Morgunblaðið - 16.07.1987, Page 52
V^terkurog
>3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ptorgiitttMitfrfö
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aana
♦ SUZUKI
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
úr Laxá í Aðaldal
■vWenju há meðalþyngd setur svip á veiðina
LAXÁ í Aðaldal hefur fyrst
íslenskra laxveiðiáa á þessu
sumri rofið 1.000 laxa múrinn,
en þúsundasti laxinn veiddist þar
í gær og er nú aflinn kominn á
annað þúsund fiska. Þó hefur
veiðin verið dræm vegna hita-
bylgju nyrðra síðustu vikuna.
Laxinn í Laxá hefur verið með
ólíkindum vænn að jafnaði í sum-
ar, mikið af 15—20 punda laxi
og talsvert af enn stærri laxi,
allt upp í 24 pund. Meðalþyngd
laxa sem einstakir veiðimenn
hafa veitt hefur og verið ævin-
^níýralegur, þannig fengu þrir
félagar 8 laxa á Núpaveiðum á
tveimur dögum fyrir skömmu og
var meðalvigtin 17,25 pund.
Annars hefur veiðin víða glæðst
að undanfömu, þrátt fyrir lægð
annars staðar. Má nefna sem dæmi
Laxá á Asum og Elliðaámar. Ein-
sýnt er annars að næsta á sem fer
yfir 1.000 laxa verði Þverá/Kjarrá
í Borgarfírði. Þyngdarskipting lax-
ins í sumar hefur vakið athygli. Það
er óvenjulega mikið af mjög vænum
laxi, frá 14—15 pundum upp í
20—24 pund. Stærsti lax sumarins
er ennþá 30,2 punda fiskur, dreginn
úr Soginu. Smálaxinn er hins vegar
3—4 pund að meðaltali og laxar
niður í 1 pund hafa veiðst á nokkr-
um stöðum svo sem í Elliðaánum
og Haukadalsá svo einhveijir staðir
séu nefndir.
Sjá nánar „Eru þeir að
fá’ann?“ á miðopnu.
Morgunblaðið/Kristján G. Amgrímsson
Borað vegna Alþingishúss
Verktakar á vegum Alþingis vinna um þessar mundir við það
að taka jarðvegssýni á lóðinni fyrir framan hús Happdrættis
Háskóla Islands en þar er fyrirhugað að rísi nýtt Alþingishús.
Handbor er notaður við sýnatökuna þar sem sýnin eru mjög
viðkvæm.
TF-SIF, þyrla landhelgisgæsl-
unnar sótti í gærkveldi slasaða
norska stúlku á tvítugsaldri upp
á hálendið, en hún slasaðist, er
hún féll af hestbaki.
Talið var við fyrstu skoðun að
hún hefði höfuðkúpubrotnað, en það
fékkst ekki staðfest í gærkvöldi,
þar eð ekki hafði farið fram rann-
sókn. Hún mun hins vegar ekki
vera í lífshættu. Atvikið átti sér
stað á milli kl. 18.30 og 19 í gær-
kveldi í svokölluðum Þjófadölum á
Kjalvegi, austan við Langjökul.
Orkustofnun kannar mögn-
leika á fiskeldi um land allt
STÓRFELLDAR rannsóknir eru
nú hafnar á vegum Orkustofnun-
ar á jarðhitasvæðum sem nýta
megi til fiskeldis. Þessar rann-
sóknir fara fram víða um landið
og beinast nú að svæðum með
lægri vatnshita en áður var tal-
inn nýtanlegur. Helstu þættir
rannsóluianna eru jarðfræði-
rannsóknir, yfirborðsmælingar
og hitastigsboranir. Að sögn Ein-
ars Tjörva Elíassonar verkfræð-
ings hjá Orkustofnun bendir allt
til aukinnar nýtingar jarðhita um
land allt, en markmið rannsókn-
anna er að finna staði sem
hentugir eru til seiðaeldis og
matfiskeldis.
