Morgunblaðið - 16.08.1987, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
REYKJMJÍKURBORG
JÍCUCteVl Sfödoa
Þroskaþjálfa
eða annað starfsfólk með sérmenntun á
uppeldissviði óskast til stuðnings börnum
með sérþarfir á dagvistarheimilum í mið- og
vesturbæ.
Upplýsingar veitir Gunnar Gunnarsson sál-
fræðingur á skrifstofu Dagvistar barna í síma
27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Hrafnista í
Reykjavík
Sjúkraliðar óskast til starfa. Starfsfólk óskast
í borðsal, býtibúr, ræstingu og aðhlynningu.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar í síma 38440 frá kl. 10-12 virka
daga.
RAÐGJÖF OG RÁDNINGÁR
Hefur þú þekkingu
áfisksölu?
Við leitum að manni með þekkingu og/eða
reynslu af sjávarútvegi, t.d. fisktækni, til að
annast sölu á frystum fiski til útlanda. Starf-
ið felst í samskiptum við kaupendur erlendis
ásamt við framleiðendur hér heima. Viðkom-
andi þarf að hafa góða málakunnáttu, þó
einkum í ensku og geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfresturertil og með 20. ágúst nk.
Ábendi,
Engjateigi 9,
sími 689099.
Ágústa Gunnarsdóttir,
Guðlaug Freyja Löve,
Nanna Christiansen,
Þórunn H. Feiixdóttir.
Farseðlaútgáfa
Óskum að ráða mann til að annast farseðla-
útgáfu hjá ferðaskrifstofu. Einungis maður
vanur farseðlaútgáfu kemur til greina.
Við leitum að manni með góða tungumála-
kunnáttu, (enska, þýska, norðurlandamál)
hæfileika og getu til að starfa sjálfstætt og
skipulega, hafa frumkvæði og ánægju af
mannlegum samskiptum.
í boði er sjálfstætt, vel launað framtíðar-
starf með samstilltum hópi manna.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir á
eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Farseðlaútgáfa", fyrir 20. ágúst nk.
Hagvangurhf
RÁÐNINGARPJÓNUSTA
GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVIK
Sími: 83666
Uppvask og þrif
Arnarhóll, veitingahús, óskar að ráða fólk við
uppvask og þrif í eldhúsi á kvöldin.
Upplýsingarveittará skrifstofunni næstu daga.
Sími 14944.
Arnarhóll.
mtSPMUSM »h
Óskum eftir að ráða gott fólk til margvís-
legra framtíðarstarfa:
★ Byggingaverkfræðing eða bygginga-
tæknifræðing hjá góðu fyrirtæki.
★ Viðskiptafræðinga.
★ Sölumenn.
★ Offsetprentara.
★ Afgreiðslufólk hálfan eða allan daginn í
góða sérverslun í miðborginni. Tungu-
málakunnátta og góð framkoma áskilin.
★ Afgreiðslugjaldkera hjá góðu verslunar-
fyrirtæki á Ártúnshöfða.
★ Lagermenn.
★ Afgreiðslufólk í margvíslegar sérverslanir.
Athugið, langflest þau störf sem við ráðum
í eru aldrei auglýst.
snmNúmm »/i
BrynjóMurJónsson • Nóatún 17 105 Rvik. • simi 621315
• Alhtióa raóningafijonusta
9 Fyrirtægjasala
• Fjarmalaradgjöf fyrir fyrirtæki
Fjölgun í
fjölskyldunni
Við lítum á okkur sem samhenta fjölskyldu.
Vegna velgengni undanfarinna mánaða vant-
ar okkur nýja fjölskyldumeðlimi:
Sölumenn
1. Duglega stúlku í nýtt starf, til að selja
kort, gjafapappír og skyldar vörur.
2. Aðra duglega stúlku í annað nýtt starf,
til að selja sælgæti, kartöfluflögur og
þess háttar.
í bæði þessi störf ætlum við að ráða dugleg-
ar og hressar stúlkur, sem hafa ánægju af
sölumennsku og umgengni við fólk. Þurfa
að hafa sitt bílprófið hvor og geta byrjað
strax.
Lagerstarf
Þetta er ekki nýtt starf, en Rut er að fara
aftur í skólann. Til að geta sinnt þessu starfi
þarf skipulagshæfileika, nákvæmni og veru-
lega vinnugleði.
Sendisveinn
Við ætlum líka að ráða sendisvein, eftir há-
degi. Þarf að hafa eigin reiðhjól og geta
unnið í vetur.
Kynningarfólk
Okkur vantar alltaf vant kynningarfólk til að
annast vörukynningar í matvöruverslunum.
Reynsla nauðsynleg.
Vinsamlega sendið nöfn, símanúmer og allar
nauðsynlegar upplýsingartil auglýsingadeild-
ar Mbl. fyrir miðvikudagskvöld, merktar:
„Skemmtileg störf — 6444“ og takið greini-
lega fram um hvaða starf er verið að sækja.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
SPECTRUM HF.
TEMA HF.
Laugavegur 39. bakhús P o box 622
Tel. 29166 121 Reykjavik lceland
Lager — pökkun
Óskum að ráða reglusama menn til lager-
og pökkunarstarfa sem fyrst. Góð vinnuað-
staða og mötuneyti á staðnum.
Nánari upplýsingar um störfin veitir skrif-
stofustjóri.
Umsóknir með helstu upplýsingum sendist
skrifstofu fyrirtækisins fyrir 24. ágúst nk.
Æ\0SIA-0G
( l| ÍSMJÖRSALANSE
1Bitruhálsi 2 — Reykjavík — Sfml 82511
B
Fóstru — starf s-
mann
vantar nú þegar til starfa á leikskólann Fögru-
brekku, Seltjarnarnesi, sem er lítill tveggja
deilda leikskóli.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri í síma
612100 eða forstöðukona í síma 611375.
Erlend viðskipti
Deildarstjóri (423)
Fyrirtækið er stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið deildarstjóra: Útfylling og frá-
gangur útflutningsskjala. Erlendar innheimt-
ur hjá bönkum og viðskiptaaðilum.
Við leitum að manni sem er nákvæmur,
ákveðinn, töluglöggur og getur tekist á við
sjálfstætt og krefjandi starf. Tungumála-
kunnátta: enska, norðurlandamál og þýska.
Viðskiptafræðimenntun eða önnur haldgóð
menntun á viðskipta-/verslunarsviði kæmi
sér vel í starfinu.
Starfið er laust strax eða eftir nánara sam-
komulagi. Góð laun.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegar sendið skriflegar umsóknir á
eyðublöðum, sem liggja frammi á skrifstofu
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
númeri viðkomandi starfs.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
CRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAViK
Sími: 83666
Lipurt og drífandi
afgreiðslufólk
Vegna aukinna umsvifa viljum við ráða lipurt
og drífandi afgreiðslufólk í hverfisverslanir
okkar, einnig í Stórmarkaðinn og Kaupstað.
Góð vinnuaðstaða, starfsmannanámskeið og
mikil starfsmannafríðindi.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 22110, eða á skrifstofu KRON, Lauga-
vegi 91, 4. hæð.
KAUPSTADUR
ÍMJÓDD