Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
33
Margt óljóst eftir
flugslysið í Detroit
KENNINGAR sem í upphafi voru
settar fram um að vélarbilun
hafi átt sér stað þegar farþega-
flugvél bandaríska flugfélagsins
Northwest Airlines fórst við
Detroit hafa verið afsannaðar
eftir að báðir Pratt & Whitney-
hreyflar vélarinnar fundust á
slysstað nokkurn veginn í heilu
lagi. Fundust engin merki um
stórvægilega vélarbilun. Um
þetta mál er fjallað í tímaritinu
Flig’ht, sem kom út í síðustu viku.
Oryggismálanefnd samgöngu-
málaráðuneytis Bandaríkjanna
sagði fyrir skömmu að svo virtist
sem hreyflamir hefðu báðir verið
knúnir áfram af nánast sama afli
þegar flugvélin skall til jarðar.
Vísbendingar um stöðu væng-
barða stangast á og verður því
erfitt verkefni að komast að því
hvað olli slysinu og þarf að rann-
saka hvert brot úr flaki vélarinnar
nákvæmlega. Gæti það tekið allt
að því eitt ár.
Þeir sem rannsaka flugslysið
hafa beint sjónum sínum að hinum
svokölluðu svörtu kössum, sem
fundust fljótlega. Hvorki segul-
bandsupptaka, sem skráir notkun
tækjabúnaðar, né hljóðupptaka úr
flugstjómarklefa bera því vitni að
vængbörðin hafi verið í réttri stöðu
fyrir flugtak.
Það væri í samræmi við gögn,
Reuter
Afdrifarík
mótmæli
Maður einn varð fyrir jám-
brautalest er hann var að
mótmæla vopnasendingum
Bandaríkjamanna til Mið-
Ameríkuríkja ásamt skoðana-
bræðmm sínum á þriðjudag.
Fólkið hafði raðað sér á brautar-
teinana og hugðist knýja lestar-
stjórann til að nema staðar með
þeim hætti. Þegar ljóst var að
lestarstjórinn hafði ekkert slíkt
í huga vék fólkið sér undan í
ofboði, en forsprakki mótmæl-
anna, S. Brian Willson, var seinn
í svifum og varð undir lestinni.
Missti hann annan fótinn við
nára og hlaut höfuðáverka.
Myndin sýnir skelfingu lostna
eiginkonu hans, Holly Rauen,
grípa um höfuð sér í angist og
örvæntingu.
sem benda til þess að stöðugar við-
varanir hafi borist, þann skamma
tíma, sem vélin var á lofti. Hún
komst aðeins í um 16 metra hæð.
Sjónarvottar hafa greint frá því að
nef flugvélarinnar hafi risið óvenju
mikið eftir að vélin var hafín á loft.
En í lok síðustu viku sögðu vitni
að þeir hefðu séð vélina fara á loft
og þá hefðu vængbörðin verið í
réttri stöðu. Flugmaður annarrar
vélar frá Northwest-flugfélaginu,
sem beið flugtaksleyfís, kvaðst
handviss um að ekkert hefði verið
athugavert við stöðu vængbarð-
anna.
Öryggiskerfi um borð á að vara
áhöfn véla af gerðinni MD-80 við
ef eitthvað er að vanbúnaði fyrir
flugtak. Bæði heyrist viðvörunar-
hljóð ef ekki er allt með felldu og
sérstök tölvustýrð rödd gellur við.
Ekkert slíkt var að heyra á hljóð-
upptökunni úr flugstjómarklefan-
um. Annað hvort var viðvömnar-
kerfið bilað eða vængbörðin í réttri
stöðu.
Einnig vaknar sú spuming hvort
gengið hafi verið úr skugga um öll
nauðsynleg tækniatriði fyrir flug-
tak. í hljóðupptökunni kemur hvergi
fram að athugað hafí verið hvort
tæki væm í lagi og ekki heyrist að
tekið hafi verið í handfangið til að
stilla vængbörðin.
