Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987 Staðsetning ræður fasteingaverði Frá verkfallsvörlu við Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. 10. júní síðastliðinn. MorKunblaa‘ð/E‘narFalur Félagsdómur um verkfræðingadeiluna: Hluthafar ekki endi- lega vinnuveitendur FÉLAGSDÓMUR hefur dæmt í deilu Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. og Stéttarfélags verkfræðinga. Niðurstaða dóms- ins var sú að viðurkenndur var réttur verkfræðistofunnar til að láta framkvæmdarstjóra, aðstoð- arframkvæmdastjóra, stjórnar- menn og þá hluthafa, sem væru félagsmenn í Felagi ráðgjafar- verkfræðinga vinna verkfræði- störf í verkfalli Stéttarfélags verkfræðinga. Oðrum hluthöfum "var hins vegar ekki talið heimilt að vinna, enda veitti hlutafjár- eign þeirra sem slík þeim ekki stöðu vinnuveitenda. Aðdragandi þessa máls var sá, að 5. júní síðastliðinn boðaði Stétt- arfélag verkfræðinga til verkfalls og hófu nokkrir verkfræðingar við Verkfræðistofu Sigurðar Thorodds- en hf., sem þar voru félagsmenn verkfall í samræmi við þá ákvörð- un. Þegar menn mættu til vinnu 9. júní voru félagar í stéttarfélaginu með verkfallsvörslu við anddyrið og meinuðu verkfræðingum inngöngu, að undanskildum forstjóra og fram- kvæmdastjórum. Aðrir verkfræð- ingar, sem ekki voru félagar í Atéttarfélaginu vildu komast til vinnu sinnar og töldu að þar eð þeir væru hluthafar, ætti þeim ekki að vera meinuð vinna. Þeir ruddust inn eftir nokkuð þóf og voru við vinnu þennan dag. Hinn 10. júní var verkfallsvarsla efld og komst enginn inn nema forstjórinn. Sam- komulag náðist um síðir að vísa þessu máli til félagsdóms. VST var stefnandi í þessu máli og gerðu þeir þá kröfu að stéttarfé- laginu yrði gert að þola, að eigendur (hluthafar) VST sem ekki væru í stéttarfélaginu ynnu verkfræðistörf í verkfalli félagsmanna stefnda og að aðgerðir stéttarfélagsins yrðu ^dæmdar ólögmætar, að því er varð- aði það að meina eigendunum aðgang. Einnig kröfðust þeir greiðslu sekta og málskostnaðar. Aðalkrafa stefnda var alger sýkna, þó þannig að réttur fram- kvæmdastjóra yrði viðurkenndur til að verkfræðistörf í verkfallinu. Fyrsta varakrafa var alger sýkna með þeirri takmörkun að viður- kenndur yrði réttur VST til að láta framkvæmdastjóra, aðstoðarfram- kvæmdastjóra og stjómarmenn hlutafélagsins vinna verkfræðistörf í verkfallinu. Önnur varakrafa var alger sýkna, þó með þeirri takmörk- un að viðurkenndur yrði réttur VST til að láta framkvæmdastjóra, að- stoðarframkvæmdastjóra, stjómar- menn og þá hluthafa, sem eru félagsmenn í félagi ráðgjafarverk- fræðinga vinna verkfræðistörf í verkfallinu. Stefndi krafðist máls- kostnaðar í öllum tilvikum. Niðurstaða meirihluta félags- dóms var þessi: „Verkfall hins stefnda stéttarfélags beindist að viðsemjenda þess, fulltrúaráði Fé- lags ráðgjafarverkfræðinga. Eins og aðild félagsmanna í Félagi ráð- gjafarverkfræðinga er háttað verður að telja óeðlilegt að gera þeim skylt að taka þátt í verkfalli Stéttarfélags verkfræðinga. Hins vegar verður ekki fallist á það með stefnanda að , að allir hluthafar í VST vinni verkfræðistörf í löglega boðuðu verkfalli stefnda, þar sem hlutafláreign ein og sér verður ekki talin veita hluthafanum stöðu vinnuveitenda. Samkvæmt framan- sögðu telur dómarinn rétt að hafna dómkröfum stefnanda, en fallast á 2. varakröfu stefnda. Ekki voru taldar ástæður til greiðslu sekta og málskostnaður var látinn falla nið- ur. Þennan dóm kváðu upp Bjöm Helgason, Jónas Gústavsson, Gunn- ar