Morgunblaðið - 18.03.1987, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
Sama súpan
Víkveiji skrifar í gær: „Víkveiji
vorkenndi þeim stjómmála-
mönnum, sem kallaðir vom í sjón-
varpsþátt um menningarmál á
sunnudagskvöld. Ríkisfjölmiðlarnir
eru sí og æ að tala við sömu menn-
ina, pólitíkusa, og það er einsog
ekkert annað fólk sé til í landinu."
Ég er hjartanlega sammála Víkveija
um að það er alltaf verið að tala við
sama fólkið í sjónvarpinu, en við
erum jú fáir og smáir Islendingar
og ég vorkenni fyrst og fremst út-
varps- og sjónvarpsmönnunum sem
rembast einsog ijúpur við staurinn
við að tosa fólki í viðtal. Þrautalend-
ingin er að rabba við kollegana sem
gerist æ tíðara. Þannig ræddi
Hemmi Gunn við sjónvarpsfrétta-
mennina Eddu Andrésar og Helga
Pé á Bylgjunni á sunnudaginn var.
Heigi hefir nú oft lýst Ríóævintýrinu
en mér kom á óvart lýsing hans á
ríkisútvarpinu: Það er einsog ríkisút-
varpið megi aldrei vera fyrst til,
aðrir verða að hafa frumkvæðið.
Fólk þreytist náttúrulega á þessu
og fer annað. Þú gleymdir kaupinu
Helgi.
Hugmyndalist
I fyrrgreindu sunnudagsspjalli við
stjórnmálamennina var sá frumlegi
háttur hafður á að stilla spyrlunum
sem voru fulltrúar listamanna á bak
við háborð stjómmálamannanna er
sátu þar ásamt umsjónarmönnum
Geisla. Ég var svolítið hissa á hversu
mjög var þrengt að stjómmálamönn-
unum um ríkisstyrki hverskonar til
handa listamönnum, einkum virtist
mér þessi krafa koma frá yngra
listafólkinu. Það er svo aftur spurn-
ing hvort menn séu nokkuð að biðja
ríkið um „styrk" fremur að það skili
til baka því fé sem það hefir klipið
af listframleiðslunni. En vilja menn
að þetta fé fari um hendur pólitískra
nefnda? Væri til dæmis ekki nær
að fá þann skatt sem er til mestrar
minnkunar, bókaskattinn, felldan
niður? Hvað er orðið um bókaþjóðina
er klípur stærri sneið af hverri bók
til ríkisins en fer í vasa rithöfundar-
ins? Núverandi stjómvöld hafa verið
býsna iðin við að rétta hag hljóm-
plötuútgefenda en lítið hefir nú farið
fyrir velvild i garð þeirra er burðast
við að gefa út og rita bækur í landi
Snorra.
Heyrst hefur að skattar af mynd-
listarvörum muni senn lækka.
Þannig ber að hlúa að listinni með
því að létta af henni oki skattheimt-
unnar og með starfslaunum.
Myndlistarþáttur Jóns Óttars síðast-
liðið mánudagskveld var annars
býsna áhugaverður en þar var rætt
við nokkra af frumkvöðlum SÚM-
hópsins: _ Guðberg Bergsson, Jón
Gunnar Ámason, Sigurð Guðmunds-
son, Rúrí og Magnús Pálsson og
einnig listfræðinginn Halldór B.
Runólfsson. Ég öfunda þetta ágæta
fólk af því frelsi er fylgdi hugmynda-
listinni og þrátt fyrir að sú stefna
hafi nú endað í grautfúlli langloku
þá hafa framsæknustu mennimir
ratað heim til handverksins með
hugmyndimar. Því miður skemmdi
Jón Óttar annars ágætan þátt með
því að enda hann á að klína stjörnum
á öldurhúsaskemmtanir.