Reuter
Finnska dómsmálaráðuneytið vill gjaraan fá nánari upplýsingar um
ferðir Mathias Rusts innan finnskrar lofthelgi. Myndin sýnir for-
eldra Rusts og bróður koma til réttarhaldanna yfir honum í Moskvu
í gærmorgun.
Finnar vilja yf ir-
heyra Mathias Rust
Helsinki, frá Lars Lundsten, frétt&ritara
FINNSK stjórnvöld undirbúa nú
beiðni til yfirvalda í Sovétríkjun-
um um að fá að yfirheyra
vestur-þýska ofurhugann Mathi-
as Rust.
Réttarhöld yfír Rust em hafin í
Moskvu en sem kunnugt er lenti
hann einkaflugvél sinni á Rauða
torginu þar í borg í maímánuði.
Finnska dómsmálaráðuneytið er
í þá mund að ljúka við formsatriði
beiðninnar, að því er fréttastofa
Morgunbladsins.
fínnska ríkisútvarpsins sagði í gær.
Ráðuneytið vill fá upplýsingar um
ferðir Rusts innan fínnskrar loft-
helgi en um hana þurfti hann að
fljúga til að komast til Sovétríkj-
anna. Finnska loftferðaeftirlitið
missti af Rust er hann var staddur
við suðurströnd Finnlands. Var þá
hafín leit þar eð óttast var að hann
hefði hrapað í hafíð. Skömmu síðar
bámst fréttir um að hann hefði lent
flugvél sinni á Rauða torginu.
Sviss:
Græn engi urðu að
hijóstri á einni nóttu
Ferðir um Gotthard hefjast að nýju
ZUrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Járabrautasamgöngur milli norður og suður Evrópu um Gotthard-
göngin í svissnesku Olpunum hefjast að nýju í dag. Þær féllu niður
fyrir rúmri viku vegna flóða, en úrhellisrigning oUi skemmdum beggja
vegna ganganna. Járnbrautateinar og vegir fóra á kaf og straum-
þungi vatnsins sópaði burtu vegarköflum á nokkrum stöðum. Astandið
var verst í kantónunni Uri, sem er í miðhluta Sviss.
Lestir komast enn ekki leiðar
sinnar norðan við Gotthardgöngin,
en farþegar, sem vilja heldur fara
um þau en taka á sig krók og fara
um S. Bemardino eða Simplon, em
fluttir með rútubílum milli Fluelen
og Göschenen, en það er um 30 km
leið. Þetta tefur ferðina yfír fjall-
garðinn um klukkustund.
Búist er við að viðgerðum á einu
spori jámbrautarinnar verði lokið á
þriðjudaginn kemur og þá eiga sam-
felldar lestarferðir um eina mikil-
vægustu samgönguæð Evrópu að
hefjast á ný. Leiðin er enn lokuð
fyrir almenna bílaumferð.
Hávaðinn og lyktin af
ánni barst langar leiðir
Göschenen stendur við norðurhlið
Gotthardganganna í kantónunni
Svíþjóð:
Bofors seldi
Irönum byssupúður
Stokkhólmi, Reuter.
f GÆR sökuðu sænsk tollayfirvöld Bofors-fyrirtækið og önnur fyrir-
tæki Nobel-samsteypunnar um að hafa tekið þátt í að flytja 6000
tonn af byssupúðri til íran á áranum 1984-’87 í trássi við alþjóðleg-
ar reglur.
Hans Olsson starfsmaður tolla-
lögreglunnar sagði fréttamönnum
að skipsfarmar með byssupúðri,
sem keypt hafði verið í Hollandi,
hefðu hafnað í íran. Sænsk yfírvöld
fengu falsaðar skýrslur í hendur
sem sýndu Júgóslavíu sem ákvörð-
unarstað.
