Morgunblaðið - 06.02.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
„Hver panlabl hróu 6ilcl)ncu?"
vel upplýst um pólitíkina
síðan ég giftist Bödda.
Með
morgimkafiinu
Ég er að reyna að sameina
hinn dæmigerða föður eins
og börnin mín ímynda sér
hann!
Leysum fræðslustjóravandann
Sú mikla umræða, sem orðið
hefur um brottvikningu fræðslu-
stjórans í Norðurlandsumdæmi
eystra, og þau þungu orð, sem fall-
ið hafa í því máli, gefa tilefni til
að hugleiða nánar verksvið og nyt-
semi fræðslustjóraembætta lands-
hlutanna. Þegar til þeirra var
stofnað, fyrir nokkrum árum, var
látið í veðri vaka að verið værí að
flytja verkefni frá ráðuneyti út á
landsbyggðina og í því sambandi
talað um valddreifingu. Af hálfu
stjómvalda mun þó fræðslustjórun-
um aldrei hafa verið ætlað stærra
hlutverk en að annast einfaldari
afgreiðslustörf fyrir ráðuneytið og
létta af starfsmönnum þess kvabbi
úr skólunum. Þegar í upphafi gætti
tvískinnungs um verksvið fræðslu-
stjóranna og staða þeirra í embætt-
iskerfínu var illa skilgreind og óviss.
Þeir urðu í senn fulltrúar ríkisvalds-
ins gagnvart skólunum og talsmenn
skólanna gegn stjómvöldum. Það
er því engin furða þótt fræðslustjór-
unum hafí gengið misjafnlega að
halda jafnvægi á þeim þrönga stíg,
sem þeim var markaður.
Sumir hafa, fyrst og fremst, far-
ið að líta á sig sem málsvara og
kröfugerðarmenn skólanna gagn-
vart ríkisvaldinu. í þeim hópi er
fræðslustjórinn á Norðurlandi
eystra. Aðrir hafa orðið refsinga-
samir niðurskurðarmenn gagnvart
skólunum. Um einn fræðslustjórann
er það kunnugt, að hann hefur átt
í stöðugum eijum við skólamenn í
umdæmi sínu. Þær þrætur gengu
jafnvel svo langt að stjóm kennara-
samtaka í umdæminu auglýsti í
blöðum eftir kærum á hendur hon-
um. Mun einsdæmi að embættis-
maður sæti slíkri meðferð.
Af því, sem fram hefur komið í
fjölmiðlum, má ráða, að deilur ráðu-
neytis og fræðslustjórans á Norður-
landi eystra hafí verið þess eðlis
og gengið svo langt, að erfítt sé
að ásaka ráðherra fyrir að hafa
gripið í taumana. Allir hljóta að sjá
hvert það leiðir ef embættismenn
taka sér einhvers konar sjálfdæmi
um meðferð opinbers fjár. Til um-
hugsunar má það hins vegar vera
fyrir stjómvöld, að á sama tíma og
aðhaldsaðgerðum er beitt gegn
skólunum hafa fræðslustjóraskrif-
stofumar sjálfar sífellt verið að
færa út kvíamar. Munu starfsmenn
þeirra nú skipta nokkmm tugum
og vera orðnir fleiri en starfsmenn
þess ráðuneytis, sem þær heyra
undir. A aðeins einni þeirra
(Reykjanesi) em 19 manns á launa-
skrá, samkvæmt upplýsingum, sem
komnar em frá ráðuneyti.
Sjálfsagt eiga þessar tölur eftir
að hækka verulega á næstu ámm
ef ekkert verður að gert. í ljósi feng-
innar reynslu vaknar sú spuming
hvort fyrra fyrirkomulag, bein
stjómun ráðuneytis í skólamálum,
sé ekki farsælli og kostnaðarminni.
