Morgunblaðið - 06.02.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
Útgefandi
Framkvœmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Askriftargjaid 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö
Framboðslisti
Sjálfstæðismanna í
Reykjavík
Tillögur Áfengismálanefndar ríkisstjómarinnar:
Takmarka ber aðgai
áfengi til að draga úr
Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík
hefur gengið endanlega frá
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í höfuðborginni
vegna alþingiskosninganna
í vor. Niðurstaðan varð sú,
að listinn var samþykktur
með samhljóða atkvæðum á
fjölmennum fundi, þar sem
mikil eindrægni ríkti meðal
fundarmanna um að gera
hlut flokksins sem mestan
í komandi kosningum. Sú
samstaða sem einkenndi
fund fulltrúaráðsins á eftir
að verða Sjálfstæðisflokkn-
um mikill styrkur í kosn-
ingabaráttunni. Það eitt að
ganga sameinaður til leiks
getur skipt sköpum.
Þessi afgreiðsla sjálf-
stæðismanna í Reykjavík á
framboðslista þeirra vekur
athygli í ljósi þeirra um-
ræðna, sem urðu í kjölfar
prófkjörsins í höfuðborginni
og úrslita þess. Þá höfðu
margir sjálfstæðismenn
áhyggjur af því, hver vegur
flokks þeirra yrði í þing-
kosningum undir forystu
Alberts Guðmundssonar,
iðnaðarráðherra, sem hlaut
efsta sæti í prófkjörinu.
Töluverðar umræður urðu
innan flokksins um það, að
samkomulag þyrfti að nást
um einhverja breytingu á
listanum frá niðurstöðum
prófkjörs. Afgreiðsla full-
trúaráðsins sýnir hins vegar
að samstaða hefur náðst
meðal sjálfstæðismanna og
forystusveitar þeirra um að
snúa bökum saman til
stuðnings framboðslista
sem skipaður væri í sam-
ræmi við niðurstöður próf-
kjörs.
Morgunblaðið sagði í for-
ystugrein um prófkjör sjálf-
stæðismanna í Reykjavík
hinn 21. október sl.: „I ljósi
þeirrar erfiðu pólitísku
stöðu, sem Albert Guð-
mundsson hefur verið í
undanfama mánuði, fer
ekkert á milli mála, að hann
vinnur umtalsverðan vam-
arsigur með því að ná
kosningu í efsta sæti list-
ans. Hitt er jafnljóst, að það
atkvæðamagn, sem hann
fær í heild, er pólitískt áfall
fyrir hann. Það mun óhjá-
kvæmilega valda honum
erfiðleikum við að leiða
Sjálfstæðisflokkinn í kosn-
ingabaráttunni í Reykjavík
næsta vor. Erfíð vígstaða
Sjálfstæðisflokksins í höf-
uðborginni af þessum
sökum blasir við.“
I sömu forystugrein sagði
Morgunblaðið ennfremur:
„Þrátt fyrir góða málefna-
stöðu í landsmálum og
verulegan árangur af störf-
um ríkisstjómarinnar er
hætta á, að Sjálfstæðis-
flokkurinn nái ekki þeirri
sóknarstöðu í kosningabar-
áttunni í Reykjavík, sem
vænta mætti vegna póli-
tískra sviptibylja, sem búast
má við á tindinum eftir það,
sem á undan er gengið. Al-
bert Guðmundsson hefur
sýnt að hann hefur mikið
pólitískt þanþol. Hitt er ann-
að mál, hvort það dugar
Sjálfstæðisflokknum í
næstu kosningum."
Frá því að þetta var sagt
síðari hluta októbermánaðar
hefur í raun engin breyting
orðið á þeirri pólitísku stöðu,
sem þá var fjallað um. Það
hefur að vísu komið enn
betur í ljós, að stjómarflokk-
amir hafa báðir sterka
málefnalega stöðu í kosn-
ingabaráttunni. Hitt fer
ekki á milli mála, að sjálf-
stæðismenn í Reykjavík
ganga til kosninga undir
forystu eins umdeildasta
stjómmálamanns þjóðarinn-
ar. Ekki er við öðm að búast
en að það muni að einhveiju
leyti setja svip sinn á kosn-
ingabaráttuna. Þessa
ákvörðun hefur fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna tekið
að vandlega hugsuðu máli.
