Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 Gestur og Rúna sýna í Gallerí Borg GESTUR Þorgrimsson og Sigrún Guðjónsdóttir opna sýningu á myndverkum sinum i Galleri Borg i dag, kl. 17. Fjörtíu ár eru liðin frá því að Gestur og Rúna komu heim frá list- námi í Kaupmannahöfn. Þá settu þau á fót leirmunaverkstæðið Laug- amesleir, sem þau starfræktu til ársins 1954, og endurvöktu síðan 1968. Á undanfömum árum hafa þau snúið sér æ meira að stærri verkefnum, m.a. veggskreytingum bæði úti og inni. Síðastliðin 3 ár hefur Gestur lagt höfuðáherslu á að höggva í stein og sýnir nú afrakstur þeirrar vinnu. Elsta Granítverkið vann Gestur árið 1949 og sýnir hann það á Austur- velli, gegnt Gallerí Borg, ásamt ófullgerðum hestasteini, upphafinu að staupasteini og óunnum gabbró- steini. Rúna sýnir leirmyndir og teikningar, sem unnar eru á síðustu tveimur árum. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10 til 18 og frá kl. 14 til 18 um helgar. Henni lýkur 15. september. Fréttatilkynning. Gestur Þorgrimsson og Sigrún Guðjónsdóttir við myndverk sin. VEÐUR IDAG kl. 12.00: / y / / / / / / / / / / / / / / / / / / Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gaer) VEÐURHORFUR I DAG, 03.09.87 YFIRLIT á hádegl f gær: Suður af landinu var allvíðáttumikil lægð. SPÁ: í dag lítur út fyrir norðaustanátt, víða allhvassa, á landinu. Um landið austanvert verður rigning en skúrir vestantil. Hiti 8—12 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Suðaustanátt, rigning um suðaustan- og austanvert landið en úrkomulítið eða úrkomulaust í öðrum landshlutum. TAKN: O: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað 'WÉk Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r / Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur [” ? Þrumuveður vn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 7 «ký|Bé Reykjavík S skýjað Bergen 13 skúr Helslnkl 12 skýjað Jan Mayen 6 skýjað Kaupmannah. 19 léttskýjað Narssarssuaq 6 léttskýjað Nuuk 4 þoka Osló 18 léttskýjað Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 12 léttskýjað Algarve 27 helðsklrt Amsterdam 19 mlstur Aþens 31 heiðsklrt Barcelona 27 mlstur Berlín 23 mlstur Chicago 16 skýjað Feneyjar 26 þokumóða Frankfurt 23 léttskýjað Giasgow 17 skýjað Hamborg 17 þokumóða Las Palmas 26 léttskýjað London 18 mistur Los Angeles 19 lóttskýjað Lúxemborg 20 þokumóðe Madrid 27 léttskýjað Malaga 28 heiðskfrt Mallorca 30 léttskýjað . Montreal 11 léttskýjað NewYork 17 léttskýjað París 23 þokumóða Róm 29 léttskýjað Vln 23 mlstur Washlngton 17 léttskýjað Wfnnipeg 9 alskýjað Kaupin á hlutafé Útvegsbankans: Sambandið set- ur fern skilyrði Samvinnuhreyfingin sntti 4 skilyrði fyrir þátttöku sinni í viðræðum við hóp 33 tilboðsgjafa í hlutabréf Útvegsbanka íslands hf. Valur Arnþórsson stjómarformaður Sambandsins segir þó að æskilegt sé að reyna að leysa þann hnút sem málið er komið í og samvinnuhreyf- ingin gangi til viðræðnanna með opnum huga og freisti að ná samningum sem báðir geti sæmilega við unað. Valur Amþórsson kynnti í gær á fréttamannafundi forsendur og skil- yrði sem samvinnuhreyfingin setti fyrir viðræðum um hlutabréfin og vom þau eftirfarandi: 1. Samvinnuhreyfingin (Sam- bandið og nokkur samstarfsfyrir- tæki fyrir hennar hönd) hefur tilkynnt viðskiptaráðherra kaup á umræddum hlutabréfum á gmnd- velli útboðs ríkisins, sem fyrir lá, fullnægt öllum skilyrðum þess og bíður staðfestingar viðskiptaráð- herra á kaupunum. Samvinnuhreyf- ingin hefur óbreytta afstöðu til þessara kaupa, hefur í engu breytt afstöðu sinni og hefur óbreytta rétt- arstöðu í málinu. 2. Um viðræður: Viðræður aðilja (samvinnuhreyfingarinnar og 33 aðila hópsins) hefjist sem (óformleg- ar) könnunarviðræður með þátttöku viðskiptaráðuneytisins, þar sem við- urkennt sé að fleiri atriði geti komið inn í viðræður málinu til lausnar en einungis meðferð á hlutafé ríkisins í Útvegsbanka íslands hf. 3. Þá fyrst er aðilar telja sig eygja raunhæfan möguleika á gmndvelli fyrir samninga verði tekið til við eiginlegar samningaviðræður, milli fulltrúa samvinnuhreyfingarinnar og fulltrúa 33 manna hópsins, með þátt- töku viðskiptaráðuneytisins eftir þörfum, og þeir meti síðan hvort og hvenær þeir taki fleiri aðila inn í þær viðræður. 