Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 158. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Risaoliuskip frá Kuwait: Nota kíki til að sjá stafna á milli Bahrain, Reuter. Risaolíuskipið frá Kuwait, sem verður fyrst til að sigla undir bandarískum fána inn á Persaflóa, er svo stórt, að þeg- ar yfirmennirnir eru í brúnni aftast á skipinu verða þeir að nota kíki til að sjá hvað fram fer í stafninum. Al-Rekkah, sem í næstu viku siglir inn á flóann undir nafninu Bridgeton, er stærsta skipið í eigu Kuwaitmanna og það stærsta í Miðausturlöndum, 401.382 tonn, 366 metra langt og 70 metra breitt. Er mikil sjálfvirkni um borð í þessum „Rolls Royce“ olíu- skipanna og áhöfnin aðeins 27 manns. Skipstjórinn er banda- rískur, aðrir yfirmenn evrópskir en undirmenn frá Filippseyjum. Haft er eftir kunnugum, að réðust íranir á skipið með þeim vopnum, sem þeir hafa beitt að undanförnu, hreyfilstýrðum hand- sprengjum, skriðdrekaflaugum og vélbyssuskothríð, væri það eins og að „stinga fíl með títupijón- um“. Reuter Á myndinn sést fólk leita að persónulegum munum sínum á tjaldstæðinu í gær eftir flóðið. Bilar og húsvagnar lágu eins og hráviði um allt svæðið. Flóðið í Frakklandi: Talið að 50 hafi látið lífið Annecy, Frakklnndi, Reuter. ÓTTAST er að 50 manns hafi farist í gær þegar áin Borne fiæddi yfir bakka sína og færði tjaldstæði í frönsku Ölpunum á kaf í vatn og eðju. Sagði lög- reglan, að tjöld, húsvagnar og bílar hefðu sópast burt með flóðöldunni. Um miðjan dag í gær höfðu fundist 22 lík og þóttu þá litlar líkur á, að nokkur þeirra 28, sem enn var saknað, væri á lífí. Fjöru- tíu manns slösuðust, þar af tíu alvarlega, en á tjaldstæðinu voru 200 manns þegar flóðið skall yfír. Stafaði það af gífurlegu úrfelli, sem aftur olli miklum vatnavöxt- um í ám og lækjum. Fólkið á tjaldstæðinu uggði ekki að sér fyrr en leðjan og vatn- ið steyptust yfír það og eru nokkur börn meðal hinna látnu. Brak úr húsvögnum og öðru á tjaldstæð- inu skolaðist út í Borne-á, sem rennur í Arve-fljót, og er nú verið að leita þar að líkum þeirra, sem er saknað. Danmörk: Járnbrautar- starfsmönn- um hótað lífláti Kaupmannahöfn, frá fréttaritara MorgnnbiaðsinB, NJ. Bruun. FORSTJÓRA Dönsku ríkisjám- brautanna hafa borist bréf undanfarnar tvær vikur þar sem hótað er morðum og skemmdar- verkum ef tilræðismennimir fái ekki greiddar þtjár og hálfa milljón danskra króna. Stjóra fyrirtækisins og lögreglan hafa reynt að halda þessu leyndu en dagblað nokkurt komst að hinu sanna og sagði frá hótununum í gær. Fyrir nokkru sprakk sprengja í sjúkrahúsi í landinu og kröfðust tilræðismenn þá einnig peninga. Þeir hafa hins vegar beðist afsök- unar og lofað bót og betrun. Lögreglan telur að ekki sé um sömu menn að ræða. Skemmdarverk hafa verið unnin á eignum Ríkisjámbrautanna síðan fyrsta bréfið barst 27. júní. Bensíni var hellt inn um bréfalúgu hjá háttsettum yfírmanni jámbraut- anna og síðastliðinn laugardag var kveikt í lest á stöð norður af Kaup- mannahöfn. Skaðinn nemur um 18 milljónum danskra króna. í einu bréfanna var því hótað að þrír starfsmenn járnbrautanna yrðu teknir af lífí ef ekki yrði geng- ið að kröfunum; einnig