Morgunblaðið - 16.08.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987
61
Odd Hiltmynd
höggvari
Síðla ársins 1986 andaðist Odd
Hilt myndhöggvari í Osló. Mig lang-
ar til að minnast hans með fáeinum
orðum þótt mánuðir séu nú liðnir
frá því er hann hvarf á braut. Ber
einkum tvennt til þess; tengsl hans
við ísland og hin mörgu ágætu lista-
verk sem hann lét eftir sig og prýða
nú byggingar í almannaeign, úti-
vistarsvæði, listasöfn og heimili í
Noregi og víðar um löndin.
Odd Hilt fæddist í Drammen 8.
mars 1915. Hann hóf nám við
teiknideild listiðnaðarskólans í Osló
1931 og varð síðan nemandi í högg-
myndasmíð við myndlistarakademí-
una allt til ársins 1936, fyrst í stað
hjá Wilhelm Rasmussen prófessor.
Alllöngu seinna bætti hann við sig
heilu ári við þessa sömu lærdóms-
stofnun.
Rétt um það leyti sem Odd Hilt
gekk út um dyr myndlistarakademí-
unnar, aðeins tuttugu og eins árs
að aldri, bauðst honum starf við
endurreisn dómkirkjunnar gömlu í
Þrándheimi: Nidarosdomen. Sú
endurbygging eða endurreisn var
ekkert áhlaupaverk eins og menn
geta gert sér í hugarlund. Hún
hafði þá þegar staðið óralengi og á
vafalaust eftir að treinast bæði
handverksmönnum og listamönnum
í langan tíma til viðbótar. Þegar
hér var komið sögu voru þrír ungir
myndhöggvarar önnum kafnir við
að móta ýmiskonar verk í anda
hinnar nýgotnesku kirkjubygging-
ar. Þeir hétu Nic Schioll, Dyre Vaa
og Stinius Fredriksen. Hinn síðast-
nefndi benti Helga Thiis arkitekt á
Hilt sem líklegan og hæfan starfs-
mann og varð þetta að ráði. Varla
gat forsjónin verið ungum lista-
manni hliðhollari þegar hann var
að stíga fyrstu sporin utan skóla
síns. Hinn kosturinn sem blasti við
flestum ungum myndhöggvurum á
kreppuárunum var að gera bama-
portrett sem fólk greiddi fyrir um
það bil tvö hundruð krónur.
í Þrándheimi var andrúmsloftið
hið ákjósanlegasta, vinnustofumar
rúmgóiðar og vandvirkir handverks-
menn sem einatt vom reiðubúnir
til að aðstoða listamennina og taka
við verkum þeirra til frekari með-
höndlunar þegar búið var að móta
þau í leirinn. Allt þetta líktist frem-
ur draumi en veruleik efnahags-
óreiðunnar miklu. Á tíu áram gerði
Odd Hilt um það bil fjöratíu meiri-
háttar höggmyndir fyrir dómkirkj-
una en byijaði þó með litlum
verkum sem vora nánast ósýnileg
öðram en þeim er gátu klifrað upp
tröppur eða staðið á pöllum. Hér
er rétt að benda sérstaklega á mán-
aðarmyndimar á mótum oddbog-
anna sem spanna býsna vítt svið
mannlegrar hugsunar, reynslu og
athafna. Af þeim gerði höfundurinn
litlar útgáfur í terracotta svo að
menn gætu átt þess kost að njóta
verkanna í húsum sínutn og heimil-
um.
En Adam var ekki alltof iengi í
Paradís. Heimsstyijöldin skall á og
þýskir herir raddust inn i Danmörku
og Noreg. Á svo að segja einni
nóttu gerbreyttu þessir atburðir lífi
þjóðarinnar og skildu eftir sig hijúf
og varanleg spor. Hilt var tekinn
til fanga af Þjóðveijum fyrir „ólög-
lega“ starfsemi eins og fjölmargir
aðrir og gisti Falstad-búðimar í
Ekne í Norður-Þrændalögum í
fimmtán mánuði. Á gamlaárskvöldi
1942 tókst honum að flýja frá
Þrándheimi til Svíþjóðar og þar bjó
hann til stríðsloka, 1945. I Stokk-
hólmi gerði hann portrett af danska
skáidjöfrinum Martin Andersen
Nexö í tilefni af sjötíu og fimm ára
afmæli hans og tók þátt í sýning-
unni: Listamenn í útlegð með
verkum sem skírskotuðu til stríðsins
í Noregi og bára nöfn eins og Af-
taka, Ólögleg prentsmiðja og
Fangabúðir. Aftaka var seinna fyr-
irmynd að minnismerki um
Norðmenn sem féllu í Falstad-
skógi.
