Morgunblaðið - 10.03.1987, Blaðsíða 44
44
t r «4 r; t
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
Launasjóður rithöfunda:
Starfslaunum úthlutað
til 81 rithöfundar
Úthlutað 11,9 milljónum í ár
LOKIÐ er úthlutun starfslauna
úr Launasjóði rithöfunda fyrir
árið 1987. I lögum og reglugerð
sjóðsins segir að árstekjum hans
skuli varið til að greiða íslensk-
um rithöfundum starfslaun
samsvarandi byijunarlaunum
menntaskólanema. Þessi laun
eru nú kr. 39.159 á mánuði.
Starfslaun eru veitt samkvæmt
umsóknum. Höfundur sem sækir
um og hlýtur starfslaun til þriggja
mánaða eða lengur skuldbindur sig
til að gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna.
Tveggja mánaða starfslaun má
veita vegna verka sem birst hafa á
næsta almanaksári á undan og þeim
fylgir ekki kvöð um að gegna ekki
fastlaunuðu starfi.
Alls bárust stjórninni að þessu
sinni umsóknir frá 164 höfundum
og sóttu þeir um því sem næst 819
mánaðarlaun auk mánaðarlauna til
ótiltekins tíma frá 6 rithöfundum.
Fjárveiting til sjóðsins nam hins
vegar 304 mánaðarlaunum, eða
u.þ.b. 11,9 milljónir króna.
Starfslaun til sex mánaða hlutu
að þessu sinni 21 rithöfundur, fjög-
urra mánaða laun hlutu 18 höfund-
ar, þriggja mánaða iaun hlutu 22
höfundar og tveggja mánaða laun
hlutu 20 höfundar. Alls hefur því
verið úthlutað starfslaunum til 81
rithöfundar.
Öllum umsóknum hefur verið
svarað og skrá um úthlutun verið
send menntamálaráðherra.
Úthlutun úr Launasjóði rithöf-
unda árið 1987 hlutu:
6 mánaða starfslaun hlaut 21
rithöfundur:
Birgir Sigurðsson, Bjöm Th.
Bjömsson, Einar Bragi, Einar Már
Guðmundsson, Einar Kárason,
Fríða Sigurðardóttir, Guðbergur
Bergsson, Kristján Karlsson, Ólafur
Gunnarsson, Ómar Þ. Halldórsson,
Pétur Gunnarsson, Sigurður Páls-
son, Stefán Hörður Grímsson,
Steinar Sigurjónsson, Steinunn Sig-
urðardóttir, Svava Jakobsdóttir,
Thor Vilhjálmsson, Vigdís
Grímsdóttir, Þorgeir Þorgeirsson,
Þorsteinn frá Hamri, Þórarinn Eld-
jám.
4 mánaða starfslaun hlutu 18
rithöfundar:
Auður Haralds, Guðmundur Ól-
afsson, Guðmundur Steinsson,
Gyrðir Elíasson, Hannes Sigfússon,
Ingibjörg Haraldsdóttir, ísak Harð-
arson, Jón Óskar, Nína Björk
Arnadóttir, Oddur Bjömsson, Ólaf-
ur Haukur Símonarson, Rúnar
Armann Arthúrsson, Sigfús Bjart-
marsson, Sigurður A. Magnússon,
Siguijón B. Sigurðsson (Sjón),
Sveinbjöm I. Baldvinsson, Úlfur
Hjörvar, Þuríður Guðmundsdóttir.
3 mánaða starfslaun hlutu 22
rithöfundar:
Andrés Indriðason, Armann Kr.
Einarsson, Birgir Svan Símonarson,
Dagur Sigurðarson Thoroddsen,
Elísabet Þorgeirsdóttir, Einar Ól-
afsson, Ejrvindur P. Eiríksson,
Guðlaugur Arason, Gunnar Gunn-
arsson, Gylfi Gröndal, Hafliði
Vilhelmsson, Inga Huld Hákonar-
dóttir, Kristján Jóhann Jónsson,
Magnea J. Matthíasdóttir, Magnús
Þór Jónsson, Sigfús Daðason, Sig-
rún Eldjám, Stefán Snævarr,
Þorsteinn Antonsson, Þorsteinn
Marelsson, Þórunn Valdimarsdóttir.
2 mánaða starfslaun hlutu 20
rithöfundar:
Arni Bergmann, Berglind Gunn-
arsdóttir, Bjarni Bemharður
Bjarnason, Bragi Ólafsson, Einar
Guðmundsson, Einar Amaldur Mel-
ux, Eiríkur Brynjólfsson, Geirlaug-
ur Magnússon, Hrafnhildur
Valgarðsdóttir, Iðunn Steinsdóttir,
Indriði Úlfsson, Jóhannes Óskars-
son (Jóhamar), Kristján Einarsson
frá Djúpalæk, Kristján Kristjáns-
son, Magnús Gestsson (Magnús
Gezzon), Matthías Magnússon,
Rúnar Helgi Vignisson, Sigurlaug-
ur Elíasson, Snjólaug Bragadóttir,
Þór Eldon.
