Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
Þakka af alhug öllum sem glöddu mig á 85
ára afmœlinu 27. ágúst, með heimsóknum,
heillaskeytum og góðum gjöfum.
Þó þykir mér vinátta ykkar betri.
Guð blessi ykkur.
Ágúst Lárusson,
Skúlagötu 1,
Stykkishólmi.
Nýtt atvinnuhús-
næði til leigu:
Verslunar og/eða iðnaðarhúsnæði að Höfðabakka
3. Húsnæðið er á tveim hæðum, hvor um sig ca.
130 fm. Mjög skemmtilegt pláss á framtíðarstað,
hentugt fyrir ýmiskonar starfsemi. Vel kemur til
greina að leigja húsnæðið til langs tíma.
Upplýsingar í símum 681860 og 681255 á skrif-
stofutíma.
Selljamames
- Vesturbær
Mánudaginn 14. september nk. hefjast
6 vikna námskeið í góðum og upp-
byggjandi æfingum fyrir hressar konur
á öllum aldri.
Dag- og kvöldtímar. Innritun og upplýs-
ingar í síma 611459.
Guðbjörg Björgvins,
íþróttamiðstöðinni,
Seltjamamesi.
stálvaskar
Einfaldir eldhúsvaskar
einstakir í sinni röð
Innbyggð sorprenna
léttir eldhússtörfin
og eykur ánœgjuna
Munið sýningarafsláttinn
ERUM í HÖLLINNI
UCDhl ntlM’Q-7
v \-i %v/v.k/n m w/
innan veggja^ufo^
LAUGARDALSHÖLL
V VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SlMAR 686455 — 685966
ISSm LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
AF ERLENDUM
eftir ÍVAR GUÐMUNDSSON
VETTVANGI
Tæknibyltingin
eykur velmegun
ÞEGAR vélvæddu, fjarstýrðu vélmennin (robots), eða lepparnir
eins og ef til vill mætti kalla tækin á íslensku, komu fyrst á
vinnumarkaðinn óttuðust verkamenn í iðnríkjunum að þessar
málmófreskjur í mannsmynd kynnu að taka lífsviðurværið frá
þeim. Atvinnuleysi myndi aukast og þar af leiðahdi vaxandi ör-
birgð hjá almenningi i iðnaðarlöndunum og þá ekki hvað síst í
Bandaríkjunum. Þetta hefir þó farið á annan veg. Samkvæmt
rannsóknum, sem bandarisk nefnd á vegum Verkfræðiaka-
demíunnar gerði, ætti vélvæðing iðnaðarins að skapa velmegun,
ef rétt er á haldið með aðlögun verkamanna að breyttum vinnu-
brögðum.
Niðurstöður nefndarinnar eru
birtar í bók, sem nýlega kom
í bókaverslanir hér í Bandaríkjun-
um, sem heitin Technology and
-Employment. Formaður nefndar-
innar, David Mowery, átti nýlega
fund með blaðamönnum hér í
Washington til að skýra niður-
stöður nefndarinnar. „Spumingin
var þessi," segir Mowery, „hafa
nýtæknilegar uppfínningar eins
og t.d leppar í verksmiðjum, tölv-
ur í skrifstofum og heimahúsum,
sjálfvirkar peningaskiptivélar í
bönkum o.s.frv. aukið eða dregið
úr atvinnumöguleikum fólks? Eða
munu þessar tækninýjungar verða
til þess, að upp rís meðal iðnaðar-
þjóðanna tvennskonar vinnu-
markaður, annar fyrir sérmennt-
aða og vel þjálfaða einstaklinga,
en á hina höndina ómenntaða,
láglaunaða erfiðismenn?
Sannleikurínn er sá, að nefndin
komst að þeirri niðurstöðu, að
framfarir í tækni hafa aukið fiölda
vinnandi fólks með þjóðinni og
aukið lífsþægindi manna yfírleitt.
Það bendir allt til þess, að það
verði framhald í þessa sömu átt
um ófyrirsjáanlega framtíð. For-
stjórinn telur, að framfarir á
tæknisviðinu séu stórt atriði í
vaxandi velmegun og auknum
tækifærum fyrir ameríska verka-
menn. Aðalhagnaður af tækni-
framförum er fyrst og fremst
aukin framleiðni, sérstaklega er
það áberandi á vinnustöðum, þar
sem tölvur hafa verið teknar í
notkun. Færri verkamenn fram-
leiða betri vörur með lægri til
kostnaði, sem verður til þess, að
lífsþægindin aukast hjá almenn-
ingi, sem hefír öðlaðst aukin
peningaráð."
Nýjar atvinnugreinar
Nú mætti spyija hvort það sé
ekki rétt, að minni vinnuaflsþörf
verði til þess, að menn missi at-
vinnuna og heildaratvinnuleysi
þar með aukist? „Vissulega,"
svarar Mowery, „getur það orðið
til þess, að menn missi atvinnu í
bili og þurfí að leita sér annarra
starfa, sem getur verið erfítt á
stundum. En véltæknin verður til
þess, að verðlag fer lækkandi: Það
eykur eftirspum eftir vörum, sem
svo skapar nýjar atvinnugreinar
í nýrri framleiðslu. Formaðurinn
sagði, að nefndin hefði ekki orðið
vör við, að nýtæknin hefði á neinn
hátt orðið til þess, að skipa verka-
mönnum í hópa há-launaðra
sérfræðinga og láglaunaða og
ólærða erfiðisverkamenn. Það
væri rétt, að breytingar í hlut-
fallinu milli framleiðslu og þjón-
ustu starfsgreina hefðu orðið til
þess, að margir iðnaðarverka-
menn hefðu neyðst til að taka að
sér þjónustustörf fyrir talsvert
lægra kaup í bili. Ástæðan fyrir
þessu ástandi taldi David Mowery
vera þær breytingar, sem orðið
hafa í alþjóða- efnahagsmálum
og vegna þess hve hægfara, frek-
ar en ört, Bandaríkjamenn hafa
Besti vinur mannsins?
tileinkað sér nýjar tæknifram-
farir. Það hefði aftur dregið úr
samkeppnishæfni Bandaríkja-
manna á heimsmörkuðunum.