Eg geri ráð fyrir, að það hafí
ekki verið fyrir neina tiiviljun að
- Minning
Odd Hilt gerði myndina af Nexö í
Stokkhólmi. Að því er ég best veit
var hann alla tíð eldheitur sósíalisti
og hvikaði aldrei frá skoðunum
sínum í því efni. Mörg verka hans
era tengd sósíalískri hreyfingu,
verkalýðsbaráttunni, lífí og kjöram
erfíðisfólks og hinni manneskjulegu
hlið veraldarinnar okkar. Um skeið
var hann formaður norska mynd-
höggvarafélagsins og sat í menn-
ingarráði Osló-borgar. Á sjötta
áratugnum hitti ég hann stundum
á fundum Norræna myndlistar-
bandalagsins. Hann var prúður
maður í umgengni, hafði óvenjulega
fastmótaðar skoðanir á málefnum
og kjöram listar cg listamanna en
fráleitt jafn gjarn á að láta á sér
bera og ýmsir starfsfélaga okkar
sem höfðu þó sannanlega minna til
málanna að leggja.
í Stokkhólmi kynntist Odd Hilt
konu sinni Guðrúnu Briem. Sambúð
þeirra stóð í meira en ijöratíu ár.
Guðrún hefur stundað kennslu um
langa hríð, m.a. við fóstraskólann
í Osló. Auk þess hefur hún unnið
ötullega að friðarmálum og lagt
baráttunni gegn kjamavopnum
sérstakt lið bæði heima og erlendis.
Hún er trygglynd og sterk mann-
eskja. Heimili þeirra Odds á Ekely
hefiir verið mörgum staður upplyft-
ingar og gleði á sérstökum stundum
án þess að ég kunni að segja þá
sögu nema að takmörkuðu leyti.
Þau eiga tvö böm: Torstein rithöf-
und sem einnig stýrði bókaforlagi
sínu af dugnaði í allmörg ár og
Ragnhild leikara. Hún nýtur mikils
álits og hefur m.a. starfað við
Norska leikhúsið í Osió síðari árin.
Eftir að stríði lauk og þau Guð-
rún og Odd Hilt hurfu aftur til
Noregs tóku við fijó og annasöm
ár. Ljúka þurfti við dómkirkju-
myndimar en i kjölfarið komu bæði
portrett og minnismerki sem mynd-
höggvaranum hafði verið falið að
gera. Hann vann einnig að því
ásamt mörgum öðram áhugamönn-
um að koma á fót listaskóla í
Þrándheimi og var leiðbeinandi um
hríð við arkitektadeild tækniháskól-
ans. Á þessum áram gafst einnig
tóm til rannsóknaferða um Evrópu-
Iönd, einkum þó Grikkland og
Frakkland. Á eftir fylgdu Sovétrík-
in og Kína. Og um tíma hlýddi Odd
Hilt á leiðbeiningar Ossip Zadkins
í París.
Frá þessum tíma er Falstad-
minnismerkið sem áður var vikið
að og annað sem reist var til minn-
ingar um NKP-félaga í kirkjugarði
norðurs í Osló árið 1947. Þéttur
Fæddur 25. nóvember 1968
Dáinn 26. júli 1987
Þegar sól var hæst á lofti sunnu-
daginn 26. júlí bárast þau sorglegu
tíðindi að vinur minn, Árni Sigurð-
ur, hefði látist í umferðarslysi. Stórt
skarð er höggvið í vinahóp og verð-
ur ekki fyllt. Góður drengur hefur
verið kallaður burt um aldur fram.
Það er erfítt að sætta sig við siík
tíðindi.
En sagt er að þeir deyi ungir sem
guðimir elska. Ég þekkti Áma Sig-
urð í nokkur ár en kynntist honum
af alvöra sumarið 1986 þegar hann
kom sæll og glaður aftur hingað á
æskustöðvar til að leika og þjálfa
fótbolta. Þar á meðal að þjálfa okk-
ur stelpumar og í þeim hópi var
honum tekið eins og annars staðar.
Þetta sumar var ég mikið í kringum
Sigga eins og hann var kallaður
yfirleitt. Við töluðum mikið saman
um vandamál okkar og áttum
ógleymanlegar stundir saman.
steinn með lágmyndum rís á svipuð-
um slóðum. Hann er óður til
verkalýðsskáldsins Rudolfs Nilsen
sem lést tæplega þrítugur að aldri
en hafði þó sent frá sér mörg heit
baráttuljóð. Félag málarasveinanna
í Osló pantaði listaverkið hjá Hilt
og lét koma því fyrir á kirkjureitn-
um 1960.
Verkalýðsfélagið í Övre Ardal fól
myndhöggvaranum að skapa og
reisa farandverkamönnunum gömlu
í Skandinavíu — rölluranum —
óbrotgjaman minnisvarða. Og á
Töyen í Osló standa erfiðiskonur
við vatnsdæluna með ok á herðum
og fötur í báðum höndum — enn
eitt útilistaverk Odds Hilt merkt
árinu 1978. Þessi upptalning er
varla tæmandi en ég læt þó staðar
numið.