Með því hefur það að sjálf-
sögðu tekið á sig þá ábyrgð,
sem þeirri ákvörðun er sam-
fara.
„ÖLL rök hníga í þá átt að tak-
marka beri enn frekar aðgengi
að áfengi eins og Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin reyndar leggur
til og er þvi frjáls sala undir
engum kringumstœðum ráðleg,“
sagði Páll Sigurðsson, ráðuneyt-
isstjóri í heilbrigðisráðuneytinu
á blaðamannafundi er haldinn
var til að kynna tillögur nefndar-
innar. Páll er formaður Áfengis-
málanefndar rikisstjórnarinnar,
sem undanfarin þrjú og hálft ár
hefur unnið við að gera tiUögur
svo hægt sé að marka opinbera
stefnu í áfengismálum og finna
aðferðir til að draga úr heildar-
neyslu.
I nefndinni áttu sæti 17 manns.
Þingflokkamir tilnefndu einn fuli-
trúa hver, heilbrigðis-, mennta-
mála-, dómsmála-, flármála- og
forsætisráðuneyti tilnefndu hver
sinn fulltrúa og einnig Landlækni-
sembættið, Áfengisvamaráð,
Meðferðastofnanir ríkisins og SÁÁ.
Þær tillögur sem nefndin leggur
nú fram eru í þrennu lagi. í fyrsta
lagi tillögur um markmið laga, til-
búning og dreifingu áfengis. í öðru
lagi um áfengisvamir og í þriðja
lagi um meðferð og þjónustu við
misnotendur og aðstandendur
þeirra.
Nefndin telur nauðsynlegt að
fella undir ein lög öll ákvæði er
varða innflutning, sölu og meðferð
áfengis. Eigi að vera hægt að draga
úr neyslu áfengra drykkja sé nauð-
synlegt að viðhalda einkasölu
ríkisins m.a. vegna stjómunar og
eftirlits. Ekki kemur til greina að
bæta nýjum gerðum af áfengi á
markaðinn þar sem nefndinni var
falið að gera tillögur í samræmi við
stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar um að minnka áfengis-
neyslu um fjórðung. Einkaréttur
ríkisins skal áfram gilda um sölu
ölgerðarefna. Stefnt verði að því
að leggja niður umboðsmannakerfið
og einkasölu ríkisins falið að versla
beint og umboðslaun renni til
áfengisvamastarfa. Endurskoða
þarf þær reglur er giida um toll-
fijálsan innflutning á áfengi hjá
farmönnum, flugliðum og ferða-
mönnum. Nefndin leggur til að
banni við bmggi verði viðhaldið,
framleiðsla sterks öls til útflutnings
verði háð ströngu eftirliti og þess
gætt vandlega að hún fari ekki á
innlendan markað og þar sem inn-
flutningur og dreifing yrði í höndum
ÁTVR er eðlilegt að blöndun sé það
einnig.
Beita þarf verðstýringu á áfengi
þannig að sterku vínin verði hlut-
fallslega dýr miðað við létt vín og
brýnt er að stjóm ÁTVR hafí hönd
í bagga með verðstýringu og að
fjármálaráðuneyti ákvarði ekki án
samráðs við önnur hlutaðeigandi
yfirvöld verð áfengis. Lagt er til
að ofan á útsöluverð áfengis verði
bætt 2% er renni til heilsugæslu,
fræðslu og annarra forvamastarfa.
Áfengisskattur verði ennfremur
settur á vínveitingahús til þess að
draga úr neyslu sterks áfengis.