Andstaða gegn
nýjungnm
Akademíunefndin heldur því
fram, að þrátt fyrir örar breyting-
ar í atvinnumálum Bandaríkjanna
sl. sjö ár, sé það staðreynd, að
atvinnubreytingar vegna nýrrar
tækni séu hægfara. Það sé ekk-
ert, segir í skýrslu nefndarinnar,
sem gefí til kynna, að ný tækni
auki, eða dragi úr almennri verk-
kunnáttu og hæfni manna til
flestra almennra starfa.
„Nei,“ segir Mowery, „það eru
ekki tæknibreytingamar í sjálfu
sér, sem er vandamál okkar núna,
heldur er það andstaðan gegn
breytingum, sem að nokkru leyti
er orsökin að því, að menn missa
atvinnu sína svo og skortur á
skilningi ríkisins á því, að það er
nauðsynlegt, að hið opinbera geri
ráðstafanir til að aðstoða verka-
menn, sem missa atvinnu sökum
nýtækninnar."
Þjálfun nýtæknistarfa
Atvinnuleysisstyrkir ríkisins
eru veittir misseri eftir atvinnu-
missi og víða er einstökum ríkjum
gert að styrkja þjálfun verka-
manna til nýrra starfa. Gallinn
er hinsvegar sá, að þótt unnið sé
að því að útvega mönnum vinnu
er lítið sem ekkert gert til að
þjálfa þá til nýrra starfa. 20-30
prósent af atvinnulausum verka-
mönnum geta ekki lagt saman 2
og 2, hvað þá skilið æðri stærð-
fræði.
Nefr.din leggur til, að alríkis-
stjómin auki aðstoð til verka-
manna, sem misst hafa atvinnuna,
þjálfí þá og ráðleggi þeim á alla
hugsanlega lund. Nefndin leggur
til, að aðstoðin verði veitt öllum
atvinnulausum hvort sem þeir
hafa misst atvinnu sína vegna
nýtækninnar, eða sökum innflutn-
ings á vörum frá útlöndum.
Efnahagsástand, sem veldur
breytingum á atvinnusviðinu og
uppsögnum starfsmanna er ein-
staklega snúið og erfitt mál
viðureignar. Það er næstum
ómögulegt að greina eina sérstaka
ástæðu fyrir uppsögnum. Reynsl-
an sýnir, að atvinnulausir geta
næstum aldrei skýrt á viðunandi
hátt, hvers vegna þeir misstu
vinnuna. En það veldur ævinlega
töf á atvinnuleysisstyrk, ef at-
vinnuleysinginn geta ekki gert
góða grein fyrir hversvegna hon-
um var sagt upp starfí.
Fyrirfram vitneskja
xim uppsögn best
Aðstoðin við atvinnulausa dug-
ar best, þegar mönnum er sagt
með fyrirvara, að þeir muni missa
atvinnu sína, svo þeim gefist tími
til að líta í kringum sig eftir nýju
starfí. Þetta er ástæðan fyrir því,
að nefndin leggur til við ríkis-
stjómina, að það verði gert að
lögum, að segja beri mönnum upp
vinnu með góðum fyrirvara.
Nefndin leggur til, að uppsagnar-
fresturinn verði ákveðinn þrír
mánuðir. (Ákvæði um, að verk-
smiðjueigendur tilkynni með
góðum fyrirvara að þeir ætli að
loka verksmiðjum sfnum er nú
komið í frumvarp, sem liggur fyr-
ir Bandaríkjaþingi.)
Nefndin kynnti sér venjur um
uppsagnarfresti og komst að
þeirri niðurstöðu, að skrifstofu-
fólki sé almennt sagt upp með
14 daga fyrirvara, iðnverkamönn-
um með 7 daga og verkamönnum,
sem ekki eru í verkalýðsfélagi, er
oft sagt upp með tveggja daga
fyrirvara, eða engum.
Niðurstöður nefndarinnar eru í
aðalatriðun eftirfarandi:
Nýtæknin er þýðingarmikið at-
riði á farsælli lausn atvinnumál-
anna, en ekki orsök atvinnuleysis-
ins. Sé tilgangurinn sá að bæta
hag þjóðarinnar, skapa hagsæla
framtíð og auka velmegun al-
mennings er okkur eitt nauðsyn-
legt í samkeppninni á heimsmark-
aðnum, en það er að hlúa að og
tileinka okkur aukna framleiðni
með nýtækninni. En við verðum
að skilja, að við getum aldrei upp-
skorið ríkulegan ávöxt af ný- og
hátækni, nema að við búum vel
að verkamönnum okkar. Við verð-
um að gera þeim kleift að læra
ný störf og auðvelda þeim að að-
lagast nýtækninni.
Nýjustu tölur um fjölda at-
vinnulausra í Bandaríkjunum voru
birtar skömmu eftir að viðtalið
við David Mowery fór fram. Þeir
eru nú taldir vera um 6 prósent,
en það er lægri tala en í ij'ölda
mörg ár.