Morgunblaðið - 30.06.1987, Side 17
T86I IVfÚl .08 fltIOAŒHXHÍl<l .aiOAJaVíUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
ar
17
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
„Dómnefnd þessi mun
aldrei geta sannfært
nokkurn mann um það
að tengsl hennar við
umsækjendur — andúð
eða kærleikur eftir at-
vikum — hafi ekki haft
áhrif á niðurstöðurnar.
Því hlýtur dómnefnd-
arálitið að hafa lítið
gildi fyrir þann sem
endanlega veitir um-
rædda stöðu.“
skrifaði hvern pistilinn á fætur öðr-
um í sama dúr og má heita að
Þjóðviljinn hafi verið undirlagður
vegna þessara „stórtíðinda". Þó
kom að því að blaðið og fræðimað-
urinn þögnuðu. í ljós kom að
umræddur David Hendry hafði aldr-
ei gefið í skyn að Friedman stundaði
lygar og falsanir. Hann hins vegar
greindi á við Friedman um margt,
en slíkt hefur aldrei talist til merkra
tíðinda í hagfræðiheiminum. Það
voru því Ólafur Ragnar og Þjóðvilj-
inn sem að lokum sátu uppi með
lygina og falsið berstrípaðir fyrir
framan alþjóð.
Það verður því að teljast furðu-
legt af félagsvísindadeild og bei
vott um lítinn fræðilegan metnað
forráðamanna deildarinnar þegar
Ólafur Ragnar Grímsson er valinn
til slíkra dómnefndarstarfa. Og það
er beinlínis hlægilegt þegar Olafur
Ragnar talar um það nú að það sé
vegið að sér sem fræðimanni með
bréfi Jóns Steinars Gunnlaugsson-
ar.
Annar dómnefndarmanna, Svan-
ur Kristjánsson, er landsþekktur
vinstri maður. Er hann ætíð kallað-
ur til þegar klæða þarf árásir á
Sjálfstæðisfiokkinn í fræðilegan
búning. Svanur hefur háð ritdeilur
við Hannes á síðum dagblaða og
farið um hann ófögrum orðum.
Kunnar eru ritdeilur Olafs Ragnars
og Svans við Hannes fyrir nokkrum
árum, sem einmitt lutu að kennslu
í félagsvísindadeild. Voru þær deil-
ur mjög hatrammar og verður ekki
annað séð en að það sé réttmæt
krafa Hannesar að Svanur setjist
ekki í dómarasæti yfir honum eftir
deilur þeirra.
Kennslubókardæmi
Við þetta bætist síðan að allir
eru dómnefndarmennimir nánir
samverkamenn annars umsækj-
anda um stöðuna, Ólafs Þ. Harðar-
sonar. Umrædd dómnefndarskipun
er því kennslubókardæmi um van-
hæfiii manna til meðferðar einstaks
máls og eru viðbrögð forráðamanna
félagsvisindadeildar við bréfi Jóns
Steinars Gunnlaugssonar fyrir neð-
an allar hellur. Forseti deildarinnar
hefur í blöðum látið hafa eftir sér
að þrátt fyrir ofangreindar stað-
reyndir þá geti dómnefndarmenn
„sett fagleg sjónarmið ofar per-
sónulegum" (Morgunblaðið 4. júní
sl.) Sú yfírlýsing ber vott um skiln-
ingsleysi á viðteknum grundvallar-
reglum og lítilli virðingu fyrir rétti
einstaklings til réttlátrar og efnis-
legrar málsmeðferðar. Dómnefnd
þessi mun aldrei geta sannfært
nokkum mann um það að tengsl
hennar við umsækjendur — andúð
eða kærleikur eftir atvikum — hafí
ekki haft áhrif á niðurstöðumar.
Því hlýtur dómnefndarálitið ^ð hafa
lítið gildi fyrir þann sem endanlega
veitir umraedda stöðu.
Það er háskólanum mikilvægt að
vera laus við gagnrýni á borð við
þá sem nú er fram komin. Ef hins
vegar slfk gagnrýni kemur fram þá
ber forráðamönnum skólans að
bregðast við henni með trúverðug-
um hætti. Þeirri ótvíræðu skyldu
sinni hefur félagsvfsindadeild því
miður brugðist.
Höfundur er lögfræðingur og
starfarsem framkvæmdasijóri
Fulltrúaráðs sjáifstæðisfélaganna
íReykjavík.
Hurðir sem
OPIMA
ýmsa möguleika
Kostir Iyftihurðanna frá Héðni eru margir og nægir þar að nefna að þær taka
lítið rými, eru auðveldar í uppsetningu og léttar og meðfærilegar.
Lyftihurðirnar hafa verið valdar á staði, þar sem hraði og öryggi skipta máli,
s.s. á slökkvistöðvum, en þær henta einnig einstaklingum og fyrirtækjum.
Lyftihurðirnar eru mjög vel einangraðar, fást í tíu litum og hægt er að velja
um mismunandi glugga- og brautaútfærslur.
Lyftihurðimar frá Héðni
eru fyrir þá sem vilja halda öllum möguleikum opnum.
Hafið samband við sölumenn okkar og leitið tilboða í hurðir og uppsetningu.
Seljavegi 2 Sími 24260
\\os4
'á
*****
o<3
AþVob
'þai
íet
eb
aúib^
Vðsxbo
aWat
pab
let
s\as
íe