Morgunblaðið - 30.06.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.06.1987, Blaðsíða 17
T86I IVfÚl .08 fltIOAŒHXHÍl<l .aiOAJaVíUOHOM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987 ar 17 Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson „Dómnefnd þessi mun aldrei geta sannfært nokkurn mann um það að tengsl hennar við umsækjendur — andúð eða kærleikur eftir at- vikum — hafi ekki haft áhrif á niðurstöðurnar. Því hlýtur dómnefnd- arálitið að hafa lítið gildi fyrir þann sem endanlega veitir um- rædda stöðu.“ skrifaði hvern pistilinn á fætur öðr- um í sama dúr og má heita að Þjóðviljinn hafi verið undirlagður vegna þessara „stórtíðinda". Þó kom að því að blaðið og fræðimað- urinn þögnuðu. í ljós kom að umræddur David Hendry hafði aldr- ei gefið í skyn að Friedman stundaði lygar og falsanir. Hann hins vegar greindi á við Friedman um margt, en slíkt hefur aldrei talist til merkra tíðinda í hagfræðiheiminum. Það voru því Ólafur Ragnar og Þjóðvilj- inn sem að lokum sátu uppi með lygina og falsið berstrípaðir fyrir framan alþjóð. Það verður því að teljast furðu- legt af félagsvísindadeild og bei vott um lítinn fræðilegan metnað forráðamanna deildarinnar þegar Ólafur Ragnar Grímsson er valinn til slíkra dómnefndarstarfa. Og það er beinlínis hlægilegt þegar Olafur Ragnar talar um það nú að það sé vegið að sér sem fræðimanni með bréfi Jóns Steinars Gunnlaugsson- ar. Annar dómnefndarmanna, Svan- ur Kristjánsson, er landsþekktur vinstri maður. Er hann ætíð kallað- ur til þegar klæða þarf árásir á Sjálfstæðisfiokkinn í fræðilegan búning. Svanur hefur háð ritdeilur við Hannes á síðum dagblaða og farið um hann ófögrum orðum. Kunnar eru ritdeilur Olafs Ragnars og Svans við Hannes fyrir nokkrum árum, sem einmitt lutu að kennslu í félagsvísindadeild. Voru þær deil- ur mjög hatrammar og verður ekki annað séð en að það sé réttmæt krafa Hannesar að Svanur setjist ekki í dómarasæti yfir honum eftir deilur þeirra. Kennslubókardæmi Við þetta bætist síðan að allir eru dómnefndarmennimir nánir samverkamenn annars umsækj- anda um stöðuna, Ólafs Þ. Harðar- sonar. Umrædd dómnefndarskipun er því kennslubókardæmi um van- hæfiii manna til meðferðar einstaks máls og eru viðbrögð forráðamanna félagsvisindadeildar við bréfi Jóns Steinars Gunnlaugssonar fyrir neð- an allar hellur. Forseti deildarinnar hefur í blöðum látið hafa eftir sér að þrátt fyrir ofangreindar stað- reyndir þá geti dómnefndarmenn „sett fagleg sjónarmið ofar per- sónulegum" (Morgunblaðið 4. júní sl.) Sú yfírlýsing ber vott um skiln- ingsleysi á viðteknum grundvallar- reglum og lítilli virðingu fyrir rétti einstaklings til réttlátrar og efnis- legrar málsmeðferðar. Dómnefnd þessi mun aldrei geta sannfært nokkum mann um það að tengsl hennar við umsækjendur — andúð eða kærleikur eftir atvikum — hafí ekki haft áhrif á niðurstöðumar. Því hlýtur dómnefndarálitið ^ð hafa lítið gildi fyrir þann sem endanlega veitir umraedda stöðu. Það er háskólanum mikilvægt að vera laus við gagnrýni á borð við þá sem nú er fram komin. Ef hins vegar slfk gagnrýni kemur fram þá ber forráðamönnum skólans að bregðast við henni með trúverðug- um hætti. Þeirri ótvíræðu skyldu sinni hefur félagsvfsindadeild því miður brugðist. Höfundur er lögfræðingur og starfarsem framkvæmdasijóri Fulltrúaráðs sjáifstæðisfélaganna íReykjavík. Hurðir sem OPIMA ýmsa möguleika Kostir Iyftihurðanna frá Héðni eru margir og nægir þar að nefna að þær taka lítið rými, eru auðveldar í uppsetningu og léttar og meðfærilegar. Lyftihurðirnar hafa verið valdar á staði, þar sem hraði og öryggi skipta máli, s.s. á slökkvistöðvum, en þær henta einnig einstaklingum og fyrirtækjum. Lyftihurðirnar eru mjög vel einangraðar, fást í tíu litum og hægt er að velja um mismunandi glugga- og brautaútfærslur. Lyftihurðimar frá Héðni eru fyrir þá sem vilja halda öllum möguleikum opnum. Hafið samband við sölumenn okkar og leitið tilboða í hurðir og uppsetningu. Seljavegi 2 Sími 24260 \\os4 'á ***** o<3 AþVob 'þai íet eb aúib^ Vðsxbo aWat pab let s\as íe
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.