Morgunblaðið - 06.02.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
29
ígað
neyslu
sterks áfengis og skal honum varið
til þjálfunar starfsmanna heilsu-
gæslunnar. Standi til að ijölga
áfengisútsölum þar sem áfengisút-
sala er þegar leyfð, skal það háð
samþykki heilbrigðisráðherra.
Skyldur vínveitingahúsa hertar og
ef út af verði brugðið, varði það
við missi leyfís til áfengissölu. Eftir-
lit hins opinbera verði hert og
kostað af vínveitingahúsum sam-
kvæmt sérstakri gjaldskrá, sem
ráðherra setur. Tryggt verði að
sterkt áfengi verði aldrei selt á
vínveitingahúsum fyrr en kl. 18.00
og létt áfengi aldrei fyrr en kl.
12.00.
Nefndin leggur til að ríkisstjóm
og sveitastjómir veiti aðeins létt vín
í boðum sínum. Sölutími áfengis-
verslana verði takmarkaður við
ákveðinn stundafjölda á dag. Sett
verði hnitmiðuð ákvæði um bann
gegn auglýsingum er taki til hvers
konar auglýsinga á áfengi og
áfengisvörum. Viðvaranamerkingar
um ölvunarakstur skulu settar upp
f áfengisverslunum og á vínveit-
ingahúsum og skrá skal aðvömn
um skaðsemi áfengis á umbúðir
hennar. Nefndin telur ekki ástæðu
til að breyta almennum refsiákvæð-
um gildandi laga, en leggur til að
stórhert verði viðurlög gegn ólög-
legri áfengisútsölu, sérstaklega
vegna leynivínsölu og sölu til ófull-
veðja fólks.
I tillögum nefndarinnar segir að
forvömum á sviði áfengismála skuli
skipt í tvo flokka: Aðgerðir sem
miðist að því að takmarka aðgang
að áfengi og á hinn bóginn aðgerð-
ir sem miðist að því að draga úr
eftirspum eftir áfengi. Bent er á
að fræðsla um áfengismál á öllum
stigum skólakerfisins sé nauðsjm-
leg. Þá er áhersla lögð á að
samræma beri aðgerðir um áfengis-
og vímuefnamál.
Meðferðarheimili em nauðsynleg
og þjónusta við misnotendur áfeng-
is og aðstandenda þeirra, segir í
tiilögunum, og er nauðsynlegt að í
þjóðfélaginu séu til staðar bæði
göngudeildir og vemdaðir vinnu-
staðir. Rými til afeitmnar og
meðferðar í framhaldi af henni inni
á meðferðarstofnunum er fullnægj-
andi, a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu,
sé miðað við núverandi ástand í
vímuefnamálum. Hins vegar er lagt
til að sú starfsemi, sem fyrir er,
verði efld. Brýnt er að sem fyrst
verði komið á laggimar sérstakri
geðdeild fyrir unglinga og leggur
nefndin til að meðferðarstofnun
fyrir áfengissjúka verði komið upp
á Eyjafjarðarsvæðinu, bæði vegna
mannQölda þar og legu svæðisins
gagnvart Reykjavík.
Leggja verður áherslu á að aukin
verði og bætt þjónusta við böm og
aðra aðstandendur áfengissjúkl-
inga. Þá segir að skapa þurfí
aðstöðu til að veita vímuefnasjúkl-
ingum hjúkmn og meðferð. Nefndin
telur brýnt að heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið beiti sér þegar
fyrir því að koma á verkaskiptingu
og samstjóm meðferðarstofnana á
þessu sviði í samráði við stjómir
þeirra.
Óperutónleikar í
Gamla bíói á sunnudag
ANDREAS Schmidt barítón-
söngvari og Thomas Palm
píanóleikari, sem komu fram á
Ijóðatónleikum f Gamla bíói sl.
mánudagskvöld, halda aðra tón-
leika á sama stað nk. sunnudag
kl. 15.00.