Guðmundsson og Garðar Gísla- son dómsforseti. Jón Þorsteinsson greiddi sérat- kvæði. Taldi hann að aðeins þeim verkfræðingum, er félagar væru í fulltrúaráði ráðgjafarverkfræðinga, bæri réttur til að vinna þrátt fyrir verkfall, en það ætti ekki við al- menna félagsmenn í félagi ráðgjaf- arverkfræðinga, enda hefðu þeir sáralítil áhrif á gerðir fulltrúaráðs- ins. VERÐ á fasteigum á ísafirði, Egilsstöðum, Höfn og Selfossi fer hægt hækkandi samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins og hefur ekki borið á þeirri verð- sveiflu á markaðinum sem orðið hefur á Akureyri. Þar hafa fast- eignir hækkað um 60% síðustu 12 mánuði eins og komið hefur fram í fréttum Morgunblaðsins. ísafjörður Mikið framboð er á húsnæði til sölu á ísafirði en verð hefur lítið hækkað. „Hér hefur fasteignaverð verið miklu hærra en í Keflavík og á Akureyri, en þeir em að draga á okkur," sagði Arnar G. Hinriks- son lögfræðingur. Hann sagði að ísafjörður væri eini staðurinn á landinu þar sem fasteignir hefðu selst á sama verði og íbúðir í Ar- bæjar- og Breiðholtshverfi í Reykjavík. Egilsstaðir „Ég er bjartsýnni heldur en áð- ur,“ sagði Ami Halldórsson, lögfræðingur á Egilsstöðum. „Það er betra útlit og ég held að við séum að komast upp úr verstu dældinni. Þegar bakslag varð á fasteignamarkaðinum á Akureyri á sínum tíma þá vomm fasteignir töluvert dýrari þar en hér enda framboð á fasteignum. Nú held ég að verðið sé á uppleið hjá okkur en við verðum síðast varir við breytingama héma á Austur- Iandi.“ Þingflokkur Samtaka um kvennalista: Kvennalistinn mót- mælir áformum um söluskatt á matvöru Opið hús fyrir er- lenda ferðamenn í Norræna húsinu Fimmtudagskvöldið 16. júlí kl. 20.30 heldur Árni Böðvarsson orðabókarritsljóri fyrirlestur í Norræna húsinu og talar þar um merka staði á Suðurlandi. Að loknu stuttu kaffihléi verður sýnd kvikmynd Ósvalds Knudsen „Surtur fer sunnan“ með dönsku tali. Fyrirlesturinn verður fluttur á norsku, því þetta er liður í sumar- dagskrá hússins, sem er aðallega ætluð norrænum ferðamönnum. Þessi sumardagskrá, „Opið hús“, verður á hveiju fimmtudagskvöldi í júlí og ágúst og eru allir velkomn- ir, jafnt íslendingar sem útlending- ar. Aðgangur er ókeypis og er fólk hvatt til að láta ferðamenn og aðra útlendinga vita af þessum kvöldum. KVENNALISTINN hefur sent Þorsteini Pálssyni, forsætisráð- herra, og Jóni Baldvin Hanni- balssyni, fjármálaráðherra, eftirfarandi áskorun til ríkis- stjórnar Islands: „Kvennalistinn skorar á hina nýju ríkisstjóm að láta af áformum um 10% söluskatt á matvæli. Þeg- ar hefur framkvæmd þessarar skattheimtu verið frestað til næstu mánaðamóta og vill Kvennalistinn benda nýjum valdhöfum á að nota þann tíma til að íhuga kosti og galla skattlagningar á matvæli. Það þarf ekki að fjölyrða um áhrif skattlagningar á matvæli fyrir heimili landsins, en hitt vefst fyrir mörgum hvemig þessi nýja skattlagning samræmist eftirfar- andi markmiðum nýrrar ríkis- stjómar: 1. Lækkun verðbólgu. 