúið aftur til Tyrklands.
í desember kom hann hingað til lands
og hitti bróður sinn hér, en sá er
búsettur i Bandaríkjunum. Hefur
maðurinn sagst óttast mjög að eí
hann verði sendur til Tyrklands muni
þarlend yfírvöld senda hann aftur til
íraninn hefur sótt um pólitískt
hæli hér, en verið synjað á þeirri for-
sendu að flóttamenn geti aðeins
óskað hælis í þvf landi sem þeir koma
fyrst til. Er það samkvæmt alþjóðleg-
um samningi um flóttamenn. Þor-
steinn Geirsson sagði að lfklega yrði
tekin ákvörðun í máli íranans f dag,
en brottvísun hans frá Bandaríkjun-
um hefði engin áhrif á meðferð
málsins hér.
Féll úr stiga
og beið bana
MAÐUR fannst látinn í húsa-
garði við Ránargötu um kl. 3
aðfaranótt gærdagsins. Kunn-
ingi hans var handtekinn vegna
málsins, en honum var sleppt að
loknura yfirheyrslum í gær, enda
þá talið fullvíst að um slys hafi
verið að ræða.
Málavextir voru þeir að þrír
menn voru gestkomandi í húsi við
Ránargötu. Tveimur þeirra var
vísað á dyr og fóru þeir út með
góðu. Húsráðandi og þriðji gestur
fylgdu þeim út fyrir dyr, en lokuð-
ust þá úti. Mun húsráðandinn hafa
farið upp stiga við bakhlið hússins
og inn um opinn glugga á íbúð
sinni. Gestur hans fylgdi á eftir,
en húsráðandinn heyrði skjmdilega
óp. Þegar hann gætti að sá hann
að gestur hans hafði fallið niður
og lá í húsagarðinum. Reyndist
hann látinn. Ekki er unnt að birta
nafn hans að svo stöddu.
Keflavík:
Handjámaði
sig við stúlku
Þurftu aðstoð lögreglu
til að losna
Keflavik.
LÖGREGLUMENN verða oft að
leysa úr ótrúlegustu málum í
starfi sinu og kalla ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Um
fimm leytið aðfaranótt síðastlið-
ins laugardags hringdi ungur
maður á lögreglustöðina i
Kelfavík og bað um aðstoð lög-
reglu í ákveðið hús þar í bæ.
Þegar lögreglumenn komu á
vettvang, kom í ljós að ungi maður-
inn var handjámaður við stúlku,
sem með honum var og gat hann
með engu móti losað jámin aftur
hvemig sem hann reyndi. Lögregl-
an var fljót að leysa vanda þeirra
skötuhjúa og tók síðan handjámin
í sína vörslu til frekara öryggis.
Maðurinn mun litlar skýringar hafa
gefið á tiltækinu aðrar en þær að
handjámin hafi hann fengið hjá
kunningja sínum.
B.B.
Yfirvofandi verkfall vélstjóra í frystihúsum á Suðumesjum:
Míssa 800 manns vinn-
una fyrirvaralaust?
Keflavík.
„Vinnuveitendur hafa gefið í
skyn að allt starfsfólk í frystihús-
um á Suðumesjum verði látið
hætta vinnu án fyrirvara, verði
af verkfalli vélstjóra," sagði Sig-
urbjöm Bjömsson, hjá Verka-
lýðs- og sjómannafélagi
Keflavikur í samtali við Morgun-
blaðið I gærkveiai.
Vélstjórafélag Suðurnesja hefur
boðað verkfall vélstjóra í frystihús-
um frá og með miðnætti aðfaranótt
sunnudags, takist ekki samningar
fyrir þann tíma. Sigurbjöm sagði
að ef til þessa kæmi myndu um 300
manns missa vinnuna í Keflavík og
Njarðvík og á Suðumesjum samtals
um 800 manns, en sú tala væri frá
vinnuveitendum sjálfum komin.
„Þetta er hörmuleg staða, fólk er
búið að vinna í viku eftir að hafa
setið heima í sjómannaverkfallinu,
þegar það er sent heim aftur," sagði
Sigurbjöm.
Jón Ólsen, formaður vélstjórafé-
lags Suðumesja, sagði að þessi
vinnudeila snerti eingöngu vélsijóra
í frystihúsum. Þeir væm nú 13,
stöðugildi væru fyrir 23, en menn
hefðu gefist upp vegna lélegra
launa. „Við sátum á fundi með
vinnuveitendum á þriðjudaginn og
þá skeði ekki neitt. Við erum búnir
að bíða í þijá mánuði án árangurs
og ég tel að betur hefði mátt, nota
þann tíma,“ sagði Jón Ólsen enn-
fremur.
Deiluaðilar áttu að hittast hjá
ríkissáttasemjara kl. 9.30 í dag.
BB