PS Ónefndur maður hringdi í
mig í fyrrakveld skömmu áður en
sýningin á frönsku myndinni Augu
fuglanna hófst og sagði mér frá
kynnum sínum af föngum er lýst
var í myndinni, en maðurinn hafði
starfað sem túlkur í Svíþjóð. Stað-
festi maðurinn hinar hræðilegu
lýsingar myndarinnar á pyntingum
samviskufanganna í Uruguay og
sagði mér undan og ofan af afskipt-
um hjálparstofnana af slíkum
föngum. Hefði ekki verið upplagt
að efna til umræðuþáttar í kjölfar
þessarar myndar, en þar var leitt
getum að því að sumar einræðis-
og alræðisstjómir notuðu sér hjálp-
arstofnanirnar til að koma enn
frekar höggi á lýðræðissinna og
andófsmenn.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Rás 1:
Hljóð-varp
Þáttur Ævars Kjartanssonar
■I Hversu gömul
00 skyldi hljóðritun
“ á íslandi vera?
Ekki síst nú á tímum leysi-
diska og nýrrar og fullkom-
innar hljóðritunartækni er
forvitnilegt að litast um öxl
og kanna hvenær íslend-
ingar hófu hljóðritanir, en
í upphafi voru þær gerðar
á vaxsívalninga, sem
Thomas Alva Edinson fann
upp seint á síðustu öld.
I þættinum Hljóð-varpi
í kvöld segir Helga Jó-
hannsdóttir frá fjórum
söfnum vaxsívalninga, sem
geymd eru á Þjóðminja-
safninu og í Stofnun Árna
Magnússonar. Á þessum
Jón Leifs, tónskáld.
sívalningum eru íslensk
kvæðalög. Fyrstur til þess
að nýta sér þess tækni var
Jón Pálsson bankagjald-
keri, föðurbróðir Páls
ísólfssonar, sem hóf hljóð-
ritun íslenskra þjóðlaga á
vaxsívalninga árið 1902 og
vann að því í um tíu ár —
eða til dauðadags.
Á eftir honum komu þeir
vinirnir Jón Björn Gíslason
og Hjálmar Lárusson um
1920, báðir Húnvetningar
og miklir kvæðamenn, en
síðastur var tónskáldið Jón
Leifs, sem hljóðritaði m.a.
íslensk tvísöngslög á
tveimur sumrum 1928-29,
en hann var þá starfandi í
Þýskalandi. Seinna ánafn-
aði Jón Þjóðminjasafninu
hljóðritin og eru þau nú
• varðveitt þar.
Söfnin ijögur hafa öll
verið afrituð á segulbönd,
en þar sem sívalningsupp-
tökutækin voru dregin upp
og knúin íjöður, verður
gangurinn tíðum skrykk-
jóttur. Það spillir þó ekki
þeirri gleði að vita af þess-
um söfnum og geta gengið
að þessari ómetanlegu
heimild um íslenska
kvæðalagið.
ÚTVARP
•:1 J ________ '_____„J_________________________________________i—
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
6.45 Veöurfregnir. Bæn
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin
Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guðni Kristjánsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna:
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úrforustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Úr fórum fyrri tlöar.
Umsjón: Ragnheiður Vig-
gósdóttir
11.00 Fréttir
11.03 Islenskt mál
Endurtekinn þáttur frá laug-
ardegi sem Gunnlaugur
Ingólfsson flytur.
11.18 Morguntónleikar:
a. Arabeska op. 18 eftir
Robert Schumann. Wilhelm
Kempff leikur á píanó.
b. Sinfónia nr. 2 i e-moll op.
27, 4. þáttur, eftir Sergej
Rakhmaninoff. Filharmoniu-
sveit Berlinar leikur; Lorin
Maazel stjórnar.
c. Novalettur úr „Bunte
Blátter" eftir Robert Schu-
mann. Wilhelm Kempff
leikur á píanó.
d. Adagio fyrir strengi eftir
Samuel Barber og forleikur
að „Candide" eftir Filharm-
oníusveitina í Los Angeles
leikur; Leonard Bernstein
stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Börn
og skóli. Umsjón: Sverrir
Guðjónsson.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
íslandi. Indriöi G. Þorsteins-
son skráði. Sigriöur Schiöth
les (18).