Þá munu þeir flytja ópemaríur
úr ópemnum Cosi fan tutte, Don
Giovanni og Brúðkaup Fígarós eftir
Mozart, Fi'delíó eftir Beethoven,
Tannháuser eftir Wagner, Faust
eftir Gounod, Carmen eftir Biset
og Don Carlos og Macbeth eftir
Verdi. Allt em þetta þekktar ópemr
og aríumar mjög ólíkar, þannig að
efnisskráin gefur Qölbreytta mynd
af hlutverki barítónsöngvarans á
ópemsviðinu. Nefna má t.d. aríu
greifans úr Brúðkaupi Fígarós,
sönginn til kvöldstjömunnar úr
Tannháuser og aríu Escamillo úr
Carmen.
Á ljóðatónleikunum á mánudag-
inn komust færri að en vildu.
Miðasala fer fram hjá ístóni Freyju-
götu og í fslensku óperanni í Gamla
bíói.
ekki var innistæða fyrir í greiðslu-
bankanum. Var ákæmefnið að
tékkamir vom geymdir í sjóði um
óhæfílega langan tíma og látið hjá
líða að framvísa þeim í banka svo
viðhaldið væri tékkarétti. Hæsti-
réttur féllst hins vegar ekki á að
bæjarfógetinn hefði unnið til refs-
ingar samkvæmt 139. grein með
drætti þessum og var hann sýknað-
ur af sakarefnum samkvæmt 2.
kafla ákæm.
Lokakafli ákærannar flallaði um
vömafhendingar án lögboðinnar
tollameðferðar. Hæstiréttur stað-
festi þá niðurstöðu héraðsdóms að
sannað væri að bæjarfógetinn hafí
í þremur tilfellum heimilað slíkt og
með því brotið gegn 139. grein
hegningarlaganna. Hæstiréttur tók
þó fram að hafa bæri í huga að
aðflutningsgjöld hefðu síðar verið
greidd að fullu.
Meirihluti Hæstaréttar, eða dóm-
aramir Bjami K. Bjamason,
Guðmundur Jónsson og Halldór
Þorbjömsson, kváðu upp dóm þenn-
an. Tveir dómenda, Jónatan
Þórmundsson prófessor og Magnús
Thoroddsen hæstaréttardómari,
skiluðu sératkvæðum. Var Jónatan
ósammála meirihlutanum hvað
varðaði ákæm fyrir brot á 158.
grein hegningarlaganna um rang-
færslu skjala. Taldi Jónatan að
ákærða hefði ekki getað dulist að
færslur í bókhaldi hafi verið til þess
fallnar að blekkja þá sem endur-
skoðuðu bókhald embættisins.
Fannst prófessomum þó ekki rétt
að vísa til 138. greinar hegningar-
laganna í þessu sambandi, en hún
§allar um þyngingu refsingar ef
opinber starfsmaður á í hlut. Kvað
Jónatan refsingu hæfílega ákveðna
þriggja mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið til tveggja ára, með hliðsjón
af þeim ríku ábyrgðarkröfum, sem
gera mátti til ákærða sem sérstaks
trúnaðarmanns ríkisins og almenn-
ings.
I sératkvæði Magnúsar Thor-
oddsen segir að bæjarfógetinn, sem
innheimtumaður ríkissjóðstekna í
Vestmannaeyjum, hafi afhent vörar
án tollameðferðar í greiðaskyni við
ákveðinn mann. Hann hafí þannig
tekið á sig persónulega ábyrgð á
því að ríkissjóður yrði ekki fyrir
tjóni. Viðtakandi vömnnar hafí hins
vegar greitt aðflutningsgjöld síðar
auk dráttarvaxta og ekki haft
ávinning af, heldur hagræði. Sjálfiir
hafí bæjarfógeti ekki haft ávinning
af þessu. Ríkissjóður hafí ekki orð-
ið fyrir tjóni og því ekki rétt að
refsa ákærða fyrir brot á 139. grein
hvað þetta varðar. Taldi Magnús
refsingu hæfílega ákveðna 30 þús-
und króna sekt í ríkissjóð og að
málskostnaður yrði greiddur að ein-
um þriðja af ákærða.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir KARL BLÖNDAL
Deng Xaoping, leiðtogi Kína.
