Morgunblaðið - 03.07.1987, Side 25
Frakkland
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
25
Mitterrand vex
að vinsældum
París, Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, Frakk-
landsforseti, nýtur langmestra
Bandaríkín:
Aframhald
á hagrexti
Washington, Reuter.
MALCOLM Baldrige, viðskipta-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á þriðjudag, að nýfram-
komnar hagtölur fyrir maímánuð
sýndu áframhaldandi hagvöxt.
Ráðherrann varaði hins vegar við
því, að minnkandi peningaframboð
gæti orðið til þess að draga úr
hagvexti þar í landi.
Bandaríski seðlabankinn dró úr
peningaframboði fyrr á þessu ári, sem
varð til þess að vextir hækkuðu. Til-
gangurinn með þessari ráðstöfun var
að styrkja dollarann og draga úr
hættu á verðbólgu.
Beryl Sprinkel, helzti efnahags-
málaráðgjafi Reagans forseta, varaði
á þriðjudag einnig við hættunni, sem
stafaði af áframhaldandi aðhaldssemi
seðlabankans. Hélt Sprinkel því fram,
að hún gæti orðið til þess að spilla
mjög fyrir áframhaldandi hagvexti í
Bandaríkjunum.
vinsælda sem hugsanlegur
frambjóðandi í næstu forseta-
kosningum en athygli vekur
aukinn stuðningur við Jean-
Marie Le Pen, leiðtoga Þjóð-
fylkingarinnar. Kemur þetta
fram í skoðanakönnun, sem birt
var í gær.
Mitterrand hefur verið að vaxa
að vinsældum allt frá því flokkur
hans, Sósíalistaflokkurinn, tapaði
í þingkosningunum í fyrra og fengi
ef nú væri kosið 37% í fyrri um-
ferð forsetakosninga. Mitterrand
hefur enn ekki sagt af eða á um
hvort hann ætlar að gefa kost á
sér í forsetakosningunum, sem
verða í maí að ári, en í könnun-
inni kom einnig fram, að í síðari
umferðinni myndi hann vinna auð-
veldan sigur á tveimur helstu
andstæðingum sínum úr hópi
hægrimanna, þeim Jacques
Chirac, forsætisráðherra, og Ra-
ymond Barre, fyrrum forsætisráð-
herra.
í könnuninni, sem var gerð fyr-
ir tímaritið VSD, kom líka í ljós,
að 13% kjósenda vilja hægriöfga-
manninn Le Pen fyrir forseta og
hefur þeim fjölgað um 4% á einum
mánuði.
„ Viljum betra
sjónvarp“
-segja kínverskir áhorfendur
Peking, Reuter.
FYRIR tíu árum var sjónvarps-
tæki aðeins draumsýn í augum
flestra Pekingbúa. Nú eiga
flest heimili tæki, en ný ósk
hefur skotið upp kollinum -
betri og fjölbreyttari dagskrá.
„Dagskráin er svo leiðinleg að
það er næstum því aldrei neitt sem
mig langar til að horfa á,“ segir
26 ára gömul framreiðslustúlka.
„Mig langar til að fá mér mynd-
bandstæki eins og sumir eiga en
ég hef ekki efni á því.“
Tímarit er nefnist Kínverskt og
erlent sjónvarp finnur margt að
kínversku sjónvarpsstöðvunum.
„Of miklar endursýningar, dag-
skráin of oft trufluð með auglýs-
ingum og fréttainnskotum,
ógnarlangir, útlendir þættir sem
enginn getur horft á til enda og
ekki nægilega margar kvikmyndir
af venjulegri lengd," segir í ritinu.
Einnig er kvartað undan því
að áætlanir um dagskrá séu
óskipulegar og nokkrar stöðvar
flytji stundum sömu þætti frá
Japan eða Hong Kong samtímis.
Aður fyrr gat fólk aðeins feng-
ið að horfa á sjónvarp á vinnu-
staðnum eða í skólanum en flestar
fjölskyldur í milljónaborgunum
eiga nú tæki. Helmingur tækj-
anna er í sauðalitunum.
