Morgunblaðið - 30.06.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
Fj órhj ólaakstur:
Hjálmur getur
skípt sköpum
EKKI er skylda að nota hjálm
við akstur fjórhjóla, en að sögn
Óla H. Þórðarsonar hjá Um-
ferðarráði lagði ráðið það til
við Alþingi að lögleidd yrði
skylda til þess að nota hjálma
við akstur fjórhjóla. Við því var
þó ekki orðið.
Óli sagði að ekki væru mjög
mörg fjórhjólaslys skráð hjá þeim.
Um ástæðu þess sagði hann að
þeir fengju ekki allar upplýsingar
um þau, þar eð þau teldust yfir-
leitt ekki eiginleg umferðarslys.
Óli sagði að algengustu slysin
væru í því fólgin að hjólin yltu eða
sporðreistust og lentu ofan á öku-
manni, en einnig kvaðst hann vita
um nokkur dæmi um árekstur fjór-
hjóla og bfla.
Óli sagði að algengustu meiðslin
væru fótbrot, þá ýmist lærbrot eða
ökklabrot, einnig væru höfuð-
meiðsl algeng. „Það er ljóst, að í
þeim tilvikum, þar sem um höfuð-
meiðsl er að ræða, hefði öryggis-
hjálmur komið í veg fyrir eða
dregið úr meiðslum. Þess vegna
viljum við hvetja alla ijórhjólaeig-
endur til þess að nota hjálma,"
sagði Óli H. Þórðarson að lokum.
VEÐURHORFUR í DAG, 30.06.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 700 km suðsuðvestur af landinu er
988 millibara djúp lægð sem þokast norðaustur. Norður af Jan
Mayen er 1033 millibara nærri kyrrstæð hæð.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi
(5-6 vindstig). Dálítil rigning eða súld öðru hverju við austurströnd-
ina og á annesjum fyrir norðan en annars staðar þurrt að kalla. Hiti
á bilinu 8 til 14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Fremur hæg norðlæg átt.
Smáskúrir við norðurströndina en þurrt að mestu annars staðar.
Hiti á bilinu 8 til 15 stig.
TAKN:
Heiðskírt
%
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
v t 1
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hhi veður
Akureyri 8 úrkomafgr.
Reykjavík 12 skýjað
Bergen 18 skýjað
Helsinki 18 skýjað
Jan Mayen B skýjað
Kaupmannah. 19 rigning
Narssarssuaq 7 skúr
Nuuk 7 hálfskýjað
Osló 22 léttskýjað
Stokkhólmur 16 súld
Þórshöfn 14 skýjað
Algarve 26 skýjað
Amsterdam 26 mistur
Aþena 31 léttskýjað
Barcelona 24 mistur
Berlín 28 skýjað
Chlcago 21 alskýjað .
Feneyjar 30 léttskýjað
Frankfurt 28 léttskýjað
Glaskow 19 skýjað
Hamborg 25 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjað
London 28 léttskýjað
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 27 léttskýjað
Madrid 33 léttskýjað
Malaga 26 alskýjað
Mallorca vantar
Miaml 27 alskýjað
Montreal 18 léttskýjaö
NewYork 21 helðsklrt
Parfs 28 léttskýjað
Róm 30 skýjað
Vín 26 skýjað
Washington 21 léttskýjað
Winnipeg 10 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Þtjár konur voru fluttar á slysadeild eftir harðan árekstur á
Ægissfðunni.
Þrjár konur
á slysadeild
HARÐUR árekstur tveggja bif-
reiða varð á mótum Ægissíðu
og Hofsvallagötu um hádegið í
gær. Þijár konur voru fluttar
á slysadeild, en meiðsli þeirra
munu ekki vera alvarleg.
Óhappið varð um kl. 11.30. í
annarri bifreiðinni voru mæðgur
og óku þær vestur Ægissíðuna.
