Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 t Dóttir mín og systir okkar, ELSA STEINUNN SIGURGEIRSDÓTTIR, Hofsvallagötu 18, lést á Grensásdeild Borgarspítalans þann 31. ágúst. Vilhelmfna S. Tómasdóttir og systkini. t Bróðir okkar, HELGI KETILSSON, Heimahaga 9, Salfossi, fyrrum bóndi á Álfsstöðum, Skeiðum, er lést 29. ágúst sl. verður jarösettur frá Selfosskirkju föstudag- inn 4. september kl. 14.00. Brynjólfur Ketilsson, Ólafur Ketilsson, Valgerður Ketilsdóttir, Sigurbjörn Ketilsson, Hafliði Ketilsson, Guðmundur Ketilsson. t Eiginmaöur minn, STEFÁN BJÖRNSSON prentari, Víðihvammi 13, Kópavogi, andaðist að morgni 1. september. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna hins látna, Jóhanna Jónsdóttir. t Systir mín og móöursystir, MARGRÉT G. BJÖRNSDÓTTIR, Gr^ttisgötu 45a, andaðist föstudaginn 28. ágúst. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. september kl. 10.30. Jóhann Björnsson, Björn G. Eiríksson og fjölskylda. t ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, ekkja sr. Þorgrfms V. Sigurðssonar, Vesturgötu 70, Akranesi, verður jarösungin frá Akraneskirkju kl. 11.30 fimmtudaginn 3. september. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélag Islands. Ásdfs Þorgrfmsdóttir, Sofffa Þorgrfmsdóttir, Þráinn Þorvaldsson, Leifur Halldórsson, Guðmundur Þorgrfmsson, Jónína Rafnar, Heiðar Jónsson, Bjarkey Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaöir og afi, KARL GUÐMUNDSSON sklpstjóri, Sóleyjargötu 4, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardag- inn 5. september kl. 14.00. Áróra Karlsdóttir, Marta Karlsdóttir, Ingi Páll Karlsson, Helgi Sigurlásson, Svana Högnadóttir og barnabörn. t Útför sonar okkar og bróður, JÓHANNS ELÍASAR ÓLAFSSONAR, Háaleitisbraut 52, Reykjavfk, sem lést 28. ágúst, fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 4. september kl. 15.00. Jóhanna Eyþórsdóttir, Valgerður Ólafsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir. Ólafur Elfasson, Minning: Snorri Jónasson, loftskeytamaður Fœddur 4.júlí 1905 Dáinn 20. ágúst 1987 Snorri Jónasson fæddist að Merkigili í Skagafirði. Foreldrar hans voru hjónin Stefanía Sigurðar- dóttir og Jónas Krisljánsson. Alsystkini Snorra eru Egill, sem nú er látinn, Ágústa, Jón, Brynhildur og Magnús, öll búsett á Sauðár- króki. Snorri var settur í fóstur til Reykjavíkur tveggja og hálfs árs gamall til hjónanna Guðborgar Eggertsdóttur og Snorra Jóhanns- sonar. Fóstursystkini Snorra eru María Þorleifsdóttir, sem nú er lát- in, og Sigríður Sigurðardóttir. Fjórtán ára fór Snorri að stunda sjóinn en hóf brátt nám í loftskeyta- skólanum og lauk þaðan prófi árið 1922, þá sautján ára gamall. Næstu 30 árin var Snorri á togaranum Geir en hætti á sjónum í kringum 1953 og hóf störf í loftskeytastöð- inni í Gufunesi og vann þar til áramóta 1977/1978, er hann lét af störfum vegna veikinda. Snorri tók símritarapróf árið 1960 og var yfirumsjónarmaður loftskeyta- manna frá 1965. Snorri giftist Ágústu Ólafsdóttur frá Hvítárvöllum árið 1935 en hún lést árið 1948. Árið 1950 giftist Snorri Sigþrúði Sölvadóttur frá Akureyri en þau skildu árið 1954. 