Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 66
* 66 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 KNATTSPYRNA / 2. DEILD Ráðast úrslitin um helgina Fimm lið eiga möguleika á sæti í 1. deild VIKINGAR eru efstir í 2. deild þegar tvœr umferðir eru eftir. Þeir eru þó ekki enn öruggir um að hljóta 1. deildarsœti. Mikil spenna er á toppi og botni deildarinar. Fimm lið eiga möguleika á að hreppa tvö laus p. sœti í 1. deild að ári, Víkingur, Þróttur,Leiftur, Selfoss og UBK. ÍBÍ er nú þegar fallið í 3. deild, en Einherji, KS, ÍR og ÍBV berjast fyrir þvf að halda sœti sínu í deildinni. Leikirnir um helgina gætu ráðið miklu um úrslitin. Víkingar eiga mestu möguleik- ana á að komast upp í 1. deild. Þeir hafa nú 29 stig og þurfa 3 stig úr síðustu tveimur leikjum sínum til að tryggja sig. Víkingur á eftir: ÍBV (ú) og Selfoss (h). Þetta gætu orð- ið erfiðir leikir því ÍBV er ekki sloppið við fall og Sel- Valur Jónatansson skrifar **Artline200 **Artline200 **Artline200 Frábær með mjóum hægterað tækffasrl. ~ bægiiegurí 4 litum, svart ofggraent. bóka- og verstunum. tússpenni plastoddl, sem notavfðöll Létturog hendl. Fæstí - biátt- rautt Fæst Iflestum rttfanga- foss á enn möguleika á að komast upp. Þróttur hefur 28 stig og þarf að fá 4 stig út úr síðustu tveimur leikj- unum til að tryggja sig. Þróttur á eftir: Selfoss (ú) og Leiftur (h). Þessir leikir eru erfiðir og ekki unnir fyrirfram því bæði Selfoss og Leiftur freista þess að komast í 1. deild. Leiftur hefur 26 stig og þarf að vinna báða leiki sína til að tryggja sig. Leiftur á eftir: Einheija (h) og Þr’ott (ú) Leiftur ætti að vinna Einheija, en leikurinn gegn Þrótti í Reykjavík gæti ráðið úrslitum. Selfoss hefur 26 stig eins og Leift- ur og verður að vinna báða leiki sína til að eiga möguleika. Selfoss á eftir: Þrótt (h) og Víking (ú). Þessir leikir koma til með að ráða miklu á toppnum og það er næsta víst að ekkert verður gefið eftir. Breiðablik hefur sótt mjög í sig veðrið eftir þjálfaraskiptin og hefur unnið Qóra síðustu leiki sína í deild- inni. UBK hefur 25 stig og á möguleika á að komast upp þótt þeir verði að teljast litlir. Breiðablik á eftir: KS (h) og Einheija (ú). Þótt UBK vinni báða leikina er ekki þar með sagt að þeir komist upp. Það fer eftir því hvemig hinir leikimir fara. ÍBV hefur misst af toppslagnum en er ekki sloppið við fall. Liðið hefur 23 stig og þarf að vinna ann- an leikinn til að tryggia sig. ÍBV á eftir Víking (h) og ÍBÍ (ú). Þeir verða þó að teljast nokkuð öraggir með sæti sitt þar sem síðasti leikur þeirra gegn ÍBÍ ætti að vinnast. IR hefur 22 stig og þarf að vinna annan^ leikinn til tryggja sig. ÍR á eftir ÍBÍ (h) og KS (ú). ÍR-ingar verða helst að vinna ÍBI á laugar- daginn til að tryggja sig þvf síðasti Hart barist í 2. deild Mikilkvægir leikir verða í 2. deild karla um helgina. Fimm lið úr 2. deild eiga raunhæfa möguleika á tveimur lausum sætum f 1. deild að ári og verður áræðanlega lítið gefið eftir í baráttunni um þau. leikurinn gegn KS gæti orðið erfið- ur. KS hefur 21 stig og er í mikilli fallhættu. Liðið hefur tveimur stig- um meira en Einheiji sem er í næst neðsta sæti. KS á eftir: UBK (ú) og ÍR (h). Siglfirðingum gæti nægt að vinna annan leikinn. Það fer þó eftir því hvemig Einheija gengur á laugardaginn. Einheiji er í bullandi fallhættu með 19 stig og gæti fallið í 3. deild á laugardaginn. Einheiji á eftir Leiftur (ú) og UBK (h). Þessir leikir verða erfiðir fyrir Vopnfirð- inga og kæmi mér ekki á óvart að þeir töpuðust báðir. Það er lítil von hjá Einheija að bjarga sér úr þessu. ÍBÍ er þegar fallið í 3. deild og hefur aðeins hlotið 6 stig. ÍBÍ á eftir: ÍR (ú) og ÍBV (h). ísfirðingar hafa sætt sig við 3. deildina og koma því ekki til með að verða þrándur í götu andstæðinganna. Marfcahæstlr Heimir Karlsson, ÍR.........13 Trausti Ómarsson, Vikingi...13 Jon Þórir Jónsson, UBK......11 Hafþór Kolbeinsson, KS.......8 Jón Gunnar Bergs, Selfossi....8 Sigurður Hallvarðsson, Þrótti ...8 Tómas Ingi Tomasson, ÍBV......8 Atli Einarsson, Víkingi.......6 Kristján Davíðsson............6 Óskar Ingimundarson, Leiftri ...6 Bergur Agústsson, ÍBV.........5 Bragi Björnsson, ÍR...........5 