Morgunblaðið - 03.09.1987, Side 19
vser aaaMa'Tíaa .8 auoAauTMMia .siaAxiaviuoaoM
MORGUNBLAÐEÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
NÝ SPENNANDIFERÐAUEBÐ
UM SUÐURRÍKIBANDARÍKJANNA
Florida, Louisiam, Texas
27. SEPT. -14. OKT. (hægt að framlengja)
Nú hafa margir velt fyrir sér spurn-
ingunni: Hvernig er hægt að búa á
bestu hótelum heimsins fyrir
1000-2000 kr. á dag?
Svarið er hjá heimsreisuklúbbi Út-
sýnar, m.a. í eftirfarandi áætlun:
í Ijósi hinnar miklu eftirspurnar eftir góð-
um ferðum hefur Útsýn undirbúið nýja
ferð í heimsreisustíl, sem aldrei hefur
staðið til boða áður. Ferðin er farin í stutt-
um og auðveldum áföngum. Hún er
spennandi, full af ævintýrum, fróðleik,
skemmtun, lúxusgistingu og Ijúffengum
mat. í henni má rekja sögu Bandaríkjanna
frá upphafi gegnum daga þrælahaldsins
til háþróaðs lýðræðis og tæknifullkomn-
unar, sem er fyrirmynd flestra frjálsra
þjóða í dag.
Fólkið í suðurríkjum Bandaríkjanna er
glaðvært, opið og alúðlegt, greiðvikið og
gestrisið og gott heim að sækja.
„Enginn getur sagt að hann þekki Banda-
ríkin fyrr en hann hefur kynnst suðurríkj-
unum og þeirri blöndu fólks sem þar býr.“
En fyrst og fremst er ferðin ótrúlega
ódýr — þér gefst sjaldan tækifæri til að
kaupa jafnmikið fyrir jafnlítið!
ORLANDO - NEW
ORLEANS - DALLAS -
ST. PETERSBURG BEACH
27. sept. í léttu heimsreisu-
skapi hefst ferðin með brottför frá
Keflavíkurflugvelli kl. 18.45. Flug Fl 669,
kvöldverður um borð. Lent í Orlando kl.
22.30 og ekið beint til hins glæsilega
fimm stjörnu gististaðar Stouffer Orlando
Resort (20 mín. ferð frá flugvelli), þar sem
gist verður næstu 5 nætur.
28. sept. — 2. okt. Dvai
ist á hinu stórskemmtilega hóteli, sem
byggt er i ferhyrning kringum stórt svæði
með glerhvolfi, svo fullrar dagsbirtu nýt-
ur. Úr glerlyftunum má virða fyrir sér hið
litríka svið með veitingastöðum, setu-
stofu í suðrænum aldingarði, landslags-
garð með tilbúnum fossi og fiskatjörn,
en svalirnar allar sem inn snúa í þennan
fagra garð, eru skreyttar blómagróðri.
Herbergin eru sérlega rúmgóð og vel
búin, öll með tveim 2ja manna rúmum,
sér loft- og hitastilli, litasjónvarpi, síma,
stóru baðherbergi og þjónustu allan sól-
arhringinn. Gestir geta valið um 5
matsölustaði á jarðhæð. Morgunverður
á glæsilegu hlaðborði er innifalinn og
nægir flestum til næringar daglangt, en
á kvöldin geta gestir valið fjölþjóða mat-
staði innan hótelsins eða utan.
Fullkomin líkamsræktaraðstaða er í hót-
elinu, nuddpottur, sauna, nudd og stór
útisundlaug með rúmgóðu sólbaðssvæði.
Frá hótelinu eru reglubundnar ferðir með
loftkældum vagni í Disney World og
Epcot Center, sem er aðeins um 15 mín.
akstur, en beint á móti gististaðnum er
hægt að virða fyrir sér „undur hafsins"
í hinum stórfenglega sjávardýragarði Sea
World (í göngufæri).
Frjálst er að eyða tímanum að eigin vild
í Orlando en eftirtaldar kynnisferðir
standa til boða og eru ómissandi.
1. DISNEY WORLD - MAGIC
KINGDOM
Af mörgum talið glæsilegasta sýn-
ingar- og skemmtisvæði heimsins
í dag, fyrir börn og fullorðna, ótrú-
legra en orð fá lýst.
Disney World heldur nú upp á 15
ára afmæli og frá opnun hafa yfir
200 milljónir gesta af öllum þjóð-
ernum heims heimsótt garðinn í
undrun og aðdáun.