Konur gegn klámi:
Mál og menning hefur
hætt sölu klámrita
„ÞAÐ var vissulega tímabært að
hreyfa þessum málum og ég er
mjög hrifin af framtaki kvenn-
anna. Fæstir held ég að hafi þekkt
til laganna um klám, sem mér
finnst vera ótvíræð. Þess vegna
var ákveðið á fundi hér hjá okkur
að fjarlægja öll klámblöð úr versl-
uninni, við seljum slík blöð ekki
ÞAU tíu lög er komust í úrslit
fyrir Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva verða kynnt 13.
14. 15. 16. og 17. mars nk., tvö
lög í senn. Um er að ræða sjálf-
stæð myndbönd og munu þulir
sjónvarpsins kynna Iög og höf-
unda strax eftir fréttir þessi
kvöld.
Rás 2 mun síðan kynna þau sömu
lög morguninn eftir að þau hafa
verið kynnt í sjónvarpi. Rás 2 verð-
ur einnig með sérstakan kynningar-
þátt um kvöldið 18. mars, þann
sama dag og útsendingartími rásar-
innar lengist í 24 tíma á sólarhring.
Öll lögin verða endurflutt í sjón-
varpi mánudaginn 23. mars og þá
munu átta dómnefndir í öllum kjör-
dæmum landsins hringja inn tölur
sínar og dæma um lögin líkt og
gert er í hinni eiginlegu keppni.
Dí'mnefndir munu sitja í Reykjavík,
lengur," sagði Erla Hallgríms-
dóttir, deildarstjóri hjá Máli og
menningu í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hópurinn, sem kallar
sig Konur gegn klámi, segist von-
ast til að aðrir geri slíkt hið sama
og hjá Innkaupasambandi bóksala,
sem flytur inn og dreifir umrædd-
um blöðum, fengust þær upplýs-
Hafnarfirði, Borgarnesi, ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöð-
um og á Selfossi. Fréttaritarar
sjónvarpsins verða tengiliðir dóm-
nefnda og sjónvarpsins og fógetar
og sýslumenn verða ritarar dóm-
nefnda og sjá um að stigagjöf fari
fram með eðlilegum hætti. Þessir
menn hafa þó ekki atkvæðisrétt.
Höfundar laganna fengu allir
150.000 króna verðlaun til að
fullbúa lög sín í núverandi búning
og munu höfundar sigurlagsins
hljóta 300.000 króna verðlaun að
auki og ferð tii Brussel auk flytj-
enda, en þar verður Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva haldin þann 9. rnaí
næstkomandi.
Samkvæmt reglum mega flytj-
endur vera sex talsins. Dómnefnd-
annenn verða valdir aðeins tveimur
dögum áður en úrslit fara fram.
ingar að málið yrði tekið upp á
stjórnarfundi í þessum mánuði.
„Við erum auðvitað mjög
ánægðar með þennan árangur, því
það eru aðeins þijár vikur síðan við
fórum af stað,“ sagði Ingibjörg
Hafstað sem er í hópi Kvenna gegn
klámi. „Við höfum alls staðar feng-
ið góðar undirtektir, sérstaklega
meðal þeirra kvenna sem við höfum
talað við. Það er sama hvaða skoð-
anir konur annars hafa, í þessu
máli tala þær sama mál og vita að
aðgerða er þörf. Það er ótvírætt
samhengi á milli kynferðislegs of-
beldis gegn konum og börnum og
útbreiðslu klámsins. Það er löngu
sannað t.d. í Noregi og annars stað-
ar á Norðurlöndum."
Blaðamaður Morgunblaðsins
hafði samband við Hauk Gröndal,
framkvæmdastjóra Innkaupasam-
bands bóksala. Haukur var ekki
kunnugur lögunum sem fjalla um
innflutning og dreifingu klámrita,
en þar segir m.a. að sá sem flytji
inn, selji útbýti eða dreifi klámritum
skuli sæta sektum, varðhaldi eða
fangelsi. Hann sagði að Innkaupa-
sambandið hefði ekki talið sig versla
með ólöglegan varning, en þetta
yrði að skoða og hann myndi taka
málið upp á stjórnarfundi í þessum
mánuði. Haukur vildi leggja á það
áherslu að fleiri flyttu inn tímarit
af þessu tagi og í miklu meira
mæli. Nefndi hann í því sambandi
sérstaklega Bókahúsið og ýmsar
bókaverslanir. Haukur sagði einnig
að^fullyrðing starfsfólks Bókaversl-
unar Snæbjarnar í Morgunblaðinu
fyrir skömmu, um að Innkaupasam-
bandið dreifði klámritum að eigin
frumkvæði væri röng, ekkert væri
sent frá Innkaupasambandinu
nema eftir pöntunum.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva:
Vinmngslögin kynnt í
sjónvarpi og á Rás 2
Sigurlagið valið 23. mars
Selma Guðmundsdóttir Elísabet Erlingsdóttir
Háskólatónleik-
ar á miðvikudag
SJÖUNDU Háskólatónleikarnir
á misserinu verða miðvikudaginn
11. mars nk. Tónleikarnir eru í
Norræna húsinu kl. 12.30 og
standa í u.þ.b. hálftíma.
