Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 17 SEPTEM Morgunblaðið/KGA MyndlBst Bragi Ásgeirsson Fimmtánda sýning Septem-hóps- ins var opnuð sl. laugardag og stendur til sunnudagsins 21. sept- ember. Að þessu sinni sýna sex meðlimir hópsins, þau Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Bene- diktsson, Hafsteinn Austmann, Jóhannes Jóhannesson, Kristján Daviðsson og Valtýr Pétursson. Tveir hafa kosið að sitja heima, þeir Karl Kvaran og Steinþór Sig- urðsson. Þetta er orðið langt úthald hjá þeim Septem-mönnum og er tvímælalaust einsdæmi í íslenzkri listasögu. Auk þess má geta að þrír meðlimanna, þeir Jóhannes, Kristján og Valtýr, voru meðal stofnenda Septembersýningahóps- ins, sem sýndi fyrst haustið 1947. Jafnframt mynduðu þeir ásamt nokkrum nú látnum myndlistar- mönnum lengi kjama Haustsýninga FÍM, eftir að Septembersýningam- ar lögðust niður. Þannig hafa þeir í raun haldið hópinn í 40 ár og allan tímann ver- ið áhrifavaldur í íslenzkri myndlist jafnt í félagsmálum sem í opinberri umræðu auk þess að vera þátttak- endur í flestum meiri háttar listsýn- ingum utan lands sem innan. Þetta teljast því nokkur tímamót hjá þeim félögum og hefði verið skemmtilegt, áð þess hefði verið minnst á veglegan hátt og allir núlifandi tekið þátt í sýningunni ásamt með sýnishomi verka látinna félaga. Þetta er tekið sérstaklega fram hér vegna þess, að ég veit til þess, að fjöldi ungs fólks gerir sér rangar hugmyndir um hlut þessara manna í listþróuninni — ýmist af vanþekk- ingu eða fyrir óvilhallar heimildir. Einnig vegna þess, að bleðill, sem nefnist sýningarskrá að þessu sinni, er samtökunum ekki samboðinn og hvað þá á þessum tímamótum. Það hefur víst fallið í minn hlut að rita listrýni um Septemhópinn frá upphafi og samanlagt hlýtur það að vera löng ritsmíð! — í hvert sinn, sem von hefur verið á sýningu þeirra félaga, hefur margur hrist höfuðið og sagt: „Þeir em alltaf eins, hvemig fara þeir að því að halda þetta út?“ En þeir hafa satt að segja oftar komið á óvart en hitt og fordómalausir sýningargest- ir gengið ánægðari heim af sýningu en þeir bjuggust við. Margar sýn- ingar hópsins hafa nefnilega verið bráðfallegar og mikilvægt framlag til íslenzkrar sýningaflóru og listar — og mikið gott var, að innan hóps- ins voru öfl, sem hiklaust hvöttu til áframhalds, þó að nóg væri vaf- alítið um úrtölur, ef ég þekki rétt... Það er merkilegt frá að segja, að þessi fimmtánda sýning hópsins ber alls engan svip þreytu eða upp- gjafar, því að sjaldan hafa menn verið hressari. Má nefna það, að upphengingin hefur að mínu viti aldrei verið frísklegri og íjölþættari. Mennimir, sem voru áður þekktir fyrir að hengja allar myndir eftir fastmótaðri reglu, þar sem óijúfan- leg lög voru um bil á milli mynda og hæð þeirra á vegg, sprengja nú öll þessi lögmál á mjög hnitmiðaðan og rökvísan hátt. Þetta hefur afar mikið að segja fyrir sýninguna í heild, og t.d. kem- ur Guðmunda Andrésdóttir loksins jafn sterkt fram og myndir hennar verðskulda, enda er framlag hennar ljómandi fallegt og myndir svo sem „í gróandanum" (37) og „Vorljóð" (39) em ákaflega lífræn málverk. Málverk Kristjáns Davíðssonar njóta sín mjög vel í upphengingu, sem hefur yfir sér mikinn stígandi og myndir hans „Flæðarmál" nr. 29 og 32, em magnþrungin verk. Jóhannes Jóhannesson er með óvenju litlar og látlausar mjmdir að þessu sinni, en hann er í réttum ham í einu stóm myndinni, „Stemma" (5). Valtýr Pétursson virðist ætla að nálgast óhlutlæga málverkið aftur og hefur strax fundið sig heima í myndinni „Foss“ (8). Af landslags- og sjávarmyndum Valtýs tók ég best eftir myndinni „Eyjar“ (15). Hafsteinn Austmann hefur sjaldan átt heillegri myndaröð á samsýn- ingu, og sem spannar klassískt myndform frá hans hálfu svo sem í myndinni „Hringferð" (18) til mynda ljóðrænnar útfærslu og end- umýjaðs litaskala, sem kemur fram í verkunum „Hreyfing" (25) og „Draugasaga" (26). Guðmundur Benediktsson staðfestir stöðu sína sem vaxandi myndhöggvari í bronsskúlptúrunum nr. 47 og 49. Septem-hópurinn ræktar með ágætum frekar vanmetið hlutverk nú á tímum bókmenntalegrar frá- sagnar í málverki, er hver pensil- stroka virðist tileinkuð goðafræð- inni og helgast af henni, hversu klasturleg sem hún nú er í lögun, lengd og breidd. Það þarf nokkuð til að vera læs á hið innra, ósýnilega rými, er fram kemur í mjmdum hins þroskaða abstraktmálara og vera móttæki- legur fyrir þeim skynrænu kennd- um, er þar birtast og kristallast. Og jafnvel þótt málarinn eða myndhöggvarinn noti hlutlæg form eða fígúrur í myndir sínar, þá er það þetta innra ósýnilega rými, sem á köflum hefur þau áhrif á jrfirborð- ið, að það tekur á sig ýmsar mjmdir efnis, samsetningar, hrynjandi, fyr- irferðar og þyngdar sem máli skiptir. Rými upplifaðrar, eðlisborinnar skynjunar... Við parketleggjum landið Reykjavík Egill Árnason hf. Parketval T eppaland—Dúkaland Akranes Málningarþjónustan Ólafsvík Litabúðin ísafjörður Pensillinn Blönduós Kf. Húnvetninga Sauðárkrókur Kaupfélag Skagfirðinga Ólafsfjörður Kahrs Kahrs Kahns Kahrs Kahps Kahrs parket Kahps Kahps Kahps Kahps Kahrs Valberg Akureyri Teppaland Húsavík Borg trésmiðja Egilsstaðir Trésm. Fljótsdalshéraðs Neskaup- staður Ársæll Guðjónsson Höfn KASK Vestmanna- eyjar Brimnes Hvolsvöllur Kf. Rangæinga Nú fæst Kahrs gæðaparket um allt land Keflavlk Dropinn Egill Árnason hf. Parketval Skeifunni 3, sími 91 -82111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.