Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 Tóbaksreykingar og áhættan sem fylgir þeim eftír Knud Holst Sagt er að tóbaksreykingar hafí í för með sér lungnakrabbamein, hálskrabbamein, einnig hjarta- sjúkdóma, og getur enginn mælt á móti því. Þá fylgja reykingum hjartaslag, kransæðastífla, heila- blæðing og drep í útlimum. Ekki er það þó sjálfgefíð, að menn sem reykja, þurfí að fá þessa sjúkdóma, en áhættan er mikil. Það er þess vegna rangt og ósann- gjarnt að ráðast á Bent Henius, vegna sjónvarpsútsendingar, þar sem hann varaði sterklega við tób- aksreykingum. (Bent Henius kom fram í þætti í danska sjónvarpinu „Livet for en smag“ (Lífínu fómað fyrir reykingar) og varaði sterk- lega við reykingum. Þáttur hans var sendur út á ný 18. ágúst sl.) Ég hef mátt sjá á bak einum frænda mínum, er dó úr lungna- krabbameini. Guði sé lof, að hann leið ekki jafn mikið og margir gera á síðustu stigum sjúkdóms- „Sjálfur er ég inngró- inn pípureykingamað- ur. Ekki hóf ég þó reykingar fyrr en ég var orðinn hálf þritug- ur, og það var heimsku- legt af mér að byrja. Ekki reyki ég ofan í mig, en þó er engin trygging fólgin í því.“ ins, sem í raun er ekki sjúkdómur, heldur niðurbrot á líffærum. í annan stað þekkti ég aldraða menn, ágæta menn, er liðu vítis- kvalir undir lokin. Lungnakrabba- meinið er í raun og veru sjúkdómur, sem kæfír fómardýrið og aðeins slembilukka ræður því, hversu kvalafullt helstríðið verður. Sé maður „heppinn", stöðvast hjartað áður en krabbameinið er orðið verulega kvalafullt, og sjúkl- ingurinn losnar við síðustu mánuðina. Þetta eru stór orð. En þau em sönn. Ég hef hér á undan minnst á drep sem myndast í útlimum vegna reykinga. Vissulega getur þetta átt orsakir í röngu fæðuvali og of lítilli hrejrfingu eftir langan vinnudag. Tóbakið á hinn bóginn, sinn þátt í mörgum tilfellum. Sjálfur lá ég á sjúkrahúsi vegna nárakviðslits, svo að það var nokk- uð annað mál, á stofu með geðugum og vel gefnum gömlum bónda. Annar fótur hans hafði verið numinn á brott, vegna reykinga, að því er talið var. Hann lifði það af, en ekki er það allra hlutskipti. Aflimun er alvarleg aðgerð, einkum á öldruðu fólki. Það má ekki tala um, að verið sé að efla hræðsluáróður með því að vekja athygli á þessu. Það er hættulegt að reykja ofan í sig, og á það við um allar reykingar. Það eru ekki Knud Holst aðeins vindlareykingamenn, sem fá dijúgt magn af tjöru niður í lungun. Af þeim þremur sem ég hefí nefnt, var einn eingöngu smá- vindla- og vindlareykingamaður, auk þess sem hann reykti pípu stöku sinnum. Þetta var frændi minn. Annar reykti eingöngu pípu. Sá þriðji, sem mestar þjáningar Lambakjötið er Ijúffengur matur. Það er á mjög góðu verði í KRON verslunum núna. Úrval af lambakjöti í allskonar rétti. Frampartar Marinerað kjöt Læri Úrbeinað kjöt Lærissneiðar London lamb Hryggur Hangikjöt Kótilettur Saltkjöt Svið kkn Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt. v/Norðurfell v/Stakkahlið Stórmarkaður, v/Tunguveg v/Dunhaga Skemmuvegi v/Langholtsveg v/Furugrund, Kóp. Kaupstaður í Mjódd. leið áður en hann dó (þeir dóu allir úr því sama: lungnakrabba- meini) var stórreykingamaður og reykti