Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
17
sér vélvæðingu og sjálfvirkni er-
lendis. Lögðu síðan í miklar flárfest-
ingar og tóku þar af leiðandi mikla
áhættu.
Mér skilst að íslenskur sælgætis-
iðnaður blómstri f dag.
Ef við tökum fyrir innlenda
flöldaframleiðslu tilbúinna fískrétta
þá er ótrúlega mikið verk óunnið.
Þekking í landinu er af mjög skom-
um skammti á þessari framleiðslu.
Við sækjum í dag einkum þekkingu
til mjólkur- og sælgætisiðnaðarins
svo afstætt sem það virðist og ön-
ugt að aðlaga þá þekkingu tilbúnum
fískréttum.
Við höfum jú þekkingu á hefð-
bundnum framleiðsluháttum físk-
stauta og þess háttar. Það fullnægir
bara ekki metnaði allra að fara út
í þá framleiðslu.
Vöruþróun er ákaflega dýr eins
og þeir þekkja sem reynt hafa.
Erlendis hefur þessi þróun átt sér
stað á löngum tíma og er hún kom-
in nokkuð langt sums staðar. Við
erum nokkuð á eftir en á undan-
fömum árum hefur tilbúnum
réttum þó Qölgað mikið í verslun-
um.
í Bandaríkjunum hefur fram-
leiðsla á frystum tilbúnum réttum
meira en þrefaldast frá 1979, en
veltan var þá einn milljarður dollara
í þessari grein, en er nú komin í
um þrjá milljarða dollara. í Svíþjóð
er til dæmis talið að 4 milljónir
rétta séu snæddir daglega utan
heimilanna á veitingahúsum, í
mötuneytum og skólum, en íbúar
Svíþjóðar eru rúmlega 8 milljónir
eins og áður sagði.
Fáar iðngreinar eiga jafn mikið
undir vöruþróun eins og matvæla-
iðnaðurinn. Vöruþróun þarf því að
vera fastur liður í starfsemi mat-
vælafyrirtækja. Við verðum að
athuga að flestar vörur eiga sinn
lífsferil, þar sem um vaxtar-, blóma-
og hnignunarskeið er að ræða.
Mikilvægt er því að þróun nýrra
vörutegunda sé langt komin þegar
hnignunarskeið eldri tegunda hefst.
Þróunarferill er flókinn og
margslunginn og líður yfirleitt lang-
ur tími þar til varan er fullbúin.
Þarf að taka tillit til markaðsat-
hugana, þróunar vörunnar, aðlög-
unar að verksmiðjuframleiðslu, vals
og hönnunar umbúða og ótal margt
fleira. Þá þarf að gera sér grein
fyrir því að aðeins brot af hugmynd-
um kemst til framkvæmda.
Þróunin og allur undirbúningur
framleiðslu tekur óhemju tfma og
kostar mikla fjármuni.
Kostnaðurinn eykst gífurlega á
lokasprettinum og þvf veltur á
miklu að vanda til þeirra hugmynda
sem komast á lokastig hönnunar.
Miklum verðmætum er hægt að
bjarga ef nógu tímanlega er hætt
að þróa hugmynd sem ekki er nógu
góð.
Utflutningur verður að vera tak-
mark með þróun tilbúinna rétta.
Verður því sífellt að hafa í huga
smekk erlendra neytenda við þróun-
ina. Hefur það reynst okkur
ómetanlegt hjá Marska að hafa
aðgang að erlendum ferðamönnum
hér á landi og matreiðslumeistara
sem þekkir óskir þeirra og kröfur.
Einnig þarf að mínu mati sífellt að
hafa hollustusjónarmið að leiðar-
ljósi. Halda hitaeiningum í lágmarki
en þó með tilliti til útlits og bragðs.
Markaðssetning er ákaflega mikil-
væg. Hún er dýr og því nauðsynlegt
að rétt sé að henni staðið. Það get-
ur skipt sköpum um það hvort
fyrirtækið lifír þróunina af.
