Morgunblaðið

Dagfesting
  • fyrri mánaðurinfebruar 1987næsti mánaðurin
    mifrlesu
    2627282930311
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    2324252627281
    2345678

Morgunblaðið - 25.02.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 25.02.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1987 29 ' **"*•***" f^-r • **, »***«►. - - ••" m <* m m. w»*. w«.«- mmimn Reuter Blaðakóngurinn Robert Maxwell (t.h.) sker tertu, sem er skreytt eins og forsíða fyrsta kvöldblaðs Loadon Daily News. Við hlið Maxwells stendur Magnus Linklater, ritstjóri kvöldblaðsins. Lund- únabúum hefur aðeins staðið eitt kvöldblað til boða, en í gær fjölgaði þeim í þrjú. Lundúnablöðum fjölgaði snögglega London, AP, Reuter. Blaðakóngarnir Robert Maxwell og Rothermere lávarður háðu stríð á götum Lundúnaborgar í gær, en þá komu á götur borgar- innar tvö ný kvöldblöð, sem eru í eigu þeirra, London Daily News og Evening News. Með tilkomu blaðanna tveggja eru þijú síðdegisblöð gefín út í Lundúnum. Þegar Robert Max- well tilkynnti um síðdegisútgáfu sína um helgina ákvað Rother- mere lávarður að endurvekja Evening News, sem hætti að koma út árið 1981. Lávarðurinn hafði setið einn að kökunni því hann er jafnframt eigandi Standard, sem verið hefur eina síðdegisblað Lundúna um árabil. Er litið á það sem tilraun af hans hálfu til að draga úr sölu- möguleikum kvöldútgáfu London Daily News. John Leese, ritstjóri Evening News gekk meir að segja svo langt að segjast vonast til þess að blað sitt yrði til að kippa fótunum undan blaði Maxwelís. Maxwell sagðist hins vegar hafa litlar áhyggjur af endurkomu Evening News og líta fremur á ákvörðun Rothermere lávarðar sem grín. Hélt Maxwell upp á daginn með því að senda hundruð blöðrur til himins auk þess sem hann leigði trompetleikara úr úr- valsliði lífvarðasveita brezka hersins til að leika listir sínar við blaðhús sitt. Maxwell sagðist myndu gefa blað sitt út í um 500-600 þúsund eintaka, eða í svipuðu upplagi og Standard. Bað hann Lundúnabú hins vegar afsökunar á því að hafa ekki komið nema 300.000 eintökum út í gær vegna bilana í prentvél. Hann sagðist vona að salan næmi um einni milljón ein- taka fljótlega. Rothermere lávarð- ur sagði að upplag EveningNews yrði um eitthundrað þúsund ein- tök og kæmi blaðið út fímm sinnum í viku. Belgía: Umbótaherferð Sovét- leiðtogans er lofsverð ■ segir George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna Washington, Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að umbótaherferð Mikhails S. Gorbachev Sovétleiðtoga væri stórt skref fram á við. Sagði Shuhz framtak Gorbachevs vera lofsvert en bætti við að enn væri óljóst hversu langt umbætumar myndu ná og hvort vænta mætti áframhalds þeirra. Shultz lét þessi orð falla á ráð- stefnu með bandarískum háskóla- komrnúnistaflokknum hefur höfðað mál og gerir þær kröfur, að flokkurinn endurgreiði hon- um gjöldin, sem hann hefur greitt til hans i 24 ár. Heldur hann því fram, að flokkurinn hafi brugðist öllum þeim vonum, sem við hann voru bundnar. Dagblaðið Borba sagði frá þessu máli, sem er einstætt í sögu Júgó- slavíu eftir stríð, og kom þar fram, að Tihomir Zivkovic, maður nokkur í Belgrað, héldi því fram, að aðild að flokknum mætti líkja við samn- ing og að við þennan samning hefði flokkurinn ekki staðið. Líkti hann flokksgjöldunum við lán, sem flokk- urinn tæki og ætti að greiða með því að stuðla að framförum og bættum kjörum meðal þjóðarinnar. Júgóslavneskir andófsmenn hafa að undanfömu gagnrýnt kommún- istaflokkinn og stjómina mjög harðlega fyrir efnahagsóreiðuna í landinu, 19 milljarða dollara skuld í útlöndum og verðbólgu, sem er um 100%, en flokkurinn hefur svar- að fyrir sig með auknum ofsóknum. Gjöldin, sem menn verða að greiða til flokksins, em á bilinu 1,9 - 2,5% af tekjum en Zivkovic gekk í flokkinn árið 1962 og sagði sig kennurum, sem utanríkisráðuneytið gekkst fyrir. Shultz sagði neikvæð viðbrögð sovéskra skriffinna við umbótum þeim sem Gorbachev hygðist koma á styrkja það álit margra að um gmndvallarbreyting- ar væri að ræða. „Ég tel fulljóst að Gorbachev er einstaklega