14.30 Norðurlandanótur.
Sviþjóð.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vestfjörðum. Umsjón: Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.15 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpiö
17.00 Fréttir
17.03 Síðdegistónleikar
a. „í riki náttúrunnar", for-
leikur op. 91 eftir Antonín
Dvorák. Tékkneska fílharm-
oníusveitin leikur; Karle
Ancerl stjórnar.
b. Klarinettukonsert nr. 1 í
f-moll op. 73 eftir Carl Mar-
ia von Weber. Benny
Goodman leikur með Sin-
fóniuhljómsveitinni i
Chicago; Jean Martinon
stjórnar.
17.40 Torgið — Nútímalif’
hættir. Umsjón Steinunn
Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar Fjölmiðla-
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
18.00 Úr myndabókinni —
46. þáttur. Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni.
Umsjón: Agnes Johansen.
Kynnir: Sólveig Hjaltadóttir.
19.00 Hver á að ráða?
(Who’s the Boss?) Annar þátt-
ur. Bandariskur gaman-
myndaflokkur um
einstæðan fööur sem tekur
að sér eldhússtörfin fyrir
önnum kafna móður. Aðal-
hlutverk: Tony Danza,
Judith Light og Katherine
Helmond sem lék Jessicu í
Löðri. Þýðandi Ýrr Bertels-
dóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spurt úr spjörunum —
sjöundi þáttur. Myndaget-
raun sjónvarpsins og ferða-
málaráðs lýkur. Spyrlar:
Ómar Ragnarsson og Kjart-
an Bjargmundsson. Dómar-
ar: Baldur Hermannsson og
Friðrik Ólafsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 í takt við tímann. Bland-
aður þáttur um fólk og
fréttnæmt efni. Umsjón: Jón
Hákon Magnússon, Elisa-
bet Þórisdóttir og Ólafur H.
Torfason.
Þátturinn verður sendur út
frá nýja útvarpshúsi, Efsta-
leiti 1, en í þættinum verður
fjallaö um Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu,
Evrósjón, og breytingar á
dagskrá Rásar tvö kynntar.
Spjallað veröur við höfunda
lagana og ýmislegt fleira til
gamans gert. i lok þáttarins
verða öll þátttökulögin tiu
kynnt í réttri röð og verða
þau jafnframt leikin samtím-
is á Rás 2, þannig að
áhorfendum gefst kostur á
að heyra þau í steríói.
22.20 Leiksnillingur.
(Master of the Game.) Þriðji
þáttur. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur i sex
þáttum, gerður eftir skáld-
sögu Sidneys Sheldon.
Aðalhlutverk: Dyan Cann-
on, Harry Hamlin, lan
Charleson, Donald Pleas-
ence, Cliff de Young og
Cherie Lunghi. Þetta er
ættarsaga sem spannar
eina öld. í fyrstu þáttunum
er fylgst með ættföðurnum
sem auðgast á demöntum
í Suður-Afríku. Ung að árum
tekur Kate, dóttir hans, við
fjölskyldufyrirtækinu og
stjórnar þvi með harðri
hendi um sjötíu ára skeið.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
23.30 Seinni fréttir.
23.50 Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
§17.00 Morgunverðarklúbb-
urinn (The Breakfast Club).
Bandarísk kvikmynd frá
1985 með Judd Nelson,
Emilio Estevez, Molly Ring-
wald, Anthony Michael Hall,
Ally Sheedy og Paul Glea-
son í aðalhlutverkum.