í öðm tilviki keypti Nobel Kemi,
sem er angi af Nobel-samsteypunni
eins og Bofors, byssupúður í Júgó-
slavíu og sendi það til íran með
viðkomu í S-Afriku. Einnig keypti
fyrirtækið sprengjuefni frá Frakk-
landi undir því yfírskyni að það
væri handa sænska hemum. Eftir
mánuð í höfninni í Gautaborg var
efnið lestað um borð í íranskt skip.
Ákærumar era byggðar á rann-
sóknum á vopnasölu ýmissa fyrir-
tækja Nobel-samsteypunnar.
Uri. Guðrún Vemharðsdóttir, íslensk
stúlka sem er gift svissneskum jám-
brautastarfsmanni, er búsett þar.
Hún sagðist hafa gáð oft til veðurs
á mánudaginn fyrir viku og vonað
að rigningunni myndi linna af því
að þau hjónin ætluðu að leggja upp
í gönguferðalag á þriðjudagsmorg-
un. En það rigndi stanslaust og um
miðnætti aðfaranótt þriðjudags
hrökk hún upp frá svefni við hávað-
ann í þramu sem fylgdi eldingu sem
sló niður í miðju þorpinu.
„Spennan og ókyrrðin í loftinu
þessa nótt var gífurleg. Við búum
hátt yfír ánni Reuss í 200-300 metra
fjarlægð en hávaðinn í henni var svo
mikill að við heyrðum hann alla leið
inn til okkar," sagði Guðrún. „Það
var jarðhran um allt og áin reif gróð-
ur og steina á árbakkanum með
sér. Þriggja metra háir hnullungar
ultu með henni. Það var sterkur
fnykur af ánni og jörðinni sem hún
bar með sér.
Rafmagnið fór af í þramuveðrinu
og það var símalaust. Upp úr klukk-
an eitt um nóttina kom hingað
maður og sagði okkur að það hefði
flætt yfír jámbrautateinana og inn
í stöðina. Eftir það gátu engar lest-
ir farið um Gotthardgöngin.
Almannavamakerfið fór í gang
klukkan rúmlega tvö þar sem óttast
var að uppistöðulón hér fyrir ofan
myndi bresta. Mesta hættan var yfír-
staðin um hálffjögur og þá fór ég
út til að hjálpa til við að hreinsa í
járnbrautastöðinni." Maður Guð-
rúnar stjómar brottferðum járn-
brautalesta í Göschenen.
„Næsta dag gengum við út til að
sjá ummerkin um óveðrið. Það var
ótrúlegt um að litast. í dal nokkrum
þar sem áður vora græn engi var
gtjót í hrúgum og ekkert grænt að
sjá. Vegir voru sundurgrafnir og
þorpin sambandslausar eyjur. Við
hittum Þjóðvetja sem skildu ekki af
hvetju þeir gátu ekki haldið ferð
sinni áfram. Þeir skildu að það hefði
flætt yfír vegina en gátu ekki trúað
því að á sumum stöðum var alls
enginn vegur lengur. Ain hrifsaði
þtjár af fjóram akreinum hraðbraut-
arinnar með sér á nokkuð löngum
kafla og jámbrautir eyðilögðust. Ein
jámbrautagöng hér fyrir ofan era
full af sandi og gróðri. Það mun
taka marga mánuði að hreinsa þau.
Skaðinn sem óveðrið olli er smátt
og smátt að koma í ljós. Mikill snjór
og snjóskriður bráðna en það er erf-
iðara að ráða við jarðskriður.
Fólkið tók hættunni með stillingu.
Það er vant snjóflóðahættu á þessu
svæði og er oft sambandslaust við
umheiminn í nokkra daga á hveijum
vetri. Það veit að þyrlan kemur fyrr
eða seinna með allar nauðsynjar.