hæfur maður, greindur og duglegur. Hann gerir sér grein fyrir að endurbóta er þörf innan sovéska stjómkerfís- ins og hefur þegar gripið til ráðstaf- ana til að hrinda þeim í úr honum í fyrra. Þar með telur hann sig hafa sagt upp „samningn- um“ og vill fá gjöldin endurgreidd vegna vanefnda hins samningsaðil- ans. Ekki er líklegt, að Zivkovic vinni málið og hefur Borba það eftir laga- prófessor, að flokksaðildin geti ekki talist samningur lögum samkvæmt. framkvæmd," sagði George Shultz. Hann sagði að enn væri of snemmt að segja til um hversu róttækra breytinga mætti vænta á valdakerf- inu. „Hins vegar tel ég að þau skref sem stigin hafa verið í átt til opinn- ar umræðu séu mikilvæg. Það er stórkostlegt að fylgjast með því sem er að gerast í Sovétríkjunum og þeim breytingum sem þar eiga sér stað ber að fagna. Shultz kvaðst einnig fagna því að um 150 pólitískum föngum hefði verið sleppt á undanfömum vikum. Hann kvaðst hins vegar álíta að á heildina litið hefði Sovétstjómin hert tökin á andófsmönnum. Minnt- ist hann í þessu samhengi á reglur um fararleyfí og mannréttindabrot gagnvart hinum ýmsu trúarhópum, einkum gyðingum. Sagði hann ráðamenn í Bandaríkjunum fylgjast grannt með ástandi mannréttinda- mála í Sovétríkjunum í þeirri von að umbætur leiðtogans tækju einnig til þessa málaflokks. Bandarískir embættismenn telja að nýjar reglur um fararleyfí Sovét- borgara séu strangari en þær sem áður vom í gildi. Segja þeir að sam- kvæmt nýju reglugerðinni geti andófsmenn einungis fengið leyfí til að flytjast úr landi ef þeir eiga ættmenni erlendis. Innilegí þakklœti til allra sem glöddu mig meö skeytum oggjöfum á 75 ára afrmelinu 15.febrúar. GuÖ blessi ykkur öll. SigurÖur Júlíus Sigurðsson, Fífuhvammsvegi 9, Kópavogi. Höfum opnað lögfræðiskrifstofu Höfum opnað lögfræðiskrifstofu að Hverf- isgötu 50, Reykjavík. Önnumst hvers konar lögfræðistörf og málflutning. LÖGMENN ÁSGEIR ÞÓR ÁRNASON hdl. ÓSKAR MAGNÚSSON hdl. Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík Sími 62-10-90 Júgóslavía: Vill fá flokksgjöldin í 24 ár endurgreidd Segir kommúnistaflokkirm hafa brugðist öllum vonum Belgrað, Reuter. FYRRUM félagi í júgóslavneska Líffæraflutningar lögleiddir Brtissel. Reuter, AP. 9 * BELGÍSKA þingið samþykkti í gær lög þess efnis að taka mætti líffæri úr látnu fólki, sem ekki hefði skráð i persónuskilríki sin að það væri á móti slíku, og græða í þá er þess þyrftu með. Mikill skortur hefur verið á líffær- um til ígræðslu og hafa læknar þrýst á um að lög þessi yrðu samþykkt og sagt að þannig myndu fást árlega um 1000 líffæri, í stað 200 nú. Nýleg skoðanakönnun leiddi í ljós að um 30% aðspurðra Belga voru á móti þvi að líffæri þeirra væru notuð á þennan hátt. Lögin eiga að ná til landsmanna og allra útlendinga sem búsettir hafa verið í Belgíu lengur en 6 mánuði. Einar Benediktsson, sendiherra íslands 1 Belgíu, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að útlendingar er dvalið hefðu lengur en hálft ár í Belgíu væru taldir búsettir þar, hefðu fengið dvalarleyfí og væru á skrá útlendingaeftirlitsins. Þeir gætu eins og aðrir sem búsettir væru í landinu tilkynnt viðkomandi bæjar- eða sveit- arfélagi þar sem þeir byggju, ef þeir vildu ekki gefa sín líffæri. Einar sagði að fréttin um lögleið- ingu líffæraflutninganna hefði verið aðalfregnin í útvarpi og sjónvarpi síðdegis í gær og hefði tónninn í fréttaflutningnum verið jákvæður. Meirihluti þeirra er fréttamenn spurðu á götum úti voru hlynntir lög- leiðingunni og læknar er haft var samband við, sögðu lögin vera til mikilla bóta, því að á síðasta ári hefði aðeins fengist einn þriðji þeirra Hffæra, er þörf hefði verið fyrir. Baðhús - SPOEX Tilboð Tilboð óskast í baðhús við Bláa lónið. Til sölu og flutnings í því ástandi sem það er í. Upplýsingar í síma 25880 frá kl. 1—5 á daginn. ZZ. v<i)vo SKEIFUNNI 15, SlMI: 91-35200.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55740
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 46. tölublað (25.02.1987)
https://timarit.is/issue/121064

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

46. tölublað (25.02.1987)

Gongd: