Morgunblaðið - 18.03.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987
Vopansýn-
ingu mót-
mælt
Aþjóðleg vopnasýning var sett
í Bangkok, höfuðborg Thai-
lands, í gær. 350 fjölþjóðafyrir-
tæki frá 23 löndum taka þátt í
sýningunni og stóðu mörg
hundruð vopnaðir hermenn og
lögregluþjónar vörð fyrir utan
hótelið, þar sem sýningin
„Varnir Asíu ’87“ fer fram. Um
fimmtíu mótmælendur komu
saman fyrir utan hótelið og
settu á svið leikrit og látbragðs-
leiki, sungu friðarsöngva og
báru mótmælaspjöld. Mótmæl-
andinn á myndinni heldur á
friðardúfu og handsprengju.
DÆLUR
úr ryðfríu stáli
• 1 og 3ja fasa.
• Til stýringar á
vatnsrennsli.
• Einstök gæði,
góð ending og
fágað útlit.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
• Lokaðir.olíu-
kældir
og sjálfsmyrj-
andi
• Vatnsþétting-
IP 66
• Fyllsta gang-
öryggi,
lítið viðhald
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Viðræður að
að hefjast milli
EB og Comecon
Genf, Reuter.
FULLTRUAR efnahagsbandalags kommúnistaríkjanna, Comecon
og Evrópubandalagsins, EB, koma saman til fundar í Genf í dag
til þess að ræða um leiðir til þess að taka upp formleg samskipti sín
í milli. Sl. haust fóru fram könnunarviðræður í þessu skyni. Eng-
in samskipti hafa verið milli þessara bandalaga og þau ekki
viðurkennt hvort annað að forminu til.
Reuter
Sérfræðingar frá báðum banda-
lögunum stefna að því að semja
sameiginlega yfirlýsingu um al-
mennt rammasamkomulag um
samskipti bandalaganna, sem
stjórnmálamennirnir taki síðan til
meðferðar. Christian Aufour, sem
starfar við utanríkismálastofnun
EB, sagði í gær í viðtali við frétta-
menn: „Sömu mennirnir munu
verða í fyrirsvari fyrir báða aðila
í þessum umræðum og voru það
sl. haust, en þeim til aðstoðar verða
ijórir til fimm sérfræðingar."
Sovésk tillaga í Genf:
Gagnkvæmt eftir-
lit með geimskotum
John Maslen, sem haft hefur
yfirumsjón með samskiptum EB
við kommúnistaríki Austur-Evrópu
á sviði verzlunarviðskipta, verður
formaður sendinefndar EB í þess-
um viðræðum.
I yfirlýsingu þeirri, sem gefin
var út eftir fundinn sl. haust,
sagði, að faglegt og gott andrúm
hefði einnkennt viðræðurnar þar,
en þær hefðu að svo komnu ekki
fjallað um samvinnu á neinu sér-
stöku sviði.
Árið 1980 slitnaði upp úr sams
konar viðræðum, er samskipti milli
austurs og vesturs versnuðu vegna
innrásar Sovétmanna í Afganistan.
I janúar sl. fóru hins vegar fram
í Brússel fyrstu beinu viðræðurnar
milli EB og stjórnvalda í Moskvu
um að taka upp formleg sam-
skipti. Var litið á þetta sem merki
um bætt samskipti, sem ættu m.
a. rót sína að rekja til valdatöku
Mikhails Gorbachevs í Sovétríkjun-
um fyrir tveimur árum.
Moskvu, Genf, AP, Reuter.
SOVÉTMENN hvöttu til þess að
á ráðstefnu 40 þjóða um afvopn-
unarmál í Genf að íhugað yrði
að setja á fót nefndir til að fylgj-
ast með því á staðnum að vopnum
verði ekki skotið út í geiminn.
Yuri Nazarkin, helsti sendifulltrúi
Sovétmanna á ráðstefnunni, sgði að
slíkar efitlitsnefndir myndu fá að-
gang að skotpöllum og skoða á
staðnum alla hluti, sem skjóta á út
í geiminn og koma þar fyrir, sem
og geimflaugarnar sjálfar.
Nazarkin fór ræddi tillöguna ekki
frekar í ræðu sinni í gær. Hann
skar ekki úr um það hvort Sovét-
menn vildu áskilja sér rétt til að
banna slíkt eftirlit af þjóðarörygg-
isástæðum eins og þeir hafa gert á
öðrum sviðum.