var hótað skotárásum á lestir og sagt að þær yrðu settar út af sporinu. Yfírvöld töldu nauðsynlegt að halda málinu leyndu en stéttarfélag starfsmann- anna er ósammála þeirri ákvörðun. Reuter Poindexter (t.v.) ásamt ráðgjafa sínum, Richard Beckler, við yfir- heyrslurnar í gær. Djúpsprengj- um varpað Stokkhólmi, Reuter. SÆNSKAR flotaþyrlur vörpuðu í gær djúpsprengjum á staði í Helsingjabotni þar sem menn hafa grun um að erlendir kaf- bátar og kafarar hafist við. Talsmaður sænska flotans sagði að kafbátaleitin hefði nú staðið i meira en tvær vikur. „Aðgerðimar em byggðar á nið- urstöðum mælitækja og lýsingum sjónarvotta en sprengingamar hafa ekkert leitt í ljós ennþá,“ sagði tals- maðurinn. Kafbátanet hafa verið lögð til að reyna að loka hafsvæðinu og frístundaköfun var bönnuð þar í gær. Poindexter í vitnaleiðslu: Reagan vissi ekki um kontra-greiðslumar Washington, London, Reuter. JOHN Poindexter, fyrram ör- yggisráðgjafi Reagans forseta, bar í gær í fyrsta sinn vitni fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkja- þings og sagðist hann hafa verið einn um að samþykkja þá ráða- gerð að yfirfæra hagnað af Irans-vopnasölunni til kontra- skæruliða í Nicaragua. Hann sagðist hafa talið málið hættu- Iegt frá pólitísku sjónarmiði og þvi ákveðið að blanda Reagan ekki í það. Ég tók vandlega ígmndaða ákvörðun um að biðja forsetann ekki leyfis fyrir áætluninni vegna þess að þannig gat ég firrt hann ábyrgð og gert honum fært að neita öllu ef eitthvað læki út síðar," sagði Poindexter sem sagði af sér emb- ætti í nóvember síðastliðnum, sama dag og North ofursta var vikið frá störfum. Hann sagðist einnig sann- færður um að forsetinn hefði sjálfur verið samþykkur ráðagerðinni ef hann hefði fengið vitneskju um hana. Rauði þráðurinn í vöm Norths ofursta fýrir nefndinni undanfama daga var sá að hann hefði aðeins hlýtt skipunum yfírmanna sinna eins og sönnum landgönguliða bæri og ítrekaði hann oft föðurlandsást sína. Poindexter, sem er aðmíráll að tign, tók hins vegar alla ábyrgð á sjálfan sig og sagði í gær að hann væri stoltur af stöðu sinni í flotanum en málið kæmi flotanum ekkert við. Hann var borgaralega klæddur við yfirheyrsluna í gær. Eitt atriði í vitnisburði aðmíráls- ins kemur sér illa fyrir forsetann. Poindexter staðhæfír að Reagan hafí í desember 1985 undirritað skjal þar sem leyfí er veitt til að selja bandarísk vopn til írans gegn loforði þess efnis að bandarískum gíslum, sem stuðningsmenn írana í Líbanon héldu föngnum, yrði sleppt úr haldi. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að forsetinn minntist þess ekki að hafa undirrit- að slíkt skjal. Forsetinn hefur áður sagt að upprunalegi tilgangurinn með vopnasölunni hafí verið sá að koma á sambandi við hófsöm öfl í íran. Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, mun ræða við Reagan í Hvíta húsinu á morgun og sögðu breskir embættismenn að hún myndi hvetja hann til að eyða ekki tíma sínum í vopnasölumálið en tryggja þess í stað að Bandaríkin taki frumkvæði í málefnum Miðausturlanda og af- vopnunarviðræðum risaveldanna. Kafbátaleit Svía:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.