Morgunblaðið - 16.07.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
19
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
/ „fslenskum orðskviðum“ segir:
„Gestinn skal heldur meðtaka með
gleði, en stórum veitíngum.“
Góðar veitingar lyfta þó ætíð ögn
undir gleðina, eins og t.d. meðfylgj-
andi réttur gerir. Hann er þó léttur
í maga, en það skaðar ekki því að
í þessari góðu bók segir: „Hófsemi
er féhirzla dyggðanna."
Skaga-
manna-rækj-
ur
500 gr rækjur
2 matsk. smjörlíki
1 laukur lítill
1 græn paprika
1 hvítlauksrif
3 matsk. hveiti
lVz bolli vatn
1 lárviðarlauf
2 tsk. salt
1 lítil dós tómatkraftur
og 1 dós á móti af vatni
V2 tsk. oregano
(*/2 tsk. chili-duft)
1. Laukurinn er skorinn í þunnar
sneiðar. Paprikan er skorin í tvennt
og fræ og hvítar himnur hreinsaðar
í burtu. Síðan er paprikan skorin í
þunnar sneiðar.
2. Matarolían er hituð í potti, lauk-
ur, paprika og pressuðum hvítlauk
er bætt út í, grænmetið er látið
krauma í feitinni þar til það er farið
að mýkjast upp.
3. Hveitið er hrært út með hluta
af vatninu og sett út i pottinn með
grænmetinu ásamt tómatkrafti og
vatni, lárviðarblaði brotnu í tvennt,
oregano og salti, og þeir sem vilja
mjög bragðsterka sósu bæta við
chili-dufti.
4. Sósan er hituð að suðu og hrært
í á meðan. Lok er sett á pottinn og
er sósan látin krauma undir í 15
mínútur. Ef sósan þykir of þunn þá
má gera hana þykkri með 1 matsk.
af hveiti, t.d. með því að dreifa því
yfir sósuna og láta hana sjóða þar
til hún hefur náð að þykkna. Rækj-
umar eru síðan settar út í sósuna
og látnar hitna í gegn áður en þær
eru bomar fram.
Meðlæti: Soðin gijón.
Ef frystar rækjur eru notaðar í
réttinn er ágætt að taka þær úr
frystinum um leið og matargerð
hefst og setja þær siðan í sósuna
hálffrosnar. Þannig halda þær bæði
bragði og réttri lögun. Rækjumar
eru látnar þiðna í sósunni og rétt
hitna í gegn áður en að þær eru
bomar fram.
Það er með þennan rétt sem aðra
að gæðin fara talsvert eftir hráefn-
inu. Nú má fá í verslunum mjög
góða úthafsrækju sem bæði er stærri
og ódýrari og nýrri en sú sem við
erum vön að fá í matvöruverslunum
hér á landi. Stærð og verð fer ekki
fram hjá neinum og nýja rækju má
þekkja á bleika litnum. Hvítleit
rækja er gömul rækja, sem hefur
verið geymd of lengi og því lítið
sælgæti. Einnig ætti að forðast að
kaupa rækju í pökkum sem í er
íssalli. Hann er merki þess að rækj-
an hafí misst raka og sé þurr vegna
geymslu of lengi við rangt hitastig.
Verð á hráefni
V2 kg rækja ..... kr. 250,00
1 paprika ..... kr. 34,00
1 laukur ...... kr. 5,00
1 dós tómatkraftur
............... kr. 9,50
Kr. 298,50
/ ••
BYGGÍNGAVÖRUR*KAUPFELOGIN
UM LAND AliT
csá/® =
I BATINN - BUSTAÐINN OG GARÐINN
HAND- OG RAFMAGNSVERKFÆRI I URVALI
Allt til sjjó-
stanga- og
handfæra-
veiða
[jk SjáMýsandi
piikar
Handfæravindur með stöng.
AHur öryggis- og skoö-
unarbúnaöur í bátinn og
skútuna.
Dælur — drekar
björgunarvesti — siglingaljós
vírar — keðjur — kaðlar
Vatna- og
innfjaröarbátar
9—14 fet.
SILUNGANET, ÖNGLAR,
LÍNUR, SIGURNAGLAR,
SÖKKUR. SJÓVEIÐI-
STENGUR, HANDFÆRA-
VINDUR MED STÖNG.
FÆREYSKAR HAND-
FÆRAVINDUR.
Færeyskar handfæravindur.
Hfhígse*?
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855
Fatadeildin
Hlífðarfatnaður
Regnfqtnaöur
Norsku ullarnærfötin
Samfestingar
Peysur — skyrtur
Buxur
Gúmmístígvól há og lág
Skófatnaöur
Vinnu- og garðhanskar
Sokkar
Fúavamarefni — Málning
— Lökk — Hreinlætisvörur
— Kústar — Burstar.
Vatns- og olíudælur.
Minka- rottu- og músa-
gildrur
Gasluktir — vasaljós —
rafhlööur — hreinsuö stein-
olía
Olíuofnar — Arinsett
SLÖKKViT/EKI OG
REYKSKYNJARAR.
VATNSBRÚSAR OG
FÖTUR.
Garðyrkjuverk-
færí
Hjólbörur —
Slöngur og klemmur.
FLAGGSTENGUR
6-8 METRA.
Fánar- Vimplar
Flaggstangarhúnar
Hitamælar — Klukkur
Loftvogir — Sjónaukar
Olíulampar og luktir