Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
Seyðisfjörður:
Mikið um að vera
á „Sumardögum“
Seyðigfirði.
NÚ STANDA yfir svokallaðir
sumardagar hér á Seyðisfirði og
eru að félagsamtök og hagsmuna-
aðilar í ferðamannaþjónustu sem
að þessu standa. Hófst þetta með
tónleikum Bubba Morthens í fé-
lagsheimilinu Herðubreið síðast-
liðið sunnudagskvöld og lýkur
þessum sumardögum með dans-
leik laugardagskvöldið 18. júlí
iiæstkomandi.
Tvær hljóm-
sveitir í
Þórscafé
Sú breyting hefur verið gerð
á skemmtanahaldi Þórscafé að
tvær hljómsveitir munu skemmta
gestum veitingahússins um helg-
ar.
Út þetta sumar verður hljóm-
sveit Stefáns P. gestum til
skemmtunar um helgar, og ýmsar
gestkomandi hljómsveitir munu
koma fram. Næstu helgi er því svo
farið að hljómsveit Stefáns P. verð-
ur á fostudag en hljómsveitin Lotus
leikur á laugardag. Báðar leika
hljómsveitimar uppi en diskótekið
verður á sínum stað niðri.
Margt verður á dagskrá þessa
daga, svo sem flóamarkaðir og knatt-
spymuleikir bæði eldri og jmgri
flokkum. Sirkus Arena sýndi listir
sínar hér á íþróttavellinum í þriðju-
dagskvöldið við góðar undirtektir
viðstaddra. Verslanimar Aldan og
Bjólfsbær voru með tískusýningar á
milli kl. 18 og 19. í gær, miðviku-
dag, er knattspymuleikur í meistara-
flokki í íslandsmótinu á milli Hugins
frá Seyðisfírði og Hattar frá Egils-
stöðum og tónleikar með með Bítla-
vinafélaginu um kvöldið í kvöld í
félagsheimilinu Herðubreið og Hótel
Snæfell bauð gestum og gangasndi
upp á fjölbreyttan matseðil.
I dag kemur ferjan Norræna eins
og venjulega á fímmtudagsmorgnum
og bærinn fyllist af ferðafólki bæði
sem er að fara og koma til landsins.
Lætur nærri að 3.000 manns verði
hér staddir ef bæjarbúar eru taldir
með.
Apótekið verður með kynningu á
snyrtivörum þennan morgun til kl.
12 á hádegi. Á föstudaginn verður
verslunin Brattahlíð með sérstaka
kynningu á íslenska fjallaiambinu og
ýmsum grillvörum. Þessum syðfírsku
sumardögum lýkur svo eins og áður
hefur komið fram með dansleik í
félagsheimilinu Herðubreið á laugar-
dagskvöld, þar sem Stephan Donald
Project leikur fyrir dansi.
Garðar Rúnar
Morgunblaðið/Jón Sig.
Stefán Á. Jónsson, efsti maður á H-lista.
Björn Björnsson, efsti maður á I-lista, ásamt börn-
um sínum, þeim Bjarka og Ólöfu Birnu.
Stéttarsambandskosningar hjá A-Húnvetningrim á sunnudag:
Tveir listar í framboði
Blönduósi.
Austur-húnvetnskir bændur
verða fyrstir manna til að kjósa
fulltrúa sína á aðalfund Stéttar-
sambands bænda í almennum
kosningum. Kjördagur er ákveð-
inn sunnudaginn 19. júlí og eru
tveir listar i framboði: H-listi,
listi framfarasinnaðra bænda og
I-listi. Frambjóðendur H-lista eru
Stefán Á. Jónsson, Kagaðarhóli,
sem skipar fyrsta sætið og Stein-
grímur Ingvarsson, Litlu-Giljá.
Fyrsta sæti I-lista skipar Björn
Björnsson, Ytri-Löngumýri og
með honum á lista er Kristófer
Kristjánsson, Köldukinn.
Kosningabaráttan hefur verið
afar róleg það sem af er og ræður
það sjálfsagt mestu að menn eru
önnum kafnir í heyskap.