A.m.k. virðist ljóst að endurskoða
þurfí núverandi fyrir komulag frá
8ru“ni- 7592-5688
Víkverji skrifar
HÁSKÓLI íslands hefur ýtt úr
vör tímariti í tilefni af aldar-
ijórðungs afmæli sínu. Tímaritum
hefur fjölgað talsvert að undan-
fömu og meginstefnan þar verið
sú, að sérhæfa efni hvers og eins
sem mest. Þetta nýja tímarit Há-
skólans gengur á móti þeim
meginstraumi, enda er því ætlað
að opna öllum almenningi sýn til
þessarar æðstu menntastofnunar
þjóðarinnar. í aðfararorðum rit-
stjómar tímaritsins er þetta þannig
orðað, að ekkert tímarit annað hér
á landi flytji svo til eingöngu fræði-
legt efni úr mörgum greinum
samtímis ætlað fróðleiksfúsum og
upplýstum almenningi.
I þessu fyrsta tölublaði Tímarits
Háskóla Islands em ellefu greinar
auk aðfararorða ritnefndar og
kynningar háskólarektors. Þórir Kr.
Þórðarson er höfundur greinar, sem
heitin Frá embættismannaskóla til
vísindaseturs og rekur hann þar,
eins og nafnið bendir til meginat-
riði úr sögu Háskólans.
Heimspekideild, háskólinn og
þjóðfélagið nefnist grein eftir Pál
Skúlason og segist höfundur vilja
með greininni reyna að skýra hlut-
verk og stöðu heimspekideildar og
þar með háskólans í þjóðfélaginu
og skapa þar með forsendu þess
að rætt sé af einhveiju viti um
tengsl háskólans við atvinnuvegi
landsmanna og aðra þætti íslenzks
mannlífs.
Páll Theódórsson rekur upphaf
og þróun jarðsegulrannsókna við
Háskóla íslands í grein, sem hann
nefnir : Frá áttavita til örtölvu-
stýrðra segulmælinga. Rannsókn á
segulstefnu í bergi hófst 1952 og
segulmælingastöð hefur verið rekin
frá 1957. Til þessara rannsókna
hafa íslenzkir vísindamenn sjálfir
smíðað ýms tæki og varpar greinin
nokkru ljósi á það, að þótt tækn-
inni hafí fleygt fram, þá eru
hugkvæmni og þrautseigja ein-
stakra vísindamanna alltaf megin-
forsenda þess að rannsóknir skili
góðum árangri.
xxx
að vakti athygli á sínum tíma,
þegar hjónin Ingibjörg Guð-
mundsdóttir og Sverrir Sigurðsson
gáfu Háskóla Islands 115 málverk
til stofnunar sjálfstæðs listasafns
háskólans. í grein Björns Th.
Bjömssonar um Listasafn Háskóla
íslands kemur m.a. fram, að nú eru
í safninu 490 verk og eiga þau Ingi-
björg og Sverrir þátt í þeirri
aukningu. Fastar tekjur hefur safn-
ið til varðveizlu, viðhalds og kaupa
á listaverkum og eru þær jafnvirði
1% þeirrar fjárhæðar, sem varið er
til nýbygginga á vegum háskólans.
Næst listinni kemur svo grein
um Ný viðhorf í Biblíurannsóknum
eftir Jón Sveinbjömsson. Jón gerir
m.a. grein fyrir rannsóknaraðferð-
um svonefndra „lesenda-svörunar-
rýnenda", sem freista þess að
skilgreina hvemig frásögn flyzt frá
höfundi til lesanda. Og eftir að
hafa þar í gert sérstaka grein fyrir
nýútkominni bók eftir R. Alan Culp-
epper um Jóhannesarguðspjallið
leiðir Jón lesandann til rannsóknar
á 11. kafla Jóhannesarguðspjalls,
þegar Lasarus er vakinn frá dauð-
um.
Þróun geimréttar nefnist grein
Bjöms Þ. Guðmundssonar og fjallar
hann um þá samninga, sem menn
hafa gert um notkun geimsins. En
Bjöm bendir líka á, að áhrifa geim-
réttarins gæti á öndverðum stöðum,
þar sem svipuð vandamál sé við að
glímá varðandi hafdjúpið. Og Bjöm
slær botn í grein sína með því að
varpa fram þeirri spumingu hvor
verði fyrr reist neðansjávarborg eða
geimborg.
