Morgunblaðið - 01.07.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JULI 1987
Sovéskur Typhoon-kafbátur. Hann er stærsti kafbátur í heimi, 24.000 lestir, og- getur borið tuttugu
SS-N-20 kjarnorkuflaugar, sem draga 5.000 sjómílur.
Sovétmenn endurbæta
flotann
Sovétmenn hafa nú endurbætt
eldri báta sína og gert þá lágværari,
og illfinnanlegri með því að húða þá
með efni sem deyfir endurkast hljóðs
af þeim. Einnig hefur þeim tekist
að smíða nýja kafbáta með skrúfum,
sem eru nánast hljóðlausar. Það tókst
með hjálp búnaðar frá Noregi og
Japan, sem fluttur var ólöglega til
Sovétríkjanna. Vestrænir sérfræð-
ingar telja að þessi útflutningur
gæti kostað NATO smíði nýs kaf-
bátavamarkerfís, sem gæti kostað
allt að 1200 milljarða króna. Norsk
stjómvöld hafa hert eftirlit með út-
flutningi vegna þessa, og Gro Harlem
Brundtland heftir beðið bandaríkja-
forseta formlega afsökunar á því að
útflutningur tækjanna hafi verið
leyfður. Japanir hafa bannað Tos-
hiba-fyrirtækinu, sem flutti búnaðinn
út, að stunda viðskipti við kommún-
istaríki í ár.
Bandarískir kafbátsforingjar segja
að sífellt erfiðara verði að fylgjast
með kafbátum Sovétmanna vegna
þess að alls konar önnur hljóð í sjón-
um séu farin að yfirgnæfa þá.
Bandarísku kafbátamir þurfa nú að
vera miklu nær en áður til að geta
fylgst með andstæðingnum. í októ-
ber rakst kafbátur af gerð 688, sem
eru nýjustu og fullkomnustu bátar
Bandaríkjamanna, á sovéskan kaf-
bát, sem hann var að elta, sökum
þess að ætti hann ekki að missa af
honum varð hann að vera mjög ná-
lægt.
Það er þvf ljóst að Bandaríkjamenn
þurfa mjög bráðlega á nýju kaf-
bátavamakerfí að halda. Ýmsar
hugmyndir em í vinnslu, til dæmis
litlir kafbátar tengdir móðurbátnum
með trefjaþræði, sem gætu sent frá
sér könnunarhljóðmerki án þess að
koma upp um staðsetningu bátsins.
Einnig kemur til greina að gervi-
hnettir taki ljósmyndir af yfírborði
sjávar í leit að línum, sem kafbátar
mynda á yfírborðinu, eða þá að hann-
aður verði búnaður sem leitar uppi
ýmsar breytingar sem bátamir valda
í sjónum, til að mynda hitabreyting-
ar. Það liggur ljóst fyrir að hin nýja
tækni getur ekki byggst á hlustun,
vegna þess að kafbátar Sovétmanna
eru að verða jafnhljóðlátir og Trid-
ent- og Poseidonbátar Banda-
ríkjanna, en talið hefur verið að
ómögulegt sé að rekja braut þeirra.
Á sama tíma halda Sovétmenn
áfram með hina umfangsmiklu kaf-
bátasmíði sína. Þeir hafa sex nýjar
tegundir í smíðum, þar á meðal Typ-
hoon - gerðina, sem er stærsti
kafbátur heims og getur borið lang-
drægar kjamorkuflaugar. Þeir halda
líka áfram smíði mjög lágværra
dísilkafbáta, sem ganga fyrir raf-
geymum meðan þeir eru í kafí, og
hafa smíðað kafbáta með byrðing
úr títaníum.sem gerir þeim kleift að
kafa niður á um 800 metra dýpi -
300 metrum dýpra en nokkur kaf-
bátur Bandaríkjamanna kemst.
Einnig er talið að þeir hafí smíðað
nokkurs konar „þrýstivatnshreyfil",
sem svipar til þotuhreyfíls. Vestræn-
ir sérfræðingar segja að sovéskir
kafbátasmiðir séu einnig framarlega
í neðansjávarmálmfræði, sem geri
þeim kleift að smíða kafbátsbyrðing
sem stenst tundurskeyti, og að haf-
fræðingar hafí leitað uppi felustaði
fyrir kafbátana við neðansjávar-
strauma og hringiður.
