Morgunblaðið - 16.07.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.07.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987 23 Heimt úr helju LÖGREGLA og sjúkraliðar í Charleroi í Belgíu flytja Cecilu Dujva, 23 ára Stokkhólmara, burt á börum eftir að henni hafði verið haldið í gíslingu í nærri fimm klukkustundir i lestarvagni. Sómali með danskan ríkisborgararétt, vopnaður pappírshníf, tók Cecilu sem gísl í hraðlestinni á leið frá París til Stokkhólms. Lögregla aftengdi lestarvagninn, þar sem hann hafðist við og yfirb- ugaði hann um fimm stundum síðar. Maðurinn, sem heitir Mohammed Abdirahaan, taldi sig hafa verið misrétti beittan í Frakklandi og vildi fá leiðréttingu sinna mála. Hann hélt að lestin væri enn í Frakklandi er hann tók gíslinn. Forseti norska alþýðusambandsins: Ekki rétt að vonast eftir hækkun rauntekna 1988 Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. STARFANDI forseti norska al- Haraldseth sagði í viðtali, að fé- þýðusambandsins, Leif Harald- seth, hefur mætt mikilli andstöðu eftir yfirlýsingu, sem hann gaf á þriðjudag, um að ekki yrði far- ið fram á launahækkun á næsta ári fremur en þessu. Aðrir verka- lýðsleiðtogar hafa gagnrýnt hann harðlega og segjast óttast verkföll, ef þetta eigi að verða vegarnesti samtakanna, þegar þau gangi tii næstu kjarasamn- inga. lagar í verkalýðshreyfingunni gætu ekki vænst þess að rauntekjur hækkuðu á næsta ári. Aðeins kæmi til greina að fá bætur vegna verð- hækkana. Verkalýðsleiðtogar hafa brugðist ókvæða við þessum ummælum Har- aldseth og segja þau ótímabær, þar sem hálft ár sé, þar til samtökin þurfa að ákveða launastefnuna fyr- ir árið 1988. Með þessu útiloka samtökin þann möguleika, að krafist verði hækkunar á rauntekjum, segja leið- togar opinberra starfsmanna innan alþýðusambandsins. -Haraldseth ætti fremur að ein- beita sér að því að ná fram þeim kröfum, sem samtökin settu fram, þegar þau lögðu kauphækkunar- kröfur sínar til hliðar á þessu ári, þar á meðal um vaxtalækkun, segja þeir. -Nú er þvert á móti verið að hækka vextina. FESIl- JARHN HÚ5ASMIOJAN SUDARVOGI 3-5 Q 687700 Snyrtivöru- kynning í dag og á morgun. Kristín Stefánsdóttir förðunarfræöingur leiðbeinir. ,.iV1STo. Laugavegj 27 • Sími 19660 NONAME p dag og á morgun verður Kjötmarkaður SS íAusturveri. Þar fœrð þú nýtt, fyrsta flokks nauta- kjöt á hagstœðu tilboðsverði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.