Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 03.09.1987, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987 Tveir Sykurmolar Ekkert gaman að spila bara fyrir fólk sem elskar mann Eins og komiA hefur fram á Rokksfðunni var lag Sykurmolanna Ammœli valið lag vikunnar f Melody Maker, einu stœrsta tónlistartfma- riti Bretlands. í framhaldi af þvf hélu þau Einar örn og Björk utan til viðtals við MM og fleiri bresk tónlistarblöð. Rokksfðan leitaði til þelrra skömmu eftir að þau sneru aftur og Innti þau eftir þvf hvað hefði átt sár stað ytra. Platan með Ammaeli var gefin út af One Little Indian og fjórum dögum síöar var hún valin Single of the Week í MM. Það hefur gert okkur heimsfræg á Islandi, en fólki má benda á að það eru 52 vikur í árinu, þannig að þetta er ekki það mikið mál. Það komst þó ýmislegt á stað í breska tónlistarheiminum og orð- spor Sykurmolanna barst víða. í kjölfar þess ákvað One Little Indian að fá okkur út til viðtals við bresku popppressuna. Við vorum viku ytra og ákváðum svo að fara upp aftur, enda ekki ástæða til að bíða. Á þess- ari viku fórum við í viötal hjá Melody Maker, Sounds, Record Mirror, Face og Underground, og komum í viðtal í sjónvarpsþátt sem sendur er út vikulega í kapalkerfi í Bandaríkjun- um. Hvenær kemur næsta plata út f Bretlandi. Næsta plata verður með laginu Cold Sweat og hún kemur út um miðjan september. Stór plata kemur síðan út í byrjun nóvember. Cold Sweat er tilbúið til útgáfu, en það verður látið bíða aðeins til að sjá hvað Ammæli gerir. Það er vilji fyrir því hjá One little Indian og okkur að David Thomas til íslands David Thomas, fyrrum söngvari bandarfsku hljóm- sveitarinnar Pere Ubu, er væntanlegur til íslands til hljómleikahalds f næstu viku. Pere Ubu var ein merkileg- asta hljómsveit sem fram hefur komið í Bandaríkjunum, og þá ekki síst vegna framlags David Thomas, sem kallaður hefur verið fyndnasti maður rokksög- unnar, án þess þó að vera skemmtikraftur. David kemur hingað til lands einn síns liðs, en einhver íslenskur bassaleikari verður fenginn til að leika með honum. Davið heldur tónleika hér 10. og 11. september, í Casa- blanca og Abracadabra. gera hljómsveitina ekki hljómsveit sem á bara eitt lag. Við höfum þeg- ar náð að vekja athygli fyrir sér- stæða ímynd og sérstæða texta og framhaldiö er að nýta það skipulega og halda haus. Stóra platan er reyndar líka fullbú- in, en hún bíður einnig eftir rettum útgáfudegi. Við eru ekki að bíða eft- ir jólamarkaði, hjá okkur eru jól á hverjum degi. Stendur það til að þið haldið tónleika f Bretlandi á næstunni? Æskilegt og hefðbundið framhald af þeim viðtökum sem Ammæli hef- ur fengið væri það að við myndum halda kynningartónleika í Bretlandi á næstunni. Það er einmitt verið að meta það núna hvort ástæöa sé til og ef af því verður, þá verður það nú í enda september. Hvað varðar tónleikaferðina um meginland Evrópu, þá er það á allt annarri línu. Það verður einskonar hljómsveitapakki One Little Indian, kynning á því sem það fyrirtæki er að gefa út. En hvað með Hollywoodtónleik- Það verður af nógu að taka fyrir þá er hyggjast hlusta á lif- andi tónlist í Reykjavfk í kvöld. Sex hljómsveitir og einn söngv- ari koma fram á fjórum stöðum, á Hótel Borg, í Casablanca, Holly- wood og Norræna húsinu. Á Borginni leikur Stuðkompaníið með Blátt áfram sem gest kvölds- ins. Stuðkompanfið þarf vart að kynna í Ijósi vinsælda fyrstu plötu hljómsveitarinnar sem kom út í vor, en Blátt áfram varð í öðru sæti hljómsveitarkeppninnar í Húsafelli í sumar og þótti standa sig með ágætum á Rykkrokktón- leikum Fellahellis. Mosfellingarnir í Gildrunni hafa spilað mikið undanfarnar tvær vik- ur eða svo og þeir verða í Casa- blanca í kvöld. Víst er að þar verður spilað hart rokk að hætti Gildrunn- ar. í Hollywood verður mikið um- stang, en þar leika Óðmenn endurreistir rokkblús ættaðan frá John Mayall og frumsamda tónlist sem var á meðal þess áhugaverð- asta sem hér var gert á árum áður. Tríó Björns Thoroddsen mun einn- ig leika með heiðursgestinum Halldóri Péturssyni, saxistanum kunna, sem kemur frá Svíþjóð gagngert til að spila