2. EPCOT CENTER ER VIÐBÓT VIÐ
Disney World, opnað fyrir 5 árum
og sýnir annars vegar „heim í hnot-
skurn“ með ótrúlega sannfærandi
eftirlíkingum frægra bygginga frá
10 leiðandi þjóðum heimsins og
dæmigerðu þjóðlífi þeirra, hins
vegar innsýn í framtíðina, framtíð-
arsamskipti og samgöngur geim-
aldar og útvíkkun mannlífsins i lofti
og legi í framtið, sem kannski er
skemmra undan en menn grunar.
3. CYPRESS GARDENS
Um 45 mín. akstur frá gististað
er heimsfrægur aldingarður og
skemmtigarður, sem ekki á sinn
líka.
Nafn dregur staðurinn af Kýpur-
trjánum, sem umiykja 223 ekrur
lands og vatns, þar sem 8000 teg-
undir trjáa og blóma og fjölda
sjaldgæfra dýra og fugla gleöja
augað í undurfögru umhverfi.
Skauta- og vatnsskíðaballettinn,
skíðastökkin og dýfingarnar af
háum pöllum vekja slíka undrun
og aðdáun að áhorfendur standa
á öndinni af spenningi. Ógleyman-
leg heimsókn.
4. SEA WORLD
Hvergi í veröldinni er jafnauðvelt
að kynnast hinu fjölbreytta dýralífi
sjávarins og furðuheimi veraldar
neðansjávar og í hinum vel skipu-
lagða sjávardýragarði í Orlando,
sem er í göngufæri frá gististað
okkar.
Fjöldi skemmtiatriða þar sem
menn og dýr leika listir sínar. Úti-
leikhúsið Atlantis rúmar 5.000
áhorfendur. Einnig kvöldskemmt-
un með barbeque-kvöldverði og
dans og skemmtiatriðum frá
Kyrrahafseyjum (Luau).
5. ROSIE O’GRADYS — Downtown
Orlando
Ómissandi er að eyða einu kvöldi
á þessum einstaka stað, þar sem
andrúmsloftið er eins og við
ímyndum okkur Ameríku fyrir einni
öld eða meir. Hér hefur heill borg-
arhluti við Church Street Station
verið endurreistur í stíl „villta vest-
ursins” með börum, matstöðum,
krám, leikhúsum, músík, búðum
og húllumhæ.
2. okt. Eftir sólríka ævintýradaga
í Orlando fljúgum við með Delta Airlines,
DL 1091, til hinnar frægu borgar við ósa
Mississippi, New Orleans. Eftir 1 'h
stundar flug lendum við og ökum til hins
nýja og vistlega Crown Plaza, Holiday
Inn: Staðsetningin getur naumast verið
betri, í göngufæri (10 mín.) frá Riverside
Walk og franska hverfinu, handan við
Canal Street.
New Orleans er ein sérstæðasta borg
Ameríku, bæði hvað snertir sögulega
fortið, mannlíf og byggingarstil.
Byggingarnar kringum Jackson Square
eru allt frá fyrri hluta 18. aldar, þegar
Frakkar stofnuðu þar nýlendu og hófu
að reisa borg við hina miklu lífæð lands-
ins, Mississippi ána, „The Great River".
Gamli borgarhlutinn, sem í daglegu tali
nefnist „franska hverfið" er engu öðru
líkt, þótt áhrifin frá Evrópu og einkum
Frakklandi séu augljós.
Þegar franska ríkið varð gjaldþrota 1762,
seldi það borgina í hendur Spánverjum
og yfirráð skiptast á í nærri heila öld.
Borgin verður ótrúlegt sambland af
menningu creola, blöndu svartra, hvítra
og indíána, cajun-mállýsku og menningar
mð kanadísku ívafi og ýmissa Evrópu-
þjóða, s.s. ítala, Þjóðverja og íra.
Allt að helmingur borgarbúa, sem nú eru
nærri milljón, er þá af afrísku bergi brot-
inn og þeir fluttu með sér frumstæða
tónlist og sterkt hljóðfall heimalandsins.
Upp úr þessum jarðvegi spratt jazztón-
listin í New Orleans og flestir frægustu
fulltrúar hennar, s.s. Louis Armstrong
og Benny Goodman, eru þaðan komnir.
Eftir að hafa komið sér vel fyrir í hjarta
New Orleans verður boðið upp á siðdeg-
is skoðunarferð um borgina til að veita
yfirsýn og kynnast sögu hennar og sér-
stæðum byggingarstíl. Sjálfsagt leggja
margir leið sína í Presentation Hall um
kvöldið til að hlusta á fræga jazz-spilara
leiða saman hesta sína í léttri sveiflu, en
þar hafa helstu stjörnur jazzins komið
fram áratugum saman.
Aðalglaumur mannlífsins er í Bourbon
Street.
3. okt. Á öðrum degi dvalarinnar
verður boðið upp á sýningu á nýju glæsi-
legu skipi, Cajun, eftir Mississippi-ánni
og rifjast upp saga sykur- og baðmullar-
ekranna á dögum forríkra plantekrueig-
enda.
