Morgunblaðið - 21.03.1987, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987
1+
T
Sýna í Listasafni ASI
STEINÞÓR Marínó Gunnars-
son og Sigrún Steinþórsdóttir
Eggen opna myndlistarsýn-
ingu í Listasafni ASÍ, Grens-
ásvegi 16 i dag, 21. mars, kl.
14.00. Steinþór sýnir vatns-
litamyndir, einþrykk og
málverk en Sigrún myndvefn-
að.
Steinþór sýndi fyrst á sam-
sýningu Félags íslenskra
frístundamálara 1947. Seinna
átti hann m.a. verk á samsýn-
ingu FÍM, en hefur síðan haldið
einkasýningar hér á landi og í
Noregi. Steinþór hefur og hlotið
listamannalaun. Verk eftir hann
eru í eigu ýmissa listasafna,
stofnana og einkaaðila.
Sigrún lærði myndvefnað í
Noregi, þar sem hún hefur verið
búsett sl. 20 ár. Hún er meðlim-
ur í Textílfélaginu og Félagi
norskra textíllistamanna.
Sigrún tók fyrst þátt í sam-
sýningu í Larvík í Noregi 1979,
en síðan hefur hún haldið á ann-
an tug einkasýninga, hér á landi
og í Noregi, auk þátttöku í sam-
sýningum.
Ýmsar stofnanir í Noregi eiga
verk eftir Sigrúnu. 1986 vann
hún m.a. myndvefnað fyrir fjór-
ar hæðir í Vestfold Sentralsyke-
hus í Tönsberg.
Þetta er þriðja samsýning
feðginanna hér á landi og stend-
ur hún til 5. apríl. Sýningin er
opin virka daga kl. 16.00-20.00
en laugardaga og sunnudaga kl.
14.00-22.00.
Feðginin Steinþór Marínó
Gunnarsson og Sigrún við
hluta verka sinna.
Schiphol flugvöllur í Amsterdam er heimavöllur KLM.
KUVl er eitt af reyndustu flugfélögum heimsins og flýgur til
127 borga í 76 löndum, þar á meðal 17 borga í Afríku. Af
þeim má nefna Nairobi, Dar es Salaam, Arusha og Khartoum.
Schiphol hefur nú verið kjörinn besti tengivöllur heims,
fimmta árið í röð. Eins og flestir farþegar sem fara í gegnum
Schiphol gera, getur þú notið góðrar tengiflugþjónustu KLM.
Ef þú, til dæmis, ferð frá Keflavík með Arnarflugi á
laugardagsmorgni, ertu kominn á Schiphol um hádegi og
hefur góðan tíma til að ná í flug KLM kl. 13-50 til Nairobi.
Á Schiphol er allt undir einu þaki þannig að það gæti
ekki verið þægilegra að skipta um vél. Að auki er á flugvell-
inum stærsta og ódýrasta fríhöfn í Evrópu þannig að þú getur
gert góð kaup í leiðinni.
Næst þegar þú ferð til Afríku, notfærðu þér þá hin þægi-
legu tengiflug KLM og kynnstu af eigin raun hvers vegna
Schiphol er heimsins vinsælasti tengiflugvöllur
Nánari upplýsingar hjá Arnarflugi í síma 84477 og hjá
ferðaskrifstofunum.
Áaetlun ARNARFLUGS til Amsterdam
Brottför Lcnding Brottför Lending
Keflavík Amstcrdam Amsterdam Keflavík
Mánudaga 08:00 12:05 12:55 17:05
Þriðjudaga 08:00 12:05 18:00 20:15
Fimmtudaga 08:00 12:05 12:55 17:05
Föstudaga 08:00 12:05 18:00 20:15
Laugardaga 08:00 12:05 18:00 20:15
Royal Dutch Airlines
Traust flugfélag
Rangæingar
byggja nýtt
sumardval-
arheimili
RANGÆINGAFÉLAGIÐ stefnir
að því að vígja nýtt sumardvalar-
heimili að Hamragörðum Vest-
ur-Eyjafjöllum i vor og efna þá
til ferðalags og veglegrar vígslu-
hátíðar í Félagsheimili Vestur-
Eyfellinga að Heimalandi.
Arshátíð Rangæingafélagsins í
Reykjavík verður haldin í kvöld,
laugardaginn 21. mars og hefst hún
með borðhaldi kl. 19.00. Heiðurs-
gestur úr Rangárþingi verður að
þessu sinni sr. Halldór Gunnarsson
og Margrét Jónsdóttir Kerúlf Holti
V-Eyjafjöllum.
Kór Rangæingafélagsjns syngur
undir stjórn Kjartans Ólafssonar,
Karlakvartett Rangæingafélagsins
syngur undir stjórn Njáls Sigurðs-
sonar og Elín Ósk Óskarsdóttir
óperusöngkona syngur við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar. Þor-
steinn Sigurðsson flytur ljóð.
Dansað verður til kl. 3.00. Veislu-
stjóri verður formaður Rangæinga-
félagsins Dóra Ingvarsdóttir.
Þakkir til
Landhelgis-
gæslunnar
Ég vil fyrir hönd Skipátjóra- og
stýrimannafélagsins Kára, Hafnar-
firði, þakka það frækilega afrek,
sem þið unnið við að bjarga skips-
höfn af ms. Barðanum GK.
Skipstjórinn á ms. Barðanum,
Edvald Edvaldsson, svo stýrimaður-
inn, Bergþór Ingibergsson, eru
báðir virkir félagsmenn í Skip-
stjóra- og stýrimannafélaginu Kára.
Þeir hafa látið öryggis- og björg-
unarmál, sem og önnur málefni,
mjög til sín taka. Við félagsmenn
Kára teljum að þessir menn sem
og aðrir úr áhöfn skipsins hafi ver-
ið heimtir úr helju.
í ræðu undirritaðs á sjómanna-
deginum 1984 hér í Hafnarfirði var
lagður stuðningur við kaup á þeirri
þyrlu, sem nú var notuð við björg-
unarafrek þetta.
Þá var lagt að mér hvort við
gætum ekki notast við varnarliðið
í þeim tilgangi, þar sem þeir væru
ætíð reiðubúnir að hjálpa, og þeir
hefðu þyrluflota á að skipa.
An þess að vanþakka þeirra gerð-
ir, sem hafa verið ómetanlegar, var
ég harður á því, að við ættum sjálf-
ir að eiga þyrlur. Ekki bara eina
heldur fleiri. Jafnvel eina á hvetju
landshomi.
Ég skora því á ykkur að nýta
þann meðbyr, sem þið hafið skapað
ykkur til að auka við þyrluflotann,
og fá aðstöðu og eldneytisgeymslur
víða um land.
Þið fáið örugglega stuðning frá
sjómannastéttinni.
Með kveðju og þakklæti,
Ingvi R. Einarsson, formaður.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF