Morgunblaðið - 20.02.1987, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 20.02.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987 39 Michael Jackson heldur þéttingsfast um hendi Sophiu Loren. Hvað er með Michael? M ichael Jackson hrífst greinilega sérstaklega að sér eldri konum, sér í lagi ef þær éru stjömur. Hér á síðunni var greint frá því ekki alls fyrir löngu að pilturinn væri kominn með kæmstu upp á arminn. Vom allir þeim fregnum fegnir, því menn vom famir að óttast að hann yrði ríkisborgari í Disneylandi. Þótti öllum fremstu slúðurdálkahöfundum heims þetta mikið þroskamerki hjá piltinum. Nú vita þeir hins vegar ekki í hvom fótinn þeir eiga að stíga. Michael sást nefnilega með enga aðra en Sophiu Loren upp á arminn og er engum kunnugt um hversu náið samband þeirra er. Áður hefur Jackson umgengist Elizabeth Taylor, Diana Ross og Brooke Shields, en varð víst ekki ágengt með neinaþeirra. Spumin erþví sú hvað um þetta samband verði. Scharansky- fjölskyldan krefst lausn- ar Beguns Natan Scharansky er síður en svo hættur að andæfa mannréttindabrotum Sovétríkjanna, hvort sem um er að ræða of- sóknir gegn Gyðingum, eða öðmm hópum, sem þarlendum stjómvöld- um er illa við. Á meðfylgjandi mynd má sjá Schar- ansky, sem hét Anatoly áður en hann tók upp hebreskt nafn sitt, ásamt konu sinni Avit- al, en á undan sér ýta þau dótturinni Rakel, sem þau eignuðust rétt- um níu mánuðum eftir að Scharansky var sleppt yfír í frelsið. Má segja að nafn hennar sé táknrænt, a.m.k. þurfti Scharansky að bíða hennar nógu lengi, því að hann var hand- tekinn og sendur í fangabúðir nær sam- stundis eftir að giftingu þeirra hjóna. Scharansky-fjöl- skyldan hélt blaða- mannafund í Jórsala- borg á miðvikudag og tilkynnti Avital að þau myndu halda til New York-borgar til þess að krefjast lausnar Gyð- ingsins Jósefs Begun, sem haldið er í sovésku fangelsi. Reuter Natan, Avital og Rakel Scharansky. Umsóknareyðublöð liggja frammi á öllum afgreiðslustöðum bankans. INNLÁNSVIÐSKIPTl - LKIÐ IIL LÁNSVIÐSKIPI A Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja reglulega inn fé, nýjan tékkareikning sem Sctmeinéir kosti veltureiknings og sparireiknings. Launareikningur er með 4% lágmarksvöxtum, en fari innstæðan yfir 12.000 krónur, reiknast 10% vextir af því sem umfram er. Dagvextir. I stað þess að reikna vexti af lægstu innstæðu á 10 daga tímabili, eru reiknaðir vextir af innstæðunni eins og hún er á hverjum degi. Handhafar tékkareiknings geta breytt honum í Launareikning án þess að skipta um reikningsnúmer. BÍ)NM)kRBkNKl ÍSLNNDS essemmslA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.