Morgunblaðið - 03.09.1987, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1987
67^
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI OLYMPIULEIKANNA
Sætursigur
ÞAÐ voru ánœgðir en fáir — allt of fáir — áhorfendur sem yfir-
gáfu Laugardalsvöllinn f gærkvöldi eftir aö íslenska ólympíuliðið
hafði lagt það austur-þýska að velli með tveimur mörkum gegn
engu í bráðskemmtilegum og vel leiknum leik. íslensku áhuga-
mennirnir, og Guðmundur T orfason, láku allir af mikilli tilfinningu
og gáfu sig alla f leikinn. Frækilegur sigur var uppskeran af 90
mfnútna þrotlausri baráttu liðsheildarinnarog áhorfendurfóru
ánægðir heim af góðri skemmtun.
Fyrstu mínútumar fóru í að
finna sig á vellinum, eða í
þreyfingar eins og sagt er um
stjómmálamenn. Það var greinilegt
strax að hafa þurfti
SkúliUnnar góðar gætur á þeim
Sveinsson þýsku, sérstaklega
skrifar vonl kantmennimir
fljótir hjá þeim en
íslenska vömin, sem var vel studd
af miðjumönnunum og framheijun-
um ef því var að skipta, lét hina
fljótu Þjóðvetja ekki slá sig út af
laginu og reyndar hafði enginn neitt
að gera í Guðna Bergsson sem virð-
ist alltaf geta hlaupið aðeins hraðar
en næsti maður.
Á 33. mínútu dró heldur betur til
tíðinda. Þjóðveijar komust í dauða-
færi en Friðrik varði meistaralega
og boltinn barst út til Guðmundar
Torfasonar. Hann gaf á Halldór
sem síðan gaf á Guðmund Steinsson
á markteig en hann var aðeins of
steinn og vamarmanni tókst að
bjarga í hom.
„Ekkl hendl"
Undir lok fyrri hálfleiksins fengu
strákamir tvö góð færi en inn vildi
boltinn ekki fyrr en Guðmundur
Torfason renndi honum á réttan
stað. Guðni tók aukaspymu út á
miðjum velli, Guðmundur Steinsson
framlengdi inn í teiginn með höfð-
inu og þar var nafni hans Torfason
og renndi í netið af stuttu færi.
Þjóðveijar töldu að boltinn hefði
farið í hönd Guðmundar en dómar-
inn dæmdi mark. „Ég kom ekki við
boltann með hendinni. Gummi
Steins skallaði inn fyrir og ég tók
hann nokkmm sinnum á lærið,
svona eins og í knattþraut KSÍ, og
renndi honum inn,“ sagði Guð-
mundur brosandi eftir leikinn.
Skömmu síðar komst Halldór einn
í gegn en markvörður Þjóvðeija
varði mjög vel. íslenska liðið lék
mjög vel um þetta leyti og það var
greinilegt að sjálfstraustið var í
góðu lagi hjá leikmönnum. Fljótlega
þjmgdist þó sókn þýskra og íslenska
liðið bakkaði óþarflega mikið um
tíma.
ísland -
A-Þýskaland
2 : 0
Laugardalsvöllur, forkeppni Ólympíu-
leikanna í knattspymu, miðvikudaginn
2 september 1987.
Mörk íslands: Guðmundur Torfason I
(51.) og Ólafur Þórðarson (79.)
Gult spjald: Damian Halata (78.) og
Frank Pastor (90.)
Dómari: Howard King frá Wales og
dæmdi hann vel.
Áhorfcndur: 1321.
Lið fslands: Friðrik Friðriksson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Guðni Bergsson,
Viðar Þorkelsson, Ólafur Þórðarson,
Ingvar Guðmundsson, Haildór Áskeis-
son, Pétur Amþórsson, Heimir
Guðmundsson, Guðmundur Steinsson,
(Sveinbjöm Hákonarson vm. á 76.
mln.), Guðmundur Torfason.
Lið A-Þýskalands: Weissflog, Pesch-
ke, Schlössel, Schulz, Halata, Mothes
Bredow, Steinmann, (Wittke vm. á 74.
mtn.), Pastor, Doll, (Richter vm. & 62.
mfn.), Wiickel.
„Hittl hann rosalega vel“
Tvívegis varð Friðrik að sýna hvers
hann er megnugur, varði meistara-
lega skot af stuttu færi og við
náðum aftur undirtökunum. Guð-
mundur Torfason skaut í hliðametið
úr aukaspymu og síðan kom seinna
markið.
Pétur gaf fyrir, Guðmundur Torfa-
son lagði út á Ólaf, rétt utan
vítateigs, sem skaut úr kyrrstöðu
og knötturinn söng í netinu.
Stórglæsieigt mark. „Ég hitti bolt-
ann rosalega vel, ég hef ekki hitt
hann svona vel í sumar - jú ann-
ars, einu sinni gegn KA,“ sagði
Ólafur eftir leikinn.
Þjóðveijar sóttu það sem eftir var
leiksins, en meira af kappi en for-
sjá og átti íslenska liðið ekki í
erfiðleikum með að veijast þeim.
Allirgóðlr
Það léku allir fslensku leikmennim-
ir hreint ljómandi vel, en Guðmund-
ur Torfason og Friðrik Friðriksson
voru þó bestir. Guðmundur eins og
kóngur, vann alla skallabolta og
hélt boltanum vel. Friðrik varði eins
og hann gerir best og var auk þess
mjög ömggur í öllu sem hann gerði.
í vöminni voru Viðar, Guðni og
Þorsteinn og léku þeir allir vel.
Guðni var þó sterkastur og batt
vömina vel saman. Það er þægileg
tilfinning að sitja í stúkunni þegar
Guðni er aftastur því hann virkar
svo öruggur að menn fá það á til-
fínninguna að það sé aldrei hætta
á ferð.
Á miðjunni voru vinnuhestamir og
baráttujaxlamir Ólafur og Pétur.
Halldór vann einnig vel og spilaði
mikið fyrir liðið. Ingar gætti stöðu
sinnar vel og því máttu hinir leika
fijálsar fyrir vikið. Heimir byijaði
frekar illa en óx með hverri mínútu.
Naftiamir Guðmundur Torfason og
_ Morgunblaðið/Júlíus
Isinn brotinn!
Guðmundur Torfason skorar hér fyrra mark íslands í leiknum í gær gegn
A-Þjóðveijum og braut þar með ísinn. Guðmundur lék stórvel og það má mik-
ið vera ef hann verður ekki í hópnum næsta miðvikudag þegar A-landsliðið
mætir Norðmönnum. Leikurinn í gær var mikil og góð skemmtun. Allir leik-
menn liðsins börðust vel og gáfu sig alla f leikinn.
Steinsson léku einnig vel og Svein-
bjöm var frískur þegar hann kom
inná.
Allir börðust af krafti í 90 mínútur
og það var reglulega gaman að
vara áhorfandi. Til hamingju strák-
ar og takk fyrir skemmtunina.
Los Angeles
Lakera
Litir: Hvítt/svart
smrvowíRSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á HORNIKIAPPARST/GS
0G GRETTISGÖTU
s:iimr
Hvítt/blátt
Heildsölubirgðir
Hvítt/rautt sími 10330
Verð kr. 5.910,-
póstsendum