Alit Toms Clancy
Rithöfundurinn Tom Clancy, sem
frægur varð fyrir skáldsögur sínar
Leitin að rauða október og Rauður
stormur, sem er nýlega komin út á
íslensku hjá Bókaklúbbi Almenna
bókafélagsins, lýsir í þeim m.a. felu-
leik kafbátahemaðarins. Hann segir
í nýlegu viðtali að Sovétmenn gætu
komist fram úr Bandaríkjamönnum
vegna þess að þeir séu óhræddir við
að gera tilraunir og læra af mistök-
unum. Bandaríski flotinn leggi ekki
stund á slíkt, vegna þess að enginn
I
- I
____________________________33
þori að hætta á að gera mistök við’
tilraunir. „En á þann hátt einn læra
menn“, segir Clancy. Hann telur
einnig að sovéskir kafbátar geti
sökkt flugmóðurskipum Banda-
ríkjanna, takist þeim að sitja fyrir
þeim, en litlar líkur séu til þess ef
þeir þurfa að leita skotmörkin uppi,
því þá verði þeir auðveldlega upp-
götvaðir.
Bandaríkjamenn binda nú einkum
vonir sínar við SSN-21 Seawolf -
kafbátana, sem eru á teikniborðinu. w i
Seawolf-bátamir yrðu bæði stærri
og hljóðlátari en eldri gerðir, með
sónar-skynjara festa víða á skrokk-
inn. Það myndi gera bátnum kleift
að fylgjast vel með óvinaferðum. Um
Seawolf-áætlunina segir Tom
Clancy: „Seawolf-báturinn verður
eflaust mjög góðum eiginleikum bú-
inn, en það sem veldur mér áhyggj-
um, er að þetta er fyrsta nýja
kafbátsgerðin, sem er smíðuð frá því
'seint á sjöunda áratugnum. Það em
nærri 20 ár frá þvi að smíði 688-
gerðarinnar var fyrirskipuð þar til
farið er að beygja stálið í næstu
gerð“.
Það fer svo eftir ákvörðun Banda-
ríiq'aþings um það hvort ímynd
flotans byggist áfram á flugmóður-
skipum og stómm hefðbundnum
herskipum. Það er að minnsta kosti
ljóst að nýjar gerðir eldflauga gera
flugmóðurskipunum mun erfiðara
fyrir að komast í gegnum vamir
óvinanna, og það getur því svo farið,
að stóm skipin verði að láta í minni
pokann fyrir hinum rennilegu og
hljóðlátu en hættulegu skipum, sem
fela sig undir haffletinum.
Byggt á U.S. News World
Report og Reuter
Neðansjávar
■Grænland
Noregur Svíþjóð
Bretland
Norðursjór
Skipalestir
Bækistöðvar
sovéskra kafbá
GIUK-HLIÐIÐ.
Varnir NATO-ríkja í hinu 700 sjómilna
breiða GIUK-hliði (Greenland-lceland-
United Kingdom), sem spannar hafsvœðið
milli Grænlands, íslands og Skotlands,
hindra sovóska kafbáta, sem ætlað er að
ráðast inn á Atlantshafið til að tortfma
skipum á aðflutningsleiðum NATO frá
Norður-Ameríku til hersveita í Evrópu.
Kafbátaleitarskip draga hlustunartæki,
sem koma til viðbótar við SOSUS-hlustun-
arkerfið í hliðinu. Þau senda frá sér vitn-
eskju um óvinakafbáta um gervihnött.
NATO-ríkin dreifa um hafsbotninn svoköll-
uðum CAPTOR-djúpsprengjum, sem láta
stjórnast af hljóði frá sovéskum kafbátum
og skjóta að þeim tundurskeytum. Djúp-
sprengjunum er aöeins dreift um hluta
hafsvæðisins og skilja þannig afganginn
eftiropinn bandarískum kafbátum, sem
ætlað er að ráðast gegn sovéskum kaf-
bátum, sem bera kjarnaflaugar, en þeir
mara hljóðlega í kafi undir heimskautaísn-
um. Þyrlur, sem fylgja flugmóðurskipum
Vesturveldanna, draga neðansjávarhlust-
unartæki og verjast síðustu kafbátunum,
sem kunna að hafa sloppið framhjé tundur-
spillum og kafbátum, sem fylgja flugmóður-
skipunum.