4. Samvinnuhreyfingin mun ekki ganga til eiginlegra samningavið- ræðna í málinu undir pólitískum hótunum eða þvingunum, sbr. hótan- ir forsætisráðhérra um ríkisstjómar- slit. Á fréttamannafundinum sagði Valur að samvinnuhreyfingin sæi af raunsæi að það væri kominn mik- ill hnútur í þetta mál og því æskilegt að menn leiti leiða til að leysa þann hnút. Hanns sagðist vona að menn komi auga á þá leið í könnunarvið- ræðunum sem gæti verið raunhæfur samningsgrundvöllur og geti þá sest niður og farið að semja um lausn sem báðir geti sæmilega við unað. Þessar viðræður hljóti þó að snúast um hvað Sambandið væri tilbúið til að gefa mikið eftir af þeim kaupum sem þeir teldu sig þegar hafa gert. Valur sagði að ýmislegt hefði verið nefnt af hálfu opinberra aðila sem gæti orðið lausn á þessu máli, með- al annars að taka Búnaðarbankann og frekari endurskipulagningu bankakerfisins inn í þessar viðræður. Um 4. og síðasta skilyrði sam- vinnuhreyfingarinnar sagði Valur að það færi ékki á milli mála að verið hefðu hótanir um stjómarslit. Til- gangslaust væri, þótt menn eygðu einhvem samningsgrundvöll, að ganga til samninga í þessu máli ef síðan færi svo að sá samningur yrði til einskis ef hann væri einhveijum ráðherra í ríkisstjóminni ekki þókn- anlegur. Valur sagðist telja það feiknar- lega alvarlegt mál í lýðræðisríki, þar sem allir ættu að vera jafnir, að forsætisráðherra skuli hóta stjómar- slitum ef þessi Qöldahreyfing eignist þennan banka. Og það væri ekki hægt að vera undir því meni að ríkis- stjóm íslands kunni að falla vegna þessa máls, því þótt slíkt væri á ábyrgð forsætisráðherra hljóti Sam- bandið, sem rekur umsvifamikinn atvinnurekstur fyrir almenning í landinu, að hafa áhyggjur af því að stjómvöld lendi í pólitískri upplausn þegar mikil verðbólga hrærist undir og fastgengisstefnan sé teygð til hins ýtrasta vegna kostnaðarhækk- ana. Engin skilyrði fyrir þátttöku Hópurinn fús að ræða þetta mál, segir Kristján Ragnarsson KRISTJÁN Ragnarsson, talsmaður þeirra 33 fyrirtækja, samtaka og einstaklinga, sem buðu i hlutafé Útvegsbankann, segir að engin skil- yrði eða forsendur séu fyrir þátttöku þeirra f viðræðum við Sambandið og fleiri aðila um lausn á deUu um hlutabréfasölu ríkisins í Útvegs- bankanum hf. Kristján segir þó að ekki komi tíl greina að hugsanleg sala Búnaðarbankans komi inn í þær viðræður. Þijátíu og þriggja manna hópur- inn hélt á þriðjudag fund um beiðni viðskiptaráðherra um viðræður og var þar samþykkt eftirfarandi álykt- un: „Hopur 33 fyrirtækja, samtaka og einstaklinga, sem buðu í hlutafé ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. þann 17. ágúst síðastliðinn, sam- þykkir tillögu viðskiptaráðherra um að taka þátt í viðræðum við Sam- band íslenskra samvinnufélaga, fulltrúa starfsfólks og viðskiptavina bankans og fulltrúa sparisjóða, ef þessir aðilar vilja kaupa hlutafé í bankanum. Hopurinn lýsir því yfir að hann er reiðubúinn að rýma að hluta til fyrir nýjum samstarfsaðilum úr hópi starfsfólks og viðskiptavina og fyrir sparisjóðum, ef þeir vilja gerast hluthafar. Einnig lýsir hópur- inn yfir vilja sínum um að Alþýðu- banki íslands hf. taki þátt í viðræðum um samruna einkabanka. Jafnframt er tekið fram að tilboð hópsins frá 17. ágúst sl. er óhagg- að.“ Kristján sagði í sambandi við Morgunblaðið í gærkvöldi að í þessu fælust engin skilyrði og engar for- sendur og hópurinn væri fús að ræða um þetta mál. Kristján sagði aðspurður að hon- um væri ómögulegt að skilja hvernig Búnaðarbankinn ætti að koma inn í þessar viðræður. Það væri mál Alþingis að ákveða hvort, hvenær eða hveijum Búnaðarbankinn væri seldur, en ekki þeirra aðila sem nú hefðu samþykkt að ræða málefni Útvegsbankans. Spurður hvers vegna Alþýðubank- inn væri nefndur í þessari ályktun sagði Kristján að bankinn hefði ver- ið í viðræðum við Iðnaðarbanka og Verzlunarbanka, sem væru þátttak- endur í tilboðinu. Þvl vildi hópurinn bjóða bankanum að vera með ef hann vildi. Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs Alþýðubankans, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann sæi ekki hvaða ávinningur það væri fyrir bankann að blanda sér inn í þetta Útvegsbankamál, hvort sem það væri með Sambandinu, eins og rætt var um í tilboði þess, eða í hópi aðilanna 33. Ásmundur sagði að þetta hefði ekki verið rætt í bank- aráði Alþýðubankans, enda ekki borist erindi þar um, en fljótt á litið virtist þetta ekki vera fysilegur kost- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.