Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 30
r p
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Nóg hefur verið að gera hjá byg-gingariðnaðarmönnum i Eyjafirði og meira byggt heldur en í langan tíma.
Mikill skortur á
iðnaðarmönmim
Lagast með haustinu segja byggingariðnaðarmenn
„IÐNAÐARMENN í byggingar-
,>ðnaði skortir tilfinnanlega hér á
Akureyri um þessar mundir,
sérstaklega i viðgerðarverkefni,
en að sögn Marinós Jónssonar,
framkvæmdastjóra Meistarafé-
lags norðlenskra byggingar-
manna, er skorturinn mestur á
múrurum og smiðum.
„Ég skal ekki alveg fara með það
hversu mikill skorturinn er, en það
er mikið að gera í byggingariðnaði
hér í Eyjafírði og því ekki undar-
legt þótt byggingariðnaðarmenn
vanti. Um áramót 1985-86 hafði
þeim fækkað um 50% frá því rétt
fyrir 1980, en á síðasta ári hefur
ekki verið jafnlítið um nýbyggingar
í langan tíma og aldrei eins lítil
steypusala," sagði Marinó.
Hann sagði að ástandið hefði þó
lagast nokkuð í þessum mánuði,
smiðir hefðu komið til baka sem
áður voru búsettir hér, en hið sama
væri ekki hægt að segja um múrar-
ana.
Öm Jóhannsson, verkstjóri hjá
Aðalgeiri Finnssyni hf., sagði að
þeir væru með 15 smiði í vinnu og
5 lærlinga en samt vantaði 5-6
smiði. Sagði hann að það væri
hreinlega ómögulegt að fá nokkum
í vinnu.
„Það vantar alla smiði og væm
þeir fleiri væri hægt að bæta við
verkefnum," sagði Jónas Sigur-
bjömsson, framkvæmdastjóri hjá
VERIð er að ljúka við teikningar
af sundlauginni sem rísa á við
Glerárskóla og í næsta mánuði
verður verkið boðið út:
Ágúst Berg, húsameistari bæjar-
ins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að næsta skref í þessu máli
yrði það að bæjarráð tæki það til
umfjöllunar þar sem frekari ákvarð-
anir varðandi útboðið yrðu teknar,
en það yrði örugglega í næsta mán-
uði.
„Það var stefnt að því að bjóða
Norðurverki, og bætti við að svo
virtist sem allt hefði átt að byggja
í einu vetfangi.
„Það þýðir ekki einu sinni að
auglýsa eftir smiðum eða múrurum
þetta verk út í sumar, þó svo að
útboðið verði eitthvað seinna á ferð-
inni en búist var við í upphafí,"
sagði Ágúst. „Það var ekki alveg
búið að ganga frá því hvort um
innilaug eða útilaug yrði að ræða,
en nú er búið að ákveða að laugin,
sem er 10x16,66 m að stærð, verði
ekki undir berum himni, og að hún
verði fyrst og fremst ætluð til sund-
kennslu. Hins vegar er fyrirhugað
að eftir skólatíma verði hún opin
almenningi," sagði Ágúst Berg.
því þá er einfaldlega ekki að hafa.
Við hefðum getað bætt við okkur
nokkrum smiðum, en treystum okk-
ur ekki til þess því það er aldrei
að vita hvenær þessi uppsveifla í
byggingariðnaðinum, sem er raunar
óeðlilega mikil, tekur enda. Ég held
að eftir þtjá mánuði verði skortur
á byggingariðnaðarmönnum ekki
jafn mikill og hann er nú,“ sagði
Jónas að lokum.
Sigurður Sigurðsson, sem rekur
SS byggir, sagði að ástandið væri
slæmt en leystist með haustinu. „Ég
er að fá tvo smiði um mánaðamótin
sem fluttu héðan þegar sem minnst
var að gera, þannig að ég verð
ágætlega staddur með 15 smiði og
þijá lærlinga," sagði Sigurður. „Það
gegnir hins vegar öðru máli með
múrarana. Það er ekki fjarri sanni
að segja að múrarar séu að verða
jafn fágætir og geirfuglar," sagði
Sigurður. „Margir þeirra eru
bundnir í verkefnum hjá bensín-
stöðvunum sem rísa hér hver af
annarri, en það verða færri verk-
efni fyrir múrara hér í vetur,“ sagði
Sigurður að lokum.
Sundlaugin við Glerárskóla:
Teikningum lokið og
útboð í næsta mánuði
Viðbyggingin við Hótel KEA:
Eigendur Hótels Stef-
aníu vilja skýring-
ar á deiliskipulagi
EIGENDUR Hótels Stefaniu
hafa óskað eftir skýringum á
meðferð skipulagsbreytinga á
deiliskipulagi Akureyrarbæjar,
vegna viðbyggingarinnar við
Hótel KEA, en framkvæmdir við
hana hófust nú fyrir skömmu.