þetta kvöld. Sykurmolinn í pylsuendanum verð- ana? Hvernig komu þelr til? Við erum tónleikahljómsveit og við þurfum aö spila á tónleikum til þess að geta unnið okkar lög. Okkar tónlist er ekki samin með plötuupp- töku í huga, enda er flest það sem viö tökum upp tekiö upp sem á tón- leikum væri. Okkur þótti þaö síðan skemmtilega biluð hugmynd að spila með Óðmönnum og jasshljómsveit Björns og það átti sinn þátt í að við létum til leiðast. Það er ekkert spennandi að spila bara fyrir fólk sem elskar mann. Auk þess er enginn munur á því að spila á Hótel Borg eða spila í Hollywood, það er ekki par munur á þessum stöðum. Það verður ögrun fyrir okkur að spila fyrir fólk sem ekki hefur heyrt í okkur og við fáum svörun frá áhey- rendum sem hvetur okkur áfram. Nú er auglýstur leynigestur. Það kemur fram með okkur hinn ótrúlegi Johnny Triumph, sem kynnir nýtt dansspor, dansspor framtíðar- innar og sá sem ekki lærir það, hann er ekki með. ur síðan bílskúrshljómsveitin Sykurmolarnir hverrar liðsmönn- um hefur nýlega hlotnast sá heiður að eiga lag vikunnar í breska blað- inu Melody Maker. [ Norræna húsinu leikur Hörður Torfason fyrir tónleikagesti og kynnir þá eflaust væntanlega hljómplötu sem hann hefur þegar lagt síðustu hönd á, en kunnugir herma að plata sú eigi eftir að koma mörgum á óvart. Ljósmynd/BS Birgir Haraldsson, gítarleikari Gildrunnar. Tónleikar íkvöld Dada Spilagleðina má ekki vanta Hljómsveitin Dada hefur ekkl verið áberandi í íslenska popp- heiminum að undanförnu, en sveftarmeðlimir hafa verið f hljóðverí að vinna að plötu. Nú er platan tilbúln og kemur út á næstu dögum. í kjölfar þessa ætla Dadamenn að fá til liðs við sig fleiri hljóðfæraleikara og fara að halda tónleika af miklu kappi. Hefst sú tónleikalota á tónleikum f Evrópu f kvöld og föstudags- og laugardagskvöld einnig. Rokksíðan náði tali af Dada- mönnum og bað þá segja frá tilurð hljómsveitarinnar. Hljómsveitin var stofnuð í vor og þá til að vinna úr því efni sem kemur út nú næstu daga. Af þeim þrem sem í hljómsveitinni eru koma tveir úr hljómsveitinni Bogart, þeir ívar og Jón Þór, en Bjarni hefur víða verið. í hinni eiginlegu hljómsveit er þrír, eins og áður sagði, en í hópinn bætast þrír aðstoðar- hljóðfæraleikarar, þau Edda Borg Ólafsdóttir, Kjartan Valdimars- son og Jón Borgar Þorstéinsson. Þau verða einskonar tónleikavið- bót fyrst um sinn, en við þrír verðum áfram sem hljóðvers- kjarni og vinnum þar aö því efni sem spilað veröur. Eins og er kemst ekkert annað að en að spila og kynna þaö sem við erum að gera og plötuna sem út kem- ur. Nú eru textar á plötunni á ensku sem sejnt verður talið söluvænlegt á íslandi. Við vorum ekki mikið að hugsa um það þegar við vorum að taka þessi lög sem á plötunni verða. Það má segja að það hafi verið nærri tifviljun að texatrnir urðu á ensku en ekki á íslensku. Það eina sem við vorum að hugsa’var að gera tónlistina eins vel úr garði og unnt væri. Textar og tónlist féllu vel saman og því varð þetta eins og það varð. En hvað neð annað sem þið hafið á efnisskránni, eru þau lög einnig með enskum textum? Já, að vísu. Það er þó ekki svo að það sé meðvituð stefna hljóm- sveitarinnar að semja lög með enskum textum. Það má allt að því segja sem svo að við tókum ekki eftir því fyrr en eftirá. Það má alls ekki líta svo á aö við séum að gera okkur vonir með að komast á erlendan markað. Hver semur tónlist og texta? ívar og Jón Þór semja allt. Lftið þið á hljómsveftina sem tónleikasveit eða sem dans- hljómsveit? Frekar tónleikasveit, en við leggjum áherslu á að spila van- daða tónlist sem getur allt eins kallast danstónlist. Hvað heldur ykkur við ef nið? Það er tvímælalaust spila- gleði. Það er almennt aö fólk heldur að hljómsveitir fari á stað til þess eins aö komast áfram, það er að byrja á vitlausum enda. Tónlistarmenn verða að hafa í sér spilagleðina til þess að geta gert eitthvað sem á möguleika á að ná vinsældum. Bjöm Thoroddsen er að undirbúa ferð til Norðurlandanna með trfói sínu. Stuðkompanfið fagnar sigrí á Músfktilraunum Tónabæjar. Upphaf frægðarferilsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.