Morgunblaðið - 10.03.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
49
Svolítil
athuga-
semd
eftirBjörn
Steffensen
í einskonar eftirmála við ævisögu
Ama prófasts Þórarinssonar segir
skrásetjarinn, Þórbergur Þórðar-
son, að mörgum hætti við að lesa
sjáfsævisögu með þá kröfu í huga
að hún sé „sannsöguleg". Þetta sé
grunnfær skilningur á eðli sjálfs-
ævisögunnar. Það sem mestu skipti
sé hvort höfundi hafi tekist að segja
þann veg frá að lesandi hafi
skemmtun af.
Þessi skoðun Þórbergs kom mér
í hug er ég las í nýútkominni bók
eftir hann, „Ljóri sálar minnar",
eftirfarandi ummæli hans um nú
löngu látinn tepgdaföður minn,
heiðursmanninn Áma Zakaríasson,
vegaverkstjóra, en Þórbergur var í
vinnuflokki hans á Holtavörðuheiði
sumarið 1911: „Verkstjórinn okkar,
Ámi Zakaríasson, er enginn fyrir-
myndarpersóna, er til vinnunnar
kemur. Hann er harður, þröngsýnn
og miskunnarsnauður ofstopamað-
ur“ o.s.frv. (Trúmál Áma, sem
Þórbergur hefur í flimtingum, leiði
ég hjá mér.)
Hér virðast aðstandendur þessar-
ar nýju bókar Þórbergs skáka í því
valdi, sem höfundur hennar hefur
tekið sér samkvæmt áðumefndum
eftirmála, að saklaust sé að setja á
prent dylgjur og uppdiktaðan
óhróður um nafngreinda menn ef
það bara gæti orðið einhverjum til
skemmtunar.
Mér hefur hinsvegar heyrst á
nokkmm afkomendum Áma, en
þeir era nú orðnir nokkuð íjölmenn-
ir, að þeir hafi ekki haft tiltakanlega
mikla „skemmtun" af að lesa til-
vitnuð ummæli Þórbergs, hvað sem
öðram kann að finnast um þau og
lái þeim hver sem vill. Nær allir
afkomendur Áma, sem era á lífi,
era fæddir eftir að hann féll frá og
fengu því aldrei sjálfir að reyna
hvort afi þeirra eða langafi var
„harður, þröngsýnn og miskunnar-
snauður ofstopamaður". En mikið
er þessi lýsing Þórbergs ólík þeirri
mynd af Áma Zakaríassyni, sem
geymst hefur með ættmennum
hans, mynd sem hann sjáifur skap-
aði með dugmiklu, ósérplægnu og
vönduðu lífemi sínu og starfi og
enn hefur ekki máðst út.
Sá sem þetta ritar hafði allnáin
kynni af Árna og enn nánarí kynni
af hljóðlátu menningarheimili hans
og Helgu konu hans. Ámi var með
eindæmum traustur og heilsteyptur
maður og ábyrgðartilfinning hans
og skyldurækni slík að jaðraði við
að ofgera. Hann var heiðarlegur
og réttsýnn en hlédrægur og ekki
allra. Hann hefur áreiðanlega gert
kröfu til verkamanna sinna um
sómasamleg vinnubrögð, en mestar
kröfur gerði hann ævinlega til sjálfs
sín, enda þrotinn að kröftum um
aldur fram. Hann féll frá fyrir
sextíu áram.
Mér er enn í minni hve óskoraðs
trausts og trúnaðar hann naut hjá
Björn Steffensen
„Sá sem þetta ritar
hafði allnáin kynni af
Arna og enn nánari
kynni af hljóðlátu
menningarheimili hans
og Helgu konu hans.
Arni var með eindæm-
um traustur og heil-
steyptur maður og
ábyrgðartilfinning
hans og skyldurækni
slík að jaðraði við að
ofgera. Hann var heið-
arlegur og réttsýnn en
hlédrægur og ekki
allra.“
yfirboðuram sínum og einnig hve
hlýjan hug undirmenn hans, þeir
sem ég mætti síðar á lífsleiðinni,
bára til hans. Mér er ofarlega í
huga er við hjónin áttum leið um
ýmsar sveitir Norðurlands á ijórða
tug aldarinnar, hve víða við nutum
þar vinsælda Áma frá fomu fari.
Ég minnist að lokum dálítils hóps
manna, sem þótti ákaflega vænt
um Áma, og rækti við hann vináttu
meðan lff entist. Þetta voru ýmist
menn á Kleppi, bilaðir á sinni, eða
refsifangar sem sátu inni í tugthús-
inu. Þessa menn hafði Ámi fengið
látna lausa úr prísundinni, að þeir
mættu njóta sumars og náttúru
með vinnuflokkum hans á heiðum
uppi í stað þess að gista fangaklefa
eða sjúkrastofur meðan sól var
lengst á lofti. Ámi mun þannig
fyrstur manna hér á landi hafa sinnt
því sem nú kallast fangahjálp.
Fáir munu efast um að Þórberg-
ur hafi verið liðtækur til verka með
haka og skóflu. En kannski vora
samt einhveijir í hinum sundurleita
hópi vegavinnumanna á Holta-
vörðuheiði þetta sumar, sem höfðu
meiri áhuga á einhveiju öðra en
að moka möl og hlaða sniddu, og
sem því þurfti að halda að vinnunni
með dálítið vökulli verkstjóm.
Að lokum. Er reglan hans Þór-
bergs um „skemmtilegheitin" ekki
eitthvað mislukkuð? Er ekki gamla
reglan öldungsins úr Haukadal
áfram skemmtilegust?
Hvað geturðu hugsað þér betra en
svið og rófustöppu
í útileguna - í bátsferðina - sem gjöf til vina erlendis eða
skyndirétt í hádegínu ...?
ORA svið og rófustappa
hátíðaréttur í dósunum sem þú opnar með einum fmgri.
ora
Höfundur er löggiítur endurskoð-
andi.
XlLPINE
Toppurinn í bíltækjum
UMBOÐSMENN
UMLANDALLT
Flestir LAMBORGHINI bílar hafa Alpine hljómtæki.
Skipholti 7 símar 20080 —26800