Morgunblaðið - 16.07.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
31
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Júpíter
Eins og flestir áhugamenn
um stjömuspeki vita þá er
Júpíter táknraenn fyrir
þenslu, ferðalög og víkkun
sjóndeildarhringsins en Sa-
túmus er táknrænn fyrir
samdrátt, aga, takmarkanir
og vinnu.
Góöur og vondur
í gömlu stjömuspekinni var
Júpíter sá góði en Satúmus
sá vondi. Enn eimir eftir af
því viðhorfi og við horfum
jákvæðum augum til Júpíters
en bíðum komu Satúmusar
með kvíða. Reynsla okkar
sýnir hins vegar að hvomg
plánetan er í sjálfu sér góð
eða vond. Það hvemig við
höndlum orkuna ákvarðar
niðurstöðuna. Báðar geta því
verið góðar og vondar.
Vondi Júpiter
Ég ætla til að rétta við hall-
ann í viðhorfum okkar og
skoða hina neikvæðu hlið
Júpíters. í fyrsta lagi skulum
við draga upp mynd: Það er
sumar og sólin skín og Júpít-
er er sterkur í korti mínu.
Ég er því bjartsýnn, hef
óvenjumikið sjálfstraust og
horfí hátt og vítt. Mér flnnst
lífið vera jákvætt og sé fátt
sem getur stöðvað mig. Er
tímabilið þá ekki gott? Jú,
það gott að ég ákveð að
stækka fýrirtækið, kaupa
nýja og stærri íbúð og skella
mér í sumarfrí, í ódýra ferð
í kringum hnöttinn, kaupa
nýjan bíl, myndbandsupp-
tökutæki o.s.frv.
Dýr i rekstri
Júpíter fylgir þörf fyrir að
víkka sjóndeildarhringinn, að
sækjast eftir nýrri reynslu.
Júpítertímabil kaliar því á
forvitni um allt sem er nýtt,
þörf fyrir að ferðast og jafn-
framt prófa eða eignast ný
tæki. Að safna að sér. í
stuttu máli á Júpíter til að
vera dýr.
Óhóf
Helsta mein Júpíters er það,
að bjartsýni hans leiðir oft
til óhófs, of stórra áætlana
og skuldbindinga sem við
ráðum ekki við. Það sem
einnig er slæmt er að raun-
sæið verður oft á tíðum lítið
þegar Júpíter er annars veg-
ar. Við fýllumst innri óróa
og flnnum okkur knúin til
að stækka við okkur, hvað
sem það kostar. Síðan sitjum
við í skuldasúpunni.
Sökudólgurinn
Brandarinn við samspil Júpít-
ers og Satúmusar er sá að
við kennum oft Satúrnusi um
vandamál Júpíters. Á Júpít-
erstíma skemmtum við okkur
og sóum tíma og fjármunum.
Þegar Satúmus kemur vökn-
um við til meðvitundar um
hinn blákalda raunvemleika,
horfumst í augu við skuldim-
ar og bölvum raunsæinu en
ekki draumunum sem komu
okkur í vandræði.
LeiÖi
Júpíter hefur aðra erflða hlið.
Við komumst ekki alltaf í
ferðalag þegar okkur langar
til, við þurfum að vinna, sinna
bömum og margvíslegum
skyldum. Þegar Júpíter er
sterkur og þannig stendur á
verðum við oft stressuð og
spennt og finnum fyrir leiða.
Tímabil
Þegar talað er um að plánet-
ur séu í afstöðu á ákveðnu
tímabili er átt við að Júpíter
í dag, árið 1987, myndar af-
stöðu við fæðingarkortið. Við
tölum annars vegar um stöðu
pláneta við fæðingu, sem
sýna upplag okkar, og hins
vegar um stöðu pláneta á
hverju ári, sem sýna hvað við
emm að ganga í gegnum á
hveiju tímabili.
GARPUR
DÝRAGLENS
FERDINAND
SMÁFÓLK
I HAVE A 60LPEN
RETRIEVER AT HOME
-zc
LA5T WEEK 5HE WON
THE CITY llBE5T OF 5H0U)"
THE UIEEK BEFORE,SHE
UJON THE STATE
« BEST OF SHOU)"
TELL HER HOW I
ONCE PARREP THE THIRO
HOLE AT PEBBLE BEACH..
Ég á veiðihund heima.
Hann fékk fyrstu verðlaun í vikunni áður fékk hann Segðu henni frá þvi þegar
í síðustu viku í bæjar- fyrstu verðlaun á fjórð- ég fór þriðju holuna á pari
keppninni. ungssýningunni.
á Grafarholtsvellinum ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur spilar út laufí gegn
doblaðri spaðaslemmu suðurs.
Samningurinn virðist dæmdur
til að fara þrjár niður, en ef
grannt er skoðað má fínna
óvenjulega vinningsleið:
Vestur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á84
¥10
♦ ÁG1087
♦ 10852
Vestur
♦ 7
¥ KG98765432 ||||||
♦ D
♦ 6
Austur
♦ 53
¥ ÁD '
♦ K6542
♦ KDG9
Suður
♦ KDG10962
¥ —
♦ 93
♦ Á743
Vestur Norður Austur Suður
4 hjörtu Pass Pass 4 spaðar
Pass 6 spaðar Dobl Pass
Pass Pass
Spilið er léttunnið ef ekki
kemur út lauf, því þá má einfald-
lega fría tígulinn. En hvað er
til ráða með laufínu út?
Vinningsleiðin blasir ekki
beinlínis við, en hún er þessi:
Drepið á laufás og tígli spilað á
ás. Síðan er hjarta trompað heim
og spaðatvistinum spilað á
fjarka blinds!!
Vestur er tilneyddur til að
þiggja slaginn á spaðasjöuna og
spila hjarta út í tvöfalda eyðu.
Trompað í blindum og tígli kast-
að heima. Og trompsvínað fyrir
tígulkóng austurs.
Trompslagurinn kemur fjór-
faldur til baka.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Kecskemet í
Ungverjalandi í júní kom þessi
staða upp í skák alþjóðlegu
meistaranna Barbero, Arg-
entínu, sem hafði hvítt og átti
leik, og Espig, A-Þýzkalandi.
ii I M ■iB
*
* k
l B m |
& ff
á & AB
-■ ii á 2 *
Hvítu reitimir í stöðu svarts
eru mjög veikir og það tókst
Barbero að notfæra sér: 19.
Rxd5! - Hxd5, 20. De6 -
Hdd7, 21. De8+ - Kh7, 22.
Be4+ - g6, 23. Hxf6 - Hxf6,
24. Dxd7+ og hvítur vann auð-
veldlega. Barbero sigraði á
þessu móti, hann hlaut 7Vz v.
af 9 mögulegum. A-Þjóðverjinn
Pahtz varð annar með 7 v., en
Svíinn Johnny Hector varð þriðji
með 6 v. ásamt stórmeisturunum
Knaak, A-Þýzkalandi og Grosz-
peter, Ungverjalandi.
N.