Morgunblaðið - 16.07.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
3
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Á myndinni sér yfir hluta af beitilandi í Krísuvík og er augljóst að
svæðið er mjög viðkvæmt.
Landgræðsla ríkisins:
Ofbeit og gróður-
eyðing í Krísuvík
mikið áhyggiuefni
Grindavík. •' '—J '—^
FORRAÐAMENN Landgræðslu
rikisins eiga nú i viðræðum við
bæjarstjórn Hafnarfjarðar varð-
andi friðunaraðgerðir á gróður-
landi í Krísuvík vegna ofbeitar
og gróðureyðingar.
Að sögn Sveins Runólfssonar,
landgræðslustjóra, hafa forráða-
menn Landgræðslunnar miklar
áhyggjur af ástandi gróðurs í
Krísuvíkurlandi, einkum í þeirri
þurrkatíð sem gekk yfir í vor og
sumar, og varð þess valdandi að
mikill jarðvegur hefur fokið úr rofa-
börðum.
„Hrossaræktarhólf er ofbeitt og
allt landið er sérlega viðkvæmt fyr-
ir beit í þurrkatíð, þar sem jarðveg-
ur er sendinn og heldur illa í sér
raka,“ sagði Sveinn.
„Við höfum því athugað við bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar hvað hægt
er að gera og er málið á viðræðu-
stigi. Við teljum að friðunaraðgerðir
þurfí að koma til svo svæðinu verði
hlíft og einnig að Hafnarfjarðarbær
taki höndum saman við okkur til
að græða svæðið upp aftur.
Krísuvíkursamtökin byijuðu í
fyrra að s.á í rofabörð og hafa hald-
ið því verki áfram í sumar. Ég vil
segja að það er mjög ánægjulegt
að fínna fólk sem hefur áhuga á
að bæta umhverfið," sagði Sveinn
að endingu.
Kr.Ben.
Menntamálaráðuneytið:
Leyft að veiða 600
hreindýr á þessu ári
HREINDYRAVEIÐAR hefjast 1.
ágúst nk. og hefur menntamála-
ráðuneytið birt reglugerð fyrir
veiðarnar á þessu ári, sem munu
standa til 15. september. Alls
verður leyft að veiða 600 hrein-
dýr á þessu ári en það er 100
dýrum færra en í fyrra. Þá var
leyft að veiða 700 dýr en einung-
is veiddust um 500.
Að sögn Runólfs Þórarinssonar
var talið úr flugvél á aðalsvæði
hreindýranna við Snæfell og í af-
réttum Jökuldælinga og Fljótsdæl-
inga. Þar reyndust dýrin samtals
vera 1226, þar af 425 kálfar, sem
er óvenjulega hátt hlutfall. Á þessu
svæði voru 1500-1600 hreindýr
sumarið 1982 og hefur þeim því
fækkað töluvert á síðustu fimm
árum.
Dýrin 600 skiptast þannig á milli
hreppa: Borgarfjarðarhreppur 54
dýr, Norðfjarðarhreppur 52 dýr,
Helgustaðarhreppur 52 dýr, Fljóts-
dalshreppur 45 dýr, Jökuldals-
hreppur 45 dýr, Skriðdalshreppur
32 dýr, Vallahreppur 32 dýr,
Hjaltastaðahreppur 30 dýr, Mýra-
hreppur 22 dýr, Fellahreppur 20
dýr, Tunguhreppur 20 dýr, Eiða-
hreppur 20 dýr, Reyðarfjarðar-
hreppur 18 dýr, Geithellnahreppur
16 dýr, Egilsstaðabær 15 dýr, Eski-
Qörður 15 dýr, Breiðdalshreppur
14 dýr, Beruneshreppur 14 dýr,
Mjóafjarðarhreppur 12 dýr, Vopna-
fjarðarhreppur 12 dýr, Hlíðarhrepp-
ur 8 dýr, Búlandshreppur 8 dýr,
Bæjarhreppur 8 dýr, Nesjahreppur
8 dýr, Fjallahreppur 4 dýr, Skeggja-
staðahreppur 4 dýr, SeyðisQarðar-
hreppur 4 dýr, Seyðisfjórður 4 dýr,
Búðahreppur 3 dýr, Fáskrúðsfjarð-
arhreppur 3 dýr, Stöðvarhreppur 3
dýr og Hafnarhreppur 3 dýr.
Borgarráð:
Bílaleiga í
Aðalstræti
BORGARRÁÐ hefur heimilað
Ólafi Laufdal veitingamanni, að
reka bílaleigu að Aðalstræti 16.
Að sögn Bjöms Friðfinnssonar
framkvæmdastjóra lögfræði- og
stjórnsýsludeildar, er ekki gert ráð
fyrir að bílaleigan hafi nema fimm
til sex bifreiðar til leigu í senn.
Mikið úrval af nýjum
sumarfatnaði - Ýmsar
vörur á sértilboði.
nema
Opiö iaugard.
frá kl. 10 - 13 e.h
KARNABÆR
Austurstræti 22 Laugavegi 66 Glæsr
Glæsibæ Sími 45800
GARBO
Austurstræti 22
Bonaparte
tiRa Ai icti irGtrao
Austurstræti 22