XXX
Frá formennsku til fískifræði
nefnist grein Gísla Pálssonar.
Hann rekur heimsmyndir og hug-
myndir manna varðandi fískni.
Hvað ræður afla? Skipstjórinn?
Bátakosturinn? Gísli segir ímynd
skipstjórans eiga enn miklu fylgi
að fagna, en telur inntak hennar
breytast með aukinni stjómun físk-
veiða. Umræðumarum kvótakerfíð,
aflakvóta og sóknarkvóta, hafí leitt
í ljós ágreining um það, hvað ráði
afla. Hinn vísindalegi skilningur
hafí tekið völdin og sé að ýta afla-
kónginum úr brúnni.
Vilhjálmur G. Skúlason skrifar
grein um sögu og núverandi stöðu
rannsókna virkra innihaldsefna, en
notkun jurta og extrakta úr þeim
í lækningaskyni eða í tengslum við
trúar- og félagsathafnir er senni-
lega jafngömul mannkyninu. í
greininni §allar Vilhjálmur um
kavajurtina, sem frumbyggjar
Eyjaálfu notuðu bæði í trúar- og
félagslífi og til lækninga, bæði sem
róandi og verkjastillandi lyf mót
truflun á starfsemi taugakerfís,
berklum, gigt og fleiri sjúkdómum.
Komutími bamatanna og upphaf
tannþroska meðal íslendinga er
framlag Þórðar Eydals Magnússon-
ar til þessa fyrsta tölublaðs Tímarits
Háskóla íslands. Rannsóknir Þórð-
ar leiða í ljós, að stúlkur eru fyrri
til en drengir á bæði tannþroska-
stigin, þ.e. að taka bamatennur og
fullorðinstennur. Við heildarsaman-
burð kemur í ljós, að við íslendingar
tökum tennur um líkt leyti og
Finnar, en til muna fyrr en Svíar,
Bandaríkjamenn og Ungveijar.
Hagkvæmasti sláturaldur eldis-
físks nefnist grein Ragnars Áma-
sonar, þar sem hann með hjálp
líkana leiðir út líkingar fyrir því,
hvenær þessum tilgangi sé náð. I
greininni kemur fram, að það eru
margir þættir, sem hafa þama áhrif
og Ragnar er með fems konar físk-
eldi í takinu: kostnaðarlaust,
kostnaðarsamt, áhættusamt en
kostnaðarlaust og loks kostnaðar-
laust lotueldi. Fiskeldi er atvinnu-
grein í uppsveiflu hér á landi og
Ragnar bendir á, að það að drepa
fískinn á réttum tíma getur skipt
sköpum um afkomu fyrirtækisins.
„Svo ótrúlegt sem það kann að
virðast, kallarþað á sérstakt sköp-
unarverk að Island skuli yfírleitt
vera ofansjávar: hin þykka og eðlis-
þunga jarðskorpa íslands er borin
uppi af tiltölulega eðlisléttum mött-
ulstrók undir landinu, þar sem heitt
möttulefni stígur upp í súlulaga
flæði af miklu dýpi.“ Þannig byijar
ellefta og síðasta greinin, sem heit-
ir ísland og heiti reiturinn og er
Sigurður Steinþórsson höfundur
hennar. Sigurður fjallar svo nánar
um samleik möttulstróksins ogjarð-
skorpunnar á íslandi með saman-
burði við Hawai.
Ifyrirhugað er að Tímarit Há-
skóla íslands komi út tvisvar á ári.
XXX
*
Iaðfararorðum ritstjómarinnar
segir, að Háskóli íslands vilji
með þessu tímariti opna dyr sínar
meira en áður hefur verið gert. Það
sem sjá má inn um gættina í þessu
fyrsta tölublaði fínnst Víkveija til-
efni til þess að hvetja fólk til að
taka í útrétta hönd háskólamanna
og gerast áskrifendur að þessu
tímariti.
Víkveiji bíður spenntur næsta
tölublaðs og í sérstakri von um, að
þar verði að finna greinar um undir-
stöðu allrar menntunar okkar og
atvinnuvega: íslenzka tungu, sögu
okkar og bókmenntir.