20. ágúst giftist Snorri eftirlif- andi konu sinni Guðrúnu Jörgensen, sem staðið hefur við hlið manns síns til hinstu stundar. Eignuðust þau þijú böm: Snorra Jónas, þjón, fæddan 1959, Sigrúnu Sigurfljóð og Stefaníu Guðborgu, hjúkrunar- fræðinga, fæddar 1960. Snorri ól einnig upp Carsten Jón Kristinsson, fæddan 1952, sonur Guðrúnar af fyrra hjónabandi. Árið 1935 réðst Snorri í það stór- virki ásamt Kristjáni Sveinssyni augnjækni að byggja íbúðarhúsið við Öldugötu 9 í Reykjavík en Kristján var á námsárum sínum kostgangari hjá fósturforeldrum Snorra. Þama kynntist Kristján eiginkonu sinni Maríu Þorleifsdótt- ur. Bjuggu þeir síðan ásamt §öl- skyldum sínum á Öldugötunni allt til dauðadags. Það var á Öldugötunni fyrir um 20 árum, sem ég kynntist Snorra fyrst, en þar leigði ég og kona mín, Guðborg, íbúð í eign Snorra og tengdaföður míns, Kristjáns. Má með sanni segja að allar samvistir í húsi þessu hafí verið með mestu ágætum og ein fyrsta minningin um Snorra er sú hve vel hann reynd- ist tengdaforeldrum mínum, Car- steni og Sigurfljóði en þau bjuggu hjáþeim hjónum allt til dauðadags. Ogleymdar eru þær stundir er við Snorri sátum að tafli en Snorri var mikili skákáhugamaður og því mikill fengur fyrir nýgræðing í skáklistinni að kynnast leikfléttum meistarans. Það var því stór dagur, er sá einstaki viðburður átti sér stað, að ég náði jafntefli við kapp- ann. Snorri átti fleiri áhugamál. íþróttir voru honum ávallt afar hugleiknar, enda stundaði hann bæði glímu, hnefaleika, sund og fótbolta á sfnum yngri árum og dagstundir á góðum veiðistað átti ég nokkrar með Snorra og greini- legt var hversu hann naut slíkra stunda. Já, nú heyra slfkar stundir sög- unni til, en hver veit nema áhuga- málin séu margfalt fjölbreyttari og áhugaverðari handan móðunnar miklu og ef svo er þá verður biðin ekki löng. Við á Öldugötunni kveðjum „frænda" með söknuði, en svo var hann kallaður af bömum Kristjáns Sveinssonar, þeim Guðborgu og Kristjáni. „Stóri frændi" var hann kallaður af þeirra bömum. Við öll þökkum honum alla samfylgdina, og Guð gefi Guðrúnu og bömum styrk á þessum erfiðu tímamótum. Bjarni Marteinsson Mig langar að minnast mágs míns Snorra Jónassonar. Það var ekki fyrr en systir mín giftist honum að við kynntumst, en til þeirra á Öldugötu 9 þótti mér alltaf gott að koma og fá kaffísopa þegar ég átti leið til Reykjavíkur. Ef Snorri vissi að mín var von var hann vís með að vera búinn að kaupa vínarbrauð eða annað góðgæti með kaffínu þannig að oft beið mín veisluborð. Margar helgar heimsóttum við hjónin þau Diddu og Snorra og vorum við varla fyrr komin inn er þeir svilar settust að tafli þar sem þeir gátuu teflt svo lengi aið okkur systmm gafst jafnvel tóm til að fara til og frá Hveragerði án þess að þeir yrðu þess varir. En yrði okkur á að spyija hver hefði haft betur í skákinni er þeir loksins hættu að tefla var svarið alltaf það sama: „Spassky vann Fisher". Meiri höfðingja heim að sækja er leitun að. En hann var aldrei ánægðari en þegar hann vissi að nóg var til þannig að hann gat veitt öllum vel enda fór aldrei neinn svangur frá honum. Ég er þess fullviss að honum hefur verið tekið opnum örmum hinum megin eins mikið góðmenni og hann var. Að lokum þakka ég og fjölskylda mín fyrir allt og kveðjum eins og við gerðum alltaf þegar við fómm frá „stóra