Að sögn Einars Tjörva hafa rann-
sóknir ekki áður beinst að svæðum
með lágu hitastigi þar sem áður var
talið að hitastig vatns yrði að vera
allt að 60 gráður svo það nýttist.
Nú er hins vegar leitað að vatni
með hitastigi allt frá 12-14 gráðum
og þaðan af heitara og eru því líkur
á að hægt verði að nýta jarðhita
víða um land sem hingað til hefur
ekki dugað til húshitunar né ann-
arra nota. Þetta hitastig, 12-14
gráður, hentar vel til eldis á lax-
fiskum.
Rannsóknir Orkustofnunar bein-
ast fyrst og fremst að því hvar
þennan jarðhita sé helst að finna,
í hve miklu magni og hversu hag-
kvæmt sé að vinna hann. Leitin
beinist ekki einungis að heitu vatni
heldur einnig ferskvatnsuppsprett-
um og tilraunum með sjávartöku.
Einar Tjörvi sagði að fískeldisfyrir-
tæki hefðu gert svipaðar rannsóknir
á einstöku svæðum með aðstoð
Orkustofnunar en þetta væri í
fyrsta skipti sem hið opinbera kost-
aði víðtækar rannsóknir af þessu
tagi. Sprunguleit og tilraunaboranir
fara fram meðfram allri suður-
ströndinni, í sveitum Suðurlands
allt frá Vestur-Skaftafellssýslu að
Ölfusi, á Barðaströnd og á Strönd-
um, við ísafjarðardjúp, í Skagafirði
og í Öxarfírði. Rannsóknimar
standa í ailt sumar og ságði Einar
Tjörvi að vonast værí til að ein-
hveijar niðurstöður lægju fyrir í lok
ársins.
Sláturhúsaskýrslan:
Eitt einkasláturhús
áfram í rekstri
Verkfall
boðaðí
Blöndu-
„MÉR finnst einu gilda hvort
siáturhúsin sem lögð verða niður
eru í einkaeign, eign ríkisins,
kaupfélaga eða Sláturfélags Suð-
urlands, svo framarlega sem við
erum að stefna að því marki að
koma vörunni á sem ódýrastan
hátt til neytenda,“ sagði Magnús
Friðgeirsson framkvæmdastjóri
Búvörudeildar Sambandsins í
samtali við Morgunblaðið vegna
skýrslu nefndar sem fjallað hef-
ur um hagræðingu í rekstri
sláturhúsa. Þar kemur meðal
annars fram að aðeins eitt þeirra
sláturhúsa sem lagt er til að haldi
áfram rekstri er í einkaeign.
Karl Sigurgeirsson fram-
kvæmdastjóri Verslunar Sigurðar
Pálmasonar á Hvammstanga, sem
einnig rekur sláturhús, sagði hins
vegar að þeim þætti það harður
kostur ef sláturhúsið yrði lagt niður
eins og nefndin legði til. Sér sýnd-
ist að með þessum tiilögum væri
verið að færa þessa tegund atvinnu-
rekstrar, eins og hann orðaði það,
alfarið í hendur Sambandsins og
kaupfélaganna.
Jón H. Bergs forstjóri Sláturfé-
lags Suðurlands lagði áherslu á að
komið yrði á eins mikilli hagræð-
ingu í rekstri sláturhúsa og kostur
væri. Það gæfi augaleið að þegar
sauðfé fækkaði væru ekki næg
verkefni fyrir öll sláturhús í landinu.
Sjá nánar miðopnu blaðsins
virkjun
IÐNSVEINAFÉLAG Húnvetn-
inga og Verkalýðsfélag Austur-
Húnavatnssýslu hafa boðað
verkfall við framkvæmdir í
Blönduvirkjun frá og með mið-
vikudeginum 22. júlí hafi samn-
ingar ekki tekist fyrir þann tíma.
Samningar þessara félaga hafa
verið lausir frá þvi um áramót.