4. okt. Síðasta daginn gefst gott
tækifæri til að rölta um franska hverfið
á eigin spýtur eða versla í Riverside
Walk, þar sem tugir glæsilegra verslana
eru undir hvolfþaki. Næturhrafnar sjá um
sig, enda er úr nógu að velja.
5. okt. Við kveðjum hina sjarm-
erandi hálf-frönsku New Orleans og
fljúgum áfram. Flug DL 193. Nú tekur
Texas við og við lendum eftir 1 '/2 klst.
í sjálfri Dallas, sem flestum er að nokkru
kunn af hinum frægu sjónvarpsþáttum
um baráttu Ewing-fjölskyldunnar um auð
og völd. Mörgum mun þykja gaman að
standa í sporum heimsfrægra leikara á
Southfork Ranch, sem við auðvitað heim-
sækjum og skoðum og snæðum hádegis-
verð við sundlaugina, eftirað hafa skoðað
búgarðinn, svefnherbergi J.R. og eldhúsið
hennar Miss Elly.
En Dallas er annað og meira en South-
fork. Hún er 7. stærsta borg Banda-
ríkjanna með milljón íbúa og óvenju
kraftmikið viðskipta- og menningarlíf,
höfuðstaður margra íþróttakeppna og
listviðburða í heimsklassa.
Dallas er miklu meiri heimsborg en íbúa-
fjöldi hennar gefur til kynna og geysivin-
sæll ferðamannastaður.
Hér er á ýmsan hátt hápunktur þessarar
ferðar, þú hefur varla nokkurn tíma búið
á jafnstóru hóteli né jafn glæsilegu og
Loews Anatole.
Ekki aðeins forseti Bandaríkjanna hefur
búið hér, heldur fjöldi annarra þjóðhöfð-
ingja. Turnþygging hótelsins er aðeins
tveggja ára gömul og þar búum við. í
hótelinu eru 25 lyftur og 2.000 manna
starfslið.
Talið er að ekkert hótel í heimi hýsi jafn-
marga dýrmæta listmuni, t.d. 11
Picasso-málverk.
Það er ævintýri í sjálfu sér að búa hér,
þú getur valið milli 19 veitingastaða, auk
bara, diskóteks og stundað hvaða sport
sem þig lystir i 12 milljón dollara íþrótta-
og líkamsræktarstöð.
Fólk verður að sjá Loews Anatole og búa
þar til að sannfærast. Þarna er ósvikinn
Texas-bragur yfir hlutunum, „the best
and biggest”. Hér er gist i 3 nætur. Eftir-
taldar kynnisferðir standa til boða:
1. Kynnisferð um Dallas síðdegis.
2. Kvöldferð um Dallas með kvöldverði
á þekktum veitingastað.
3. Heimsókn á Southfork.
4. Síðdegis- og kvöldferö í „villta vestr-
ið“ með heimsókn á dæmigerðan
búgarð þar sem cowboys og cow-
girls sýna karlmennsku og kvenlega
töfra. Étið er og drukkið af hjartans
lyst, heimsóttar knæpur og verslanir
að ógleymdu Billy Bob’s Texas með
stærstu Honky Tonk-sýningu verald-
ar.
8. okt. Nú er að kveðja Dallas
með stjörnur i augunum og fljúga í
sjálft fríið á drifhvítri strönd Mexico-
flóans. Flug DL 286 til Tampa, en
þaðan er tæplega klukkustunda-
rakstur til St. Petersburg Beach, þar
sem dvalist verður næstu 5 daga við
bestu skilyrði á hinu fræga fimm
stjörnu hóteli Don Ce Sar. Hótelið
er byggt í spænskum kastalastil árið
1928, en nú er nýlokiö að endur-
byggja það allt að innan.
Glæsilegar vistarverur og gistiher-
bergi, afbragðsveitingasalir, ss. Le
jardin og King Charles, gott sund-
laugarsvæði í fallegum garði og
frábær baðströnd skipa Don Ce Sar
i flokk bestu sumarleyfishótela, og á
þessum árstíma er veðrið og hitinn
upp á það besta.
13. okt. Síðdegis ekið til Orlando
og flogið heim þaðan um kvöldið.
Hægt er að framlengja og/eða fljúga
heim um New York gegn aukagjaldi.
Verð: kr. 79.000,- á mann, miðað við 2 í herbergL Gisti 3—4
saman í herbergi lækkar verðið um 8.000 á mann.
Enn geta örfáir bæst í hópinn í þessa ævintýraferð, en pöntun
verður að staðfesta í síðasta lagi 7. þ.m.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
^Austurstræti 17
sími 26611