Morgunblaðið - 16.07.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
Gemi175Túrbo LASER190 BAR
Ný kynslóð Háþrýsti-hreinsitækja
Morgunblaðið/Sverrir
Jóhanna Wathne við nokkur verka sinna.
Patreksfjörður:
Málverkasýning
Nú stendur yfir málverkasýning
Jóhönnu Wathne á veitingastof-
unni Grillinu á Patreksfirði.
Jóhanna hefur verið við myndlist-
amám í Reykjavík og í Kanada og
hefur hún áður haldið sýningar á
verkum sínum. Á þessari sýningu
eru 24 olíumálverk, gömul og ný
og eru þau öll til sölu.
Sýningunni lýkur í lok júlímánað-
ar.
Frá afhendingu gjafarinnar.
Morgunblaðið/Gunnar
Bolungarvík:
Skólasystkin minn-
ast Steins Emilssonar
Bolungarvík.
SKÓLA- og fermingarsystkin,
sem fædd voru árið 1937, komu
Nú hafa öll fyrri SS-pylsumet
verið slegin
Arið 1986 runnu fleiri SS pylsur Ijúflega niður Islenska
hálsa en nokkru sinni fyrr. öll fyrri met eru slegin
og ef marka má vinsældir SS pylsunnar um þessar
mundir mun núgildandi SS-pylsdmet eiga jafnfáa
lífdaga fyrir höndum og hin fyrri.
Betri meðmæli eru vandfundin.
saman hér í Bolungarvík í síðasta
mánuði til að rifja upp gamla og
góða daga frá æskuárunum og
einnig til að minnast góðs vinar
og kennara, Steins Emilssonar,
með þvi að færa grunnskólanum
að gjöf mynd af honum, málaða
af Kjartani Ólafssyni listmálara.
Steinn Emilsson var fæddur á
Kvíbekk í Ólafsfirði 23. desember
1893, en lést þann 3. desember
1975, þá 82 ára gamall. Kona
Steins, Guðrún Hjálmarsdóttir, lifír
mann sinn, en þeim hjónum var
fjögurra bama auðið. Steinn Emils-
son varð skólastjóri þegar Ungl-
ingaskóli Bolungarvíkur var
stofnaður 1928 og var hann skóla-
stjóri til ársins 1953, að undanskild-
um árunum 1931-33. Jafnframt því
var Steinn sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Bolungarvíkur frá árinu
1942-62, eða í 19 ár, og var hann
fjórði sparisjóðsstjóri stofnunarinn-
ar. Steinn Emilsson var náma- og
jarðfræðingur að mennt, var mikill
náttúruunnandi og dvaldi oft
langtímum saman við skoðun á jurt-
um og steinum. í Einars sögu
Guðfinnssonar segir: „Steinn var
mikill öndvegiskennari og svo mik-
ill áhugamaður um skólahaldið að
sú saga er sögð og væntanlega
sönn að þegar hreppsnefndin var
með múður á vandræðatímum,
bauðst hann til að kenna kauplaust
og mun hafa gert það langtímann
úr vetri.“
Það var Helga Svana Ólafsdóttir,
kennari, sem veitti gjöfínni viðtöku
í fjarveru Gunnars Ragnarssonar
skólastjóra. Helga Svana var ein-
mitt kennari þessa fólks þegar hún
var að stíga sín fyrstu skref sem
kennari og hefur Helga verið viðloð-
andi kennslu við skólann síðan.
Gunnar