Kína:
Zhao Ziyang, forsætisráðherra Rætast
og aðalritari kinverska kom- Peng?
múnistaflokksins.
glæstir draumar
Valdabarátta um for-
sætísráðherraembættíð
ÁRUM saman hefur Deng Xiaoping, leiðtogi Kína, búið í haginn
fyrir arftaka sína til þess að geta sest í helgan stein. Fyrir
mánuði síðan var allri skipulagningu Dengs kollvarpað og aftur-
haldsöfl í Kina hafa rutt sér til rúms á nýjan leik eftir að Hu
Yaobang var vikið úr embætti aðalritara kínverska kommúnista-
flokksins. Nú er öldungis óvist hver kemur í stað Dengs, sem
er 82 ára gamall og finnst án efa nóg um hversu hratt hlutirn-
ir ganga fyrir sig. Deng yrði þvi likast til fegnastur að jafnaldrar
hans væru að sama skapi reiðubúnir til að draga sig í hlé og hann.
Um þessar mundir er sá kall-
aður kommúnisti í Kína, sem
vill að tíminn standi í stað, eða
jafnvel snúa blaðinu við og fara
nokkur ár aftur í tímann, og
spymir fótum við tilraunum til
að auka frelsi á sviði efnahags-
og sljómmála.
Þróun efnahagsmála
Kaupsýslumenn em þó margir
hverjir ánægðir með þróun mála
í Kína. Samkvæmt heimildum
þess ráðuneytis í Bretlandi, sem
fer með erlend efnahagsmál og
viðskipti, minnkaði streymi er-
lends flármagns til Kína um 47
prósent í fyrra. Breskir verslunar-
menn segja að kenna megi
takmarkalausri græðgi kínver-
skra framkvæmdasljóra og spillt-
um embættismönnum um þennan
samdrátt.
Klnverskir embættismenn,
undir foiystu Zhao Ziyang, sem
er bæði forsætisráðherra og arf-
taki Hu í embætti aðalritara
flokksins, halda því fram að ekki
verði vikið frá endurbótastefnunni
í efnahagsmálum. En sú er ekki
ætlun afturhaldsaflanna og þau
em farin að grafa undan hom-
steinum stefnu endurbóta-
sinnanna, sem hingað til hafa
verið yfir1 gagniýni hafnir hvað
hugmyndafræði snertir.
Þjóðþingið í Kína var eitt sinn
griðastaður gagniýnenda Dengs,
sem vildu draga sig í hlé. Höfuð-
stöðvar andstæðinga endurbóta
em nú í þinginu. Á fundi þingsins
fyrir skömmu kröfðust virtir bylt-
ingarmenn þess að aftur yrði
snúið til rétttrúnaðar og tryggðar
við kommúnismann. Ýmsir kröfð-
ust þess að afskipti flokksins af
stjómun og skipulagningu yrðu
aukin. Sú krafa gengur þvert á
grundvallarhugmyndir endur-
bótasinna um að efnahagurinn
geti þá og því aðeins blómstrað
ef hann er leystur úr viðjum um-
sjár flokksins. Aðrir fhaldsmenn
mæltu viðvömnarorð og sögðu að
vænta mætti óreiðu og ringulréið-
ar í þjóðfélaginu vegna þess að
bændur vildu síður rækta kom,
sem bundið em föstu verði, og
gæti það leitt til matarskorts.
Valdagræðgi Hu Yaobang
Heimildarmenn segja að Deng
hafi komist að þeirri niðurstöðu
fyrir nokkram mánuðum að Hu
Yaobang hefði safnað til sín völd-
um og aukið áhrif sín af full
mikilli ákefð. Að þeirra sögn hafði
Hu komið mörgum sinna stuðn-
ingsmanna og skjólstæðinga í
valdamikil embætti án þess að
ráðfæra sig við aðra leiðtoga.