eingöngu vindla. Það gerði hann jafnvel eftir að annað lungað hafði verið ijarlægt og hann feng- ið margar aðvaranir. En hann sagði: „Ég get ekki hætt núna. Það er of seint. Ég er tekinn og nálgast áttrætt." En hann hefði vart þurft að líða þennan kvala- fulla dauðdaga, hefði hann ekki verið stórreykingamaður. Þessi sjúkdómur er í lokin svo kvalafull- ur, að engin orð fá því lýst. Jafnvel morfínið fær lítt linað þjáningam- ar. Hann orgaði af kvölum allt til loka. Sjálfur er ég inngróinn pípu- reykingamaður. Ekki hóf ég þó reykingar fyrr en ég var orðinn hálf þrítugur, og það var heimsku- legt af mér að byija. Ekki reyki ég ofan í mig, en þó er engin trygging fólgin í því. Eg hætti reykingum í tvö ár, og mér leið langtum betur meðan það ástand varaði. En ég byijaði á ný, vegna þess hversu tauga- slappur ég var. Þá hafði ég fargað öllum mínum mörgu ágætu pípum, víst um hundrað að tölu. Ég nýt þess að sjálfsögðu að reykja, en ég er alveg viss um, að ég býð hættunum heim með þessu háttalagi. Hræsni væri að halda öðru fram. Fólk verður háð tóbakinu, og mér líður enn vel í félagsskap þess. En ég fínn eigi að síður vel, að ég sinni líkams- rækt minna vegna þess ama. Nikotínið vegur að visu þungt þeg- ar um er að ræða skaða sem tóbakið veldur, en ennþá meira tjón mun þó kolsýran vinna. Hún gengur í samband við blóðið. A ég að reyna að hætta reyking- um enn á ný? Já, ef ég get. Eg hef það bak við eyrað. Amerískar rannsóknir sýna, að jafnvel mikil minnkun reykinga, eins og til dæmis úr 30 til 40 síg- arettum á dag nður í 10 til 5 stykki, leysir ekki vandann. Aðeins ein leið er til og hún er erfið: Að hætta; Erfíðleikamir iiggja í þvf, að líkami mannsins hefur vanist eit- uijafnvæginu. Víst örvar þetta eitur. Það veit ég vel. En hættan liggur í leyni. Læknir einn sagði fyrir stuttu: „Þessu má líkja við eiturlyfín (narkotika). Tóbakið er vana- myndandi eins og eiturlyf og alkóhól. Það er sem sagt undir heppni komið, hvemig maður fer út úr þessu. Og aðeins maður sjálf- ur er ábyrgur. Ég hef mætur á góðu tóbaki, einnig vegna bragðsins, og við og við fæ ég mér góðan vindil. Það er líka lífsnautn. En ég spila í happdrættinu og ég verð að gera mér það ljóst. Þess vegna er ekki rétt að ráð- ast á menn eins og Bent Henius. Hann vill vel. Ekki málar hann skrattann á vegginn í ótíma. Hann er á hinn bóginn ósmeykur að sýna fram á, að við reykingamenn emm í sérstakri hættu. Það er alveg rétt hjá honum. Þessi umfjöllun ætti á hinn bóg- inn að leiða til þess, að við reyking- armenn ættum að læra að taka tillit til þeirra, sem anda að sér reyknum frá okkur. Viljum við reykja áfram, verðum við að gera það á afmörkuðum svæðum. Og við eigum að fá að gera það. A eigin ábyrgð. Eftirmáli þýðandans: Ekki er það aðeins hér á landi, sem barátta gegn reykingum er háð. Jafnvel Danir, sem flest vilja gefa ftjálst, hafa hafíð baráttu gegn þessum afleita sið, sem árlega legg- ur flölda manns í gröfina langt fyrir aldur fram. Reykingamenn eiga ekki að hafa meiri rétt en þeir sem ekki reykja, það er lóðið! (Þýrtt úr B.T.) Auðunn Bragi Sveinsson Höfundur er ritböfundur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.