Morgunblaðið - 01.07.1987, Síða 37

Morgunblaðið - 01.07.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1987 37 Hótel Akureyri og Sjallinn: Nýr yfirmatreiðslu maður ráðinn Ari Garðar Georgsson fyrir framan Hótel Akureyri. NÝLEGA var gengið frá ráðn- ingn Ara Garðars Georgssonar sem yfirmatreiðslumeistara Sjallans og Hótels Akureyrar. Ari Garðar er með margra ára reynslu að baki sem yfirmat- reiðslumaður og ráðgjafi við gerð nýrra matseðla, endur- skipulagningu eldhúsa og þjálfun starfsfólks í veitingasölum. Veitingasalur hótelsins verður opinn alla daga vikunnar og verður morgunverður borinn fram frá mánudegi til fostudags og um helg- ar verður boðið upp á matarmeiri morgunverð (brunch). í hádegi frá mánudegi til föstudags verða á boð- stólum hraðréttir og verður matseð- ill breytilegur með fisk- og kjötréttum í bland. Um helgar verð- ur sveitahlaðborð sem Ari Garðar mun útfæra eftir eigin smekk. Á kvöldin verður veitingasalur hótelsins dekkaður upp með kerta- ljósum á borðum og verða fram- reiddir sérréttir samkvæmt matseðli og mun á þeim lista kenna ýmissa nýrra grasa í matargerðar- list í evrópskum og austurlenskum stíl. Bar hótelsins verður opinn öll kvöld með ljúfri tónlist og sjónvarpi fyrir þá sem vilja. í Sjallanum hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á eldhúsi sem miða allar að því að geta boð- ið gestum upp á hraða en góða þjónustu. Ný tæki hafa verið keypt og önnur endumýjuð þannig að Sjallinn er nú í fyrsta sinn í stakk búinn til þess að taka á móti allt að 500 manns og afgreiða heitan disk fyrir hvem og einn á ca. 25 mín. I sumar verður boðið upp á þríréttaðan matseðil á föstudögum og laugardögum í aðalsal og í kjall- aranum verður matur á boðstólum á miðvikudögum til sunnudags. Hljómsveit Ingimars Eydals leik- ur fyrir dansi í Sjallanum. (Fréttatilkynning) Híbýli byggir brú yfir Glerá BÆJARRÁÐ hefur ákveðið að taka tilboði Híbýlis um byggingu brúar yfir Glerá. Tvö tilboð bárust í verkið, hitt frá Norðurverki. Brúin mun tengja saman Hjalteyr- argötu og Krossanesbraut og er þetta fjórða brúin, sem byggð er yfir Glerána. Tilboð Híbýlis hljóðaði upp á 6.915.200 krónur og var tæplega 19% yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á rúmlega 6.038.000 krónur, að sögn Guðmundar Guðlaugssonar, bæjarverkfræðings. Norðurverk bauð í verkið 7.398.580 krónur sem var 27% yfir kostnaðaráætlun. Guðmundur sagði að líklega yrði . ekki hafist. handa við smíði brúarinn- ar fyrr en upp úr miðjum júlí þar sem hætta væri á flóðahættu fram að þeim tíma. Akreinar verða tvær, í sitt hvora áttina, auk gangstétta beggja vegna. Brúin verður 17 metr- ar að lengd og 13,50 metra breið. Fyrirhugað er að brúin verði fullgerð þann 10. október. atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Bílaviðgerðir Starfskraftur óskast strax til púst- og bremsuviðgerða. J. Sveinsson & Co., Hverfisgötu 116, Reykjavík. Afgreiðslustarf Stúlka óskast til afgreiðslu í hálft starf (vakta- vinnu) í minjagripaverslun í borginni. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Reglusemi 6016“. Fóstrur — fóstrur eða starfsfólk með reynslu á uppeldissviði óskast á leikskólann Árborg, Árbæjarhverfi, frá og með 4. ágúst. Upplýsingar veitir forstöðumaður, Emilía B. Möller, í síma 84150. Dagheimilið Vesturás óskar eftir að ráða starfskraft í fullt starf frá 4. ágúst. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 688816. Kjallaravörður Roskinn og laghentur maður, heilsugóður og reglusamur, óskast til léttra starfa hálfan daginn (fyrri hluta dags). Upplýsingar á skrifstofu, ekki í síma. Reykjavíkur Apótek. 1. vélstjóra og vélavörð vantar á Sif ÍS 225 sem er að hefja dragnóta- veiðar. Upplýsingar í símum 94-7708 og 94-7614. Mörgum kílómetrum á undan. Verð frá kr. 11.533,- ísetning samdægurs. Auk þess höfum við LW/MW/FM stereo-bíltæki með segulbandi frá kr. 4.915.- ■HUOMBÆR HVERRSGÖTU 103 SÍMI 25999 Radíóþjónnsta Bjarna SÍÐUMÚLA 17. SÍMI 83433 Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA Akureyri, Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði, Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi, Rás Þorláks- höfn, Fafava/Keflavík, Rafeindaþjónusta ÓmarsVestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL-húsið Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.