Hafsteinn Jakobsson, Leiftri..5 Heimir Bergsson, Selfossi.....5 Elías Friðriksson, ÍBV........5 Kristján Svavarsson, Þrótti...5 Jónas Björnsson, KS...........5 Sigfús Kárason, Þrótti........5 Steinar Ingimundarson, Leiftri .5 TENNIS / COCA-COLA MOTIÐ Einar og Dröfn sigruðu EINAR Ásgeirsson var í sér- flokki f A-flokki karla á Coca- Cola mótinu ftennis sem fram fór um sfðustu helgi. Keppt var á tennisvöllum Vfkings f Foss- vogi og þrátt fyrir slæmt veður fór mótið vel fram. Keppendur voru 48, en keppt var f einliða- leik í A, B og C flokkum karla, tvfliðaleik karla og einliðaleik f flokkum kvenna, pilta og stúlkna. aður þessa móts var hinn 19 ára Einar Ásgeirsson, sem sigraði með yfirburðum í A-flokki karla og í tvíliðaleik. Einar lék mjög vel, en hann hefur tekið stórstígum framföram nú í sumar og er orðinn einn okkar besti tennisleikari á eft- ir íslandsmeistaranum, Úlfi Þor- bjömssyni. Einar vann Áma Tómas í undanúrslitum 6:0, 6:0 og í úrslita- leiknum sigraði hann Ragnar T. Ámason af öryggi 6;0, 6:2. Ragn- ar, sem er aðeins 17 ára, hafði áður leikið mjög vel í undanúrslitum þegar hann vann efsta mann hæfn- islistans, Kjartan Óskarsson, (5:7, 6:2, 6:3) en hann skorti síðan nokkra yfirvegun í úrslitaleiknum. í tvíliðaleik karla var keppnin mun jafnari, en þar sigraðu þeir Christ- ian Staub og Guðmundur Einarsson feðgana Áma T. og Ragnar T. í undanúrslitum, 6:4, 6:2 á meðan Einar Ásgeirsson og Kjartan Óskarsson sigruðu þá Einar Thor- oddsen og Stefán Eggertsson 6:4, 6:3 í hinum undanúrslitaleiknum. I úrslitaleiknum byijuðu þeir Christ- ian óg* Guðmundúr mjög vel óg Verðlaunahafar I Coca-Cola mótinu í tennis. Frá vinstri: Ragnar T. Árnason (2. sæti t A-flokki), Einar Ásgeirsson (1. sæti í A-flokki og tvfliðaleik), Dröfn Guðmundsdóttir (1. sæti í einliðaleik), Guðný Eiríksdóttir (2. sæti í einliðaleik) og Kjartan Óksarsson (1. sæti í tvíliðaleik ásamt Einari). unnu fyrsta sett 6:4. Annað sett var mjög jafnt og spennandi, en þeir Einar og Kjartan sigruðu í oddalotu (7:6) og unnu svo þriðja sett og þar með leikinn fremur auð- veldlega 6:2. í B-flokki karia lék Guðmundur Friðfinnsson vel og sigraði verð- skuldað. í C-flokki karla sigraði nýliði í tennis, Eysteinn Bjömsson, og kom hann mjög á óvait. I einliðaleik kvenna sigraði Dröfn Guðmundsdóttir, en í úrslitaleik sýndi hún mikið keppnisskap og sigraði Guðnýju Eiríksdóttur öragg- lega 6:4, 6:2. Dröfn hafði áður sigrað Emmy Cramer í undanúrslit- um “6:4, 6:2, & meðan Guðný sigraði Þórdísi Edwald 6:2, 6:4. Þær Dröfn og Guðný hafa ásamt íslandsmeist- aranum Margréti Svavarsdóttur skara talsvert fram úr öðram kon- um í tennis, en nú í sumar hafa þó æ fleiri konur byijað að leika tenn- is og sýnt miklar framfarir. í B-flokki kvenna sigraði Oddný Guð- mundsdóttir Karolínu Guðmunds- dóttur í úrslitum 6:4, 6:2. Jónas Bjömsson (15 ára) sigraði í flokki pilta 16 ára og yngri, en f úralitum vann hann Stefán Pálsson (18 ára) 6:3, 6:8. Þesssir piltar eru báðir mjög eftiilegir. í flokki stúlkna sigraði Úlfhildur Indriðadóttir (12 ára) en í úrslitum vánri hún Hrafnhildi Hannesdóttur 6:1, 6:3. Hrafrihildur er aðeins 9 ára og hefur bara æft tennis í eitt ár og er því mikið efni. Vakti leikur hennar mikla athygli, en hún sigr- aði í tveimur leikjum við sér mun eldri stúlkur. Einlidalcikur karla Einar Ásgeirsson Ragnar T. Ámason Ámi T. Ragnarsson Kjartan óskarsson. Einliðaleikur karla B-flokkur Guðmundur Friðfinnsson Ingvar Guðjónsson Jónas Bjömsson Sigurður Ásgeirsson Einliðaleikur karia C-flokkur Eysteinn Ðjömsson Einar Sigurðsson Sigurður Halldórsson Hannes Hjartarson Tvfliðaleikur karla Kjartan óskarsson/ Einar Ásgeirsson Guðmundur Eiríksson/ Christian Staub Einar Thoroddsen/ Stefán Eggertsson Ámi T. Ragnarsson/ Ragnar T. Ámason Einliðaleikur kvenna Dröfn Guðmund8dóttir Guðný Eiríksdóttir Emmy Cramer Þórdís Edwald Einliðaleikur kvenna B-flokkur Oddný Guðmundsdóttir Karólína Guðmundsdóttir Flokkur pilta 16 ára og yngri Jónas Bjömsson Stefán Pálsaon Heimir Hermannsson Gunnar Stefánsson Stúlknaflokkur 16 ára og yngri Úlfhildur Indriðadóttir Hrafnhildur Hannesdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.