Odd Hilt var liðlega fertugur
þegar hann efndi til fyrstu einka-
sýningar sinnar í Osló 1956. Slíkt
þætti víst fásinna nú á dögum þeg-
ar flestir keppast við að þeyta nafni
sínu og ímynd upp á himintjaldið
áður en þeir hafa öðlast nokkra til-
takanlega reynslu í skóla lífsins.
Þess ber þó að geta í nafni réttlæt-
is og varúðar að listamaðurinn var
löngu kunnur öllum þeim er vildu
vita eitthvað af menningu og listum.
Á eftir sýningunni f Osló fylgdu
vitaskuld margar aðrar einkasýn-
ingar. Ég sá þá síðustu í Kunstner-
forbundet en til hennar var stofnað
vegna sjötugsafmælis Odds Hilts.
Hún var heilsteypt og fín og verkin
mótuð þessum hreinu formum sem
fylgdu höfundi þeirra frá upphafi
til endilokanna.
Hjörleifur Sigurðsson
Svo fór Siggi til Reykjavíkur um
veturinn og nutu ÍR-ingar stuðn-
ings hans í körfuboltanum. Því
miður heyrði ég lítið frá Sigga. En
svo í vor kom hann aftur hingað
til að þjálfa og spila fótbolta og þar
á meðal að þjálfa okkur stelpumar.
Var honum tekið með miklum fögn-
uði, því góður þjálfari, eins og hann
var, er ómissandi. Hann var sá sami
og sá sem hafði kvatt okkur sumar-
ið 1986, Siggi var alltaf svo kátur
og hress.
Því vil ég þakka Sigga fyrir góð-
ar stundir á þessum tveimur árum
sem verða alltaf efst í huga mínum.
Vinir mínir hafa misst mjög góðan
vin og kveðjum við hann með mikl-
um söknuði. Ég sendi mínar dýpstu
samúðarkveðjur til foreldra, systk-
ina og vina. Og Guðný mín, megi
Guð styrkja þig í hinni miklu sorg.
Munið að minnig iifír um góðan
dreng.
Ásta Guðrún Pálsdóttir
Minning:
Árni Sigurður
Gunnarsson
t Jaröarför mannsins míns, fööur okkar og afa, SIGURÐAR EYJÓLFSSONAR, Langoyrarvegi 3, Hafnarfirði, fer fram frá Þjóökirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 17. ágúst kl. 13.30. Pálfna Sigurðardóttir, Sigrfður Sigurðardóttir, Kristján Sigurðsson og barnabörn.
t Útför móöur okkar, STEFANÍU SIGMUNDSDÓTTUR, sem andaöist í Landspítalanum 9. ágúst síöastliðinn fer fram frá Bústaöakirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Kristján Sverrisson, Sigurrós Ósk Arthursdóttir.
t Útför eiginmanns míns og föður, MAGNÚSAR BRYNJÓLFSSONAR bókbandsmeistara, Lynghaga 2, fer fram frá Fossvogskapellu miövikudaginn 19. ágúst kl. 13.30. Svanfrfður Jóhannsdóttir, Brynjólfur Magnússon.
"t" 1 Alúðarþakkir færum við þeim sem auösýndu samúö og vinsemd viö fráfail og útför mannsins míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, KRISTMUNDAR STEFÁNSSONAR frá Grænuhlfð. Heiga Einarsdóttir, Pálmi Gfslason, Stelia Guðmundsdóttir, Einar Kristmundsson, Dagný Guðmundsdóttir, Guðrún Kristmundsdóttir, Ingimar Vilhjálmsson, Anna Kristmundsdóttir, Helga Kristmundsdóttir, Einar Guðnason, Bergdfs Kristmundsdóttir, Gunnar Gfslason og barnabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin- manns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÁRNA ÁRNASONAR frá Kópaskeri. Kristveig Jónsdóttir, Ámi H. Árnason, Hlín P. Wium, Gunnar Árnason, Sólveig Johannesdóttir, Ástfrfður Árnadóttir, Þorstelnn Helgason, Elnar Arnason, Jón Árnason, Metta Helgadóttir og barnabörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu, JÓRUNNAR SIGURÐARDÓTTUR NJARÐVÍK, Skarði, Skarðshreppi, Skagafjaröarsýslu. Ólafur Lárusson, Hallvelg Njarðvfk, Torfl Ólafsson, Páll Pótursson, Guðbjörg Helgadóttir, Tinna Pálsdóttir, Ólafur Torfason, Heba Pálsdóttir, Helgi Torfason.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröar- för INGVELDARPÉTURSDÓTTUR. Andrés Gilsson, Valgerður H. Gfsladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. r
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. ^ Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. I
KS.HELQASONHF 81STEINSMIÐJA ■■ SKEMMUVEGI 48 SlM! 76677
4.4S4K.44, - - - - _ -ái