Morgunblaðið - 06.02.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
5
Mæling á ung-
síld mistókst
Síldarrannsóknir Hafrann-
sóknastofnunar voru ekki nægi-
lega árangursríkar að þessu
sinni til að byggja á þeim tillögu
um veiðar á næstu vertíð. Erfiðar
aðstæður komu í veg fyrir full-
nægjandi mælingu á stofni yngri
síldar, en vel gekk að mæla eldri
sUdina.
Ólafur Halldórsson, fiskifræðing-
ur og leiðangursstjóri á rannsóknar-
skipinu Áma Friðrikssyni, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að að-
stæður til mælinga á yngri síldinni
hefðu verið mjög erfiðar nema á
Reyðarfirði. Sfldin hefði að mestu
legið uppi í fjöru og mæling því
ekki náðst. Ennfremur hefði fundizt
minna af yngri sfldinni en vonazt
hefði verið til, en fréttir frá loðnu-
bát, sem hefði orðið var mikillar
sfldar í Breiðamerkurdýpi, væru til
mikilla bóta. Vegna þessa væri ekki
hægt að nota niðurstöður leiðang-
ursins til úttektar á stofnstærðinni
og tillögu um afla á næstu vertíð.
Þess í stað yrði miðað við úttekt
síðasta árs og aldursskiptingu í afla
síðustu vertíðar.
Dmitri Alexeev
á tónleikum hjá
Tónlistarfélaginu
FYRSTU tónleikarnir á síðari
hluta starfsvetrar Tónlistarfé-
lagsins í Reykjavík verða haldnir
laugardaginn 7. febrúar kl. 14.30
I Austurbæjarbíói. Þar kemur
fram rússneski píanóleikarinn
Dmitri Alexeev.
Sinfóníuhljómsveit íslands hefur
.fallist á að lána Steinway flygil sinn
úr Háskólabíói til þessara tónleika
en á efnisskránni eru verk eftir
Chopin, Liszt og Skriabin.
Tónleikar þessir eru hinir fyrstu
af sex tónleikum sem haldnir verða
á vegum Tónlistarfélagsins fram á
vor.
Þrennir tónleikar verða haldnir í
mars; Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson munu flytja
Vetrarferðina eftir Schubert. Gríski
píanóleikarinn sem vakti mikla at-
hygli hér í fyrra, mun flytja tónlist
eftir Bach, Beethoven, Liszt og
Schumann og Joachim strengja-
kvartettinn kemur fyrir tilstilli
Goethe-Institut.
í apríl koma þeir William Parker
bariton og Dalton Baldwin píanó-
leikari og munu m.a. flytja Die
Schöne Miillerin eftir Schubert, og
í maí koma júgóslavensku lista-
mennimir Valter Despalj sellóleik-
ari og Arbo Valdma, píanóleikari.
Frjálst verð
á loðnu og
hrognum
Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gær varð samkomulag
um að gefa fijálsa verðlagningu
á loðnu og loðnuhrognum til
frystingar til útflutnings og
loðnu til beitu, beitufrystingar
og skepnufóðurs frá og með 4.
febrúar til og með 4. mars 1987.
Ennfremur hefur Verðlagsráð
samþykkt að gefa fijálsa verðlagn-
ingu á grásleppuhrognum á hrogn-
kelsavertíð 1987.
Þrír guðfræðingar
vígðir til prestsstarfa
BISKUP íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, vígir þijá guð-
fræðikandidata til prestsþjón-
ustu nk. sunnudag. Vígslan fer
fram við guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni kl. 11.00.
Kandidatamir era: Amfríður
Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Stef-
Nýr pró-
fastur í
Austfjarða-
prófasts-
dæmi
SÉRA Þorleifur K. Kristmunds-
son, sóknarprestur á Kolfreyju-
stað, hefur verið skipaður í
embætti prófasts í Austfjarða-
prófastsdæmi frá siðustu
áramótum.
Séra Þorleifur tók við prófast-
sembættinu úr höndum séra Krist-
ins Hóseassonar, sem þjónað hefur
í Heydölum, en hann lét af störfum
prófasts um sl. áramót sökum ald-
urs. Þá hafði hann gegnt starfi
prófasts í liðlega tvö ár.
ánsson og Karl Valgarður Matthías-
son. Arnfríður er 26 ára Siglfirðing-
ur, sem hefur verið ráðin
aðstoðarprestur í Garðasókn í Kjal-
amesprestakalli. Hún lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
haustið 1986. Maki hennar er
Gunnar R. Matthíasson cand. theol.
Gunnlaugur er 34 ára Hafnfirðing-
ur, sem skipaður hefur verið
sóknarprestur í Heydalaprestakalli
í Ausfjarðaprófastsdæmi. Hann
lauk guðfræðiprófi 1982 en hefur
síðan verið starfsmaður Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Kona hans
er Sjöfn Jóhannesdóttir, sem ljúka
mun guðfræðiprófi í vor. Karl Val-
garður er 34 ára Snæfellingur, sem
settur hefur verið sóknarprestur í
Staðarprestakalli í Súgandafirði.
Hann lauk kandidatsprófi í guð-
fræði frá Háskóla Islands nú í
janúarlok 1987. Kona hans er Ses-
selja Björk Guðmundsdóttir, sem
lýkur fóstranámi í vor.
Vígsluvottar verða séra Bragi
Friðriksson prófastur, séra Kristinn
Hóseasson fyrram prófastur í
Heydölum, séra Jón Ragnarsson í
Bolungarvík og séra Þorleifur
Kristmundsson prófastur, sem lýsir
vígslu. Séra Hjalti Guðmundsson
dómkirkjuprestur annast altaris-
þjónustu ásamt biskupi.
fiOUDA
tilbor
kr. kg
30ia&-
e,ai!
ostaréttum-
a I Ær
im I BÍ
O S T U R
E R
LJUFMETI
’ S/MJÖRSp