Morgunblaðið - 06.02.1987, Page 21
r
ir, sem þá var menntamálaráðherra,
neftid til að kanna kjör og aðstæður
kennara. Nefndin skilaði skýrslu sem
við köllum gjama „Endurmats-
skýrsluna" og ég þykist vita að þú
þekkir mætavel. Það var rauður
þráður í gegn um alla þessa skýrslu
og gjallandi viðvörun: Skólakerfið
er að liðast i sundur vegna þess að
kennurum er alls ekki gert kleift að
sinna störfum sfnum eins og þörf
er á. Þeir eru útpískaðir með yfir-
vinnu á yfírvinnu ofan, laun þeirra
svo lág að þeir geta ekki leyst af
hendi þau ábyrgðarstörf sem af þeim
þarf að krefjast. Þessari skýrslu
svaraði formaður samninganefiidar
ríkisins á þann veg að hún væri
marklaus því það hefði ekki setið
neinn fulltrúi fjármálaráðuneytisins
í nefndinni!
Og nú er komin önnur skýrsla.
Því miður sat ekki heldur neinn full-
trúi fjármálaráðuneytisins í nefnd-
inni sem samdi hana. Þess vegna
óttast ég að ráðgjafar þfnir muni
ekki heldur skilja skriftina á veggn-
um að þessu sinni. Auðvitað er ég
að tala um OECD-skýrsluna sem
sum blöð hafa þegar sagt rækilega
frá. Hún kemur okkur, kennurum,
ekki á óvart. Það sem í henni stend-
ur er einföld staðfesting á því sem
„Endurmatsskýrslan" sagði:
Menntakerfið á íslandi er í flár-
svelti, kennarastéttin er að bugast
undan yfirvinnu. Mér finnst hins
vegar (eins og þér?) svolítið nötur-
legt að heyra útlendinga segja þetta!
Eitt af því sem höfundar skýrslunn-
ar benda á er það að í sjálfu sér
gæti verið í lagi að menn vinni yfír-
vinnu við venjuleg störf. Með
þreytunni dragi einfaldlega úr af-
köstum. En svo spyija þessir ágætu
herrar: „Hefur þjóðin efni á að hafa
kennara sem ekki skila fullum af-
köstum?" Af samhenginu er ljóst að
svarið er nei!
Framtíð þjóðarinnar
Ég get ekki ætlast til að þú hafir
tíma til að lesa öllu lengra tilskrif
að þessu sinni. Samt væri ástæða
til að ræða miklu fleira. Ert þú t.d.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
21
ánægður með skólakerfíð eins og
það er? Er ekki grunnurinn að skóla-
göngunni lagður í fyrstu bekkjum
grunnskólans? Hvemig ætli launin
séu þar? Það skyldi þó ekki vera að
við mætum kennara bama okkar til
lægri launa en samviska okkar getur
varið? — Og reyndar snýst þetta
alls ekki um bömin okkar. Þetta
snýst um framtfð þjóðarinnar. Því
hvemig ætlum við að standa frammi
fyrir flókinni tækniframtíð ef
menntakerfið hrynur í rúst?
Öll verða þessi efni að bíða betri
tíma. En ég vona sannarlega að þú
getir gripið stund til að svara bréf-
komi þessu. Mér fínnst þú eigir
skilið að fá leiðrétta hegðun starfs-
manna þinna. Þótt þeir viti kannski
ekki hvað þeir em að gera og eigi
skilið fyrirgefningu hljóta ráðherrar
að vita hvað þeir em að gera.
Með bestu kveðju.
Höfundur erfmmhaldsskólakenn-
ari.
Hrólfur Sveinsson:
Hverium sitt
Engan veit ég þann, sem tæki
frænda mfnum Helga Hálfdanar-
syni fram í þeirri íþrótt að berja
höfðinu við stein. Ámm saman
hefur hann klifað á þeirri kenn-
ingu, að orðið stig sé rangnotað,
þegar samsetningin hitastig er
höfð um hitahæð. Og enda þótt
enginn vilji á hann hlusta, færir
hann sig þeim mun fremur upp á
skaftið og bætir á fordæmingar-
skrána orðunum prósentustig og
sýrustig. Og þótt hann segi sjálf-
ur (í Morgunblaðinu 5. febr.), að
engar bölbænir hríni á því sem
fjandinn hafi ungað út, herðir
hann yfirsönginn því meir.