Þá hefur Vélstjórafélag Suður-
nesja boðað verkfall í Hraðfrysti-
húsi Miðness hf. í Sandgerði frá
25. júlí verði ekki búið að ganga
frá kompu fyrir vélstjóra á staðnum
svo sem kjarasamningar kveða á
um.
Yfir 1.000 laxar
Norsk stúlka
slasast á
hálendinu
Fiskiskip Fáskrúðsfirðinga stöðv-
ast vegna deilna um fiskverð
TOGARINN Ljósafell er stopp í
höfn á Fáskrúðsfirði vegna deilna
skipshafnarinnar við fiskvinnslu-
fyrirtækið á staðnum um fisk-
verð. Engin trilla er á sjó af sömu
orsökum og að sögn Skafta Skúla-
•^ponar, formanns Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Sindra, mun
hinn togari Fáskrúðsfirðinga,
Hoffellið, einnig stöðvast þegar
hann kemur til hafnar á Fá-
skrúðsfirði í dag, þar til þessi
deila hefur verið leyst.
Skafti sagði að sjómönnum hefði
verið boðið sama fiskverð og gilti á
Vestfjórðum, nema hvað verð á
steinbít hefði verið 10% lægra. Ann-
að hvort yrði gengið að þessu tilboði
eða skipshöfninni sagt upp og önnur
ráðin í staðin. Þessu hefðu sjómenn
hafnað alfarið, vegna þess að að-
stæður væru ekki þær sömu á
Austfjörðum og á Vestfjörðum. Á
VestQörðum væri allur minni fiskur
settur í gáma en á Austíjörðuni
væri öllu landað hjá fiskvinnslunni.
„Það má segja að loftið sé raf-
magnað hér á staðnum," sagði
Skafti.
Hann sagði að sjómer.n hefðu far-
ið fram á svipað fiskverð og gilti á
Norðurlandi, en þar væri útgerðar-
munstrið svipað og á Austfjörðum.
Sjómenn hefðu sýnt mikið langlund-
argeð, því búið væri að semja um
fiskverð nema á Ijörðunum milli
Vopnafjarðar og Hafnar á Homa-
firði. Hann sagði að fískvinnslan
hefði ekki viljað neinar viðræður um
þetta, heldur viljað ákveða fiskverðið
einhliða og nú væri búið að reka
mennina af skipinu eða þannig litu
þeir á það. „Við sættum okkur alls
ekki við að útgerðin ákveði fiskverð
einhliða. Við berum mikla virðingu
fyrir viðsemjendum okkar og það
er lágmark að þeir sýni okkur sömu
virðingu," sagði Skafti.
Hann sagði að það ríkti samhugur
meðal sjómanna á staðnum um að
fá viðræður um fiskverð. Þess væri
að gæta að sjómenn á Austfjörðum
væm langt á eftir öðmm sjómönnum
vegna þess að allur afli væri lagður
upp hjá fískvinnslunni.
Eiríkur Ólafsson, útgerðarstjóri
Hraðfrystihúss Fáskrúðsfirðinga,
sagði að sjómönnum hefði verið boð-
ið sama fískverð og á Vestfjörðum
með smávægilegum breytingum, en
því hefði verið hafnað. Sjómönnun-
um á Ljósafellinu hefði ekki verið
sagt upp, en hann vildi ekki tjá sig
að öðm leyti um málið á þessu stigi.
Borgarráð:
Símtöl dýrari
í Reykjavík
BORGARRÁÐ telur að 9,5%
hækkun á gjaldskrá Pósts- og
síma komi þyngra niður á
Reykvíkingum heldur en hin
opinbera hækkun gefur til
kynna.
Bjöm Friðfínnsson fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og
stjómsýsludeildar sagði að í
fljótu bragði virtist sem hækkun
á gjaldskrá síma kæmi verr við
símnotendur í Reykjavík. Því
hefur Borgarráð óskað eftir við-
ræðum við Póst- og símamála-
stofnunina. Hækkunin tók gildi
1. júlí síðastliðinn.