Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
3
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
Fjölmennasti fram-
haldsskóli landsins
1460 nemendur á haustönn
NEMENDUR við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholtí verða 1460 á
haustönn sem nú er hafinn og
er skólinn fjölmennastí fram-
haldsskóli landsins að sögn
Kristínar Arnalds skólameistara.
Búist er við að um 800 nemendur
stundi nám í öldungadeild en
skráningu þar er ekki full lokið.
Skólinn var settur í Bústaðar-
kirlq'u 31. ágúst og daginn eftir fór
fram afhending á stundaskrá og
bókalista. í gær var kynningarfund-
ur með nýnemum sem eru 480 að
þessu sinni. „Við sem stjómum
skólanum kynntum okkur fyrir ný-
nemum á þessum fundi og nemend-
ur fengu góða Námskynningu frá
skólanum," sagði Kristín. „í skólan-
um er annað fyrirkomulag en þeir
þekkja sem eru að hefja nám við
áfangaskóla og koma úr grunnskól-
um þar sem er beklq'arkerfí. Við
leggjum líka mikið upp úr Náms-
tækni en það er bæklingur sem þau
kaupa og farið er yfír með þeim.
Síðan tók hver kennari við sínum
nemendum og í lokin tóku eldri
nemendur við og kynntu félagslífíð.
Þetta er mikil dagskrá og tók heilan
dag.“
Kennarar við skólann eru 126 í
vetur og hófst kennsla í morgun
samkvæmt stundaskrá.
Færeyingar bíða
Vigdísar með
eftirvæntingu
Fœreyjum.
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem forsetí heimsækir Færeyinga og
í raun hefur það ekki gerst fyrr en í dag, fimmtudag. Þá hlotnast
forseta íslands, Vigdisi Finnbogadóttur, sá heiður. Næstu fjóra daga
verður hún opinber gestur i boði færeysku landsstjórnarinnar.
AUt hefur verið gert sem hægt
er til að tryggja að heimsókn forset-
ans takist eins vel og kostur er.
Og þegar flugvél Vigdísar lendir í
dag á flugvellinum í Vogum verður
allt tilbúið. íbúar Færeyja eru
ánægðir og telja heiður að heim-
sókn forsetans og ekki að ástæðu-
lausu, því Vigdís er ótrúlega vinsæl
í Færeyjum. íslendingar búsettir í
Færeyjum eru líka fullir eftirvænt-
ingar, ekki síst þar sem Vigdís lét
{ljósi ósk um að hitta þessa landa
sína. Staðurinn þar sem hún hittir
þá gæti varla verið betur valinn,
en það er Norræna húsið í Færeyj-
um.
Af dagskrá heimsóknarinnar er
ljóst að veita á Vigdísi eins góða
innsýn í daglegt líf í Færeyjum og
mögulegt er á svo stuttum tíma.
Forsetinn heimsækir ýmsa staði á
stærri eyjunum, en samt mun gef-
ast tími til stuttrar heimsóknar í
Stóra Dímon, sem nú er aftur búið
á allan ársins hring eftir nokkuð
hlé. Á sunnudag verður Vigdís við-
stödd guðsþjónustu í Sandskirkju.
Síðdegis á mánudag heldur hún
síðan heim á leið ásamt fylgdarliði
sínu og hefur þá vonandi margar
góðar minningar í farteskinu. í
fylgdarliði hennar verður meðal
annars sendiherrann Hans Andreas
Djurhuus, sem er af færeysku bergi
brotinn.
í lokin má geta þess að Vigdís
Finnbogadóttir hefur áður heimsótt
Færeyinga, þ.e.a.s. áður en hún
varð forseti. Það var árið 1976,
þegar hún var leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Þá var leik-
ritið Skjaldhamrar sett upp í
Færeyjum. Þegar Vigdís kemur nú
í heimsókn fer hún aftur í leikhúsið
þar sem sýnt verður leikrit henni
til heiðurs.
Snorri.
Haukur Halldórs-
son kjörinn formaður
Stéttarsambandsins
HAUKUR Halldórsson í Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd var
kosinn formaður Stéttarsambands bænda á fyrsta stjóraarfundi
nýkjörinnar stjórnar eftir aðalfund sambandsins sem lauk í gær.
Miklar breytíngar urðu á stjóru Stéttarsambandsins, 6 nýir menn
komu inn en 3 sátu áfram. Þórólfur Sveinsson, helstí keppinautur
Hauks um formaxmsembættíð, var kosinn varaformaður stjórnar.
Aðrir í stjóm eru Guðmundur
Jónsson á Reykjum í Mosfellsbæ,
Þórólfur Sveinsson á Feijubakka í
Mýrasýslu, Birkir Friðbertsson í
Birkihlíð í Súgandafirði, Þórarinn
Þorvaldsson á Þóroddsstöðum í
Hrútafírði, Ari Teitsson að Hrísum
í Reykjadal, Þórður Pálsson á Refs-
stað í Vopnafirði, Böðvar Pálsson
á Búrfelli í Grímsnesi og Bjami
Helgason á Laugalandi f Mýrasýslu.
Bjami og Haukur voru kjömir í
stjómina úr hópi foiystumanna
búgreinafélaganna.
I Framleiðsluráð voru kjömir auk
stjómarmanna búgreinafíilltrúamir
Halldór Gunnarsson I Holti undir
EyjaQöllum, Hörður Harðarson í
Laxárdal og Jónas Halldórsson í
Sveinbjamargerði.
Úr stjóm gengu Ingi Tiyggvason
frá Kárhóli, Guðmundur Ingi Kristj-
ánsson, Kirkjubóli, Þorsteinn
Geirsson, Reyðará, Magnús Sig-
urðsson, Gilsbakka, Jón M.
Guðmundsson, Reykjum og Jón
Gíslason, Hálsi.
Hinn nýkjömi formaður Stéttar-
sambandsins, Haukur Halldórsson,
er 43 ára að aldri. Hann er kúa-
bóndi í Sveinbjamargerði og hefur
starfað mikið að félagsmálum
bænda, er m.a. formaður Sambands
fslenskra loðdýraræktenda og form-
aður Búnaðarsambands EyjaQarð-
ar.
Morgunblaðið/KGA
Nýnemar við Fjölbrautaskólann f Breiðholtí á kynningarfundi með kennurum og eldri nemendum.
Meiriháttar
úrval af stórglæsilegum haustfatnaði
Opið laugardag frá kl. 10-16.
(i^KARNABÆR
PV Laugavegi 66, Austurstræti 22, Glæsibæ. Síi
Umboðsmenn um land allt:
Adam og Eva, Vestmannaeyjum.
Báran, Grindavík.
Fataval, Keflavik.
Lindin, Selfossi.
Nína, Akranesi.
ísbjörninn, Borgarnesi.
Tessa, Ólafsvík.
Þórshamar, Stykkishólmi.
Eplið, ísafirði.
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Sparta, Sauöárkróki.
lilmu tsishi Ftss )h.i(iti ' irisi .tiish. .mij-TSTiiha.ti
Sími 45800.
Díana, Ölafsfirði.
Aldan, Seyðisfirði.
Búðin, Blönduósi.
Garöarshólmi, Húsavik.
Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn.
Nesbær, Neskaupstaö.
Skógar, Egilsstöðum.
Viðarsbúð, Fáskrúösfirði.
Hornabær, Höfn Hornafirði.
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsveili.
Vlfa, Kópavogi.
r'-:' ' • 1