Kona ók hinni bifreiðinni suður
Hofsvallagötu og skullu bifreið-
arnar saman á gatnamótunum.
Konumar meiddust lítillega á
höfði og skárust til dæmis á enni,
en þær notuðu ekki öryggisbelti.
Þær voru fluttar á slysadeild, þar
sem gert var að meiðslum þeirra.
Bifreiðamar eru báðar nokkuð
mikið skemmdar.
Opið skákmót í Philadelpiu:
Ingvar Ásmundsson
með 2 vinninga af 3
INGVAR Ásmundsson var efstur
íslendinganna sem taka nú þátt
í Opna skákmótinu I Philadelpiu
í Bandaríkjunum eftir þijár
fyrstu umferðinar. Ingvar var
þá með 2 vinninga, Sævar
Bjarnason var með 1,5 vinning
en Karl Þorsteins hafði 1 vinn-
ing.
Ingvar byijaði á að gera jafn-
tefli við íranann Shirazi og Klein
frá Þýskalandi en vann síðan Ran-
dolph frá Bandaríkjunum í 3.
Norðurlanda-
mót ungra
spilara í bridge:
Islensku
liðin í
neðstu
sætunum
Norðurlandamót ungra spilara
í bridge, sem haldið var á Eddu-
hótelinu á Hrafnfagilsskóla lauk
nú um helgina. Úrslit urðu þau
að a-sveit Noregs sigraði á mót-
inu en hún hlaut alls 195 stig.
íslenska a-sveitin lenti í áttunda
sæti með 116 stig og b-sveit ís-
lands i níunda sæti með 88 stig.
Önnur úrslit á mótinu urðu þau
að sveit Svíþjóðar hafnaði í öðm
sæti með 157 stig, b-sveit Noregs
og b-sveit Danmerkur í þriðja til
fjórða sæti með 141 stig, a-sveit
Danmerkur í fimmta sæti með 138
stig, b-sveit Finnlands í sjötta
sæti með 135 stig og a-sveit Finn-
lands í sjöunda sæti með 122 stig.
umferð. Sævar Bjamason tapaði í
fyrstu umferð fyrir Blocher frá
Bandaríkjunum en vann síðan Ro-
ush og gerði jafntefli við Canpe,
báða Bandaríkjamenn. Karl byijaði
á að vinna Chabris en tapaði síðan
fyrir Rohde og Gurevich.
Karl er þriðji íslendingurinn sem
tapar fyrir Rhode á stuttum tíma
en bæði Jón L. Ámason og Helgi
Ólafsson hafa orðið að lúta í lægra
haldi fyrir honum. íngvar Ásmunds-
son fékk síðan það verkefni að
hefna í 4. umferðinni sem tefld var
í gærkvöldi en þá átti hann að tefla
við Rhode.
Að þremur umferðum loknum
voru stórmeistaramir Miles frá
Bretlandi, DeFirmian, Gulko og
Brown, allir frá Bandaríkjunum,
efstir og jafnir með 3 vinninga.
Boris Gulko er eiginmaður Önnu
sem vann opna Austfj arðarmótið á
dögunum.
ísafjörður:
Óðinnflytur
veikan dreng
úr Æðey
VARÐSKIPIÐ Óðinn flutti
síðastliðið laugardagkvöld sjúkl-
ing frá Æðey til ísafjarðar.
Beiðni barst til Landhelgisgæsl-
unnar kl. 21.15 á laugardagskvöld
um sjúkrflug frá Æðey til ísafjarð-
ar. Sex ára drengur hafði fengið
alvarlegt botlangakast og treystu
menn sér vegna veðurs ekki til þess
að flytja hann með bát. Varðskipið
Óðinn var í eftirlitsferð í nágrenninu
og var talið hentugra að senda hann
þangað en þyrluna. Óðinn kom um
ellefuleytið til ísafjarðar og var
drengurinn fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafírði. Honum
heilsast nú vel.