Fimm ólikir táningar eru
settir í stofufangelsi í skól-
anum sínum. Þeir kynnast
vel og komast að því að
þeir eiga fleira sameiginlegt
en bara prakkaraskapinn.
§18.30 Myndrokk.
19.00 Ferðir Gúllivers.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lina. Á milli kl.
20.00 og 20.15 gefst áhorf-
endum Stöðvar 2 kostur á
að hringja í síma 673888
og bera upp spurningar.
Stjórnandi ásamt einum
gesti fjalla um mál sem eru
í brennidepli.
20.20 Bjargvætturinn
(Equalizer).
Vinur McCalls er myrtur og
er McCall staðráðinn í þvi
að hafa upp á moröingjan-
um.
§21.10 Húsiö okkar
(Our House).
Framhaldsþáttur fyrir alla
fjölskylduna. Jessie verður
vitni að glæp. Nokkrum
dögum seinna kynnir dóttir
hennar hana fyrir vini sinum,
en Jessie heldur aö hann
sé viöriöinn glæpinn.
§22.00 Stark
Spennumynd með Dénnis
Hopper, Marilu Henner og
Nick Surovy í aðalhlutverk-
um. Harðsvíraður leynilög-
reglumaður leitar systur
sinnar sem er horfin spor-
laust. Rannsóknin beinist
fljótt að flóknu fjárkúgunar-
og morömáli.
23.30 Tíska. Umsjónarmaður
er Helga Benediktsdóttir.
00.00 Dagskrárlok.
rabb. Guðrún Birgisdóttii
flytur. Tónleikar.
20.00 Ekkert mál. Bryndís
Jónsdóttir og Sigurður
Blöndal sjá um þátt fyrir
ungt fólk.
20.40 Mál mála. Sigurður
Jónsson og Sigurður Kon-
ráðsson fjalla um íslenskt
mál frá ýmsum hliöum.
Rætt við Guörúnu Kvaran
um íslensk mannanöfn og
breytingar á nafnvenjum.
21.00 Gömul tónlist.
21.20 Á fjölunum. Áttundi
þáttur um starf áhugaleik-
félaga. Sýning Leikfélags
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: „Plötupottur-
inn", gestaplötusnúður og
getraun um islenskt eíni.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist f
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Kliður. Þáttur i umsjá
Ólafs Más Björnssonar.
15.00 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög.
16.00 Taktar. Stjórnandi:
Heiöbjört Jóhannsdóttir.
17.00 Erill og ferill. Þáttur með
Seyðfirðinga á leikritinu
„Síldin kemur, síldin fer".
Umsjón Inga Rósa Þórðar-
dóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
Andrés Björnsson les 26.
sálm.
22.30 Hljóövarp
Ævar Kjartansson sér um
þátt i samvinnu við hlust-
endur.
23.10 Djassþáttur
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok
tali og tónum i umsjá Ernu
Arnardóttur.
18.00 Hlé.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
Ath. Þetta kvöld kl. 21.00
byrjar rás 2 f nýjum bún-
ingi. Dagskráin í smáatriö-
um á rás 2 það sem eftir
lifir vikunnar berst til ykkar
öðru hvoru megin við helg-
ina.
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
REYKJAVÍK
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fréttir héðan og þaöan
Fréttamenn svæðisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Opin lína til
hlustenda, mataruppskrift
og sitthvaö fleira. Fréttir kl.
10.00, 11.00 og 12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aöi með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með því
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla við fólk. Frétt-
ir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síödegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
síðdegis. Hallgrfmur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
19.00—21.00 Hemmi Gunn f
miöri viku. Létt tónlist og
þægilegt spjall eins og
Hemma einum er lagið.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á miövikudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00—24.00 Vökulok. Ljúf
tónlist og fréttatengt efni.
Dagskrá í umsjá Árna Þórð-
ar Jónssonar fréttamanns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur.
ALFA
Krlstileg itvarp«iU4.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
18. mars
08.00Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.