I bréfi sem sent hefur verið
skipulagsnefnd, byggingamefnd og
bæjarstjóra, segir, að samkvæmt
deiliskipulagi frá 7.4. 1981 sé við-
bygging við KEA sýnd liggja upp
meðfram kirkjutröppunum, en nú
þegar framkvæmdir eru hafnar
kemur í ljós að viðbyggingin hefur
verið sveigð í suðurátt og liggur
nú samsíða Hótel Stefaníu. Telja
eigendur Stefaníu að þessi lega
byggingarinnar og hæðarmismunur
húsanna, sem þeir segja verulegan,
hafi mjög neikvæð áhrif á notkun
hússins, Hafnarstræti 83-85, sem
hótels. Segja þeir að viðbyggingin
dragi úr birtu, útsýni og næði fyrir
hótelgesti, auk þess sem þeir telja
verðgildi eignarinnar við Hafnar-
stræti lækka verulega.
Þeir benda á að í skipulagslögum
segi að kynna skuli hagsmunaaðil-
um breytingar á skipulagi áður en
þær séu heimilaðar í nefndum, auk
þess sem breytingar skuli staðfestar
af ráðherra. Segja þeir þessar
breytingar ekki hafa verið kynntar
fyrir þeim á nokkum hátt.
Morgunblaðið hafði samband við
Stefán Sigurðsson, eiganda og hót-
elstjóra, og sagði hann leiðindamál
vera í uppsiglingu, en vildi ekki
segja neitt frekar að svo stöddu.
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Þorvaldur Jónsson, formaður skólanefndar Verkmenntaskólans,
stendur hjá því svæði þar sem miðálman á að rísa og tengja allar
byggingarnar.
Framkvæmdum að ljúka við stjórn-
unarálmu Verkmenntaskólans:
Byggja þarf 2200 fm
fyrir haustið 1989
FRAMKVÆMDUM við stjómun-
arálmu Verkmenntaskólans fer
nú brátt að ljúka, og er áætlað
að taka hana í notkun áður en
næsta skólaár hefst. Þorvaldur
Jónsson, formaður skólanefndar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þegar væri farið að huga að
því að bjóða út næsta áfanga
skólans, sem er svokölluð mið-
álma, en hún á að hýsa bókasafn,
lestraraðstöðu, mötuneyti og sal,
og auk þess verður hún til þess
að tengja allar álmurnar saman.
„Það stendur skólanum mjög fyr-
ir þrifum að hafa ekki þessa
miðálmu, því þar á öll aðstaða fyrir
nemendur að vera, og auk þess fer
mjög fljótlega að verða brýn þörf
fyrir aðra bóknámsálmu, því eftir
tvö ár á skólinn að vera búinn að
rýma gamla iðnskólahúsnæðið og
þá aðstöðu sem hann hefur haft í
íþróttahöllinni, og þá verður nauð-
synlegt að geta komið þeirri starf-
semi fyrir annars staðar sem þar
hefur farið fram,“ sagði Þorvaldur.
Miðálman verður fullgerð rúm-
lega 2000 fm en um 1400 fm verða
einungis reistir til að bytja með.
Þá verður bóknámsálman sem Þor-
valdur nefndi, og þarf að vera
tilbúin fyrir haust 1989, 800 fer-
metrar. Það er því brýn þörf fyrir
2200 fermetra á næstu tveimur
árum en upphaflega átti fram-
kvæmdum við skólann að Ijúka á
þessu ári, en þær hófust árið 1981.
„Það er rétt að með sama áfram-
haldi verður skólinn ekki fullbyggð-
ur fyrr en eftir önnur sex ár, en
við erum að gera okkur vonir um
að miðálman verði tekin í notkun
næsta haust, og það má ekki seinna
vera. Nú er verið að ganga frá
teikningum, en þær þurfa að vera
tilbúnar fljótlega.
Á Qárlögum bæjarins þetta árið
höfum við 30 milljónir til þess að
reisa miðálmuna, og þurfum sam-
svarandi fjármagn á næsta ári til
að hægt verði að taka hana í gagn-
ið um haustið. Þá sýnist mér sem
við þurfum um 5 milljónir króna til
viðbótar fjárlögum þessa árs til
þess að hægt verði að koma kjallar-
anum í það horf sem við viljum fá
hann í á þessu ári.
Bóknámsálmuna verður svo helst
að taka í notkun haustið eftir því
þá á Verkmenntaskólinn að vera
farinn að fullu úr gamla iðsnskólan-
um, en háskólinn fær hann undir
sína kennslu. Lauslega áætlað þarf
því um 130-140 milljónir króna til
framkvæmda við Verkmenntaskól-
ann á næstu tveimur árum til þess
að hægt verði einnig að byggja
aðra bóknámsálmu, en að því loknu
verður bara eftir að reisa eina
álmu,“ sagði Þorvaldur að lokum.