Utfærsla hugmynda
Lengi hefír yfírvöldum verið legið
á hálsi fyrir lélegt liðsinni við
fslenska hugvitsmenn. Hefír það að
mestu átt við rök að styðjast. Breyt-
ing varð þó á með átaki iðnaðar-
ráðuneytisins á sfðasta ári, en betur
má ef duga skal.
Hér á landi er fjöldi manna í dag
að fást við þróun hugmynda sem
snerta fjöldaframleiðslu matvæla.
Efnin eru misjöfn til að þróa þessar
hugmyndir og allt of margir veija
allt of miklum fjármunum til þróun-
ar nánast út f loftið. Ég er ekki að
áfellast neinn þessara manna. Held-
ur það að ekki skuli vera búið betur
að þessum mönnum og öðrum en
raun ber vitni um. Við erum þjóð
sem lifum á matvælaframleiðslu til
lands og sjávar og hvort sem okkur
líkar betur eða verr, verður það
opinbera að taka af skarið og beina
þróun úrvinnslu matvæla í þá far-
vegi sem gætu skilað sem bestum
árangri á sem hagkvæmastan hátt.
Hvað varðar fískiðnaðinn er slíks
ekki að vænta meðan rfkjandi sölu-
kerfi er við lýði. Því stóru sölusam-
tökin leggja auðvitað aðal áherslu
á núverandi sölufyrirkomulag og
er það ekki þess eðlis að fullvinna
beri fískinn hér heima.
Auðvitað er ekkert við því að
segja að stóru sölusamtökin haldi
að sér höndum en við verðum að
búa öðrum viðhlítandi skilyrði.
Það liggja ófá atvinnutækifæri
við fullvinnsluna sjálfa. Einnig við
framleiðslu alls kyns annarra vara
sem fara í fískréttina. Þar er helst
að nefna hvers kyns grænmeti og
garðávexti.
Hugsanlegt er að taka höndum
saman við kjötvinnslufyrirtæki um
þróunina. Því mikið er ógert í gerð
tilbúinna kjötrétta og markaðs-
möguleikar miklir. Hagsmunimir
em tvfmælalaust sameiginlegir og
vandamálin em ámóta.
Landbúnaðurinn ætti að mínu
mati frekar að veita fé til þróunar
tilbúinna kjötrétta en að veita millj-
ónum króna til að segja íslending-
um að sauðfé okkar sé alið á fjöllum
yfír sumartímann. Nokkuð sem
hvert mannsbam veit.
Við gætum hugsað okkur að þró-
aðir yrðu tilbúnir kjötréttir ýmis-
konar sem seldir yrðu erlendis í
stað heilla kjötskrokka, læra eða
hryggja. í hvem rétt fæm 100
grömm af dilkakjöti og ef við seld-
um 10 milljónir rétta á ári gætum
við losnað við 1.000 tonn af dilka-
kjöti árlega.
Ef auglýst yrði eftir hugmyndum
UM 80 unglingar á aldrinum
12-17 ára voru samankomnir í
Hallormsstaðaskógi helgina
28.-30. ágúst, en þá stóð yf ir þing
unglingadeilda Slysavarnarfé-
lags íslands. Unglingamir sem
eru viðsvegar að af landinu
bjuggu f tjaldbúðum í Atlavfk.
Alls starfa 8 deildir á landinu
og voru fulltrúar frá 6 þeirra
mættir til leiks.
Er fréttaritara bar að garði um
hádegisbilið á laugardag var verið
að skipuleggja leit að 5 mönnum
sem týndir vom í landi Hafursár á
Völlum. Það var slysavaraadeildin
Gró á Egilsstöðum sem undirbjó og
skipulagði mótið sem var sett á
laugardagsmorgun kl. 10.00. Fyrst
gáfu deildimar skýrslu um starfið
hjá sér en þar á eftir var fyrirlestur
um skyndihjálp sem Ema B. Ant-
onsdóttir erindreki SVFÍ flutti.