Nú þarf ekki mikla skarp-
skyggni til að sjá, hvað fyrir H.H.
vakir í raun og vem. Á bak við
raus hans um sýrustig laumaðist
einungis hvöt hans til að koma á
framfáeri nýyrðinu lógrími um
lógariþma. Og auðvitað reynir
hann að láta líta svo út, að það
orð hafi hann sjálfur búíð til. En
þar veit ég betur. Orðið lógrími
er komið beint af steðja forstöðu-
manns íslenskrar málstöðvar,
Baldurs Jónssonar prófessors.
Nýlega ræddi H.H. um nýyrðið
eyðni og varð þar að ósk sinni,
því skömmu síðar var honum eign-
að það orð í blaðagrein, enda þótt
höfundur þess sé enginn annar
en Páll Bergþórsson veðurfræð-
ingur.
Loks má f leiðinni geta þess,
að H.H. hefur látið sér vel líka,
að fáfróðir hafa eignað honum
sæg af sálmum alnafna hans, sfra
Helga Hálfdanarsonar lektors,
skólastjóra prestaskólans, sem
uppi var á öldinni sem leið. Er
mér kunnugt um að Helga sveit-
unga mínum hafa verið sendar
ávfsanir á höfundarlaun fyrir söng
á sálmum hins látna skálds f út-
varpi. Enn fremur hef ég hlustað
á útvarps-fyrirlesara vitna í blaða-
grein eftir þennan fyrrverandi
lyfjabyrlara og hann þá kallaður
Helgi lektor Hálfdanarson, án
þess honum dytti í hug að leið-
rétta eða mótmæla. En skyldi
ekki betur hlýða, að hið góðkunna
sálmaskáld sé titlað svo sem því
ber, og nefnt síra Helgi, svo ekki
séu verk þess mæta manns eignuð
óverðugum.
Séð yfir geymana sex sem Hitaveita Reykjavíkur er að
reisa í öskjuhlið.
Lokið er við undirstöður undir geymana og búið er að
reisa þak og hluta ytra byrðis á þremur þeirra.
• •
Morgunblaðið/Júlíus
Nýir hitaveitugeymar að rísa i
LOKIÐ verður við gerð sex nýrra hitaveitugeyma i Öskjuhlfð á árinu þak á alla geymana," sagði Jóhann-
og eru áætlaðar til þess um 50 miiyónir króna. Heildarkostnaður við
gerð geymanna verður þá um 140 milljónir kr.
Að sögn Jóhannesar Zoega hita- framkvæmd við þijá geyma. Kostn-
veitusijóra var gengið frá undirstöð- aður við þær framkvæmdir var um
um, brunnum og neðanjarðargöngum 90 milljónir króna. „Á þessu ári verð-
milli geymanna á sfðasta ári og hafin ur lokið við að reisa ytra byrðið og
es. „Geymunum er lyft upp í fimm
áföngum og verða þeir f fullri hæð
10 metrar, en okkur hefur reynst vel
að vinna þá svona neðanfrá. Það er
fljótlegt, ódýrt og öruggt f vondum
veðrum."
Oskjuhlíð
Sfðar á árinu verður hafist handa
við veitingastaðinn með útsýni f allar
áttir sem rfsa á efst á geymunum.
Reistar verða undirstöður, kjallari og
stoðveggir undir útsýnispall. Til
þeirra framkvæmda hefur verið veitt
um 30 milljónum króna á árinu.
ASÝNING • TOYOTA BÍLASÝNING • TOYOTA BÍLASÝNING • TOYOTA BÍLASÝNING • TOYOTA BÍLASÝNING • TOYOTA BlLASÝNING • TOYOTA BÍLASÝNING 1
. • —.
•—. •.
• _ • _._• — • -I • — • — • — * — * —/ %
--------- -----—uj'
4V
X \r
j hn C'
S fl / S. A
J ^ /W- «»
I
\
—...
l
I
{I
VA. \ .•
V }l
Ki
i I
• •
i I
>• •
/
g* * Sýningin stendur yfir
\ laugardag kl. 10.00-18.00 og
sunnudag kl. 13.00-18.00.
'V.-
•VJ
/
TOYOTA
iSfarru téedk> on
AtlKW 100 1/RÍA