Nazarkin sagði að tillaga sín væri
enn ein vísbending um að eftirlit
yrði ekki vandamál þegartil umræðu
er að fyrirbyggja vopnakapphlaup í
geimnum. Sovétmenn hafa barist
gegn geimvamaráætlun (SDI)
Bandaríkjamanna, sem ætlað er að
vera vöm í geimnum gegn kjarn-
orkuárás. Sovétmenn halda fram að
einnig yrði hægt að nota geimvamir
í árásarskyni.
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, og Michael
Armacost, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, ræddu í gær
samskipti risaveldanna. Fundur
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI bandaríkjadollars lækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum, nema kanadíska
dollarnum, á gjaldeyrismörkuð-
um í Evrópu í gær. Verð á gulli
lækkaði.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,5950 dollara (1,5778), en
annars var gengi dollarans þannig
að fyrir hann fengust: 1,8360 vest-
ur-þýsk mörk (1,8425); 1,5315
svissneskir frankar (1,5420);
6,0975 franskir frankar (6,1300);
2,0690 hollensk gyllini (2,0810);
1.301,75 ítalskar lírur (1.308,75);
1,31575 kanadískir dollarar
(1,3150) og 151,40 japönsk jen.
Verð á gulli var 402,75 dollarar
únsan (405,25).
þessi er haldinn til að undirbúa heim-
sókn George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, til Moskvu 13.
og 16. apríl. Shultz mun ræða við
Shevardnadze og Mikhail Gorbac-
hev, aðalritara sovéska kommúnista-
flokksins.
Bandarískir embættismenn sögðu
að Armacost hefði einnig rætt við
Yuli Vorontsov, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, í gær og
fyrradag og snerust viðræðurnar
aðallega um Nicaragua og Afganist-
ERLENT
Kosningarnar í Finnlandi:
Ný ríkissljóm mynduð
á breiðum grundvelli?
Helsinki, AP, Reuter.
HÆGRI menn unnu á í þing-
kosningunum í Finnlandi er
fram fóru á sunnudag og mánu-
dag og bættu við sig 9 þingsæt-
um, fengu 53 sæti af 200.
Formaður Hægri flokksins,
Ukka Suominen, sagði í gær að
erfitt yrði fyrir hina flokkana
að halda hægri mönnum utan
stjórnar í þetta sinn.
Jafnaðarmannaflokkur Kalevi
Sorsa, forsætisráðherra, er enn
stærsti flokkurinn, fékk 56 þing-
sæti, tapaði einu sæti. Kosninga-
bandalag Miðflokksins, Sænska
þjóðarflokksins og tveggja smærri
flokka fékk 58 þingsæti og kemur
til með að hafa úrslitaáhrif þegar
til stjórnarmyndunar kemur sem
verður þegar nýtt þing kemur
/s/Æm
Ilkka Suominen, formaður Hægriflokksins fagnar
Sirpa Pietikainen, flokkssystur sinni.
Reuter.
sigri ásamt
saman í byijun aprílmánaðar. Lög-
um samkvæmt á að telja atkvæðin
aftur og verður þeirri talningu lok-
ið seinna í þessari viku. Leiðtogi
Miðflokksins, Paavo Vayrynen,
neitaði í gær að segja til um hvern
flokkurinn myndi styðja til að Jeiða
næstu ríkisstjórn, en sagði að sig-
ur Hægriflokksins og tap Jafnað-
armanna styddi þá hugmynd að
mynduð yrði stjórn á breiðum
grundvelli með þáttöku stóru flok-
kanna tveggja og kosningabanda-
lagsins.
Dreifbýlisflokkurinn tapaði
mest, fékk 9 þingmenn, en hafði
áður 17. Kommúnistaflokkurinn
klofnaði í fyrra og bauð nú fram
í tvennu lagi og tapaði 7 þingsæt-
um. Græningjar fengu 4 þing-
menn, en niðurstöður skoðana-
kannana fyrir kosningar höfðu
bent til þess að þeir gætu fengið
allt að 10 þingsæti.
Mauno Kovisto, forseti, hefur
tæknilega séð nokkuð fijálsar
hendur um það hveijum hann felur
stjómarmyndun, en í raun verður
val hans að fara eftir því hvemig
flokkunum gengur að semja sín í
milli. Suominen, formaður Hægri-
flokksins, sagði eftir kosningamar
að flokkur sinn hefði verið í sókn
undanfama áratugi og sigurinn
nú væri í raun krafa þjóðarinnar
um breytt stjórnarmynstur.