„Þetta hefur breytt lifnaðar-
háttum okkar. Lífíð er orðið
skemmtilegra og við förum seinna
að hátta en áður“, segir Wang
Qiong, tæknifræðingur á fertugs-
aldri. Sjálfur hefur hann mest
gaman af kínverskum söngva-
þáttum, einkum frá Hong Kong.
Hann segir að sjónvarpsstöðvam-
ar hafi fækkað sýningum á
stríðs-og ástarmyndum eftir að
fjöldi bréfa barst frá foreldrum
sem kvörtuðu undan því að börnin
vanræktu heimanámið vegna
sjónvarpsgláps.
Hann bætti því við að dagskrá-
in væri oft leiðinleg vegna krafna
um að hún hefði uppeldis-og
menntunargildi.
Embættismaður nokkur sagði
að deilt væri um megináhersluna
í dagskrárgerðinni - hvort hún
ætti að vera á menntun eða af-
þreyingu. Almenningur vildi
afþreyingu en stöðvarstjórar
menntun. Það síðamefnda gilti
einkum um þær stöðvar sem væru
undir eftirliti áróðursdeildar kom-
múnistaflokksins. Minni, sjálf-
stæðari stöðvar keyptu hins vegar
oft efni frá útlöndum og fjár-
mögnuðu kaupin með því að selja
auglýsingatíma sem þær fengju
greiddan með beinhörðum gjald-
eyri.
Japanskir framhaldsþættir
munu njóta mikilla vinsælda í
Kína. Einnig er mikið horft á
íþróttaþætti. Sem stendur er þó
vinsælastur langur framhalds-
þáttur sem byggður er á klassís-
kri, kínverskri sögu er fjallar um
hnignun yfirstéttarfjölskyldu á
keisaratímanum.
Fréttaflutningur er bágborinn.
Wang tæknifræðingur segir að
margir horfi aðeins á síðustu tíu
mínútur fréttatímans sem helgað-
ur er erlendum fréttum en sleppi
þeim tuttugu mínútum sem fjalli
um innanlandsmál. Þar sé einfald-
lega allt of mikið af fyrirmyndar-
verkamönnum og verksmiðjum
sem fari fram úr framleiðsluáætl-
unum. Heldur hafí þó fréttaflutn-
ingurinn skánað að undanfömu
t.d. hafí skógareldunum miklu í
Norðaustur-Kína verið gerð góð
skil. Einnig hafí nýlega verið sjón-
varpað frá fundi ríkisstjómarinn-
ar þar sem ákveðið var að víkja
skógræktarráðherranum úr emb-
ætti og væri þetta nýbreytni.
Leigubílstjóri nokkur sagðist
aldrei trúa nokkru sem sagt væri
í sjónvarpinu.
„Veðurfræðingamir spá aldrei
meira en 36 gráðu hita. Yfírvöld
em hrædd um að fólk myndi nota
meiri hita sem afsökun fyrir því
að mæta ekki í vinnuna."
Gandhi glettist við Gorbachev
Moskvu, Reuter.
RAJIV Gandhi, forsætisráðherra Indlands, og Gorbachev Kremlarleiðtogi virðast skemmta sér hið
besta á fundi sínum i gær. Gandhi er nú staddur í Kreml og mun hitta Gorbachev aftur áður en
hann heldur heim. Búist var við að leiðtogamir ræddu einkum hvemig hægt væri að efla efnahags-
tengsl Indlands og Sovétríkjanna.
Þér standa allar dyr opnar
í Nýjabæ á laugardögum.
Þegar búöirnar í bæn-
um loka er aðeins eitt
til ráða: Að versla í
næsta bæ við.
[ sumar er opið í Nýja-
bæ á laugardögum frá
kl. 9 - 13, á föstudöq-
um til kl. 21 og alla aðra
daqa til kl. 19.
MÍR
VÖRUHÚSIÐ EIÐ/STORG/