frænda" með orðunum: „So long“. Olöf Jorgensen Devaney og fjölskylda Lokað Lokað til hádegis í dag fimmtudaginn 3. september vegna jarðarfarar STEINDÓRS J. BRIEM. Löggildingarstofan, Síðumúla 13. t Bróðir okkar. ÞORVALDUR TEITSSON frá Víðidalstungu, til heimilis að Framnesvegi 58b, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. september kl. 13.30. „ ,, , Systkinin. Og ég er einn og elfamiðinn ber að eyrum mér jafn rótt sem fyrsta sinni. Með skynjun tveggja heima í hjarta mér ég hverf á brott úr rökkurveröld minni. Og seinna þegar mildur morgun skín á mannheim þar sem sálir stríð sitt heyja, mig skelfa engin sköp, sem bíða mín: þá skil ég lika að það er gott að deyja. Tómas Guðmundsson Snorra Jónassyni kynntist ég fyrst sextán ára unglingur, sem gestur á heimili hans. Nokkru áður hafði ég borið þá gæfu til að kynn- ast dætrum hans tveim, Sigrúnu og Stefaníu, og með okkur hafði tekist góð vinátta. Enn man ég þá stund er ég sá Snorra fyrst, þar sem hann sat við eldhúsborðið í hlýlegu og björtu eldhúsinu á Öldugötunni. Sjötugur að aldri var hann enn þrekinn og kraftalegur, í fullu starfi og ekkert farinn að gefa eftir. Handartakið var þétt og hlýtt er hann heilsaði mér, og brosið geisl- aði af kátínu og lífsgleði. Þegar ég sagði honum nafn mitt, brosti hann breitt og sagði: „Nei, er ekki komin ein Siggan enn“. En við vorum þijár nöfnumar sem tengdumst fjölskyld- unni á Öldugötu náið. Æ síðan var ég „Sigga litla" í huga Snorra. Seinna meir þegar ég lenti, í miðju menntaskólanámi, á hrakhólum með húsnæði í Reykjavík, buðu Snorri og eiginkona hans, Guðrún mér að dvelja á heimili sínu. Þó að oft væru þrengsli mikil í íbúðinni á Öldugötu 9, bjuggu þau mér heim- ili í þijú ár, sem þeirra eigin dóttir væri. Þann tíma sem ég bjó á Öldugöt- unni fór heilsu Snorra hrakandi. Gekkst hann undir margar erfíðar aðgerðir og var oft tvísýnt um líf hans. Lengi vel lét hann ekki deig- an síga, og jafnan var það lífsgleði hans og kraftur sem á endanum hafði yfirhöndina og komu honum á fætur aftur. Þó hann yrði að hætta störfum sakir veikinda sinna, tók hann ætíð virkan þátt í heimilis- lífinu. Ósjaldan tók hann til handa okkur eitthvert góðgæti þegar við vinkonumar komum heim frá skóla. Og alltaf var hann fullur áhuga um velgengni okkar í námi og fylgdist með hverri okkar fyrir sig. Þrátt fyrir að heilsu Snorra færi hrakandi síðustu æviárin, naut hann lífsins. Hann var skákmaður af lífi og sál, og gat setið tímunum saman yfir taflborðinu. Áhugamað- ur mikill var hann einnig um laxveiðar, og fór í veiðiferðir hven- ær sem kraftur og heilsa leyfðu. Ætíð var Snorri boðinn og búinn til að rétta hjálparhönd ef erfiðleik- ar steðjuðu að, og ég fann að ég átti góðan að þar sem hann var. En er ég hugsa til baka, er mér einna minnistæðust glettni Snorra og létt lundarfar. Alltaf gat hann komið mér til að brosa, jafnvel þó illa lægi á mér. Nú er Snorri minn horfinn yfir móðuna miklu, eftir langa og stranga sjúkralegu. Margar minn- ingar leita á hugann, en ég veit að ég mun ætíð rr.innast Snorra með gleði og þakklæti. Elsku Guðrún, Steffy, Rúna, Snorri og Daddi, megi Guð styrkja ykkur og blessa í ykkar sorg. Sigga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.