Morgunblaðið - 03.09.1987, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
57
Björn Borg
slær
sér upp
Við sögðum frá því nú á laugar-
daginn að sænska tennis-
stjaman Bjöm Borg og kærastan
hans, hún Jannike Björling, væm
skilin að skiptum. Jannike er nú
flutt í íbúð systur sinnar í Stokk-
hólmi, ásamt tveggja ára syni þeirra
Bjöms, sem heitir Robin. Bjöm
stundar hins vegar hið ljúfa lff í
London, og sést þar mikið á helstu
skemmtistöðum.
Meðfylgjandi mynd var tekin af
tenniskappanum á næturklúbbnum
„String Fellows" á dögunum, og
eins og sjá má er hann í góðum
félagsskap. Fylginautur hans þama
heitir Mandy Smith, og mun vera
16 ára poppsöngkona. Hún er ung,
en alls ekki óreynd, því hún var
lagskona Bills Wymans, bassaleik-
ara Rolling Stones, þegar hún var
aðeins 13 ára.
Bjöm, sem nú er 31 árs, hitti
Janniku fyrst fyrir 3 áram, þegar
hún var aðeins 17 ára. Það var í
fegurðarsamkeppni á diskóteki í
Stokkhólmi, þar sem Jannike var
þátttakandi, en Bjöm dómari. Jann-
ike tapaði keppninni, en vann hjarta
Bjöms, en þó greinilega ekki til
varanlegrar eignar.
Dolly Parton
eir sem fylgjast með holdafari
frægðarfólks vita eflaust að
Dolly Parton hefur verið í megran-
arkúr upp á sfðkastið. Árangurinn
hefur ekki látið á sér standa, Dolly
hefur lést um tæp 20 kíló, og er
nú gjörbreytt manneskja.
Dolly hefur hingað til verið
þekktust fyrir að kyija kúreka-
söngva, en nú er hún í þann mund
að taka við stjóm nýs sjónvarps-
þáttar hjá ABC-sjónvarpsstöðinni í
Bandaríkjunum, þar sem frægðar-
og hæfíleikafólk á að troða upp og
spjalla svo við Dolly. Til að byija
nieð ætlar Dolly að fá til sín fólk
eins og Jane Fonda, Lily Tomlin
og Lindu Ronstadt, auk vöðvafjalla
frá r.ektardanssveinastaðnum Chip-
Pendales.
Það mun vera töluvert í húfí fyr-
fr sjónvarpsstöðina, því sagt er að
þátturinn hennar Dollyar eigi að
kosta 1,6 milljarða íslenskra króna.
Ekki hefur Dolly samt miklar
áhyggjur af að aðdráttarafl hennar
sé ónógt: „Við þurfum ekki að ótt-
ast samkeppnina, því ég er strang-
asti gagnrýnandi sjálfrar mín, og
ág keppi aðeins við sjálfa mig.
Það ætti því að vera nóg að sjá
fyrir áhorfendur, þó að þeir sjái nú
20 kflóum minna aíf Dolly en áður.
............................................................................................................................................................... '
Luktir, samlokur, perur, luktarspeglar, luktargler, öryggi,
leiðsluskor, bilavír, þokuljós, vinnuljós, snúningsljós, rofar,
Releytengi.
Borgartúni 26,
sími 622262.
gufuböð
raunverulegtgufubað með rakrigufu og
þœgilegum hita
TTTT
Það slaknar á vöðvum, sviti sprettur út
um allan líkamann og blóðstreymi eykst
Ró og vellíðan engu lík
Tíl sýnis í deild okkar (nr. 36) á sýningunni Veröld innan
veggja
Munið ERUM í HÖLLINNI
sýningarafsláttinn VERCLDÍNS7
innan veggja
LAUGARDALSHÖLL
VV VATNSVIRKINN HF.
^ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
mSm LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 - 673416
Goð-
heimar
SIGTÚNI 3
Leigjum út
glæsilegan veislusal
með öllu tilheyr-
andi.
Er ekki kominn tími til að halda árshátíð-
ina, starfsmannahófið eða tækifæri-
sveisluna í glæsilegum veislusal með
þjónustu eins og hún gerist best?
Smá og stór afmæli
Ættarmót
Erfidrykkjur
Hádegisverððarbod
kaffisamsæti
Kvöldverðarboð
Brúðkaup
Árshátíðir
Fundir
Ráðstefnur
o.fl. o.fl.
í Goðheimum getur þú átt ógleymanlegt kvöld
þar sem veislugestir njóta þess besta í mat,
þjónustu og umhverfi, — fyrir ótrúlega hag-
stætt verð.
Við sjáum um allt:
Mat og drykk að eigin vali
íöllum verðflokkum.
Þjónustu faglærðra manna.
Hljómsveit, einsöngvara,
plötusnúð . . . við útvegum
allt sem henta þykir á góðu
kvöldi.
Þetta kostar allt minna en
þig grunar — og það sem
meira er, þú þarft ekki að
greiða sérstakt leigugjald
fyrir salinn.
Hafðu samband í síma 673111.
Opið hús tfyrir fólag eldri borgara í
Rey kjavík f rá kl. 13.00—17.00.
Kaffiveitingar, skemmtiatriði.
Einkasamkvæmi 5. september
frá kl. 19.00—02.00.