Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
207. tbl. 75. árg._______________________________ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nýjar tillögur Bandar íkj astj ór nar í afvopnunarmálum:
Meðaldrægnm eldflaug-
um eytt á þremur árum
Leggja til mjög strangt eftirlit með framkvæmdinni
Forsetinn íJapan
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, kom i gær til
Tókýó, höfuðborgar Japans, til
að vera viðstödd opnun sýning-
arinnar „Scandinavia today“.
Hafa japanskir fjölmiðlar veitt
komu hennar milda athygli en
á föstudag gengur frú Vigdís
á fund Hirohitos Japanskeis-
ara. Verður hún til þess fyrst
íslenskra þjóðhöfðingja. Mynd-
in var tekin við komuna til
Narita-flugvallar í Tókýó en
þar tók á móti forsetanum full-
trúi japanska utanríkisráðu-
neytisins.
Sjá „Forsetinn hittir keisar-
ann ...“ á bls. 4
Washington, Reuter.
Samningamenn Bandaríkja-
stjómar í afvopnunarviðræðun-
um í Genf lögðu í gær fram
tillögur um upprætingu allra
Grænland:
Akveði sjálfir
hvalkvótann
Nuuk, frá NJ. Bruun, fréttaritara Morg-
unbladsins.
Frammámaður i samtökum
grænlenskra fiski- og veiði-
manna, Pavia Nielsen, fyrrum
landsstjómarmaður, telur, að
Grænlendingar verði sjálfir að
ákveða hvalkvótann ef Alþjóða-
hvalveiðiráðið heldur áfram að
skera hann niður.
Nielsen lét ofangreind ummæli
hann falla á ráðstefnu, sem græn-
lenskir ve'iði- og fiskimenn halda
um þessar mundir í lýðháskólanum
í Holsteinsborg. Sagði hann, að
búast mætti við einhveijum við-
brögðum í helstu viðskiptalöndum
Grænlendinga, t.d. áróðri gegn
grænlenskum útflutningsvörum, og
væri þá ráðið að taka til endurskoð-
unar bandarísku herstöðvamar í
landinu. Grænlendingar hafa leyfi
til að veiða 10 langreyðar og eru
þær nú komnar á land.
meðaldrægra og skammdrægra
eldflauga, „tvöföldu núlllausn-
ina“ svokölluðu. Eduard She-
vardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, er nú staddur í
Washington og mun eiga viðræð-
ur við Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta í dag, þriðjudag.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Hvíta hússins, sagði á blaðamanna-
fundi í gær, að í tillögunum væri
nákvæmlega tekið fram hvemig
eftirliti skyldi háttað en Bandaríkja-
menn telja það vera forsendu fyrir
trúverðugum samningum. í skrif-
legri yfirlýsingu frá Reagan forseta
sagði, að tillögumar væru sam-
hljóða fyrri samningsdrögum að
öðru leyti en því, að nú væri gért
ráð fyrir upprætingu fyrmefndra
eldflauga en ekki, að þeim yrði
aðeins fækkað. Sagði hann, að
meginatriðin væm:
— Uppræting bandarískra og
sovéskra eldflauga og skotpalla.
Meðaldrægum eldflaugum verði
eytt á þremur ámm en skamm-
drægum á einu.
— Bannað verði að endurbæta,
framleiða eða gera tilraunir með
eldflaugakerfí af þessum tegund-
um.
— Komið verði á fót umfangsmiklu
og raunhæfu eftirlitskerfí, sem
fylgst geti með framkvæmd tvö-
földu núlllausnarínnar um allan
heim.
Sveitarsljórnarkosningarnar í Noregi í gær:
Framfaraflokkurinn
Reuter
Shevardnadze við komuna til
Washington.
Reagan sagði, að gert væri ráð
fyrir strangara eftirliti en áður hefði
verið rætt um enda gætu Banda-
ríkjamenn ekki sætt sig við annað
en fullkomið öryggi í þeim efnum.
„Sovétmenn geta nú sýnt í verki,
að þeir séu sammála okkur um að
eyða öllum meðaldrægum og
skammdrægum eldflaugum beggja
þjóðanna. Eg skora á þá að bregð-
ast vel við og ljúka einnig samning-
um um helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuvopna, “ sagði
Reagan í yfírlýsingunni.
Shevardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, mun í dag eiga við-
ræður við Reagan um afvopnunar-
málin og samskipti stórveldanna og
að því búnu við starfsbróður sinn,
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Persaflói:
vinnur mikinn sigur
Verkamannaflokkurinn tapar mestu — Kosningahneyksli í Ósló
Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
Framfaraflokkurinn er sigurvegari sveitarsljórnakosning-
anna í Noregi, sem fram fóru í gær. Samkvæmt tölvuspá, sem
birt var klukkan 23.30 að norskum tíma, fær hann 10,9% at-
kvæða á móti 6,3% í síðustu kosningum og verður þriðji stærsti
stjórnmálaflokkurinn í Noregi. Hægriflokkurinn tapaði nokkru
eins og spáð hafði verið en mest kemur á óvart mikið tap Verka-
mannaflokksins þvert ofan í allar
Tölvuspáin er talin áreiðanleg
þótt ekki hafi verið búið að telja
nema í 183 kjördæmum af 623 og
eins víst, að sigur Framfaraflokks-
ins verði stærri því að enn áttu
eftir að berast tölur frá ýmsum
stærstu bæjunum þar sem flokkur-
inn er sterkur. Fyrstu tölur frá
Ósló bentu til, að hann tvöfaldaði
fylgið og í sumum hverfum Björg-
vinjar er hann stærstur.
Hægriflokknum var spáð 24,7%
atkvæða og er það 1,7% minna en
í síðustu kosningum. Talið er víst,
að afleiðingamar verði þær, að
Rolf Presthus, forsætisráðherraefni
flokksins, víki fyrir Jan P. Syse,
talsmanni hans á þingi.
Kosningar eru mikið áfall fyrir
Verkamannaflokkinn, sem í skoð-
anakönnunum hafði verið spáð allt
. að 40% atkvæða. Tölvuspáin gaf
honum aðeins 36,4%, 2,5% minna
en síðast og mest er tapið í Ósló.
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra, hafði rétt fyrir miðnætti
ekkert látið í sér heyra um kosn-
ingaúrslitin. Sósíalíski vinstriflokk-
urinn virðist hins vegar ætla að
vinna verulega á og sagði formaður
hans, Erik Solheim, að fylgisaukn-
ingin væri að þakka einarðri
andstöðu við Framfaraflokkinn.
Kosningamar í Ósló voru mikið
hneyksli því að á 50 kjörstöðum
urðu menn uppiskroppa með at-
kvæðaseðil Framfaraflokksins.
Talið er, að um skemmdarverk sé
að ræða og verður hugsanlega að
endurtaka kosningamar. Þykir
líklegast að ýmsum andstæðingum
Framfaraflokksins hafi tekist að
hafa burt með sér af kjörstað at-
kvæðaseðla Framfaraflokksins en
ríkissaksóknari mun í dag biðja um
opinbera rannsókn á þessu máli. Á
sumum þessara kjörstaða var gripið
til þess ráðs að loka þar til nýir
seðlar bæmst en á öðrum var fólk
beðið um að skrifa nafn Framfara-
flokksins á hvíta pappírsmiða.
Formaður Framfaraflokksins,
Carl I. Hagen, var að sjálfsögðu
sigrihrósandi yfír gengi flokksins
og sagði, að skýringin væri fyrst
og fremst óánægja fólks með hina
flokkana. „Við höfum skýra stefnu
og erum henni trúir," sagði Hagen.
Arangurlaus
friðarferð
Bagdað, Reuter.
PEREZ de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, átti í gær viðræður
við ráðamenn i írak um hugs-
anlega lausn á Persaflóastrið-
inu. Kom hann til Bagdaðs frá
Teheran en íranir vilja ekki Ijá
máls á friðarsamningum nema
írökum verði refsað fyrir að
hafa hafið styijöldina.
Vestrænum stjómarerindrek-
um ber saman um, að de Cuellar
hafí ekki haft erindi sem erfíði í
friðarförinni og kemur hann til
New York á morgun, miðvikudag,
degi fyrr en ætlað var. Á sunnu-
dag sökuðu írakar írani um að
hafa gert stórskotaliðsárásir á
hafnarborgina Basra á sama tíma
og einkaþota de Cuellars var að
koma til Bagdaðs.
Belgíustjóm tilkynnti í gær, að
hún ætlaði að senda tundurdufla-
slæðara og eitt aðstoðarskip til
Persaflóa.