2. „Tekjuöflun ríkisins verði gerð einfaldari, réttlátari og skil- virkari." Varðandi fyrra atriðið þá er vit- að að hækkun framfærslukostnað- ar hefur áhrif á „rauðu strikin“ og er því verðbólguhvetjandi. Varðandi síðara atriðið má spyrja um réttlæti þess að hækka verð á þeirri vöru sem enginn get- ur verið án. Smávægileg hækkun elli- og örorkulífeyris og bamabóta til örfárra bæta engan veginn upp þá hækkun brýnustu nauðsynja og auknu verðbólgu sem af þess- ari aðgerð leiðir. Einfaldari verður innheimtan varla ef þrefalt kerfi verður í gangi í einni og sömu verslun, 25%, 10% og 0% sölu- skattur. Ef ríkisstjómin heldur fast við áform sín mun hráefnið í gijóna- grautinn hækka. Hvað skal þá til ráða? Hvaða mataruppskrift ætlar ný ríkisstjóm að ráðleggja hús- mæðrum landsins? Hann sagði að töluvert framboð væri á fasteignum en eftirspurn er háð kaupgetu. „Hér bundu menn vonir við að úr rættist með nýja húsnæðismálakerfínu en það hefur ekki gerst jafn hratt og búist var við,“ sagði Ámi. „Verð á fasteign- um hefur gjaman verið miðað við brunabótamat hér á Egilsstöðum. Fyrir um fimm ámm komst það aðeins upp fyrir það en núna lafir verðið í um og yfir 70% af bruna- bótamati á íbúð, allt eftir hvað menn eru gráðugir." Höfn „Á Höfn er ennþá hægt að kaupa góð einbýlishús á lægra verði en mér fínnst leyfilegt og ég verð ekki var við neinar stökk- breytingar á eignarverði hér,“ sagði Olafur Þorláksson lögfræð- ingur á Höfn í Homarfirði. „Auðvitað hækka fasteignir líka hjá okkur en það gerist hægar á landsbyggðinni. En hvort hækkun- in er í samræmi við verðbólguna er ekki gott að segja til um.“ Að sögn Ólafs hafa bygginga- framkvæmdir legið niðri í nokkur ár á Höfn en nú em menn famir að byggja á ný og taldi hann að fasteignaverð kæmi til með að hækka á næstunni vegna þess. Mikil vinna er á Höfn og hugur í fólki með að koma sér upp ódým en ekki of stóm húsnæði og sagð- ist Óiafur ekki hafa getað leyst vanda allra þeirra sem leitað hafa til hans. Selfoss „Á stöðum við sjávarsíðuna og í Hveragerði hefur fasteignarverð farið heldur hækkandi," sagði Smári Hreggviðsson umdæmis- tæknifræðingur á Selfossi. Hann sagði að á Selfossi hefðu fasteign- ir hækkað um 38% ef miðað væri við fyrrihluta síðasta árs og er það nokkuð umfram almennar verð- hækkanir. Svipuð þróun viðist vera í Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrar- bakka og Hveragerði. Hann sagði að fasteignir á þessu svæði hefðu selst fyrir um 65 til 70% af því verði sem fengist fyrir sambæri- lega eign í Reykjavík að undan- fömu. Beny Rehmann show í Broadway BENY Rehmann er skemmti- kraftur í heimalandi sinu Sviss. Beny og hljómsveit hans hefur um árabil verið með sinn eigin sjónvarpsþátt sem nýtur vin- sælda. Nú hefur verið ákveðið að fá þessa skemmtikrafta hing- að til lands og munu þeir skemmta landanum tvö kvöld í Broadway þann 24. og 25. júlí nk. Skemmtidagskrá Beny Reh- mann og félaga byggist aðallega á tónlist sem er úr ýmsum áttum og að sjálfsögðu bregða þeir á leik í litlum skemmtiþáttum. Á ferli sínum hefur Beny Reh- mann og hljómsveit gefið út fjöld- ann allan af hljómplötum. Þeir félagar hafa fengið 11 gullplötur og 5 platinium plötur fyrir sölu í Evrópu. Þess má geta að Ríkissjón- varpið hefur tekið til sýninga einn af skemmtiþáttum Beny Rehmann og hljómsveitar og verður hann sýndur á föstudagskvöldið kemur þann 17. júlí. I frétt frá Broadway segir: „Þar gefst fólki kostur á að sjá að þama er skemmtihljómsveit á heimsmæli- kvarða á ferðinni. Þess má einnig geta að það verða um 200 túristar Beny hans. Rehmann og hljómsveit frá Sviss sem koma hingað til lands til að skemmta sér í Broadway með Beny Rehmann og hljómsveit, auk þess að eyða helginni og skoða sig um í Reykjavík og nágrenni og seg- ir það mikið um vinsældir Beny Rehmann og hljómsveitar hans. Það verður dansað, sungið og jóðlað við undirleik Beny Rehmann og hljóm- sveitar í Broadway 24. og 25. júlí. Tónlist frá öllum heimshlutum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.