Þá hefur því einnig verið haldið
fram að Hu hafí gert afdrifarík
mistök þegar hann gerði ekki ráð
fyrir áhrifamiklum hagsmunahóp-
um f áætlunum sfnum, þar á meðal
yfírmönnum hersins og íhalds-.
sömum hugmyndafræðingum
flokksins. Hu var hlynntur brejrt-
ingum, sem að hyggju afturhalds-
aflanna hefðu dregið úr völdum
flokksins og áhrifum bæði í sljóm-
un og iðnaði. Hann vildi hlúa að
opinni pólitískri umræðu og leyfa
menntamönnum að selja fram
hugmyndir gegn stjóm fíokksins
á þjóðfélaginu og efnahagslffínu.
Ýmsir segja að svo virðist sem
íhaldsmennimir hafí kvartað und-
an Hu við Deng og þrýstingur frá
þeim hafí ráðið úrslitum um að
hann snerist gegn Hu.
Deng virðist kjósa að viðhalda
valdajafnvægi meðal æðstu ráða-
manna og vilja stjóma og miðla
málum f miðri hringiðu skoðana
og hugmynda. Fréttaskýrendur
segja að Deng reyni nú að koma
á jafnvægi að nýju þar sem hags-
munir allra eigi fulltrúa. Spum-
ingin, sem brennur á vömm
flestra, er hver taki við forsætis-
ráðherraembættinu af Zhao
Ziyang.
Margir eru kallaðir . . .
Stjómarerindrekar segja að
Deng hafí í upphafí viljað fá ung-
an mann í sæti forsætisráðherra
og sjónir hans hafí beinst að Li
Ruihuan, sem er 52 ára. Li er
borgarsljóri Tianjin og hefur enga
reynslu af stjómsýslu í efstu þrep-
um stjómarinnar. Hann þyrfti því
frekari þjálfun til að fá embættið.
Af þeim sökum koma aðrir til
greina og Lá Peng aðstoðarforsæt-
isráðherra þykir sennilegur
kostur. Hann nam verkfæði í Sov-
étríkjunum og hefur haft umsjón
með kjaraorkuáætlun Kínveija.
Li Peng er skjólstæðingur Chen
Yun, sem er á nfræðisaldri eins
og ýmsir andstæðingar Dengs.
Chen er varfæmastur hinna var-
fæmu. Hann óttast helst að
bændur muni sækjast eftir skjót-
fengnum gróða ef beislinu verði
sleppt fram af markaðsöflunum
og vanrækja komrækt á kostnað
ábatavænlegri ræktunar.
Tian Jiyun, sem einnig er að-
stoðarforsætisráðherra, kemur
einnig til álita í embætti forsætis-
ráðherra. Tian er sérfræðingur í
efnahagsmálum og viðskiptum.
En hann er skjólstæðingur Zhao
og vilji Deng halda jafnvægi í
dreifingu valdsins er ósennilegt
að hann leyfí svo miklu valdi að
safnast á hönd Zhao.
í október verður háldið flokks-
þing og þá verður tekin ákvörðun
um hver sest í stól forsætisráð-
herra. Sagt er að Deng treysti
Li Ruihuan ekki fullkomlega en
borgarstjórinn f Tianjin getur sýnt
fram á hæfni sína og náð forskoti
í baráttunni um embættið. Li
Ruihuan komst í sjónvarpið fyrir
skömmu og þótti óvenjulegt. Og
í dagblaðinu Guangming- var hon-
um hælt á hvert reipi fyrir
framgöngu sína í Tianjin.
Vitaskuld hefur Deng mest að
segja um forsætisráðuneytið, en
næstur honum kemur Zhao. Hann
hefur bæði áhrif og völd til að
kippa í spotta og fá sínu fram-
gengt. Sérfræðingar munu á
næstunni fylgjast grannt með
framvindu mála og þefa uppi allar
vísbendingar um skoðanir Zhao
og styrkleika.
Heímildir: The Economist,
Washington Post, Los Angeles
Times og Observer.