En það hefur aldrei liðið svona lang-
ur tími milli lestarferða frá Göschen-
en síðan Gotthardgöngin vora opnuð
árið 1882.“
Rigningarnar hafa
valdið milljarða skaða
Kýr, geitur og svín drápust í
óveðrinu í Uri og nokkrar fjölskyldur
misstu allt sitt í flóðinu en ekkert
mannslíf glataðist. Reuss hefur oft
áður flætt yfír bakka sína en fjár-
skaðinn hefur aldrei verið eins mikill
og nú. Rigningunum í vor og sumar
er kennt um flóðið fyrir rúmri viku.
Sérfræðingar telja að tijádauði og
þéttriðið samgöngunet kantónunnar
hafi einnig stuðlað að ósköpunum.
Skógar og gróðurlendi taka við mun
meiri vætu en hijóstur og malbikað-
ir vegir. Vatnið streymir óhindrað
eftir þeim og eykur vatnsmagnið í
lækjum, ám og vötnum til muna I
miklum rigningum.
Hundruð sjálfboðaliða aðstoða nú
við að hreinsa eftir flóðin í Sviss.
Söfnun er hafín til stuðnings þeim,
sem verst urðu úti, og milljónir
franka hafa þegar safnast. Uri er
aðeins síðasta og versta dæmið um
tjónið sem illviðrið í sumar hefur
valdið víða í landinu.
Frakkland:
Skart-
gripa-
þjófnaður
Cannes, Reuter.
SKARTGRIPUM að verðmæti
1,7 milljónir Bandaríkjadala
var stolið í borginni Cannes sl.
laugardag.
Brotist var inn í hús al-Saud
Nawaz bin Abdulaziz, bróður
Fahds, konungs Saudi-Arabíu
og þaðan stolið skartgripum
og 410.000 dölum í peningum.
Franska lögreglan telur að vit-
orðsmaður sé í þjónaliði húss-
ins.
Kína:
Rottur sólgnar
í eitur
Peking, Reuter.
BÓNDI í Kína segist hafa fund-
ið upp rottueitur sem laði rottur
úr holum sínum á innan við
15 mínútum.
Uppfínningamaðurinn, Qiu-
Mantun, hefur ræktað og
rannsakað rottur og mataræði
>eirra í 28 ár.
Blaðamaður, sem fór með
Mantun í komgeymslur, segir
að eftir að eitrinu hafi verið
hellt við rottuholur hafí liðið
innan við 15 mínútur þar til
rottumar tóku að flykkjast að.
Tveimur tímum seinna var
safnað saman 21 rottuhræi.
Prófessor við Hebei-tækni-
háskólann hefur staðfest þessa
virkni eitursins.
A-Þýskaland:
Landamæra-
vörður flýr
Berlin, Reuter.
AUSTUR-þýskur einkennis-
klæddur landamæravörður
notaði tækifærið þegar lög-
reglumenn voru annars hugar
og komst óséður yfír landa
mærin til Vestur-Þýskalands.
Maðurinn sem er 41 árs og
hefur starfað við landamæra-
vörsiu sl. 15 ár segist óánægð
ur með stjómmálaástand
heimalandi sínu.
Stuðningsmenn
Liverpool fram-
seldir til Belgíu
Brussel, Rcuter
KRÖFUNNI um að réttarhöld
in yfír mönnunum 26 sem svara
til saka fyrir lát á 39 manns á
íþróttavellinum í Heysel í
Belgíu yrðu haldin í Bretlandi
var haftiað. Mennimir vora í
hópi stuðningsmanna Liverpool
Lögfræðingur 11 þeirra sem
sakaðir eru, telur að þeir muni
ekki fá réttláta meðferð í
Belgíu. Ekki er vitað hvort
hver og einn mannanna verður
látinn svara til saka fyrir öll
morðin eða fyrir lát einstakra
stuðningsmanna Juventus-liðs
ins.
Belgískar herflugvélar flytja
mennina frá Bretlandi um helg-
ina.