Fá ár em sfðan unglingadeiidim-
ar tóku til starfa en markmiðið með
um fullvinnslu sjávarfangs mætti
vinsa úr þær bestu og veita þeim
aðilum aðstöðu til að fullgera sínar
hugmyndir. Mætti til dæmis bjóða
starfslaun úr sjóði sem myndaður
yrði með fjárframiögum frá sjávar-
útvegi og ef til vill því opinbera.
Er ég þess fullviss að slíkt yrði
mikil örvun því margir snjallir mat-
reiðslumenn og aðrir em í landinu
uppfuliir hugmynda en vantar að-
stöðuna og þekkingu á Qöldfram-
leiðslu og öllu er tilheyrir.
Á Grænlandi er verið að reisa
nýja og fullkomna fískréttaverk-
smiðju. En Grænlendingar hafa um
nokkurt skeið framleitt tilbúna fisk-
rétti sem þeir hafa selt f Danmörku
og ef til vill víðar.
Færeyingar hafa hafíð fram-
leiðslu á ýmsum réttum úr surimi.
Meðal annars hefí ég smakkað frá
þeim „Spægipylsu" sem er ótrúlega
lík hefðbundinni danskri „Spægi-
pylsu" og þar af leiðandi góð.
Þá hafa Færeyingar reist ein-
hverja fullkomnustu rækjuvinnslu í
heimi. Við höfum ömgglega gagn
þeim er fyrst og fremst þjálfun fyr-
ir seinni tíma því enginn fær að
fara í alvöraleit fyrr en 18 ára.
Þetta er í annað sinn sem slíkt
landsmót er haldið en í fyrra hitt-
ust krakkamir á Þingvöllum. Stefnt
er að þvf að halda landsmót með
námskeiðum og æfingum árlega í
framtíðinni.
Formaður unglingadeildar Gróar
á Egilsstöðum er Helgi Kristinsson,
af að sækja okkur þekkingu til þess-
ara granna okkar.
Lokaorð
Fjöldaframleiðsla tilbúinna fisk-
rétta á ömggiega framtíð fyrir sér.
Og er í mfnum huga vaxtarbroddur-
inn í íslenskri fískvinnslu.
Við vitum það að aukinn áhugi
á hollustufæði og þá á físki er hvar-
vetna í hinum vestræna heimi.
Sífellt fleiri vilja veija sífellt minni
tíma til matargerðar og neysla fljót-
lagaðra hollusturétta á eftir að vaxa
gríðarlega á næstu örfáum ámm.
Það er okkar að hefjast handa
og taka frumkvæðið í eigin hendur.
Við þurfum eðlilega hjálp frá því
opinbera eins og gerist hjá sið-
menntuðum þjóðum.
Það er okkur til háðungar að
hingað til lands skulu fluttir til-
búnir fískréttir frá nágrannalöndum
okkar sem jafnvel em unnir úr
íslenskum físki.
Höfundur er framkvsemdastjórí
Marska hf. og Rækjuvinnslunn&r
hf. i Skagaströnd.
15 ára, en umsjónarmaður ungi-
ingadeiidarinnar er Hrafnkell
Kárason. Lögðu þeir ríka áherslu á
að unglingadeildimar em undir-
staða björgunarsveitanna og
skoraði Helgi að lokum á alla
krakka sem áhuga hafa á slysa-
vama- og björgunarmálum að
ganga til liðs við unglingadeildimar.
— Maríanna
Þing unglingadeilda SVFÍ:
Um 80 unglingar samankomnir
í Hallormsstaðaskógi
Morgunblaðið/Maríanna Jóhannsdóttir
Unglingamir bera saman bækur sínar fyrir leit.
afsláttur á lambaframpörtum
<
'<n
Ljúffengur biti á lágu verði
Gerðu góð kaup þegar þú átt leið í næstu matvörubúð og fáðu þér lambaframpart frá Sláturfélaginu með 10% afslætti.
SLÁTURFÉLAG
(§>
SUÐURLANDS