Kindakj ötsmarkað
í Reykjavík
Bjöm Bjömsson, bóndi á Ytri-
Löngumýri í Svínavatnshreppi,
skipar fyrsta sæti I-lista. I samtali
við Morgunblaðið sagði Björn að
megináhersla þeirra I-listamanna
væri að stækka innlenda kinda-
kjötsmarkaðinn og kvað Bjöm það
auðvelt verk með markvissum upp-
lýsingum og með því að afgreiða
kjötið á þann hátt sem neytendur
vildu. Bjöm sagði jafnframt að það
væri nauðsynlegt að kljúfa afurða-
steinsnar með Flugleiðum
Vissirðu að Flugleiðir fljúga allt að þrisvar í viku til Færeyja?
Þessar sérstæðu eyjar er einkar forvitnilegt að sækja heim, til að kynnast grönnum okkar,
menningu þeirra og gestrisni, svo og náttúru landsins.
S Þér býðst flugið: ^
REYKJAVIK-FÆREYJAR-REYKJAVIK
PEX kr. 11.530
Þú átt einnig möguleika á hringflugi, með viðkomu á nokkrum stöðum:
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-GLASGOW-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 18240.
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 19.360.
REYKJAVÍK-GIASGOW-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 25.730.
Taktu þig til, Færeyjar eru skammt undan.
Miðað er við háannatíma, júní júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
msggmfmg
FLUGLEIÐIR
: ,'■ ■'
sölufélögin algjörlega frá kaupfé-
lögunum með lagasetningu og að
bændur stofni sín eigin afurðasölu-
félög og komi upp stórri kjötverslun
á Reykjavíkursvæðinu þar sem
neytendur gætu fengið kjöt í heild-
verslun.
Björn lagði ennfremur áherslu á
að vísitölubúið yrði minnkað og að
launaliðurinn í verðlagsgrundvelli
yrði hækkaður. Björn Björnsson er
ungur maður og tiltölulega óreynd-
ur í félagsmálastarfi fyrir bændur
og aðspurður hversvegna hann
gæfí sig í framboð sem þetta sagði
Bjöm: „Ég tel að sauðfjárbændur
verði að eiga sinn fulltrúa í þessu
héraði og menn verða að taka þátt
í félagsmálum, undan því er ekki
hægt að skorast." Bjöm sagði að
lokum að hann væri mjög hlynntur
beinum kosningum sem þessum og
þá á fjögurra ára fresti. „Það þarf
að auka virkt lýðræði innan bænda-
stéttarinnar," sagði hann.
Má ekki gefast upp með
erlenda kindakjöts-
markaðinn
Stefán Á. Jónsson, Kagaðarhóli
í Torfalækjarhreppi, efsti maður á
H-lista, sagði um sölumál kinda-
kjötsins að þar hefði ekki náðst
réttur samhljómur við innanlands-
markaðinn. Áftur á móti hefur vel
tekist til með markaðssetningu og
sölu mjólkurvöru. Stefán lagði enn-
fremur áherslu á að ekki mætti
gefast upp við erlenda kindkjöts-
markaðinn og leggja þá sérstaka
áherslu á hollustugildi hins ómeng-
aða, íslenska kindakjöts. Stefán
sagði að stéttarsambandið yrði að
sinna breyttum aðstæðum í land-
búnaði og vinna að ötulli uppbygg-
ingu nýbúgreina jafnframt því að
hlúa að því sem fyrir er. „Gögn og
gæði landsins verður að nýta,“
sagði Stefán, „og það þarf að nýta
þau af ræktarsemi og tilliti við gróð-
ur og dýralíf. Það hefur verið
hluterk bænda og á að vera það
áfram." Stefán Á. Jónsson sagði
ennfremur að snúa þyrfti land-
búnaðarmálum til jákvæðari átta
og skilningur þjóðarinnar á gildi
íslensks landbúnaðar þarf að verða
almennari en nú er. Stefán var
hlynntur beinum kosningum til
stéttarsambands til fjögurra ára og
þá samhliða búnaðarþingskosning-
um. „Ennfremur þarf að kjósa
formann Stéttarsambands bænda í
beinni kosningu á aðalfundi stéttar-
sambandsins," sagði Stefán að
lokum.
Það er ljóst hvemig sem kosning-
ar til stéttarsambandsins fara að
þeir félagar, Stefán Á. Jónsson og
Kristófer Kristjánsson, núverandi
stéttarsambandsfulltrúar A-Hún-
vetninga, munu ekki sitja saman á
næsta aðalfundi stéttarsambands-
ins.
— Jón Sig.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
FLUOLEIDIR
---fyrir þíg__
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100