Skatturinn verði 10% af útsöluverði
MorgunblaJið/Bjarni
Frá vinstri á myndinni eru: PáU Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis og formaður nefndar-
innar, Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra, Ingimar Sigurðsson lögfræðingur og varaformaður
nefndarinnar, Hrafn Pálsson deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Sigrún Sturludóttir fyrir hönd Fram-
sóknarflokks og Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir, tilnefndur af Meðferðastofnunum rikisins
Mál bæjarfógetans í Vestmannaeyjum:
Héraðsdómur dæmdi
ekki á grundvelli ákæru
KRISTJÁN Torfason, bæjarfóg-
eti í Vestmannaeyjum var á
þriðjudag sýknaður f Hæstarétti
af ákæru um skjalafals. Hann var
dæmdur til 80 þúsund króna
sektar fyrir brot í opinberu starfi
og gert að greiða málskostnað,
þar með talin laun veijanda sfns,
Benedikts Blöndal hrl. Kristján
kvaðst f samtali við Morgun-
blaðið ekki vera sáttur við
meðhöndlun Hæstaréttar á 1.
hluta ákæru, en hann hiyti að
sæta dóminum. Ekki hefur verið
tekin um það ákvörðun f dóms-
málaráðuneytinu hvort Kristján
snýr aftur til starfa sem bæjar-
fógeti, en Jón Þorsteinsson var
settur f embættið tíl loka mars-
mánaðar nk.
í sumar dæmdi héraðsdómur
Krístján til 5 mánaða fangelsisvist-
ar, þar af 3 mánuði skilorðsbundið.
í dómi Hæstaréttar kom fram að
þá var dæmt samkvæmt ákvæðum
sem ekki var að finna í ákæru.
Hæstiréttur sagði, að í ákæru væri
bæjarfógetinn saksóttur fyrir brot
í opinberu starfi, sem talið væri
varða við 139. grein hegningarlag-
anna, auk þess sem sum sakaratriða
væru einnig talin varða við 158.
grein, sbr. 138. grein sömu laga.
Atferli ákærða væri gagngert lýst
í ákæru sem broti gegn 139. grein,
sbr. orðalag ákærunnar:... „ misnot-
að embættis- og starfsaðstöðu sína
við bæjarfógetaembættið ýmist
sjálfum sér eða öðrum til ávinnings
og fyrirgreiðslu og þá jafnframt
með gerðum sínum hallað rétti hins
opinbera...".
Hæstiréttur benti á að háttsemi
ákærða sé í ákæru ekki lýst sem
brotum gegn 247. eða 249. grein
hegningarlaganna, sem flalla um
fjárdrátt, og af þeirri ástæðu komi
ekki til mála að beita þeim ákvæð-
um. Það hafi héraðsdómur hins
vegar gert, en Hæstiréttur tók fram
að málið yrði að dæma á þeim
grundvelli sem lagður væri í ákær-
unni.
í umflöllun Hæstaréttar um 1.
kafla ákærunnar kom fram, að ekki
yrði á það fallist að bæjarfógetinn
hafi haft heimild til þess að inna
af höndum greiðslur til sjálfs sín,
sem yrði að líta á sem lán úr sjóði
til hans sjálfs. Taldi Hæstiréttur
að með þeirri háttsemi hafi ákærði
gerst brotlegur við 139. grein hegn-
ingarlaganna. Hvað varðaði síðari
hluta 1. kafla ákæru taldi Hæsti-
réttur að ekki yrði talið að um ranga
tilgreiningu hafi verið að ræða í
bókhaldi, gerða í blekkingarskyni,
þegar greiðslur þessar voru færðar
út af þinggjaldareikningum ákærða
og samstarfsmanna hans. Því bæri
að sýkna bæjarfógetann af ákæru
um brot gegn 158. sbr. 138. grein
hegningarlaga. Hann var því sýkn-
aður af ákæru um skjalafals.
í 2. kafla ákæru var um að ræða
11 tékka sem tekið var við sem
greiðslu á opinberum gjöldum og
vitað var um við afhendingu að