Elísabet Erlingsdóttir sópran og
Selma Guðmundsdóttir píanó flytja
sönglög eftir Edward Grieg og
Gustav Mahler.
Islandsmótum í kvenna- og yngri
flokki í brids lokið:
Sveit Estherar
varði titilinn
Sveit Jakobs Kristinssonar vann
yngri flokkinn
SVEIT Estherar Jakobsdóttur
varði íslandsmeistaratitil sinn í
sveitakeppni kvenna í brids, en
Islandsmóti kvenna í brids lauk
um helgina. Sveit Jakobs Krist-
inssonar vann íslandsmótið í
sveitakeppni yngri spilara.
Fjórar sveitir kepptu til úrslita í
hvorum flokki eftir undankeppni. í
kvennaflokki kepptu í undanúrslit-
um sveitir Estherar og Aldísar
Schram annarsvegar og Soffíu Guð-
mundsdóttur og Öldu Hansen
hinsvegar. Sveitir Estherar og
Soffíu unnu sína leiki og kepptu
því til úrslita. Úrslitaleikurinn var
jafn framanaf en síðan dró sundur
og sveit Estherar vann með tals-
verðum mun.
I flokki yngri spilara kepptu
sveitir Jakobs og Álfasteins hf.
annarsvegar í undanúrslitum, og
sveitir Ingvaldar Gústafssonar og
Ágústs Sigurðssonar hinsvegar.
Sveitir Jakobs og Ingvaldar kepptu
síðan til úrslita og sá leikur þróað-
ist eins og úrslitaleikurinn í
kvennaflokki, var jafn fyrst í stað
en síðan vann sveit Jakobs með
miklum mun.
íslandsmeistarar kvenna 1987
eru þær Esther Jakobsdóttir, Val-
gerður Kristjónsdóttir, Halla
Bergþórsdóttir og Kristjana
Steingrímsdóttir. Sigurvegarar í
yngri flokki voru Jakob Kristinsson,
Júlíus Siguijónsson, Hrannar Erl-
ingsson, Matthías Þorvaldsson, Óli
Týr Guðjónsson og Eiríkur Hjalta-
son.
Skólamálaráð KÍ:
Ahyg-gjur af skip-
an sérkeimslumála
SKÓLAMÁLARÁÐ Kennarasam-
bands íslands hefur lýst yfir
áhyggjum sínum af skipan sér-
kennslumála í landinu, þar sem
hvergi nærri er séð fyrir því fjár-
magni sem nauðsynlegt er til
hennar.
I ályktun sem ráðið hefur sent
Qölmiðlum segir meðal annars: „Á
undanförnum árum hefur stórt átak
verið gert til þess að greina þörf
fyrir sérkennslu víða um land, en
því miður hefur komið í ljós, að
hvergi nærri er séð fyrir því íjár-
magni sem nauðsynlegt er til að
mæta henni. Af þessum sökum hef-
ur ekki verið hægt að sjá öllum
nemendum með sérþarfír fyrir
þeirri sérkennslu sem þeir eiga
lagalegan og siðferðilegan rétt á.
Skólamálaráð KÍ styður þá meg-
instefnu gildandi laga og reglu-
gerða að sem flestir nemendur eigi
rétt á kennslu í sínum heimaskóla
og væntir þess að yfirvöld mennta-
mála og fjármála sjái til þess að
lögum sé framfylgt í þessu efni.
Enn fremur vill Skólamálaráð
KÍ ítreka nauðsyn þess að hraðað
verði endurskoðun reglugerðar um
sérkennslu í samráði við þá aðila
sem hlut eiga að máli og sett fram
áætlun um hvernig og á hvað löng-
um tíma menntamálaráðuneytið
hyggst framkvæma ákvæði sér-
kennslureglugerðar. Til að mæta
aukinni sérkennsluþörf er einnig
biýnt að bætt verði úr gífurlegum
skorti á sérmenntuðum kennurum
til þeirra starfa“.